Morgunblaðið - 03.01.2022, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 03.01.2022, Qupperneq 27
ENGLAND Kristján Jónsson kris@mbl.is Staða Englandsmeistara karla í knattspyrnu, Manchester City, er glæsileg í upphafi nýs árs. Eftir leiki helgarinnar er liðið með tíu stiga forskot á Chelsea og ellefu stiga forskot á Liverpool en Liver- pool getur reyndar minnkað það niður í átta stig. Ekki er tímabært að tala um að úrslitin séu ráðin en í ljósi þess að City hefur unnið sautján leiki af tuttugu og einum til þessa virðast ekki vera neinar vís- bendingar um að liðið komi til með að tapa mörgum leikjum. Þvert á móti hefur liðið unnið ellefu leiki í röð í deildinni. Fari svo að City fari alla leið og verji titilinn þá myndi það vera fjórði sigur liðsins í deildinni á fimm árum. Yrði það mikið afrek og enn ein rósin í hnappagat stjórans Peps Guardiola. Helstu óvissuþættirnir eru kannski þeir sem snúa að heimsfaraldrinum; smit leikmanna og frestanir á leikjum með tilheyr- andi raski á mótshaldinu. Eins og er virðist það ekki trufla City sem gerði vel á nýársdag með því að vinna Arsenal á útivelli 2:1. Arsenal hafði verið eitt heitasta liðið í deild- inni síðustu vikurnar og því um góð þrjú stig að ræða hjá meisturunum þótt þeir hafi sloppið vel í þetta skiptið. Rodri skoraði sigurmark City á þriðju mínútu í uppbótartíma. Riyad Mahrez skoraði fyrra markið úr vítaspyrnu en Bukayo Saka kom Arsenal yfir í leiknum 1:0. Gabriel fékk síðan rauða spjaldið og Arsenal var manni færri í rúman hálftíma. Enn eitt jafnteflið Liðin í öðru og þriðja sæti, Chelsea og Liverpool, mættust á Stamford Bridge í London og gerðu 2:2-jafntefli eftir fjörugan leik í gær. Eftir góða byrjun í deildinni eru jafnteflin að undanförnu að gera út af við Chelsea. Liðið hefur gert jafn- tefli í fjórum af síðustu fimm deild- arleikjum og þrír þeirra hafa verið á heimavelli. Liverpool komst í 2:0 snemma leiks í gær og virtist ætla að ná í góðan sigur. Sadio Mané og Mo Sa- lah skoruðu fyrir Liverpool á 9. og 26. mínútu en Chelsea tókst að jafna fyrir hlé. Mateo Kovacic skoraði draumamark á 42. mínútu þegar hann tók boltann á lofti fyrir utan teig og sendi hann í stöngina og inn. Christian Pulisic jafnaði á lokamín- útu fyrri hálfleiks. Leikurinn var töluvert rólegri í síðari hálfleik og mörkin urðu ekki fleiri. Að gera jafntefli við Chelsea eða Liverpool er ekkert til að skammast sín fyrir en í ljósi stöðunnar í deildinni hafa leikmenn beggja liða líklega verið óánægðir með niðurstöðuna. „Þetta var frábær knattspyrnu- leikur. Fólk sem ekki komst á völl- inn missti af miklu. Í stöðunni 2:0 hefði verið auðvelt að segja að þetta yrði ekki okkar dagur enda var verkefnið þá orðið afar erfitt. Menn gáfust ekki upp og mark Kovacic gaf öllum aukakraft,“ sagði Thomas Tuchel knattspyrnustjóri Chelsea að leiknum loknum. Verður Leeds refsað? Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley og lék fyrri hálfleikinn á Elland Road en þar hafði Leeds betur 3:1. Leeds gæti lent í vandræðum vegna þess að stuðningsmaður liðsins fleygði gos- flösku í höfuð Matthews Lowtons, leikmanns Burnley, þegar hann fagnaði 1:1-jöfnunarmarki liðsins í leiknum. Meistararnir að stinga af - Manchester City líklegt til að vinna titilinn í fjórða skipti á fimm árum - Ellefti sigurinn í röð - Jafntefli Chelsea og Liverpool skemmdi ekki fyrir AFP London Rodri fagnar sigurmarkinu í örmum fyrirliðans Rubens Dias. Kevin De Bruyne virðist annars hugar. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022 _ Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, var orðaður við þjálfarastarfið hjá Mjällby í efstu deild Svíþjóðar á dög- unum. Að lokum fékk Andreas Brännström starfið. Fréttablaðið fullyrðir að Heimi hafi verið boðið starfið en hann afþakkað. Heimir tók við stjórn Al-Arabi í Katar eftir að hann hætti með landsliðið, en hann lét af störfum hjá Al-Arabi í sumar. _ Ingunn Embla Kristínardóttir, landsliðskona í körfuknattleik, hefur leikið sinn síðasta leik á þessu keppnistímabili þar sem hún er barnshafandi. Embla var í liði Skalla- gríms sem dregið var úr keppni á Ís- landsmótinu. _ Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við Litháann Darius Tarvydas og mun hann leika með liðinu út leiktíðina. Tarvydas er þrí- tugur og sléttir tveir metrar. Hann lék síðast með Challans í Frakklandi en mun hefja æfingar með Keflavík í dag og verður löglegur gegn Vestra í Subway-deildinni á fimmtudaginn. _ Enski framherjinn Jamie Vardy verður ekkert með Leicester næsta mánuðinn eða svo vegna meiðsla sem hann varð fyrir í 1:0-sigrinum á Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á þriðjudaginn var. Vardy tognaði aftan í læri í leiknum en hann hefur gert 11 mörk í 22 leikjum á leiktíðinni og er í þriðja sæti yfir markahæstu menn í ensku úrvalsdeildinni. Leicester er í miklum vandræðum því Patson Daka, Caglar Söyüncü, Jonny Evans, Ricardo Per- eira, Ryan Bertrand, James Justin og Wesley Fofana glíma einnig við meiðsli. Þá munu Kelechi Ihea- nacho, Wilfried Ndidi, Daniel Am- artey og Papy Mendy fara í Afr- íkukeppnina. _ Argentínski knattspyrnumaðurinn Lionel Messi hefur greinst með kór- ónuveiruna. Messi, sem leikur með París Saint-Germain í Frakklandi, verður ekki með liðinu í næstu leikj- um vegna þessa. Franska félagið greindi frá því að Messi væri einn fjögurra leikmanna liðsins sem væru með veiruna. Þeir Juan Bernat, Ser- gio Rico og Nathan Bitumazala eru einnig smitaðir. Þá verður Neymar frá keppni næstu þrjár vikurnar vegna meiðsla. Fleiri þekktir í knattspyrnuheiminum greindust með veiruna í kringum ára- mótin og í þeim hópi er til að mynda Jürgen Klopp knatt- spyrnustjóri Liverpool. Hann var því ekki á hliðarlínunni gegn Chelsea í London í gær. Eitt ogannað Knattspyrnukonan Heiðdís Lillýj- ardóttir er gengin í raðir portú- galska stórliðsins Benfica þar sem hún mun leika á láni frá Breiðabliki út yfirstandandi keppnistímabil. Sá möguleiki er fyrir hendi að Benfica kaupi hana í framhaldinu. Þór/KA hefur gengið frá tveggja ára samningi við hina bandarísku Brooke Lampe sem þykir fjölhæfur varnarmaður. HK hefur gert samning við bandaríska markvörðinn Audrey Baldwin sem lék áður með HK/ Víkingi, Keflavík og Fylki. Heiðdís fer í hlýrra loftslag Morgunblaðið/Árni Sæberg Smárinn Heiðdís Lillýjardóttir í leik gegn Val síðasta sumar. Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur gengið frá samningi við Frank Aron Booker. Kemur hann til félagsins frá Val. Karfan.is greindi frá þessu í gær. Frank Aron hefur verið lengi frá vegna meiðsla og ekkert leikið í langan tíma; ekkert á þessari leik- tíð og lítið á þeirri síðustu. Hann skoraði 15 stig, tók fjögur fráköst og gaf tvær stoðsendingar í leik með Val tímabilið 2019/20 og lék fjóra landsleiki fyrir Ísland árið 2019. Frank Aron gæti því styrkt Blikana ef hann nær heilsu. Breiðablik fær Frank Aron Morgunblaðið/Hari Breiðablik Frank Aron Booker er á leið í Smárann. Danski markvörðurinn Jonas Lössl er genginn í raðir enska úrvalsdeild- arfélagsins Brentford að láni frá knattspyrnuliði Midtjylland í Dan- mörku. Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson verður að öllum líkindum aðalmarkvörður Midtjyll- and fyrir vikið. Elías fékk tækifærið með Midt- jylland á nýliðnu ári, stóð sig vel og hélt Lössl á bekknum um tíma. Lössl var þó aftur kominn í byrj- unarliðið í lok árs. Daninn er nú kominn til Brentford en þar er einn- ig ungur íslenskur markvörður, Pat- rik Sigurður Gunnarsson. Patrik er nú á láni hjá Viking í Noregi. Elías, sem hefur verið í byrjunar- liði Íslands í undanförnum lands- leikjum, hefur leikið níu leiki í dönsku úrvalsdeildinni á leiktíðinni og þrjá í Evrópudeildinni. Midtjyll- and er í toppsæti dönsku úrvals- deildarinnar með 35 stig. Svend Graversen, yfirmaður knattspyrnumála hjá Midtjylland, er afar hrifinn af íslenska markverð- inum Elíasi Rafni. „Það var alltaf vitað að Elías yrði markvörður í dönsku úrvalsdeildinni einn daginn. Hraðar framfarir og hröð þróun hafa hins vegar komið mörgum á óvart. Við erum stolt af því hve vel hann hefur staðið sig og því höfum við gert nýjan samning við hann,“ sagði Graversen á heima- síðu Midtjylland. „Það er augljóst að Elías getur náð langt. Þegar þú ert aðeins 21 árs en spilar vel í úrvalsdeildinni og Evrópudeildinni er ljóst að þú ert mjög hæfileikaríkur,“ bætti Graver- sen við. Annar íslenskur landsliðsmaður, Mikael Anderson, var einnig hjá Midtjylland er nú kominn til AGF í Árósum. Knattspyrnustjóri Midt- jylland er Daninn Bo Henriksen en á leikmannsferlinum lék hann með Val, Fram og ÍBV á árunum 2005 og 2006. sport@mbl.is Hagur Elíasar Rafns vænkast - Verður væntanlega aðalmarkvörður toppliðsins í dönsku knattspyrnunni Morgunblaðið/Eggert Landsliðsmaður Elías Rafn Ólafs- son er á stöðugri uppleið í boltanum. Danmörk Nyköbing – Skanderborg................... 28:25 - Steinunn Hansdóttir skoraði ekki fyrir Skanderborg. Þýskaland Bad Wildungen – Sachsen Zwickau.. 19:19 - Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir Sachsen Zwickau. .$0-!)49,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.