Morgunblaðið - 12.01.2022, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.01.2022, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2022 Reginn hf. / 512 8900 / reginn@reginn.is / reginn.is Tilnefningarnefnd Regins hf. auglýsir eftir framboðum og tilnefningum til stjórnar Regins fyrir aðalfund félagsins sem haldinn verður fimmtudaginn 10. mars 2022. Til að framboð og tilnefningar til setu í stjórn félagsins hljóti umfjöllun tilnefningarnefndar skal senda þær eigi síðar en 25. janúar 2022 á tilnefningarnefnd@reginn.is. Frekari upplýsingarmá finna á vefsíðu félagsins www.reginn.is/fjarfestavefur Tilnefningarnefnd Regins hf. TILKYNNING FRÁTILNEFNINGARNEFNDREGINS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Aflaheimildir í makríl náðust ekki á síðasta ári og falla um 10 þúsund tonn niður á milli ára, samkvæmt út- reikningum Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Meginregla er sú að heimilt er að flytja 10% aflamarks á milli ára. SFS fór fram á að leyft yrði að flytja allt að 30% aflamarks skips í makríl frá árinu 2021 til ársins 2022, en undir lok árs var ljóst að flytja hefði þurft um 23% á milli ára svo ekkert hefði fallið niður. Niðurstaða sjávarútvegsráðherra var að heimila flutning á 15% heimilda. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmda- stjóri SFS, segir að þessi ákvörðun ráðherra sé sér- kennileg og mál- stað Íslands ekki til framdráttar í samningaviðræð- um um stjórn makrílveiða. „Þá gætu glötuð út- flutningsverð- mæti numið 2-3 milljörðum króna, samkvæmt varfærnu mati okkar,“ segir Heiðrún Lind. „Í þeim tölum eru ekki óbein áhrif eins og tekjur sjómanna, landverkafólks og sveit- arfélaga, né tekjuskattur fyrirtækja að ógleymdu veiðigjaldi sem hefði getað orðið um 55 milljónir miðað við 5,27 króna veiðigjald á kíló af mak- ríl.“ Þurfum aukinn sveigjanleika Heiðrún Lind segir að erindi frá SFS um heimild til að flytja allt að 30% á milli ára hafi legið í sjávarút- vegsráðuneytinu frá því í september í fyrra til að tryggja að ekkert félli niður á milli ára. Í raun hafi engin svör fengist við þessari beiðni fyrr en ákvörðun lá fyrir milli jóla og ný- árs og reglugerð var gefin út. Heið- rún Lind segist hafa fengið óljósar skýringar og skýringar sem ekki standist á því hvers vegna ákveðið var að miða við 15%, en ekki hærri tölu eins og útgerðin fór fram á. „Meðan ósamið er við önnur strandríki skiptir veiðireynsla veru- legu máli,“ segir Heiðrún Lind. „Þar sem við höfum ekki aðgang að veið- um í lögsögum annarra ríkja þurfum við aukinn sveigjanleika í tíma. Vegna göngumynsturs, tíðarfars, veiðanleika og fleiri breytilegra þátta er nauðsynlegt að horfa yfir stærra tímabil og því meiri sveigj- anleiki þeim mun betra.“ Getur skaðað hagsmuni Íslands Heiðrún Lind segist telja að þessi ákvörðun geti skaðað hagsmuni Ís- lands í viðræðum um stjórn makríl- veiða. Við séum að ósekju að hlekkja fætur okkar umfram það sem megi telja eðlilegt. „Íslendingar hafa tekið sér kvóta sem við teljum réttmætan meðal annars út frá veiðireynslu og viðveru makríls í lögsögu. Ef við ein strand- ríkja ætlum að takmarka veiðar okk- ar sem þessu nemur, þá erum við beinlínis að skaða okkar samnings- stöðu með því að draga úr mögulegri veiði,“ segir Heiðrún Lind. Hún nefnir að Færeyingar hafi leyft að færa allt það magn sem var óveitt af kvóta þeirra á milli ára. Þannig geymi þeir í raun 43% af því sem þeir úthlutuðu sér og máttu veiða á nýliðnu ári. Glötuð verðmæti 2-3 milljarðar - Um 10 þúsund tonn af makríl falla niður á milli ára að mati SFS - Ekkert hefði fallið niður með leyfi fyrir flutningi 23% heimilda - Ráðherra heimilaði flutning á 15% - Málstað Íslands ekki til framdráttar Heiðrún Lind Marteinsdóttir Unnið hefur verið af krafti við breikkun Suðurlandsvegar undanfarin ár og Alþingi hefur veitt umtalsverða fjármuni til þeirra verkefna. Framkvæmdir við breikkun Suðurlands- vegar á milli Hveragerðis og Selfoss standa nú yfir en Íslensk- ir aðalverktakar vinna verkið. Í ár eru fimmtíu ár liðin síðan hægt varð að aka á bundnu slitlagi frá Reykjavík til Selfoss. Um var að ræða tvíbreiðan veg, alls 58,2 kílómetra, frá Lækjartorgi til Selfoss. Vega- gerðin hófst 1966 og vegurinn vígður seint í nóvember 1972. Morgunblaðið/Árni Sæberg Breikka bundið slitlag á fimmtíu ára afmælinu Tölvuþrjótarnir sem stóðu á bak við árásirnar á netkerfi Strætó komust yfir aðgang að gagnagrunnum sem hafa að geyma afrit af upplýsingum úr Þjóðskrá og kerfiskenni- töluskrám. Meðal þeirra gagna sem þeir náðu úr kerfinu var málaskrá Strætó þar sem finna má afrit af erindum og fyrirspurnum frá almenningi, tengi- liðaupplýsingar forsvarsmanna birgja, samstarfsaðila og verktaka, sem og afrit af umsóknargögnum umsækjenda um störf, auk launa- kerfisins þar sem finna má tengiliða- upplýsingar, reikningsupplýsingar og launaupplýsingar núverandi og fyrrverandi starfsfólks Strætó. Enn bendir ekkert til þess að tölvuþrjótarnir hafi misnotað upp- lýsingarnar, að því er fram kemur í tilkynningu. Ekki sé hægt að útiloka að þær hafi verið afritaðar. Náðu í upplýsingar um laun og umsóknir - Árásir gerðar á netkerfi Strætó Morgunblaðið/Hari Gögn Meðal þeirra gagna sem þeir náðu úr kerfinu var launakerfið. Samtökin Frelsi og ábyrgð hafa sent kvörtun til embættis land- læknis vegna þess sem þau segja einhliða og villandi framsetningu sóttvarnalæknis á gagnsemi þess að bjóða heilbrigðum 5-11 ára börnum bólusetningu gegn Covid-19 með bóluefni frá Pfizer. Í bréfinu segir að upplýsingagjöf sóttvarnalæknis hafi einkennst af rangfærslum. Gert sé lítið úr þeirri áhættu sem fylgi bóluefninu til skemmri og lengri tíma. Þá segja samtökin að virkni bólu- efnisins gegn Ómíkron-afbrigði Co- vid-19 hjá börnum hafi alls ekki verið rannsökuð. Samtökin krefjast þess að land- læknir leggi fyrir sóttvarnalækni að stöðva bólusetningar 5-11 ára barna með bóluefninu, þar til emb- ættið hafi gert úttekt á áreiðan- leika þeirra forsendna sem sótt- varnalæknir leggur til grundvallar umræddri aðgerð. Kvarta til landlæknis vegna sóttvarnalæknis

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.