Morgunblaðið - 12.01.2022, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 12.01.2022, Blaðsíða 15
MINNINGAR 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2022 tugur og ég að fæðast í Barða- voginum. Húmorinn var alltaf í fyrir- rúmi á milli okkar og kallaði hann mig t.d. „hundinn sinn“ sem ég „þóttist“ náttúrlega vera mjög móðguð yfir – en í raun elskaði. Kæri Garðar, eftir því sem árin hafa liðið, átta ég mig ávallt betur á hversu heppin ég var sem lítil stelpa að hafa þig við hlið mér. Upplifun t.d. á „Life Magazine“ sem þú þýddir og last upphátt fyrir okkur er ógleymanleg – maður áttaði sig á að það voru til öðruvísi blöð en þau íslensku. Þá sendir þú gjafir til mín og kort þegar þú varst í námi í Stokkhólmi sem voru í sérstöku uppáhaldi hjá mér og ekki síst tveir bílar sem mér fannst „kúl“. Hvar sem þú ert nú staddur, elsku Garðar, sem ég efast reyndar ekki um að er á þínum útvalda stað sem þú átt svo sannarlega skilið, vil ég þakka þér fyrir allt sem þú gafst mér sem var mikið. Hugsa til þín ávallt. Samúðarkveðjur til ykkar allra, elsku Alla, Diddi, Gummi, Þórhildur og fjölskyldur. Helga Magnúsdóttir. Garðar Svavarsson, tengda- faðir hans Egils Arnar okkar, er látinn og við hjónin í fjarlægu landi og getum því ekki fylgt honum síðasta spölinn. Við hugsum heim til þeirra allra, til tengdadóttur okkar Þórhildar og barna þeirra Egils, til Aðal- heiðar Sigurðardóttur, eftirlif- andi eiginkonu Garðars, og sona þeirra Garðars og eiginkvenna þeirra, til fjölskyldna þeirra. Garðar var í okkar huga ein- stakur maður. Hann var um svo margt frábrugðinn okkar hóp, hann var fámáll, virtist aldrei haggast, en ef hann lagði orð í belg var eftir því tekið. Sumir eru þannig af Guði gerðir að það er gott að vera þeim nálægt því frá þeim stafar bæði velvild og manngæska. Garðar var dæmi um slíkan mann, hann virtist hafa náð þeirri rósemd hugans sem er svo mikilvæg í amstri dagsins og hafði lag á að miðla henni áfram. Hafði þannig áhrif á umhverfi sitt. Þegar JPV útgáfa var að stíga sín fyrstu skref og þau Egill Örn og Þórhildur höfðu eignast Kristján Dag var Garð- ar boðinn og búinn að sinna drengnum og hafði á honum ein- stakt lag og það sama gilti svo um Guðrúnu Klöru þegar hún fæddist. Þau Aðalheiður höfðu komið sér upp fallegu og hlýlegu húsi í Barðavogi sem bar vott um verklagni þeirra og myndar- skap. Þau hjón voru samhent og nutu þess að ferðast saman um fjarlæg lönd og hér heima. Síð- ustu misseri glímdi Garðar við alzheimer en hann tapaði aldrei lyndiseinkennum sínum. Það var eftir því tekið hve rólegur, bros- mildur og æðrulaus hann var í veikindum sínum. Við þökkum af alhug sam- fylgdina og umhyggjuna sem hann sýndi okkur öllum. Bless- uð sé minning góðs manns. Guðrún Sigfúsdóttir og Jóhann Páll Valdimarsson. ✝ Kristján Valdi- mar Hann- esson fæddist í Bárufelli í Gler- árþorpi 12. maí 1935. Hann lést 3. janúar 2022. Foreldrar Krist- jáns voru hjónin Hannes Júlíus Jó- hannsson, f. 22. mars 1892, d. 23. janúar 1983, frá Árgerði í Saurbæjarhreppi, og Sigurlína Margrét Kristjáns- dóttir, f. 28. febrúar 1900, d. 26. október 1968, frá Espihóli í Hrafnagilshreppi. Bræður hans eru Jón Kristján Hannesson, f. 1924, d. 2004, Jóhann Benedikt Hannesson, f. 1925, d. 1990, Sig- urður Indriði Hannesson, f. 1929 og Helgi Bergmann Hann- esson, f. 1937. Eftirlifandi eiginkona Krist- jáns er Geirlaug Sigurjóns- dóttir, f. 8. september 1938, frá Ási í Glerárþorpi. Foreldrar Geirlaugar voru hjónin Sigur- jón Ármann Jónsson, f. 4. júlí 1904, d. 29. október 1964 og Ingibjörg Oktavía Sveinsdóttir, f. 18. október 1916, d. 5. júní 1996. Kristján og Geirlaug gift- ust á gamlársdag 1962. Börn Kristjáns og Geirlaugar eru: 1) María Helga, f. 1963, gift Ólafi Njáli Óskarssyni, börn þeirra eru Friðjón Geir, f. 1979, Elfa Dögg, f. 1985, Bryndís Helga, f. 1989 og Ólöf Vala, f. 1994. Þau eiga 6 barnabörn. 2) Hannes Indriði, f. 1964, giftur Drífu Matthíasdóttur, synir þeirra eru Kristján Páll, f. 1988, Jóhann Helgi, f. 1990 og Ingólfur Þór, f. 1999. Eiga þau 4 barnabörn. 3) Sig- urbjörn, f. 1967, giftur Hugrúnu Dögg Harð- ardóttur. Sonur þeirra er Jör- undur Guðni, f. 1999. Sig- urbjörn á einnig soninn Jónas Frey, f. 1987. Þau eiga eitt barnabarn. 4) Sigurlína Margét, f. 1969, d. 4. janúar 2022, eft- irlifandi eiginmaður Jón Sig- mar Sigmarsson. Börn þeirra eru Sigmar Páll, f. 1992, Sylvía Ösp, f. 1998 og Júlíus Geir, f. 2005. Þau eiga eitt barnabarn. 5) Kristján Kristjánsson, f. 1979. Kristján fór snemma að vinna ýmis verkamannastörf sem al- gengt var á þeim tíma bæði til sjós og lands en aðalstarf hans á ævinni var sjómennska á tog- urum og vertíðarbátum en frá 1964 var hann á trillum. Þá vann Kristján um tíma stóran hluta úr ári á Nótastöðinni Odda. Útför Kristjáns verður gerð frá Glerárkirkju á Akureyri í dag, 12. janúar 2022, klukkan 10. Í dag kveð ég eiginmann og þakka fyrir það ferðalag sem við höfum átt í gegnum lífið. Hann var mjög heimakær, vildi ekki flækjast, ef átti að fara bara eina helgi þá gat ég bara farið ein með börnin, nema ef átti að fara að renna fyrir sil- ung í vötnum, þá varð að fara um leið og búið var að vinna. Oft hentum við börnunum út í bíl og renndum af stað með tjald og nesti. Jökuldalsheiðin var staðurinn, helst við Ána- vatn. Heilsunni fór að hraka hin síðari ár, þá velti hann sér á lóðinni milli blómabeða, það varð að taka arfann í burt. Svo kom að því að hann þurfti að- stoð frá fleirum, þá fékk hann loks úrval af konum til að sinna sér og hafði orð á því við þær, best líkaði honum við þær sem svöruðu honum. Þakka vil ég öllum þeim englum sem hafa sinnt Kristjáni í hans veikind- um. Guð blessi ykkur. Geirlaug Sigurjónsdóttir. Kristján Valdimar Hannesson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, LILJA GRÓA KRISTJÁNSDÓTTIR, andaðist mánudaginn 27. desember á Eir hjúkrunarheimili. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 14. janúar klukkan 13. Allir eru velkomnir í kirkjuna og eru gestir beðnir um að framvísa neikvæðu hraðprófi sem er ekki eldra en 48 klst. gamalt. Streymt verður frá athöfninni á: https://beint.is/streymi/liljak. Kristján Þorsteinsson Kristín Jónsdóttir Njarðvík Guðrún Þorsteinsdóttir Erla Þorsteinsdóttir Kjartan Blöndahl Stefán Þorsteinsson Sigríður St. Björgvinsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamamma, amma og langamma, ÞÓRHILDUR KATRÍN HELGADÓTTIR frá Húsavík, lést mánudaginn 27. desember í faðmi fjölskyldunnar á Hrafnistuheimilinu í Boðaþingi. Útför fór fram í kyrrþey að hennar ósk. Bestu þakkir til allra sem sýndu okkur hlýju og kærleik við andlát hennar. Kolbrún Þórisdóttir Stefán Arnar Þórisson Ragnhildur Bjarney Traustad. Helga Þórisdóttir Sigbjörn G. Ingimundarson Halla Þórisdóttir Björgvin Bjarnason Snorri Arnar Þórisson Steinunn Ketilsdóttir ömmubörn og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HÁKON HEIMIR KRISTJÓNSSON lögfræðingur, áður á Hverfisgötu 16a, lést á Hrafnistu Laugarási síðastliðinn föstudag. Hann verður jarðsunginn í Lindakirkju 14. janúar klukkan 11. Í samræmi við gildandi samkomutakmarkanir eru gestir beðnir að framvísa neikvæðu hraðprófi eða vottorði um nýlega covid-sýkingu. Streymt verður frá athöfninni á lindakirkja.is/utfarir. Ólöf Sigurjónsdóttir Sigrún E. Hákonardóttir Hulda Hákon Jón Óskar Páll Liljar Guðmundsson Guðný Þorsteinsdóttir Burkni J. Óskarsson Birna María G. Baarregaard Ólafur Heimir Guðmundsson Ingibjörg Gunnarsdóttir Erla Rún Guðmundsdóttir Auðun Ingi Ásgeirsson og barnabarnabörn Okkar kæri faðir, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR FRANZ MIXA læknir, lauk jarðvist sinni laugardaginn 8. janúar. Auglýsum jarðarförina síðar. Már Wolfgang Mixa Kristín Loftsdóttir Halla Guðrún Mixa Katrín Mixa Sveinn Steinarsson Mímir, Alexía, Sól, Svanfríður, Elvar Ólafur og Sólvin Anton ✝ Birna Valgeirs- dóttir fæddist í Ólafsvík 17. janúar 1941. Foreldrar hennar voru Val- geir Kristjánsson, fæddur 7. mars 1900, dáinn 10. september 1961 og Unnur Runólfs- dóttir, fædd 8. mars 1920, dáin 12. apríl 2007. Birna átti þrjú alsystkini: Valgeir Víð- isson, f. 23.5. 1943, d. 2010, Guð- rún Valgeirsdóttir, f. 25.6. 1946, Auður Valgeirsdóttir, f. 21.4. 1953. Hálfsystkini Birnu sam- feðra eru Egill, f. 5.3. 1925, d. 19.6. 2012, Þorbjörg, f. 14.6. 1927, d. 20.3. 2021, Kristján, f. 29.8. 1928, d. 18.3. 2002, Guðný, f. 27.9. 1930, d. 11.2. 2008. Eiginmaður Birnu er Rúnar Guðjón Guðjónsson, prentari og söngvari, fæddur 16. september 1940. Foreldrar hans voru Guð- jón Theódórsson, f. 5.9. 1915, d. 23.4. 1986, Lydia Guðjónsdóttir, f. 25.5. 1921, d. 10.3. 1998. Börn Ósk, Birta Katrín, Birna María og Sóley Kara. Barnabarna- börnin eru orðin 9 talsins. Birna og Rúnar hófu sinn bú- skap á Laugarnesvegi, en þau bjuggu lengst af í Dúfnahólum 2 þar sem þau ólu börnin sín upp, síðar bjuggu þau á Skúlagötu 20, í Írabakka 34 og nú síðast á Lindargötu 61. Birna og Rúnar áttu sitt annað heimili í sum- arbústað sínum í Skorradal. Birna lauk prófi frá Gagn- fræðaskóla verknáms Reykjavík árið 1958. Birna starfaði við skrifstofustörf á endurskoð- unar- og lögfræðiskrifstofum og seinna hjá Olíuverslun Íslands, hjá Olíufélaginu hf. og lengst af hjá Tryggingastofnun ríkisins sem þjónustufulltrúi þar sem hún endaði sinn starfsferil. Birna var virk í íþróttum sem ung kona og spilaði sem fyrirliði í meistaraflokki í handbolta með Val og einnig stundaði hún ac- robatic í Ármanni. Birna var ennfremur mikil fjölskyldukona, var heimavinn- andi húsmóðir til fjölda ára og var virk í lífi barnabarna sinna. Útför Birnu fer fram í Lang- holtskirkju í dag, 12. janúar 2022, klukkan 13. Birnu og Rúnars eru: 1. Ásgeir Örn, f. 9.6. 1965, maki Steina Stein- arsdóttir, 1.8. 1966. Börn Ásgeirs eru Eydís Ósk, móðir hennar er Unnur Inga Bjarnadóttir. Stefan Örn, móðir hans er Poula Jør- gensen. Börn Ás- geirs og Steinu eru Sandra María og Róbert Rúnar. 2. Valgeir, f. 28.11. 1966. Börn hans eru Sigurður Helgi, móðir hans er Sigurlaug Markúsdóttir, Sunneva Rut, móðir hennar er Brynja Olgeirsdóttir. Sólrún Zoë, móðir hennar er Dagný Helgadóttir. 3. Ásdís María, f. 14.2. 1977, maki Atli Freyr Þórðarson, f. 27.7. 1977. Börn þeirra eru Fannar Freyr, Bjart- ur Birnir og Jökull Húni. 4. Íris Ósk, f. 22.7. 1979. Maki Þor- steinn Páll Sverrisson. Sonur Ír- isar er Bjarki Þór, faðir hans er Ragnar Páll Rafnarsson. Börn Írisar og Þorsteins Páls eru Ylfa Elsku mamma. Þau verða heldur fátækleg orðin þegar móðir er syrgð. Hvernig er hægt að þakka nógsamlega það ævistarf, kærleik, hlýju og ást sem hefur verið til staðar alla tíð? Það er margt að þakka í gegnum tíðina. Það að eiga ást- ríka móður sem hefur sýnt barni þolinmæði, virðingu og hlýju er besta næring sem hægt er að fá út í lífið. Mamma var hlý kona og sýndi það bæði börnum sínum og barnabörnum og fólkinu sínu. Hún elskaði ekkert heitar en að verja tíma með fjölskyldunni. Þegar ég var barn gat hún setið á gólfinu hjá okkur systrunum þar sem við lékum okkur og hjálpaði hún alltaf til með föndur af mikilli þolinmæði og var dugleg að hrósa fyrir verkin. Seinna meir átti hún enda- lausan tíma fyrir barnabörnin sín og var yndisleg amma. Ást- ina og kærleikinn sem hún hef- ur sýnt börnunum mínum fæ ég aldrei fullþakkað. Strákarnir mínir elskuðu að heimsækja ömmu og afa. Mamma var alltaf natin við barnabörnin sín. Hún passaði að eiga alltaf eitthvað til að gleðja þau. Það var hægt að finna leikföng á sínum stað und- ir stofuborðinu, forláta Fischer Price-eldavél ásamt bollastelli síðan við systurnar vorum börn. Þarna gátu strákarnir mínir alltaf sótt sér litla bolla og feng- ið hjá henni ömmurúsínur. Svo þegar þeir urðu eldri breyttist góðgætið í takt. Best þótti drengjunum mínum að fá í eitt ár að búa í sama hverfi og amma og afi. Þeir voru næstum of litlir til að fara einir á milli en freistingarnar í ömmuknúsi kölluðu á þá þótt þeir næðu varla upp í dyrabjölluna. Iðu- lega voru þeir sendir heim með sætabrauð í poka og komu sigri hrósandi heim, hafandi upplifað sjálfstæðið við að fara sjálfir á milli og svo glaðninginn sem fylgdi. Mamma var gestrisin kona og það mátti sjá að fólk sótti í samverustundirnar. Vinir barna hennar voru vinir foreldra okk- ar. Það voru ófá áramótin þar sem fólk safnaðist saman heima til að fagna áramótum. Einnig voru allir velkomnir í Skorradal þar sem mamma og pabbi áttu sumarbústað sem var þeirra annað heimili. Það var alltaf nóg pláss fyrir alla og svefn- pláss leyst með flatsæng eins og mamma orðaði það. Hún bjó þeim pabba fallegt heimili bæði í Skorradal og í Dúfnahólunum þar sem hún skreytti með fal- legum hlutum sem áttu sér sögu. Hún hugaði að umhverfi sínu í smáatriðum. Ég man öll jólin sem barn að vakna á að- fangadagsmorgni þar sem hún hafði breytt heimilinu í jólaland yfir nóttu þar sem jafnvel gard- ínum hafði verið skipt út fyrir jólalegri kost. Hún bjó börn- unum sínum fallegt heimili fullt af hlýju. Mömmu var alltaf umhugað um fólkið sitt og fylgdist vel með því. Við töluðum saman flesta daga og hún vildi gjarnan heyra hvað barnabörnin voru að taka sér fyrir hendur. Það hef- ur myndast tóm í þann tíma dags sem við vorum vanar að tala saman, tilfinningin að hringja í mömmu kemur sterk á hverjum degi og það eru við- brigði að geta ekki átt þessa stund sem gerði daginn minn ríkari. Ég mun sakna kærleiks- samtals, góðra ráða og dillandi hláturs. Ég kveð mömmu með djúpu þakklæti fyrir þann kær- leik, hlýju og ást sem hún hefur gefið okkur. Ásdís María Rúnarsdóttir. Hlýja, kærleikur og virðing eru orð sem koma upp í huga mér þegar ég minnist Birnu Valgeirsdóttur, tengdamóður minnar. Birna var afburðagestrisin kona og naut ég þeirrar ein- stöku gestrisni í öll þau 28 ár sem ég þekkti hana og var gest- komandi á heimili hennar og Rúnars. Hún var vel að sér og las mikið og naut ég þess að sitja hjá henni í eldhúsinu í Dúfnahólum og ræða um menn og málefni líðandi stundar. Oft gaf hún manni ráð um hvers- dagslega hluti sem ég vildi óska núna að ég hefði tekið betur eftir því að ráðagóð var hún og fór afskaplega vel með hlutina sem hún átti. Alltaf gaf hún sér nægan tíma fyrir mig og síðar börnin mín og fyrir það verð ég henni ávallt þakklátur. Hvíl í friði. Atli Freyr. Birna Valgeirsdóttir HINSTA KVEÐJA Kæra amma. Mig langar að þakka þér fyrir allar frábæru stund- irnar okkar saman. Þú varst klár, sterk og sann- kölluð fyrirmynd. Ég er þakklátur fyrir tímann sem ég fékk með þér og allt sem þú kenndir mér. Þinn Fannar Freyr. Elsku amma. Ég vil bara þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem ég hef átt með þér. Það eina sem ég vil er eitt augnablik til að kveðja þig. Samt er ég þakklátur fyrir að þú ert komin á betri stað. Kær kveðja, Bjartur Birnir. Elsku amma. Takk fyrir að vera svona góð öll þessi ár og mér fannst mjög gaman þegar við áttum heima nálægt ykkur. Jökull Húni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.