Morgunblaðið - 12.01.2022, Side 14

Morgunblaðið - 12.01.2022, Side 14
14 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2022 Hergagnafram- leiðsla hefur verið gríðarleg frá því um aldamótin 1900. Stór- veldi hafa risið og fall- ið í rúst, jafnvel á ör- fáum árum. Árangurinn er gegnd- arlaus sóun verðmæta, hráefna og orku og ekki má gleyma öllum þeim tugum mannslífa sem fallið hafa í vopna- viðskiptum. Í dag hefur lítið dregið úr hergagnaframleiðslu þótt lok kalda stríðsins hafi markað ákveðin straumhvörf fyrir þriðjungi aldar. En her- gagnaframleiðslan virðist eft- ir sem áður vera stjórnlaus og hefur haft gríðarleg áhrif á stjórnvöld allt of margra landa. Mannréttindum er vik- ið til hliðar í skjóli hervalds og má líta á blaðamenn og blaðaljósmyndara sem á hverjum degi setja sig í lífs- hættu við að afla frétta, eink- um þar sem vopnaviðskipti eiga sér stað. Og við horfum á örlög blaðamanna eins og Assange sem fletti ofan af stríðsglæpum Bandaríkja- hers. Þýska blaðamanninum Carl von Ossietsky voru veitt friðarverðlaun Nóbels 1935 fyrir að vekja athygli heims- byggðarinnar á gríðarlegri hernaðaruppbyggingu á veg- um nasista. Hann var látinn dúsa við illan aðbúnað í fang- elsum nasista og dó vorið 1938 ófrjáls maður. Og Ass- ange á nú að sæta ómann- eskjulegri meðferð fyrir að vekja athygli á stríðsglæpum Bandaríkjahers í Írak. Er það einkennilegt þar sem Bandaríkin eru elsta lýðræð- isríki heims, þar sem mann- réttindi hafa fram að þessu verið virt að mestu leyti. Ein hliðin á hergagna- framleiðslunni er hversu mik- il sóunin er. Á meðfylgjandi mynd, sem tekin var í Ástalíu fyrir nokkrum árum, er sýnt hvar búkar 23 gamalla her- flugvéla af gerðinni F-111 eru urðaðir á fjórum dögum með stórvirkum vinnuvélum. Allur rafeindabúnaður var fyrst fjarlægður og eins það sem unnt var að endurnýta. Und- arlegt er að búkurinn, sem aðallega er úr áli, hafi ekki verið endurnýttur eins og vera ber. Vængjunum var þrýst saman til að minnka umfang og til þess var notað asbest, sem þykir mjög var- hugavert efni. Auðvitað þurfa herir að endurnýja búnað sinn og það kostar offjár. Í fréttum var sagt fyrir skömmu að herkostnaður BNA í Afganistan undan- farna tvo áratugi hefði numið um 250.000 milljörðum króna. Þetta eru gríðarlegir fjár- munir sem myndu duga okk- ur á Íslandi í meira en tvær aldir til að reka ríkissjóðinn okkar miðað við reksturinn í dag. Allt þetta mikla fé telst glatað og verður ekki nýtt í annað og þarfara. Um það í næstu grein. Vonandi getur orðið breyt- ing á þessu. En til þess þarf hugrekki, þor og vilja. Eftir Guðjón Jensson Guðjón Jensson »Ein hliðin á her- gagnafram- leiðslunni er hversu mikil sóunin er. Höfundur er leiðsögumaður og eldri borgari í Mosfellsbæ. arnartangi43@gmail.com Gegndarlaus sóun verðmæta Fyrir 30-40 ár- um var í fjölmiðl- um mikið talað um grátkór útgerð- armanna. Nú er kominn fram nýr grátkór, sem slær þeim fyrri algjör- lega við, það er grátkór Landspít- alans. Undanfarna mánuði og reyndar mörg misseri eða ár hefur það verið þannig að varla líður sá dagur að ekki birtist í ein- hverjum fjölmiðlinum grát- andi læknir eða hjúkrunar- fræðingur á Landspítalanum. Sjúkraliðar eru miklu hófstillt- ari. Það er grátið yfir því að það vanti lækna, að það vanti hjúkrunarfræðinga og annað hjúkrunarfólk. Það er grátið yfir bráðamóttökunni, yfirfull- um spítala og allt of fáum gjör- gæslurýmum. Það er grátið yfir aðstöðuleysi starfsfólks og gömlu fólki sem taki allt pláss- ið. Það er grátið yfir allt of lágu kaupi og það er grátið yfir eilífum niðurskurði. Fyrir nokkrum árum fór ég á spítala á landsbyggðinni til þess að heimsækja sjúkling. Mér var bent á að fara inn ákveðinn gang, ég opnaði hverja sjúkrastofuna af ann- arri og hvergi var neinn sjúk- lingur. Það var ekki fyrr en í næstinnstu stofu að ég fann þann sem ég ætlaði að heim- sækja og endastofan var opin og hjúkrunarfólk á ferli. Það voru sem sagt aðeins tvær sjúkrastofur í notkun af öllum þessum fjölda. Á Akureyri eru fimm gjörgæslurými á spít- alanum þar (RÚV 25.8. 2021). Afar sjaldan berast fréttir af því að þar liggi fólk með covid. Er ekki hægt að jafna betur álag á milli sjúkrahúsa lands- ins? Þetta er orðinn ansi þreytandi grátkór og fer læknum og hjúkrunar- fræðingum ekki vel. Síð- ustu þrettán ár starfsferils míns vann ég m.a. við fram- talsgerð og yfirferð fram- tala fólks og fyrirtækja. Það var ekki hægt annað en að taka eftir því, að algengt var að þeir hjúkrunarfræðingar og læknar víða um landið sem ég sá tölur um voru með á bilinu tvöföld til sexföld árs- laun mín, sem er með fjögurra ára háskólanám að baki. Örugglega má skýra tals- verðan mun með vaktavinnu, meiri yfirvinnu, meiri mennt- un eða meiri ábyrgð en samt, hvers vegna allt þetta væl? Í biblíunni er talað um sjö magrar og sjö feitar kýr. Með tilliti til ofanritaðs datt mér í hug að gæta að því hve mögur síðustu sjö ár hafa verið á Landspítalanum. Ég fór á vef Fjársýslu ríkisins og sá í rík- isreikningnum að árið 2014 voru rekstrargjöld Landspít- alans 44,4 milljarðar króna og árið 2020 voru þau 88,8 millj- arðar króna. Þrátt fyrir allan grátinn og allt talið um nið- urskurð höfðu fjárframlög rík- isins til Landspítalans tvöfald- ast, hækkað um 100% á sjö árum. Finnst fólki þetta eðli- legt? Af hverju höfum við Íslend- ingar gert lífið okkur svona erfitt og dýrt á þessum covid- tímum, alveg frá því að allir sem það vildu fengu bólusetn- ingu? Börn og ungmenni hafa verið svikin um félagslíf í skól- unum, gamla fólkið fær ekki að dansa eða taka þátt í sínu félagsstarfi og fullfrískt vinn- Grátkór Landspítalans Eftir Guðjón Smára Agnarsson Guðjón Smári Agnarsson » Þrátt fyrir allan grátinn og allt talið um niðurskurð höfðu fjárframlög ríkisins til Land- spítalans tvöfald- ast, hækkað um 100% á sjö árum. Eðlilegt? Höfundur er á eftirlaunum. gudjonsmari@outlook.com andi fólk fær ekki að skemmta sér og er látið hanga heima í sóttkví, væntanlega á fullum launum. Er ekki verið að fórna geðheilsu allra þeirra sem ekki þola einveru og þrá að lifa eðlilegu grímulausu lífi fyrir heilsu þeirra tiltölulega fáu sem veikjast alvarlega af Co- vid? Allt vegna grátkórs á ein- um spítala. Í hittifyrra skráðu á annað þúsund fyrrverandi starfsmenn í heilbrigðisgeir- anum sig í bakvarðasveit. Má ekki kalla í fleira af því fólki þegar þörf er á? Það eru líka margir atvinnulausir og kannski gætu sumir þeirra gengið í störf bakvarðanna tímabundið. Er ekki hægt að nýta betur spítalana utan Reykjavíkur? Er ekki hægt að flytja einhverja sjúklinga frá Reykjavík til Akureyrar eða annarra spítala á landsbyggð- inni? Það þykir sjálfsagt að flytja fárveikt fólk frá lands- byggðinni til Reykjavíkur og okkur sveitamönnunum finnst það frábær þjónusta. Má ekki snúa sjúkraflugvélunum og sjúkrabílunum við? Er ekki kominn tími fyrir heilbrigðisráðherra að hlusta á fleiri sjónarmið en grátandi lækna og hjúkrunarfræðinga á einum spítala? Kannski ættu sumir læknanna líka að leyfa sér það að fá sér eitt glas af rauðvíni með kvöldmatnum. ✝ Garðar Svav- arsson fæddist í Austurhlíð v/ Reykjaveg í Reykja- vík 21. október 1930. Hann lést í Reykjavík 31. des- ember 2021. Foreldrar hans voru Ársól Klara Guðmundsdóttir, fædd 26. nóvember 1908, dáin 17. des- ember 2000 og Svavar Sigfinns- son, fæddur 29. nóvember 1906, dáinn 29. september 1992. Þau skildu. Systir Garðars var Regína Fjóla, fædd 29. maí 1929, dáin 11. október 2013. Uppeldissystur Garðars voru Guðrún, fædd 1921, dáin 2011, Rósa Guðrún, fædd 1923, dáin 1984 og Guð- finna Gyða, fædd 1925, dáin 2011. Hálfsystkini Garðars sam- feðra voru Erla, fædd 1931, Sig- ríður Magnea, fædd 1933, Einar, ir er Hrafnhildur Tinna, fædd 2010. Fyrir átti Hjördís Daníel Hrafn, fæddur 1995 og Mel- korku, fædd 1997. 3) Þórhildur, fædd 1973, hennar maki er Egill Örn Jóhannsson, fæddur 1974. Þeirra börn eru Kristján Dagur, fæddur 2003 og Guðrún Klara, fædd 2006. Garðar var í Gagnfræðaskóla Austurbæjar og fór síðar í vél- virkjanám hjá Sigurði Svein- björnssyni í Reykjavík 1948-1952. Garðar tók vélstjórapróf 1954 og tæknifræðipróf frá Stockholms Tekniska Institut 1956. Garðar starfaði sem tækni- fræðingur hjá Rafha í Hafn- arfirði 1956-1966 og starfaði síð- an hjá Olíufélaginu Skeljungi hf. þar til hann lét af stöfum árið 2002. Útför Garðars fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 12. janúar 2022, og hefst athöfnin klukkan 13. Vegna aðstæðna geta aðeins nánustu aðstandendur og vinir verið viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni og nálgast má hlekk á www.mbl.is/andlat. fæddur 1935, Her- bert, fæddur 1937, Unnur Aldís, fædd 1938, Guðbjörg, fædd 1940, Magnús, fæddur 1946 og Ró- bert, fæddur 1947. Garðar ólst upp hjá afa sínum Guð- mundi Ólafssyni, bónda í Austurhlíð v/Reykjaveg, fædd- ur 10. september 1885, dáinn 7. janúar 1947, og seinni konu hans Herdísi Helgu Guðlaugsdóttur, fædd 19. maí 1895, dáin 2. desember 1961. Garðar kvæntist 27. febrúar 1965 Aðalheiði Fanneyju Sigurð- ardóttur, fædd 21. janúar 1944. Þeirra börn eru: 1) Sigurður Magnús, fæddur 1967, hans maki er Birna Pála Kristinsdóttir, fædd 1967. Þeirra sonur er Garð- ar Andri, fæddur 1995. 2) Guð- mundur Helgi, fæddur 1968, hans maki er Hjördís Hjörv- arsdóttir, fædd 1971. Þeirra dótt- Það er skrýtið að setjast nið- ur og semja minningargrein um föður sinn. Þó svo að pabbi hafi átt gott og langt líf sem maður getur verið þakklátur fyrir, þá er eftirsjáin eftir honum mikil. Hann var kletturinn í mínu lífi, fyrirmyndin mín. Hann gekk með mér í gegnum súrt og sætt, ófáar stundirnar áttum við saman á biðstofum lækna, þar sem ég lærði hvað orðið þol- inmæði þýddi því pabbi átti mik- ið af slíku. Hann var duglegur að kenna mér, hann vildi að ég yrði sjálf- stæð og ég átti að geta gert hlutina sjálf. Hann kenndi mér á hamar, skrúfjárn, borvél, hann lét mig tengja ljós, skipta um kló á snúrum, hengja upp mynd- ir, lét mig taka í sundur pípu- lögn til að losa stíflu, allt var þetta gert í þeim tilgangi að efla mig og gera mig að sjálfstæðum einstaklingi. Hann valdi ofan í mig bækur til að lesa, þegar ég var búin að lesa allt sem hæfði mínum aldri var farið í að fikra sig í erfiðari bókmenntir, en með þeim fylgdi líka spjall um bækurnar til að dýpka skilninginn og útskýra erfiða hluti. Pabbi var óþreytandi í að fræða mann og spjalla við mann. Þegar ég var lítil þá sungum við mikið saman og kunni ég Vor- kvöld í Reykjavík aftur bak og áfram ansi ung að árum, ásamt fleiri slíkum lögum. Við tókum heilu og hálfu syrpurnar þegar við vorum tvö saman í bílnum þannig að bílferðir okkar urðu aldrei leiðinlegar. Pabbi og mamma hafa alltaf verið óþreytandi við að aðstoða okkur á allan máta. Þau hafa mætt fyrst og farið síðust, hvort sem það á við um flutninga, framkvæmdir eða pössun á barnabörnum, alltaf hafa þau verið boðin og búin. Ég er svo þakklát fyrir það að börnin okkar þau Kristján Dagur og Guðrún Klara hafa fengið að kynnast afa sínum svona vel og eiga þau bæði góð- ar minningar af samverustund- um sínum með honum. Það er bæði þroskandi og mikil gæfa í lífinu að hafa alist upp við það atlæti og þá ást sem pabbi sýndi manni. Ég held að það séu ekki margir sem búa yf- ir öllum þeim kostum sem pabbi hafði, vonandi hefur maður fengið hluta af þeim í arf og í gegnum uppeldið þannig að maður geti skilað þeim áfram til barnanna sinna og samferða- fólks. Pabbi, takk fyrir allt, ég mun ávallt sakna þín og minnast þín. Þórhildur Garðarsdóttir. Það er söknuður í hjörtum margra í dag þegar tengdafaðir minn Garðar Svavarsson verður lagður til hinstu hvílu. Ég kynntist Garðari fyrir 30 árum þegar ég og sonur hans Sig- urður Magnús kynntumst og síðar giftumst. Garðar tók mér einstaklega vel enda var hann einstakt ljúf- menni, alltaf var stutt í brosið og kurteisi var honum í blóð borin. Við náðum fljótt vel sam- an og hann hafði ætíð áhuga á því að vita hvað ég var að fást við í námi og störfum. Það var gaman var að ræða við hann, hann las mikið og var sérstak- lega fróður um sögu og tækni- mál. Garðar var vélstjóri og tækni- fræðingur að mennt og hafði lært í Reykjavík og í Stokk- hólmi. Hann var einstaklega handlaginn og mér fannst hann einfaldlega geta gert allt sjálfur. Hann og Aðalheiður kona hans byggðu sér sjálf snoturt hús í Barðavogi með fallegum og ein- staklega skjólgóðum garði sem hefur verið vel nýttur af stór- fjölskyldunni. Garðar hafði mikla ánægju af því að ferðast og þau hjónin ferðuðust um allan heim á með- an heilsan leyfði. Tengdaforeldr- arnir komu margsinnis í heim- sókn til okkar hjóna á meðan við bjuggum í Seattle í Bandaríkj- unum og við kynntumst vel þeg- ar ekið var í einum bíl dögum saman til að skoða landið. Einn- ig fórum við saman í fjölmargar sumarbústaðaferðir og við ferð- uðumst saman um landið okkar sem hann var svo fróður um. Garðar var einstaklega hjálp- samur og ég minnist þess sér- staklega hvað hann aðstoðaði okkur mikið þegar við fluttum aftur til Íslands og keyptum okkur húsnæði. Þá var hann boðinn og búinn í að aðstoða okkur við að brjóta niður veggi, leggja parket, hengja upp ljós, mála, lána okkur verkfæri og gera allt sem þurfti til að vel færi um fjölskylduna á nýjum stað. Eftir að við fluttum aftur til Íslands þá kynntist nafni hans, strákurinn okkar, afa sínum vel. Garðar var okkur iðulega innan handar við að skutla í píanótíma sem og aðrar tómstundir og á sumrin átti hann oft athvarf hjá afa sínum á milli leikjanám- skeiða og skólagarða. Það er með miklum söknuði að ég kveð tengdaföður minn, en ég geri það með vissu um að hann lifði góðu og viðburðaríku lífi. Birna Pála Kristinsdóttir. Garðar Svavarsson, tengda- faðir minn, var einstakur maður. Aldrei fyrr hafði ég kynnst manni með jafn mikið jafnaðar- geð og hann. Aldrei sá ég hann skipta skapi, alveg sama hvað gekk á. Hann var einstaklega ljúfur, traustur og góður maður. Það var aðdáunarvert að fylgj- ast með þolinmæði hans alveg sama hvað gekk á. Alltaf vildi hann sínu fólki allt það besta og var tilbúinn til þess að leggja mikið á sig til að svo gæti orðið. Ósjaldan fylltist maður sam- viskubiti yfir allri þeirri aðstoð sem hann veitti okkur, kom allt- af þegar þess þurfti og gerði iðulega meira en um var rætt. Hann var dýrmætur maður, hann Garðar, og ég er honum ákaflega þakklátur og þá ekki síst fyrir þau góðu áhrif sem hann hafði á börnin okkar Þór- hildar og þá góðu fyrirmynd í öllu sem hann var. Æðruleysi í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur, allt til síðasta dags, er nokkuð sem maður getur aðeins óskað sér að geta tamið sér á lífsleiðinni. Hafðu kæra þökk fyrir og hvíl í friði. Egill Örn Jóhannsson. Elsku afi. Það er skrýtið fyrir okkur að kveðja þig, að hitta þig ekki lengur ásamt ömmu inni í Barðavogi. Þú hefur fylgt okkur vel eftir síðan við fæddumst. Þegar við vorum lítil þá fengum við mikið að vera hjá þér og ömmu en þú varst alltaf til stað- ar fyrir okkur. Þú varst óþrjót- andi að lesa fyrir okkur, syngja með okkur og sýna okkur og fræða um hina ýmsu hluti, eins- og ótalmörgu spurningaspilin sem við spiluðum saman þar sem þú varst fljótur að svara hvort sem það var fyrir þitt lið eða ekki. Þið amma fóruð með okkur í óvissuferðir upp í sveit, fóruð með okkur í bústaðaferðir, á kaffihús, í Kringluna og hing- að og þangað sem okkur langaði til að fara eða gera. Hjá ykkur gleymdist alltaf að það væri til sjónvarp eða sími, það var alltaf eitthvað skemmtilegra að gera. Þú hafðir alltaf áhuga á því sem við vorum að gera, og vildir vita hvernig gengi. Við eigum eftir að sakna þín mikið elsku afi og munum passa vel upp á ömmu. Þín Kristján Dagur og Guðrún Klara. Garðar var að sönnu ein af mínum foreldramyndum sem ég mun ávallt vera þakklát fyrir. Hann stríddi mér, ögraði, fræddi og í því öllu fólst kær- leiki sem ég mun alltaf meta og nú sakna. Myndirnar eru svo skýrar sem koma upp í hugann, eins og m.a. að búa undir sama þaki í nær 12 ár frá því hann var tví- Garðar Svavarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.