Morgunblaðið - 03.01.2022, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022
HUNDAFÓÐUR
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
30 ÁRA Kristján Helgi fæddist og ólst upp
í Reykjanesbæ og býr þar. Hann er með BA-
gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og hef-
ur starfað hjá Fríhöfninni síðastliðin níu ár,
m.a. sem verslunarstjóri og nú innkaupa-
fulltrúi. Áhugamál hans eru fótbolti, hlaup
og íþróttir almennt, útivist og samvera með
fjölskyldu. Hann hefur sinnt félagsstarfi fyr-
ir nemenda- og íþróttafélög í gegnum tíðina.
Hann æfði fótbolta sem barn og unglingur
með Keflavík og Víði Garði, en spriklar að-
eins fyrir hreyfingu og félagsskapinn í dag.
FJÖLSKYLDA Unnusta Kristjáns Helga
er Ellý María Hermannsdóttir, f. 1995, förðunarfræðingur og starfsmaður
Holtaskóla í Reykjanesbæ. Dætur þeirra eru Emma Katrín, f. 2018, og Arna
Mjöll, f. 2021. Foreldrar Kristjáns Helga eru Gunnlaug F. Olsen, f. 1974,
rekstrar- og framkvæmdastjóri hjá Körfuknattleiksdeild Keflavíkur, búsett í
Reykjanesbæ, og Ævar Örn Jónsson, f. 1972, d. 2020, flugumferðarstjóri.
Kristján Helgi Olsen Ævarsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú hefur þörf fyrir að brjóta upp
hversdaginn á einhvern hátt í dag. Vernd-
arenglar í dulargervi halda þér sólarmegin
í lífinu.
20. apríl - 20. maí +
Naut Gefðu því gaum sem þú lætur ofan í
þig og reyndu að halda þig við það sem er
hollt. Ekki tala niður til annarra, það hafa
allir rétt á sínum skoðunum.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Sættu þig við það sem þú færð
ekki breytt og leggðu þig fram um að
auðga líf þitt með listum og lestri góðra
bóka.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú kemst ekki hjá því að hagræða í
lífi þínu á næstunni. Eina lausnin til að
komast á réttan kjöl er að horfast í augu
við hlutina.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Lausn verkefnis þíns liggur nær þér
en þig grunar í fljótu bragði. Fólk stendur
fast við bakið á þér.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Gerðu allt sem þú getur til að
tryggja öryggi þitt og þinna. Það mun ein-
hver koma þér á óvart í dag með ánægju-
legum fréttum.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú átt inni að geta leitað til vina þinna
um hjálp. Farðu ekki fram úr þér í hama-
ganginum sem er allsráðandi í lífi þínu
núna.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Gefðu þér tíma til útiveru því
það hressir upp á sálarlífið. Finndu heppi-
lega leið til að auðga andann, bækur, list-
sýningar og fleira hjálpar.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það er ástæðulaust að fá sekt-
arkennd yfir öllu sem þú gerir fyrir sjálfa/n
þig. Stökktu á samviskunni í smá stund.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Samræður þínar við vini þína
eru óvenju skemmtilegar í dag. Allir í
kringum þig sýna sínar bestu hliðar. Njóttu
þess og alls hins góða sem tilveran býður
upp á.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Farðu varlega í að taka ákvarð-
anir um eitthvað sem tengist sameigin-
legum eignum. Settu þér markmið, skráðu
þau niður og þau munu rætast eitt af öðru.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Kapp er best með forsjá. Einhver
þér nákominn treystir þér fyrir leyndar-
máli. Kvöldið verður gott.
svarar Þórarinn: „Um tvítugt mætti
ég á stofnfund JC í Hafnarfirði.
Stungið var upp á mér sem stofn-
forseta. Sökum feimni hafði ég ekki
kjark til að segja þau fáu orð: „Ég
gef ekki kost á mér.““
Í JC er lögð mikil áhersla á ræðu-
mennsku og skipulögð nefndastörf,
sem gagnaðist Þórarni vel í flokks-
starfinu og einnig sem landsritari og
fund hjá Sjálfstæðisflokknum í
Hafnarfirði og skráði sig þar í Stefni
FUS til að kjósa frænda sinn í eitt-
hvert embætti. Á fundinum var
hann kosinn í ritstjórn Hamars,
málgagns flokksins. Það leið ekki á
löngu þar til hann hafði svo tekið að
sér útgafu blaðsins á sinn reikning
og ritstýrði því um nokkurra ára
skeið. Spurður um önnur félagsstörf
Þ
órarinn Jón Magnússon
fæddist í Bröttukinn 5 í
Hafnarfirði 3. janúar
1952 og bjó í Firðinum í
tæpa hálfa öld eða þar
til hann flutti í Kópavog 2004. Þar
býr hann í dag í Smárahverfinu,
ásamt eiginkonu sinni, Oddfríði
Steindórsdóttur. „Já, nú kemst ég
ekki lengur upp með að segjast vera
sextíu og eitthvað, svaraði Þórarinn,
sem er sjötugur í dag. Oddfríður
varð sjötug 28. október og eiga þau
hjónin gullbrúðkaup á hennar næsta
afmælisdegi.
Um þessar mundir fagnar Þór-
arinn því að sextíu ár eru liðin frá
því að hann, þá tíu ára gamall, ákvað
að gera blaðamennsku að ævistarfi.
„Mér var þá boðið í skoðunarferð
um ritstjórnarskrifstofur og prent-
smiðju Morgunblaðsins eftir að hafa
veitt viðtöku verðlaunum í teikni-
myndasamkeppni barna. Ég var
raunar þá þegar búinn að gefa út
mín fyrstu blöð. Átta ára var ég
nefnilega farinn að dreifa tímaritinu
Alþýðumanninum í hús næstu ná-
granna. Upplagið var fjögur eintök.
Eins mörg og hægt var að fjölfalda
með kalkipappír.
„Ég gjörsamlega heillaðist af
stemningunni í Morgunblaðshúsinu
við Aðalstræti,“ heldur Þórarinn
áfram. Fyrr en varði var hann far-
inn að skrifa kynningar á erlendum
hljómsveitum fyrir Morgunblaðið og
á því herrans ári 1968, þegar Þór-
arinn var 16 ára, var hann kominn
með vikulega poppsíðu í blaðinu og
jafnframt í Vísi. „Tveimur árum síð-
ar bauð Jónas Kristjánsson mér fast
starf fréttamanns á Vísi með því
skilyrði að ég hætti skrifum fyrir
Morgunblaðið. Hann samþykkti
hins vegar að ég héldi áfram útgáfu
Samúels, sem þá blómstraði.
Kominn í draumastarfið átján ára
afskrifaði ég frekara nám, en ég
hafði sett stefnuna á stúdentspróf til
að geta að því búnu sótt um starf á
dagblaði,“ segir Þórarinn. Hann
gekk í Barnaskóla Hafnarfjarðar og
síðan í Flensborg þar sem hann lauk
gagnfræðaprófi. Í báðum skólum
kom hann að útgáfu skólablaða.
Á unglingsárum mætti Þórarinn á
varalandsforseti JC. „Ég hafði mik-
ið meiri áhuga á poppi en nokkurn
tíma pólitík,“ viðurkennir Þórarinn,
en það kom ekki í veg fyrir að hann
væri kjörinn formaður félaga yngri
og eldri sjálfstæðismanna í Hafnar-
firði og loks kosinn formaður full-
trúaráðs félaganna. Jafnframt var
hann fyrsti varamaður flokksins í
bæjarstjórn og sat í ýmsum nefnd-
um og ráðum í bænum og eins á
landsvísu, var varaformaður kjör-
dæmisráðs og kosinn í miðstjórn
flokksins á landsfundi.
Það gefur augaleið að vel hefur
farið um Sam-útgáfu Þórarins þau
fjórtán ár sem hún hafði aðsetur á
hálfri hæð í Valhöll, en þá hafði með-
al annars bæst við útgáfa á Húsum
& híbýlum, Bleiku & bláu, Heims-
mynd og Vikunni. Síðar tók Þór-
arinn að sér að gefa út tímarit undir
nafninu Lífsstíll fyrir MasterCard;
hundrað síðna litprentað glans-
tímarit sem kom út í sex ár. Var í
fyrstu sent gullkortshöfum einum,
en var síðan dreift inn á hvert heim-
ili og fyrirtæki landsins. „Mér varð
þá hugsað til Alþýðumannsins sem
ég dreifði sem krakki í fjórum ein-
tökum á Hraunkambinum í Hafnar-
firði,“ segir útgefandinn fyrrver-
andi.
Spurður um tómstundir svarar
hann því til að þau hjónin séu iðin
við að fara á kaffihús, leikhús, söfn
Þórarinn Jón Magnússon, fyrrverandi ritstjóri og útgefandi – 70 ára
Ljósmynd/Sveinn Þormóðsson
Fjölskyldan Þórarinn Jón, Oddfríður, börn, barnabörn og barnabarnabarn, sem hefur núna eignast bróður.
Útgefandi frá átta ára aldri
Þrettán ára Þórarinn Jón, í miðið, að afhenda liðsmönnum The Kinks mynd
sem hann teiknaði fyrir umfjöllun sína um hljómsveitina í blaðinu.
Til hamingju með daginn
Reykjanesbær Arna Mjöll Kristjáns-
dóttir Olsen fæddist 11. apríl 2021 kl.
01.39 á HSS í Reykjanesbæ. Hún vó
3.576 g og var 52 cm löng. Foreldrar
hennar eru Kristján Helgi Olsen
Ævarsson og Ellý María Hermanns-
dóttir.
Nýr borgari