Morgunblaðið - 03.01.2022, Side 24

Morgunblaðið - 03.01.2022, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022 HUNDAFÓÐUR Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes www.gaeludyr.is 30 ÁRA Kristján Helgi fæddist og ólst upp í Reykjanesbæ og býr þar. Hann er með BA- gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og hef- ur starfað hjá Fríhöfninni síðastliðin níu ár, m.a. sem verslunarstjóri og nú innkaupa- fulltrúi. Áhugamál hans eru fótbolti, hlaup og íþróttir almennt, útivist og samvera með fjölskyldu. Hann hefur sinnt félagsstarfi fyr- ir nemenda- og íþróttafélög í gegnum tíðina. Hann æfði fótbolta sem barn og unglingur með Keflavík og Víði Garði, en spriklar að- eins fyrir hreyfingu og félagsskapinn í dag. FJÖLSKYLDA Unnusta Kristjáns Helga er Ellý María Hermannsdóttir, f. 1995, förðunarfræðingur og starfsmaður Holtaskóla í Reykjanesbæ. Dætur þeirra eru Emma Katrín, f. 2018, og Arna Mjöll, f. 2021. Foreldrar Kristjáns Helga eru Gunnlaug F. Olsen, f. 1974, rekstrar- og framkvæmdastjóri hjá Körfuknattleiksdeild Keflavíkur, búsett í Reykjanesbæ, og Ævar Örn Jónsson, f. 1972, d. 2020, flugumferðarstjóri. Kristján Helgi Olsen Ævarsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú hefur þörf fyrir að brjóta upp hversdaginn á einhvern hátt í dag. Vernd- arenglar í dulargervi halda þér sólarmegin í lífinu. 20. apríl - 20. maí + Naut Gefðu því gaum sem þú lætur ofan í þig og reyndu að halda þig við það sem er hollt. Ekki tala niður til annarra, það hafa allir rétt á sínum skoðunum. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Sættu þig við það sem þú færð ekki breytt og leggðu þig fram um að auðga líf þitt með listum og lestri góðra bóka. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú kemst ekki hjá því að hagræða í lífi þínu á næstunni. Eina lausnin til að komast á réttan kjöl er að horfast í augu við hlutina. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Lausn verkefnis þíns liggur nær þér en þig grunar í fljótu bragði. Fólk stendur fast við bakið á þér. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Gerðu allt sem þú getur til að tryggja öryggi þitt og þinna. Það mun ein- hver koma þér á óvart í dag með ánægju- legum fréttum. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú átt inni að geta leitað til vina þinna um hjálp. Farðu ekki fram úr þér í hama- ganginum sem er allsráðandi í lífi þínu núna. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Gefðu þér tíma til útiveru því það hressir upp á sálarlífið. Finndu heppi- lega leið til að auðga andann, bækur, list- sýningar og fleira hjálpar. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Það er ástæðulaust að fá sekt- arkennd yfir öllu sem þú gerir fyrir sjálfa/n þig. Stökktu á samviskunni í smá stund. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Samræður þínar við vini þína eru óvenju skemmtilegar í dag. Allir í kringum þig sýna sínar bestu hliðar. Njóttu þess og alls hins góða sem tilveran býður upp á. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Farðu varlega í að taka ákvarð- anir um eitthvað sem tengist sameigin- legum eignum. Settu þér markmið, skráðu þau niður og þau munu rætast eitt af öðru. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Kapp er best með forsjá. Einhver þér nákominn treystir þér fyrir leyndar- máli. Kvöldið verður gott. svarar Þórarinn: „Um tvítugt mætti ég á stofnfund JC í Hafnarfirði. Stungið var upp á mér sem stofn- forseta. Sökum feimni hafði ég ekki kjark til að segja þau fáu orð: „Ég gef ekki kost á mér.““ Í JC er lögð mikil áhersla á ræðu- mennsku og skipulögð nefndastörf, sem gagnaðist Þórarni vel í flokks- starfinu og einnig sem landsritari og fund hjá Sjálfstæðisflokknum í Hafnarfirði og skráði sig þar í Stefni FUS til að kjósa frænda sinn í eitt- hvert embætti. Á fundinum var hann kosinn í ritstjórn Hamars, málgagns flokksins. Það leið ekki á löngu þar til hann hafði svo tekið að sér útgafu blaðsins á sinn reikning og ritstýrði því um nokkurra ára skeið. Spurður um önnur félagsstörf Þ órarinn Jón Magnússon fæddist í Bröttukinn 5 í Hafnarfirði 3. janúar 1952 og bjó í Firðinum í tæpa hálfa öld eða þar til hann flutti í Kópavog 2004. Þar býr hann í dag í Smárahverfinu, ásamt eiginkonu sinni, Oddfríði Steindórsdóttur. „Já, nú kemst ég ekki lengur upp með að segjast vera sextíu og eitthvað, svaraði Þórarinn, sem er sjötugur í dag. Oddfríður varð sjötug 28. október og eiga þau hjónin gullbrúðkaup á hennar næsta afmælisdegi. Um þessar mundir fagnar Þór- arinn því að sextíu ár eru liðin frá því að hann, þá tíu ára gamall, ákvað að gera blaðamennsku að ævistarfi. „Mér var þá boðið í skoðunarferð um ritstjórnarskrifstofur og prent- smiðju Morgunblaðsins eftir að hafa veitt viðtöku verðlaunum í teikni- myndasamkeppni barna. Ég var raunar þá þegar búinn að gefa út mín fyrstu blöð. Átta ára var ég nefnilega farinn að dreifa tímaritinu Alþýðumanninum í hús næstu ná- granna. Upplagið var fjögur eintök. Eins mörg og hægt var að fjölfalda með kalkipappír. „Ég gjörsamlega heillaðist af stemningunni í Morgunblaðshúsinu við Aðalstræti,“ heldur Þórarinn áfram. Fyrr en varði var hann far- inn að skrifa kynningar á erlendum hljómsveitum fyrir Morgunblaðið og á því herrans ári 1968, þegar Þór- arinn var 16 ára, var hann kominn með vikulega poppsíðu í blaðinu og jafnframt í Vísi. „Tveimur árum síð- ar bauð Jónas Kristjánsson mér fast starf fréttamanns á Vísi með því skilyrði að ég hætti skrifum fyrir Morgunblaðið. Hann samþykkti hins vegar að ég héldi áfram útgáfu Samúels, sem þá blómstraði. Kominn í draumastarfið átján ára afskrifaði ég frekara nám, en ég hafði sett stefnuna á stúdentspróf til að geta að því búnu sótt um starf á dagblaði,“ segir Þórarinn. Hann gekk í Barnaskóla Hafnarfjarðar og síðan í Flensborg þar sem hann lauk gagnfræðaprófi. Í báðum skólum kom hann að útgáfu skólablaða. Á unglingsárum mætti Þórarinn á varalandsforseti JC. „Ég hafði mik- ið meiri áhuga á poppi en nokkurn tíma pólitík,“ viðurkennir Þórarinn, en það kom ekki í veg fyrir að hann væri kjörinn formaður félaga yngri og eldri sjálfstæðismanna í Hafnar- firði og loks kosinn formaður full- trúaráðs félaganna. Jafnframt var hann fyrsti varamaður flokksins í bæjarstjórn og sat í ýmsum nefnd- um og ráðum í bænum og eins á landsvísu, var varaformaður kjör- dæmisráðs og kosinn í miðstjórn flokksins á landsfundi. Það gefur augaleið að vel hefur farið um Sam-útgáfu Þórarins þau fjórtán ár sem hún hafði aðsetur á hálfri hæð í Valhöll, en þá hafði með- al annars bæst við útgáfa á Húsum & híbýlum, Bleiku & bláu, Heims- mynd og Vikunni. Síðar tók Þór- arinn að sér að gefa út tímarit undir nafninu Lífsstíll fyrir MasterCard; hundrað síðna litprentað glans- tímarit sem kom út í sex ár. Var í fyrstu sent gullkortshöfum einum, en var síðan dreift inn á hvert heim- ili og fyrirtæki landsins. „Mér varð þá hugsað til Alþýðumannsins sem ég dreifði sem krakki í fjórum ein- tökum á Hraunkambinum í Hafnar- firði,“ segir útgefandinn fyrrver- andi. Spurður um tómstundir svarar hann því til að þau hjónin séu iðin við að fara á kaffihús, leikhús, söfn Þórarinn Jón Magnússon, fyrrverandi ritstjóri og útgefandi – 70 ára Ljósmynd/Sveinn Þormóðsson Fjölskyldan Þórarinn Jón, Oddfríður, börn, barnabörn og barnabarnabarn, sem hefur núna eignast bróður. Útgefandi frá átta ára aldri Þrettán ára Þórarinn Jón, í miðið, að afhenda liðsmönnum The Kinks mynd sem hann teiknaði fyrir umfjöllun sína um hljómsveitina í blaðinu. Til hamingju með daginn Reykjanesbær Arna Mjöll Kristjáns- dóttir Olsen fæddist 11. apríl 2021 kl. 01.39 á HSS í Reykjanesbæ. Hún vó 3.576 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Kristján Helgi Olsen Ævarsson og Ellý María Hermanns- dóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.