Morgunblaðið - 12.01.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.01.2022, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Furðumarg- ir setja allt sitt traust á að vandamál, sem þeir sjá hrannast upp fyrir augum þeirra, muni með dularfullum hætti hverfa af sjálfu sér, aðeins sé þess gætt að minnast varla á þau og til þrautavara að afneita þeim út í rauðan dauðann. Og virðist þá oft furðulitlu breyta þótt horft sé héðan til frænda og vina í nálægum löndum, sem reyndu „upp- gufunaraðferðina“ til þraut- ar uns sjálfsblekkingin sprakk í andlitið á þeim, og ljóst varð að væntingar um ódýrar lausnir rættust ekki. En þá varð ekki lengur við neitt ráðið. Um langa hríð höfum við hér horft til Svíþjóðar sem vellukkaðs fyrirmyndar- ríkis, sem mætti hafa til for- dæmis um svo margt. En nú er svo komið, í ýmsum af- drifaríkum efnum, að þar hrannast upp dæmi um það sem varast ber. Hvern hefði órað fyrir að fjölmenn íbúðahverfi borg- anna í fyrirmyndarríkinu væru komin í þá stöðu að þurfa án tafar atbeina lög- reglu eða sjúkraliðs til að skakka „leik“? Þá má ekki vænta þess að hjálpin sem beðið er um berist fljótt, en það er einmitt hraðinn, þeg- ar engan tíma má missa, sem mestu ræður um hvort hjálpin komi að fullu gagni. Svo er iðulega komið að hjálparlið getur ekki mætt á staðinn, þaðan sem hjálp- arbeiðni barst, fyrr en náðst hefur að draga saman fjöl- mennar sveitir þungvopn- aðra manna. Land eins og Svíþjóð er ekki eitt um þetta. Jón Magnússon fv. alþing- ismaður rifjaði upp í árs- byrjun að „í Frakklandi hefðu þungvopnaðir her- menn gætt þess, að messu- hald um jólahátíðina gæti fari fram með eðlilegum hætti. Af hverju þurftu her- menn að vera á verði við messur í þessu kristna landi, Frakklandi, í hjarta Evr- ópu? Vegna þess, að ítrekað hefur kristnu fólki verið ógnað og það er ekki svo ýkja langt síðan að prestur var myrtur fyrir altarinu í dómkirkjunni í Reims, þegar nokkrir Íslam- ístar skáru hann á háls og dönsuðu í kringum hann meðan hann var að deyja, en hann sagði „Vík burt frá mér Satan.“ Því miður gættu frönsk yf- irvöld þess ekki þá frekar en (stundum) síðar að gera þær ráðstafanir sem þarf til að kristið fólk geti iðkað trú sína óáreitt...“ En nú varð ekki hjá því komist að búa sig eins og undir stríðsárás í þessu mikla menningarlandi, í höfuðborg þess og víðar, vegna rökstudds ótta við hryðjuverk og aðrar hættur. Og Jón Magnússon spyr sjálfan sig: „Hvernig skyldi standa á því að fréttamiðlar eins og Fréttastofa Rík- isútvarpsins o.fl. skuli ekki segja frá þessu? Finnst fólki þetta ekki fréttnæmt. Í aðdraganda jólanna hafði verið ráðist gegn skrúðgöngu kristinna til heiðurs Maríu guðsmóður auk ýmissa annarra hluta, sem gerðu það að verkum að yfirvöld töldu nauðsynlegt að gæta öryggis kristins fólks um jólahátíðina með því að senda herinn á vett- vang.“ Jón gefur sér að „góða fólkið“ vilji ekki horfast í augu við óþægilegan raun- veruleika, sem þó blasi við, og haldi áfram fast í ógrund- aða stefnumótun, sem lítt fáist rædd, þar til illa verði aftur snúið. Sigurður Már Jónsson blaðamaður víkur einnig að ástandinu í Frakklandi í pistli og tengir við forseta- kosningarnar sem fram fara í apríl næstkomandi. Hann segir að í kosningunum verði sjálf þjóðfélagsgerðin undir enda megi víða sjá merki um klofning meðal frönsku þjóð- arinnar sem birtist í vaxandi átökum og ofbeldi. Hann segir umrótstíma í frönsku þjóðlífi og segir blöndun ólíkra þjóðfélags- og trúar- hópa setja álag á samfélagið sem það eigi erfitt með að bregðast við. Við hér munum ekki hafa neitt upp úr því að spyrja ekki spurninga sem brenna á vörum sífellt fleiri og enn síður á því að veita ekki svör. Ekki er vitað til þess að strútarnir hafi grætt á því að stinga höfðinu í sandinn. Það er óboðlegt að forðast óþægilega umræðu allt þar til að í óleysanlegar ógöngur er komið. Danir hafa áttað sig á því.} Það er margt órætt, sem versnar með þögn H vað varðar velferð, tel ég sem hestafræðingur, að með réttri aðkomu við hrossin sé líf „blóðmera einna besta lífið fyrir hross“. Þetta segir bóndi á Suðurlandi í umsögn við frumvarp mitt þar sem lagt er til að blóðmerahald verði bannað. Annar telur engin raunsönn dæmi eða gögn liggja fyrir um að hryss- urnar verði óhjákvæmilega fyrir ofbeldi, illri meðferð, misþyrmingum og dýraníði við blóðtökuna. Það er með hreinum ólíkindum að lesa slíkar yfirlýsingar. Þeir bændur sem telja sig til blóðmerabænda réttlæta þennan gjörning á fylfullum hryssum og sjá ekkert athugavert við hann. Hins vegar hafa vel á annað hundrað bændur haft samband við mig, þakkað mér fyrir að berjast gegn þessu dýraníði sem sé okkur til ævarandi minnkunar. Ég velti því fyrir mér hvort fólk átti sig á því sem raunverulega á sér stað við blóð- töku á fylfullri ótemju. Bóndi nokkur spurði mig t.d. hvort ég gerði mér grein fyrir því hvernig þyrfti að lemja, berja og misþyrma ótemju til að koma henni inn í þetta spítnarusl sem kallast blóðtökubás. Allt þetta til að ná í vaxtarhormón sem hryssurnar framleiða á fyrstu stigum meðgöngunnar fyrir folaldið sitt svo það geti dafnað eðlilega, sem það gerir að sjálf- sögðu ekki. Blóðið er sogið úr þeim fyrir líftæknifyr- irtækið Ísteka sem býr til frjósemislyf fyrir gyltur. Sem sagt meira svínakjöt fyrir neytendur með öllu því dýraníði sem því fylgir, meira beikon. Með réttu hefur blóðmerahald sætt mikilli gagnrýni eftir myndskeið þýskra dýravernd- unarsamtaka sem birtist í lok nóvember. Í framhaldinu rifti líftæknifyrirtækið Ísteka samningi sínum við tvo blóðmerabændur en um 119 bændur hafa verið í samstarfi við fyrirtækið. Þetta er í það minnsta matreitt ofan í okkur á þennan hátt. Ég hef hins vegar heyrt að uppsögnin við þessa bændur sé ein- ungis í orði en langt frá því að vera á borði. Einn umsvifamesti blóðmerabóndi Ísteka einungis skipt um kennitölu til að halda iðj- unni hindrunarlaust áfram? Í sex ár hefur Íslandsstofa staðið fyrir markaðsátaki íslenska hestsins. Árangurinn orðinn augljós og hvert Íslandsmetið á fætur öðru verið slegið í ræktun og útflutningi á íslenska hestinum. Hundruð hafa atvinnu vegna þessa. Talið er að hátt í 10% allra ferðamanna sem sækja okkur heim séu gagn- gert að koma til að heimsækja og fá að kynnast betur hestinum okkar sem er dáður og elskaður úti um alla Evrópu og þótt víða væri leitað. Ég vil trúa því að sitjandi alþingismenn séu ekki ein- ungis gegnumheilt dýravinir heldur vilji vernda þá hagsmuni sem við erum að stefna í voða ef við stöðvum ekki þessa iðju strax. Inga Sæland Pistill Blóðugar blekkingar Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is F jöldi atvinnulausra á land- inu var nánast sá sami allt frá því í september og fram til áramóta en í des- ember var skráð atvinnuleysi á land- inu 4,9%, sem er sama hlutfall og í október og nóvember. Þetta er minnsta atvinnuleysi sem mælst hef- ur frá upphafi heimsfaraldurs kór- ónuveirunnar. Umskiptin eru mikil á einu ári en í desember 2020 var al- mennt atvinnuleysi á landinu 10,7% og 11,6% í janúar á þessu ári. Það fór síðan jafnt og þétt lækkandi frá mán- uði til mánaðar og var komið niður í 7,4% í júní. Ráðningarstyrkirnir hafa skilað góðum árangri Atvinnuleysi færist jafnan í aukana á fyrstu vikum árs og spáir Vinnumálastofnun því að atvinnuleysi á landinu muni aukast í yfirstandandi mánuði og verði á bilinu 5,1% til 5,3%. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnu- málastofnunar, er frekar bjartsýn á stöðuna í ljósi talna um þróun at- vinnuleysis á seinustu mánuðum ný- liðins árs. „Ég er mjög ánægð með þessar tölur í desember. Þær eru glettilega góðar miðað við allt,“ segir hún. Unnur segir að samvinna Vinnu- málastofnunar og aðila vinnumark- aðarins um vinnumarkaðsaðgerðir og stuðningur stjórnvalda við átaksverk- efnið Hefjum störf hafi greinilega skilað mjög góðum árangri. „Ráðningarstyrkirnir hafa virk- að mjög vel. Góðu fréttirnar eru þær að það er ekki óeðlilega hátt hlutfall að koma til baka í atvinnuleitina. Við höfum vaktað það mjög vel í nóv- ember og desember,“ segir hún. Þetta séu gleðifréttir. „Mér finnst þessi árangur gríðarlega góður, hann fer fram úr mínum björtustu vonum,“ segir Unnur. Í seinasta mánuði tóku alls 4.648 einstaklingar þátt í hinum ýmsu úr- ræðum. Þá voru 3.310 einstaklingar í starfstengdum vinnumarkaðs- úrræðum undir lok ársins og flestir eða 3.272 á ráðningarstyrk innan fyr- irtækja og stofnana. Atvinnuástandið er nú sem áður ólíkt eftir landshlutum. Mest á Suð- urnesjum en þar mældist 9,3% at- vinnuleysi í desember og þar fækkaði atvinnulausum um 18 frá fyrri mán- uði. Fram kemur á mánaðaryfirliti Vinnumálastofnunar sem birt var í gær að næstmest var atvinnuleysið á höfuðborgarsvæðinu eða 5% og minnkaði örlítið milli mánaða. Minnst var atvinnuleysi í desember á Norð- urlandi vestra 2,1%, á Austurlandi 2,5% og á Vestfjörðum 2,7%. Unnur bendir á að langtíma- atvinnuleysi hefur mjakast niður frá því í apríl á síðasta ári. Alls höfðu 3.802 atvinnuleitendur verið án at- vinnu í meira en 12 mánuði í lok des- ember sl. og fækkaði um 281 frá nóv- ember. Þeir voru hins vegar 4.213 talsins í desemberlok fyrir ári og hef- ur þeim því fækkað um 411 frá des- ember 2020. 10.161 einstaklingur voru at- vinnulausir á landinu um seinustu áramót, 5.756 karlar og 4.405 konur. Hlutfall erlendra ríkisborgara meðal fólks sem er án atvinnu er enn veru- lega hátt. 4.289 erlendir atvinnuleit- endur voru án atvinnu í lok desember og fjölgaði um 114 milli mánaða. Þetta svarar til 11,6% atvinnuleysis meðal erlendra ríkisborgara. Á heildina litið fækkaði atvinnu- lausum í desember m.a. í opinberri þjónustu, ferðaþjónustu, farþega- flutningum, sérfræðiþjónustu, versl- un og upplýsingatækni. Þeim fjölgaði hins vegar í byggingariðnaði, gisti- og veitingaþjónustu og í ýmiss konar þjónustustarfsemi. „Fram úr mínum björtustu vonum“ 9,2% 17,8% 13,0% 9,6% 8,8% 9,4% 9,8% 11,1% 12,0% 12,1% 12,8% 12,5% 12,1% 11,5% 10,0% 7,4% 6,1% 5,5% 5,0% 4,9% 4,9% 4,9% 3,5 5,7 10,3 7,5 5,6 7,4 2,1 7,5 7,9 8,5 9,0 9,9 1,4 10,6 1,4 10,7 1,2 11,6 11,4 11,0 10,4 9,1 7,4 6,1 5,5 5,0 4,9 4,9 4,9 Þróun atvinnuleysis frá mars 2020 2020 2021 mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des Almennt atvinnuleysi Vegna skerts starfshlutfalls Heimild: Vinnumálastofnun Höfuðb.sv. Landsbyggðin Vesturland Vestfirðir Norðurl.vestra Norðurl.eystra Austurland Suðurland Suðurnes 5,0% 4,8% 3,1% 2,7% 2,1% 4,4% 2,5% 3,7% 9,3% Almennt atvinnuleysi eftir lands- hlutum í des. 2021 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Við störf Skráð atvinnuleysi á land- inu var 4,9% í desembermánuði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.