Morgunblaðið - 12.01.2022, Síða 16

Morgunblaðið - 12.01.2022, Síða 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2022 Okkar ástkæri bróðir og frændi, RAFN KONRÁÐSSON, lést fimmtudaginn 16. desember. Útför hans fer fram í Fossvogskirkju miðvikudaginn 12. janúar klukkan 11. Vegna aðstæðna í samfélaginu eru kirkjugestir beðnir að framvísa neikvæðu hraðprófi sem er ekki eldra en 48 klst. gamalt. Athöfninni verður streymt á https://streyma.is/streymi/ Ásdís G. Konráðsdóttir Erna Eggertsdóttir Haraldur Eggertsson Elsa Þóra Eggertsdóttir og fjölskyldur ✝ Rafn Konráðs- son fæddist í Reykjavík 14. des- ember 1937. Hann lést 16. desember 2021. Foreldrar hans voru hjónin Sigríð- ur Jónsdóttir, f. 1. september 1895, d. 27. júní 1957 frá Einlandi í Grinda- vík og Konráð Árnason, f. 26. febrúar 1902, d. 22. desember 1975 frá Hrauni í Grindavík. Systkini Rafns eru: 1) Guðbjörg, f. 21. nóvember 1922, d. 31. janúar 1923. 2) Ásta Halldóra, f. 6. nóvember 1924, d. 25. apríl 1944. 3) Árni Jón, f. 16. september 1926, d. 7. mars 2017. 4) Sigríður Þóra, f. 15. nóv- ember 1928, d. 31. desember 1982. 5) Jóhanna, f. 12. júlí 1930, d. 27. desember 2011. 6) Ásdís Guðbjörg, f. 21. mars 1936. Upp- eldissystkini Rafns eru: 1) Sig- urður Konráð, f. 9. ágúst 1942, d. 31. maí 2015. 2) Ásta Jóhanna, f. 23. febrúar 1944. Rafn var yngstur systkina sinna og alinn upp á Berg- þórugötunni í Reykjavík. Hann fór ungur til sjós og vann fyrstu árin á togurum. Síðar hóf hann störf hjá Rík- isskipum, upphaf- lega á skipinu Herj- ólfi en síðar á strandferðaskip- unum. Þegar Rafn lét af sjó- mennsku, 60 ára gamall, fór hann að sinna áhugamálum sín- um, ljósmyndun og ættfræði. Rafn bjó í nærri 60 ár hjá Egg- erti bróður sínum og Elsu konu hans. Þar hafði hann stórt hlut- verk sem frændi og afi fjölskyld- unnar, enda barngóður með ein- dæmum. Rafn var ógiftur og barnlaus en lætur eftir sig fullt af „afa-“ og „langafabörnum“. Útför hans fer fram í Foss- vogskirkju í dag, 12. janúar 2022, klukkan 11. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat. Það eru ekki allir afar sem eignast börn eða barnabörn. Afi er sá sem labbar með mann út á róló, passar mann þegar mamma og pabbi eru að vinna, kaupir handa manni páskaegg, jóla- pakka og laumar að manni um- slagi á fermingardaginn. Fer í bakaríið þegar hann sér að maður er kominn í heimsókn, og passar að það sé alltaf til eitthvað gott. Hann myndar helstu viðburði í lífi manns, afmæli, skólaskemmtanir, útskriftir, fermingar og brúð- kaup, en einnig þá hversdagslegu, þegar maður sneri systkinum sín- um hring eftir hring í stólnum inni í stofu eða sat og horfði á sjónvarpið. Hann var yngstur í sínum systkinahópi en samt var hann líka stóribróðir, hann var afabróðir en líka afi, hann var langafabróðir en líka langafi. Rabbi kenndi manni að maður er hlutverkin sem maður tekur sér fyrir hendur. Með því að gæta manns, sýna manni örlæti og gjafmildi, um- hyggju og aga, skipaði hann sér mikilvægan sess í lífi okkar. Hann minnti mann á ákveðin gildi í lífinu, hafði skýra skoðun á hvað það væri sem skipti máli og lét manni líða eins og maður væri eitt af því. Takk fyrir allar Freyjukara- mellurnar, kókómjólkina, mar- engsinn og pylsurnar, skrípóið og spjallið. Takk fyrir alla umhyggj- una. Hvíl í friði elsku Rabbi. Sandra Dögg, Elsa, Telma, Silja Lind, Brim- ar Máni og Álfey Sól. Fallinn er frá fyrrverandi skipsfélagi minn, Rafn Konráðs- son, eða Rabbi Konn eins og við kölluðum hann. Löngu áður en við fórum að sigla saman vissi ég hver hann var enda vann hann hjá sömu útgerð og faðir minn, Skipaútgerð ríkisins, þótt þeir hefðu ekki verið á sömu skipum samtímis. Leiðir okkar Rabba lágu fyrst saman þegar ég var ráðinn þriðji stýrimaður á strandferðaskipið Heklu snemma árs 1979 þar sem hann var háseti. Það fór ekkert á milli mála að hér var á ferðinni góður og traustur sjómaður sem hafði séð tímana tvenna. Hann hafði sig ekki mikið í frammi en var með lúmskan húmor og vel að sér í öllum málum. Hann hafði mik- inn áhuga á kirkjum en ekki í þeim tilgangi að sækja messur þar heldur myndaði hann allar kirkjur landsins. Bílar voru líka áhugamál hjá honum og hafði hann gaman af því að fara á bíla- uppboð. Halldór heitinn Oddsson skipstjóri okkar á Heklunni deildi sama áhugamáli og þeir tveir þreyttust seint á að ræða bíla. Ekki vorum við lengi saman á Heklunni því við yfirmennirnir vorum stöðugt að fara á milli skipa hjá útgerðinni en undir- mennirnir voru ráðnir á tiltekið skip. Það var svo ekki fyrr en 1987 að við urðum aftur samskipa þegar ég tók við strandferðaskip- inu Öskju sem skipstjóri en þá var Rabbi bátsmaður þar um borð. Það var mikill fengur fyrir mig að hafa þennan reynda báts- mann og góða félaga í minni áhöfn. Við áttum eftir að sigla saman næstu fjögur árin þar til ég fór til annarra starfa. Eftir að ákveðið var að leggja Ríkisskip niður var Askja seld úr landi í febrúar 1992 en þá fór Rabbi yfir á Kistufell, sem áður hafði verið Esja, en skipið var leigt til Sam- skipa. Rúmu ári síðar lét hann af sjómennsku fyrir fullt og fast. Næstu árin hittumst við gjarnan þegar við vorum að kveðja fyrr- verandi samstarfsfélaga frá okk- ar gömlu útgerð og urðu þá ávallt fagnaðarfundir. Nú er allt orðið sjóklárt hjá Rabba sem kominn er í skiprúm á himnaskipinu og við eftirlifandi skipsfélagar hans í gegnum mörg ár minnumst hans með hlýju og þakklæti. Ættingj- um votta ég innilega samúð. Hilmar Snorrason. Rafn Konráðsson ✝ Þórhildur Katrín Helgadóttir fæddist á Húsavík 9.ágúst 1934. Hún lést á Hrafnistuheim- ilinu í Boðaþingi 27. desember 2021. Foreldrar hennar voru Hólmfríður Benediktsdóttir, f. 10.3. 1903, d. 13.10. 1992, frá Breiðuvík á Tjörnesi og Helgi Ólafsson, f. 9.1. 1902, d. 26.4. 1977, frá Ísólfsstöðum á Tjörnesi. Systkini hennar eru Benedikt Ingvar, f. 30.9. 1926, d. 12.1. 2012, Þorbjörg, f. 19.3. 1929, d. 25.10. 2016, Ólafur Eiður, f. 28.4. 1939, d. 8.12. 1988 og Árni Þór- hallur, f. 22.12. 1945. Eiginmaður Þórhildar var Þór- ir Hilmarsson, f. 14.10. 1931, d. 4.3. 1999. Börn þeirra: 1) Kolbrún, f. 3.7. 1958. Börn: 1a) Þórir Árni, f. 1991, d. 2008, 1b) Axel Helgi, f. 1992, 1c) Herdís Brá, f. 1996. Fað- ir Jón B. Guðlaugsson, f. 1959. 2) Stefán Arnar, f. 13.10. 1959, maki Ragnhildur B. Traustadóttir, f. 1960. Börn: 2a) Þórhildur Katrín, f. 1986, maki Halldór F. Ólafsson, Björgvin, f. 2006, Kolbrún, f. 2009, Sonja Katrín, f. 2012, Guðmundur Atli, f. 2013, Stefán Þjóðar, f. 2015, Adrían Leó, f. 2015, Íris Brynja, f. 2019, Líam Elí, f. 2019, Atlas Ein- ar, f. 2019, Tómas Joseph, f. 2020, Heiðar Rafn, f. 2020, Ares Máni, f. 2021, Hilmir Smári, f. 2021. Þórhildur ólst upp á Húsavík ásamt foreldrum sínum og systkinum á Túngötu 11 (Braut). Hún gekk í grunnskóla þar og æfði handbolta á unglingsárum. Hún fór í Húsmæðraskólann á Laugum 18 ára gömul. Þórhild- ur og Þórir giftu sig 1957 og ári síðar fæddist fyrsta barn þeirra hjóna. Þau fluttu til Danmerkur í sex ár þar sem Þórir lærði byggingarverkfræði og eign- uðust þar fjögur börn. Til Ís- lands fluttu þau aftur 1965 til að börnin yxu upp sem Íslendingar. Í Garðabænum byggðu þau sér hús og síðasta barn þeirra fædd- ist. Þau fluttu til Sauðárkróks 1974 í fjögur á meðan Þórir gegndi bæjarstjórastöðu og Þór- hildur vann þar á leikskóla. Þá fluttu þau í Kópavoginn og bjuggu þar uns yfir lauk. Þórhildur vann við umönn- unarstörf á Kópavogshæli þar til hún hætti vegna aldurs og bjó síðustu ár sín í Vogatungu og síðar í Boðaþingi. Útför Þórhildar Katrínar fór fram í kyrrþey að hennar ósk frá Kópavogskirkju 11.1. 2022. f. 1985, 2b) Arnar Freyr, f. 1989, 2c) Halldór Snær, f. 2000, maki Alicia Flanigan, f. 2002. 3) Helga, f. 21.11. 1960, maki Sigbjörn G. Ingimundarson, f. 1955. Börn: 3a) Davíð Már, f. 1987, maki Eva Gunn- arsdóttir, f. 1967, 3b) Sigríður Kol- brún, f. 1990. Faðir Kristinn Ó. Ólafsson, f. 1959, d. 2019. 4) Katrín, f. 7.1. 1962, d. 6.12. 1992. 5) Halla, f. 26.8. 1964, maki Björgvin Bjarna- son, f. 1963. Börn: 5a) Katrín Þóra, f. 1984, maki Erna Eiríksdóttir, f. 1986, 5b) Guðmundur Bjarni, f. 1986, maki Guðrún A. Ein- arsdóttir, f. 1990, 5c) Jón Atli, f. 1993, maki Jessica Bailey, f. 1995, 5d) Ásdís, f. 1994, maki Benedikt F. Gylfason, f. 1990. 6) Snorri Arnar, f. 30.3. 1970, maki Steinunn Ketils- dóttir, f. 1972. Barn: 6a) Katrín Tinna, f. 2006, móðir Jenna L. Jónsdóttir, f. 1973. Barn Stein- unnar: 6b) Ásdís M. Grétarsdóttir, f. 1993, maki Stefán B. Andrésson, f. 1988. Langömmubörnin eru 13: Elsku mamma. Mikið er ég þakklát fyrir að hafa átt þig fyrir mömmu öll þessi ár. Þú sem ég gat leitað til í gleði og sorg. Þú varst ekki spör á orðin og oft var erfitt að þurfa að viðurkenna að þú hafðir rétt fyrir þér. Manstu þegar gott rokklag heyrðist í útvarpinu og við skellt- um okkur í dans! Ég búin að læra dans í Svíþjóð en þú engu síðri dansari. Þú hefur greinilega lært eitthvað fleira en að bródera í hús- stjórnarskólanum. Þær eru margar minningarnar sem koma upp í hugann núna þeg- ar þú hefur lagt í þína hinstu för. Góða ferð elsku mamma og skilaðu kveðju. Hvíl í friði elsku mamma og amma, Helga, Davíð Már og Sigríður Kolbrún. Elskuleg móðir mín, Þórhildur Katrín Helgadóttir, er látin. Fyrir hennar hönd er ég þakklát fyrir að hún hafi fengið hvíldina því síðustu ár hafa verið henni erfið eftir blóð- tappa sem hún fékk og lamaðist af og það var ekki hennar að geta ekki þvælst út um allt og verið með í öllu. Söknuðurinn er mikill og verð- ur skrítið að geta ekki farið til hennar eða hringt í hana til að segja henni nýjustu fréttirnar eða trúa henni fyrir nýjustu leyndar- málunum eins og t.d. hver væri ólétt og fékk hún alltaf fréttirnar á undan öllum öðrum og það fannst henni mjög spennandi. Hún var góð móðir og vinkona og gott að leita til hennar. Mamma var sterk kona sem gekk í gegnum bæði sorgir og gleði í sínu lífi og tókst á við hlutina af miklum styrk. Hún vann alltaf úti fulla vinnu með sex börn, bakaði, saumaði og sá um heimilið, ég held það hljóti að hafa verið meiri en 24 tímar í sólarhringnum hjá henni. Henni þótti mjög skemmtilegt að fylgjast með litlu langömmu- börnunum sínum og alltaf þegar ég kom til hennar var eitt af því fyrsta sem hún spurði „ertu með myndir?“ og svo gat hún horft á þær aftur og aftur en þótti enn þá betra þegar þau komu til hennar, þá ljómaði hún. Elsku mamma, ég þakka fyrir að hafa fengið að ganga í gegnum lífið með þér, það gerði það svo sannarlega innihaldsríkara og á ég eftir sakna þín óskaplega mik- ið. Nú ertu komin í draumalandið og hittir aftur pabba, Kötu, Þóri og alla þá sem þú hefur saknað úr lífinu, góða ferð elsku mamma. Þín dóttir Halla. Það eru forréttindi að fá að kveðja drottningu eins og Þórhildi tengdamömmu sem snerti hjarta mitt sem og margra með sinni um- hyggju og gleði sem var í kringum hana. Takk fyrir þau yndislegu ár sem ég fékk að njóta með þér og þau jákvæðu áhrif sem þú hafðir á mitt líf. Þú varst mikil fjölskyldu- kona með stórt hjarta, þolinmæði, sjálfstæði, samskiptahæfni, húm- or og eljusemi. Eitt það mikilvæg- asta sem þú kenndir mér er æðru- leysið, að sætta okkur við það sem við fáum ekki breytt og kjark til að breyta því sem við getum breytt og visku til að greina þar á milli. Enda tryggðir þú að þitt fólk gerði sitt besta. Hugsa oft til þess þegar varst hjá okkur í nokkrar vikur í Birmingham og Manchester og tókst langa göngutúra með göngu- stafina enda var uppgjöf ekki til í þinni lífsins orðabók. Þú óskaðir eftir að verða helgaramma fyrir Katrínu Tinnu þegar við bjuggum þar, rúmlega áttræð, og reyndist henni dásamleg amma, takk. Síð- ustu árin reyndu á þig, eftir að þú jafnaðir þig illa eftir lærbrot og heilablóðfall á níræðisaldri, en þó að sumarlandið hafi kallað á þig voru hvorki hjarta þitt né hugur tilbúin í ferðalagið enda fylgdist þú með stjórnmálum og dægurlíf- inu til síðasta andardráttar. Góða ferð í sumarlandið. Þín Steinunn (Steina). Elsku besta amma. Farið er nú eitt stórt og fallegt hjartameð andlit sem ávallt var með bros á vör. Aldrei fórstu að kvarta enda með þér var alltaf fjör. Áttum við öll margar góðar stundir með þér. Hvíldu í friði elsku besta amma. Ég mun klárlega sakna þín hér. Katrín Tinna Snorradóttir. Þórhildur Katrín Helgadóttir HINSTA KVEÐJA Hvíldu í friði, elsku amma. Þín verður sárt saknað og við elskum þig. Ásdís María, Stefán Bragi og Líam Elí. Ég er 6 ára og þú ert 87 ára. Leitt að þú sért dáin. Hafðu gaman á himnum, langamma. Ég sakna þín. Adrían Leó Stefánsson. ✝ Jón Helgi Hjör- leifsson fæddist 20. júlí 1943 á Gils- bakka í Austurdal, Skagafirði. Hann lést 22. desember 2021 á SAK Akur- eyri. Foreldrar hans voru hjónin Krist- rún Helgadóttir, f. 20.8. 1909, d. 18.4. 1950, og Hjörleifur Jónsson, f. 2.8. 1890, d. 9.4. 1985. Alsystkini Jóns eru Aldís Torfhildur, f. 25.4. 1942, drengur f. 25.10. 1944, d. 25.10. 1944, Þórdís Sigurbjörg, f. 26.1. 1947, drengur, f. 26.1. 1947, d. 26.1. 1947, Kristrún Jóhanna Ás- dís, f. 23.12. 1948. Bróðir, sam- feðra, er Friðjón, f. 13.11. 1917, d. 27.10. 1985. Systkini sammæðra eru Elín Árdís Ingvarsdóttir, f. 30.11. 1930, d. 2.11. 1980, Birna Dóttir Jóns er Rósa Björk, f. 18.6. 1981. Blóðmóðir Rósu er Sigurbjörg Lilja Michelsen, f. 12.11. 1963. Maður Rósu er Kevin Martin, f. 9.10. 1980. Sonur þeirra er Kiljan Kormákur Mart- in, f. 15.1. 2013. Fósturforeldrar Rósu eru Sveinn Hallgrímsson og Gerður Karítas Guðnadóttir. Jón ólst upp á Gilsbakka. Framan af ævi stundaði hann bú- skap og vinnumennsku, bjó bæði á Gilsbakka og til nokkurra ára á Egilsá. Um miðjan níunda áratug- inn flutti hann á Sauðárkrók og hefur búið þar síðan. Jón starfaði lengi hjá Slátursamlagi Skagfirð- inga og seinna var hann vaktmað- ur í Steinullarverksmiðjunni. Útför hans verður frá Sauðár- krókskirkju í dag, 12. janúar 2022, klukkan 14. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat. Aðalheiður Árdal Jónsdóttir, f. 24.8. 1937, d. 22.5. 2003, Sigrún Hjördís, f. 8.9. 1939 og Ragn- heiður Bryndís, f. 8.9. 1939, d. 8.12. 2017. Sambýliskona Jóns var Kristín Ingadóttir, f. 15.5. 1948 á Borg í Skrið- dal. Synir hennar og Guðmundar Traustasonar, f. 14.10. 1947, d. 30.8. 1986, eru Ingi, f. 24.7. 1974, kona hans er Oddný Ragna Pálmadóttir, f. 21.12. 1989, þeirra börn eru Guð- mundur Helgi, f. 28.3. 2017 og Kristrós Ísafold, f. 16.7. 2020. 2) Þórir, f. 4.3. 1981, kona hans er Ingibjörg Sólrún Indriðadóttir, f. 15.1. 1989. Dóttir þeirra er Þór- dís Lilja, f. 1.12. 2016. Jón Hjörleifsson var uppalinn á Gilsbakka í Austurdal og bjó þar lengi framan af ævi. Hann var elst- ur fjögurra alsystkina frá Gils- bakka. Jón átti auk þess nokkur hálfsystkini. Jón var við búskap ásamt föður sínum og Hjörleifi Kristinssyni, sem ólst upp á Gils- bakka og bjó þar alla sína tíð. Jón fór síðar að Egilsá og bjó þar í fé- lagi við Guðmund skáldbónda, hann átti sitt fé en hirti einnig fé Guðmundar. Jón var göngugarpur og klettamaður á yngri árum og hafði gaman af að smala fé, hann var ólatur að leita ef hann vissi að fé vantaði. Um miðjan níunda ára- tuginn brá Jón búi og flutti til Sauðárkróks. Þar hóf hann störf hjá Slátursamlagi Skagfirðinga og varð þar fljótlega ársmaður. Traustari mann var vart hægt að hugsa sér, Jón var alltaf mættur á réttum tíma, var alltaf við. Hann var afskaplega liðlegur við við- skiptavini Slátursamlagsins, en oft fékk fólk að geyma frystivöru hjá félaginu. Jón sá um allt svoleiðis, hann tók vel á móti fólkinu og öllum var boðið í kaffi. Jón var einstakt hraustmenni og á haustin var hans starfi að að vera í frystiklefanum. Aldrei man ég eftir því að hann minntist á það að sér væri kalt. Þegar hann var að saga kjöt var hann berhentur. Þannig gat hann sagað heilu dagana. Maður gat fengið í sig kulda bara við að horfa á hann. Auk starfa í Slátursamlag- inu vann Jón á næturvöktum í Steinullarverksmiðjunni. Jón starf- aði óslitið hjá Slátursamlaginu þar til rekstri þess var hætt skömmu fyrir síðustu aldamót. Það var alltaf gott að hitta Jón, hann var glaður og heilsaði alltaf með fallegu brosi. Jón var einn af þessum stálheiðarlegu og gegn- heilu sveitamönnum sem aldrei gleyma uppruna sínum og þeim gildum sem þeir voru aldir upp við. Jón var mikill húmoristi, fund- vís á það spaugilega í tilverunni og hafði afskaplega skemmtilegan smitandi hlátur. Það var gott að hlæja með honum. Jón hélt góðum tengslum við sína sveit og þá sérstaklega Kjálk- ann, hann var í stjórn Lestrar- félags Silfrastaðasóknar í 53 ár og þá gjaldkeri. Hann sá um að kaupa bækurnar, keypti nýjar bækur fyrir hver jól og svo meira eftir áramótin. Hann var mjög vel lesinn og vel að sér, einn af þess- um mönnum sem búa yfir þessari djúpu, víðsýnu sveitamannavisku. Jón var mörg vor við sauðburð hjá Jóhanni, vini sínum í Sól- heimagerði, hafði gaman af að halda tengslum við búskap. Stundum tók hann að sér girðing- arvinnu í sinni sveit. Jóni þótti vænt um föðurleifð sína, Gilsbakka, og þau systkin hafa hugsað vel um jörðina. Við þrír félagar höfum í mjög mörg ár fengið að reka hross á Gilsbakka að sumrinu. Það samstarf hefur alltaf gengið vel og allir verið ánægðir. Eftir að Jón flutti á Sauðárkrók kynntist hann Kristínu Ingadótt- ur, sem verið hefur sambýliskona hans í rúmlega þrjá áratugi. Þeirra sambúð hefur verið farsæl og eins samband Jóns við syni Kristínar, þá Inga og Þóri. Að leiðarlokum er ég þakklátur fyrir kynnin við Jón og sendi fjöl- skyldu hans allri innilegar samúð- arkveðjur og fel Jóni þeim Guði, sem sólina hefur skapað. Agnar á Miklabæ. Jón Helgi Hjörleifsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.