Morgunblaðið - 03.01.2022, Síða 27
ENGLAND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Staða Englandsmeistara karla í
knattspyrnu, Manchester City, er
glæsileg í upphafi nýs árs. Eftir
leiki helgarinnar er liðið með tíu
stiga forskot á Chelsea og ellefu
stiga forskot á Liverpool en Liver-
pool getur reyndar minnkað það
niður í átta stig. Ekki er tímabært
að tala um að úrslitin séu ráðin en í
ljósi þess að City hefur unnið
sautján leiki af tuttugu og einum til
þessa virðast ekki vera neinar vís-
bendingar um að liðið komi til með
að tapa mörgum leikjum. Þvert á
móti hefur liðið unnið ellefu leiki í
röð í deildinni.
Fari svo að City fari alla leið og
verji titilinn þá myndi það vera
fjórði sigur liðsins í deildinni á fimm
árum. Yrði það mikið afrek og enn
ein rósin í hnappagat stjórans Peps
Guardiola. Helstu óvissuþættirnir
eru kannski þeir sem snúa að
heimsfaraldrinum; smit leikmanna
og frestanir á leikjum með tilheyr-
andi raski á mótshaldinu. Eins og er
virðist það ekki trufla City sem
gerði vel á nýársdag með því að
vinna Arsenal á útivelli 2:1. Arsenal
hafði verið eitt heitasta liðið í deild-
inni síðustu vikurnar og því um góð
þrjú stig að ræða hjá meisturunum
þótt þeir hafi sloppið vel í þetta
skiptið.
Rodri skoraði sigurmark City á
þriðju mínútu í uppbótartíma. Riyad
Mahrez skoraði fyrra markið úr
vítaspyrnu en Bukayo Saka kom
Arsenal yfir í leiknum 1:0. Gabriel
fékk síðan rauða spjaldið og Arsenal
var manni færri í rúman hálftíma.
Enn eitt jafnteflið
Liðin í öðru og þriðja sæti,
Chelsea og Liverpool, mættust á
Stamford Bridge í London og gerðu
2:2-jafntefli eftir fjörugan leik í gær.
Eftir góða byrjun í deildinni eru
jafnteflin að undanförnu að gera út
af við Chelsea. Liðið hefur gert jafn-
tefli í fjórum af síðustu fimm deild-
arleikjum og þrír þeirra hafa verið á
heimavelli.
Liverpool komst í 2:0 snemma
leiks í gær og virtist ætla að ná í
góðan sigur. Sadio Mané og Mo Sa-
lah skoruðu fyrir Liverpool á 9. og
26. mínútu en Chelsea tókst að jafna
fyrir hlé. Mateo Kovacic skoraði
draumamark á 42. mínútu þegar
hann tók boltann á lofti fyrir utan
teig og sendi hann í stöngina og inn.
Christian Pulisic jafnaði á lokamín-
útu fyrri hálfleiks. Leikurinn var
töluvert rólegri í síðari hálfleik og
mörkin urðu ekki fleiri. Að gera
jafntefli við Chelsea eða Liverpool
er ekkert til að skammast sín fyrir
en í ljósi stöðunnar í deildinni hafa
leikmenn beggja liða líklega verið
óánægðir með niðurstöðuna.
„Þetta var frábær knattspyrnu-
leikur. Fólk sem ekki komst á völl-
inn missti af miklu. Í stöðunni 2:0
hefði verið auðvelt að segja að þetta
yrði ekki okkar dagur enda var
verkefnið þá orðið afar erfitt. Menn
gáfust ekki upp og mark Kovacic
gaf öllum aukakraft,“ sagði Thomas
Tuchel knattspyrnustjóri Chelsea
að leiknum loknum.
Verður Leeds refsað?
Jóhann Berg Guðmundsson var í
byrjunarliði Burnley og lék fyrri
hálfleikinn á Elland Road en þar
hafði Leeds betur 3:1. Leeds gæti
lent í vandræðum vegna þess að
stuðningsmaður liðsins fleygði gos-
flösku í höfuð Matthews Lowtons,
leikmanns Burnley, þegar hann
fagnaði 1:1-jöfnunarmarki liðsins í
leiknum.
Meistararnir að stinga af
- Manchester City líklegt til að vinna titilinn í fjórða skipti á fimm árum
- Ellefti sigurinn í röð - Jafntefli Chelsea og Liverpool skemmdi ekki fyrir
AFP
London Rodri fagnar sigurmarkinu í örmum fyrirliðans Rubens Dias. Kevin De Bruyne virðist annars hugar.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022
_ Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu,
var orðaður við þjálfarastarfið hjá
Mjällby í efstu deild Svíþjóðar á dög-
unum. Að lokum fékk Andreas
Brännström starfið. Fréttablaðið
fullyrðir að Heimi hafi verið boðið
starfið en hann afþakkað. Heimir tók
við stjórn Al-Arabi í Katar eftir að
hann hætti með landsliðið, en hann
lét af störfum hjá Al-Arabi í sumar.
_ Ingunn Embla Kristínardóttir,
landsliðskona í körfuknattleik, hefur
leikið sinn síðasta leik á þessu
keppnistímabili þar sem hún er
barnshafandi. Embla var í liði Skalla-
gríms sem dregið var úr keppni á Ís-
landsmótinu.
_ Körfuknattleiksdeild Keflavíkur
hefur samið við Litháann Darius
Tarvydas og mun hann leika með
liðinu út leiktíðina. Tarvydas er þrí-
tugur og sléttir tveir metrar. Hann
lék síðast með Challans í Frakklandi
en mun hefja æfingar með Keflavík í
dag og verður löglegur gegn Vestra í
Subway-deildinni á fimmtudaginn.
_ Enski framherjinn Jamie Vardy
verður ekkert með Leicester næsta
mánuðinn eða svo vegna meiðsla
sem hann varð fyrir í 1:0-sigrinum á
Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu á þriðjudaginn var.
Vardy tognaði aftan í læri í leiknum
en hann hefur gert 11 mörk í 22
leikjum á leiktíðinni og er í þriðja
sæti yfir markahæstu menn í ensku
úrvalsdeildinni. Leicester er í miklum
vandræðum því Patson Daka, Caglar
Söyüncü, Jonny Evans, Ricardo Per-
eira, Ryan Bertrand, James Justin
og Wesley Fofana glíma einnig við
meiðsli. Þá munu Kelechi Ihea-
nacho, Wilfried Ndidi, Daniel Am-
artey og Papy Mendy fara í Afr-
íkukeppnina.
_ Argentínski knattspyrnumaðurinn
Lionel Messi hefur greinst með kór-
ónuveiruna. Messi, sem leikur með
París Saint-Germain í Frakklandi,
verður ekki með liðinu í næstu leikj-
um vegna þessa. Franska félagið
greindi frá því að Messi væri einn
fjögurra leikmanna liðsins sem væru
með veiruna. Þeir Juan Bernat, Ser-
gio Rico og Nathan Bitumazala eru
einnig smitaðir. Þá verður Neymar
frá keppni næstu þrjár vikurnar
vegna meiðsla.
Fleiri þekktir í knattspyrnuheiminum
greindust með
veiruna í
kringum ára-
mótin og í
þeim hópi
er til að
mynda
Jürgen
Klopp knatt-
spyrnustjóri
Liverpool. Hann
var því ekki á
hliðarlínunni
gegn Chelsea í
London í gær.
Eitt
ogannað
Knattspyrnukonan Heiðdís Lillýj-
ardóttir er gengin í raðir portú-
galska stórliðsins Benfica þar sem
hún mun leika á láni frá Breiðabliki
út yfirstandandi keppnistímabil. Sá
möguleiki er fyrir hendi að Benfica
kaupi hana í framhaldinu.
Þór/KA hefur gengið frá tveggja
ára samningi við hina bandarísku
Brooke Lampe sem þykir fjölhæfur
varnarmaður.
HK hefur gert samning við
bandaríska markvörðinn Audrey
Baldwin sem lék áður með HK/
Víkingi, Keflavík og Fylki.
Heiðdís fer í
hlýrra loftslag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Smárinn Heiðdís Lillýjardóttir í
leik gegn Val síðasta sumar.
Körfuknattleiksdeild Breiðabliks
hefur gengið frá samningi við
Frank Aron Booker. Kemur hann
til félagsins frá Val.
Karfan.is greindi frá þessu í gær.
Frank Aron hefur verið lengi frá
vegna meiðsla og ekkert leikið í
langan tíma; ekkert á þessari leik-
tíð og lítið á þeirri síðustu.
Hann skoraði 15 stig, tók fjögur
fráköst og gaf tvær stoðsendingar í
leik með Val tímabilið 2019/20 og
lék fjóra landsleiki fyrir Ísland árið
2019. Frank Aron gæti því styrkt
Blikana ef hann nær heilsu.
Breiðablik fær
Frank Aron
Morgunblaðið/Hari
Breiðablik Frank Aron Booker er á
leið í Smárann.
Danski markvörðurinn Jonas Lössl
er genginn í raðir enska úrvalsdeild-
arfélagsins Brentford að láni frá
knattspyrnuliði Midtjylland í Dan-
mörku. Landsliðsmarkvörðurinn
Elías Rafn Ólafsson verður að öllum
líkindum aðalmarkvörður Midtjyll-
and fyrir vikið.
Elías fékk tækifærið með Midt-
jylland á nýliðnu ári, stóð sig vel og
hélt Lössl á bekknum um tíma.
Lössl var þó aftur kominn í byrj-
unarliðið í lok árs. Daninn er nú
kominn til Brentford en þar er einn-
ig ungur íslenskur markvörður, Pat-
rik Sigurður Gunnarsson. Patrik er
nú á láni hjá Viking í Noregi.
Elías, sem hefur verið í byrjunar-
liði Íslands í undanförnum lands-
leikjum, hefur leikið níu leiki í
dönsku úrvalsdeildinni á leiktíðinni
og þrjá í Evrópudeildinni. Midtjyll-
and er í toppsæti dönsku úrvals-
deildarinnar með 35 stig.
Svend Graversen, yfirmaður
knattspyrnumála hjá Midtjylland, er
afar hrifinn af íslenska markverð-
inum Elíasi Rafni.
„Það var alltaf vitað að Elías yrði
markvörður í dönsku úrvalsdeildinni
einn daginn. Hraðar framfarir og
hröð þróun hafa hins vegar komið
mörgum á óvart. Við erum stolt af
því hve vel hann hefur staðið sig og
því höfum við gert nýjan samning
við hann,“ sagði Graversen á heima-
síðu Midtjylland.
„Það er augljóst að Elías getur
náð langt. Þegar þú ert aðeins 21 árs
en spilar vel í úrvalsdeildinni og
Evrópudeildinni er ljóst að þú ert
mjög hæfileikaríkur,“ bætti Graver-
sen við.
Annar íslenskur landsliðsmaður,
Mikael Anderson, var einnig hjá
Midtjylland er nú kominn til AGF í
Árósum. Knattspyrnustjóri Midt-
jylland er Daninn Bo Henriksen en á
leikmannsferlinum lék hann með
Val, Fram og ÍBV á árunum 2005 og
2006. sport@mbl.is
Hagur Elíasar Rafns vænkast
- Verður væntanlega aðalmarkvörður toppliðsins í dönsku knattspyrnunni
Morgunblaðið/Eggert
Landsliðsmaður Elías Rafn Ólafs-
son er á stöðugri uppleið í boltanum.
Danmörk
Nyköbing – Skanderborg................... 28:25
- Steinunn Hansdóttir skoraði ekki fyrir
Skanderborg.
Þýskaland
Bad Wildungen – Sachsen Zwickau.. 19:19
- Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði þrjú
mörk fyrir Sachsen Zwickau.
.$0-!)49,