Morgunblaðið - 12.01.2022, Qupperneq 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2022
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Auglýsing um skipulagsmál
í Rangárþingi ytra
Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst
tillaga að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028.
Litli-Klofi 2, breyting á landnotkun
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 9.12.2021 að auglýsa tillögu að breytingum á
skilgreiningu landnotkunar í aðalskipulagi sveitarfélagsins fyrir 12 lóðir úr landi Litla-Klofa 2, þar sem
hluti núverandi frístundasvæðis merkt F37 í greinargerð aðalskipulagsins verði gert að Íbúðabyggð að
beiðni lóðareigenda. Lýsing hefur verið kynnt og bárust engar athugasemdir.
Tillagan liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu, hjá Skipulagsstofnun,
Borgartúni 7b, Reykjavík og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is
Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir
við tillöguna og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 23. febrúar 2022.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra
í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Haraldur Birgir Haraldsson
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra
RANGÁRÞING YTRA
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda. kl. 9-14. Opin vinnustofa
kl. 9-12. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Bónusbíllinn fer frá Árskógum
6-8 kl. 12.55. Pílukast kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Upplestur á
framhaldssögu kl. 14. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir
velkomnir. Sími 411-2600.
Bústaðakirkja Félagsstarf fellur niður í dag, miðvikudag. Boðið er
uppá göngutúr frá kirkjunni kl. 13. Vonumst til að geta byrjað í næstu
viku.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qi-gong kl. 7-8. Kaffisopi og
spjall kl. 8.30-11. Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl. 9.45-10.
Ljóðahópur Soffíu kl. 10-12. Línudans kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30-
12.30. Heimaleikfimi á RUV kl. 13-13.10.Tálgun með Valdóri kl. 13-
15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30.
Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá
Smiðju kl. 13. Allt hópastarf og viðburðir falla niður tímabundið. Nú
er hægt að skrá sig í hreyfingu á vegum FEBG ogtómstundanámskeið
á vegum Jónshúss. Skráning fer fram á vef:
sportabler.com/shop/gardabaer
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Handavinna, opin vinnustofa kl. 13-16. Brids kl. 13.
Styttri ganga kl. 13.30. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir
hádegi deginum áður.
Korpúlfar Morgunleifkimi útvarpsins kl. 9.45 í Borgum. Gönguhópur
Korpúlfa, þrír styrkleikahópar, kl. 10 gengið frá og inni í Egilshöll.
Stjórnar- og nefndarfundur Korpúlfa kl. 10 í Borgum. Minnum á pútt á
morgun 13. janúar á Korpúlfsstöðum, á áhugaverðan viðburð kl. 13 í
Borgum á vegum menninganefndar. Virðum sóttvarnir í góðri sam-
vinnu og sátt. Kaffi á könnunni og ljúf samvera í Borgum.
Seltjarnarnes Kaffikrókur alla morgna frá kl. 9. Námskeiðin í leir og
gleri eru í samráði við leiðbeinendur. Billjard Selinu kl. 10. Kyrrðar-
stund í kirkjunni kl. 12. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á
Skólabraut kl. 13. Virðum almennar sóttvarnir, tveggja metra regluna
og grímuskyldu þar sem það á við.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
0
2
2
Kynningarfundur vegna
breytinga á deiliskipulagi
Dalbrautarreits
Dalbraut 8 – 17. janúar 2022
Kynningarfundur vegna breytinga á deiliskipulagi Dalbrautarreits
er varðar Dalbraut 8, verður haldinn sem netfundur í gegnum
Teams, mánudaginn 17. janúar 2022 kl. 17:00.
Sjá hlekk https://akranes.is/is/skipulag-i-kynningu.
Fundurinn verður tekinn upp og verður aðgengilegur á
heimasíðu Akraneskaupstaðar og á facebook. Kjörið er að senda
inn spurningar í streymi ámeðan á fundi stendur.
Vinnslutillaga: Breyting á Deiliskipulagi Dalbrautarreits.
Í fyrirhugaðri breytingu er gert ráð fyrir atvinnu- og
félagsstarfsemi á jarðhæð. Byggingarreitur bílgeymslu og
1. hæðar er stækkaður. Nýtingarhlutfall lóðar breytist
+( >B. < =B? *8 ,@
/E:0D508F( *8 &470F(15; '$(9F F; #:(F &3(5,:8F( *8 E:(F&% 9C(5(
31. janúar 2022 í þjónustuver Akraneskaupstaðar Dalbraut 4 eða
á netfangið skipulag@akranes.is
!9%5( 3C00508$0F1$0 &35)$2F8&A *8 $16#:(-&("; 24+3F 8:(;
tillagnanna og leggja fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu. Ákveði
bæjarstjórn að auglýsa ofangreindar skipulagstillögur verður
frestur til að gera athugasemdir við þær aðminnsta kosti 6 vikur
sbr. ákvæði skipulagslaga.
()$3,,+"2-$ ,!$.*50&,1 /& *4%)'-#,,)$3,
með
morgun-
!$#"nu
Atvinnublað Morgunblaðsins
fimmtudaga og laugardaga
Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað?
Sendu pöntun á atvinna@mbl.is eða hafðu samband í síma 569 1100
Allar auglýsingar birtast í Mogganum, ámbl.is og finna.is
200 mílur
✝
Sveinn Frímann
Jóhannsson
fæddist í Reykjavík
26. desember 1944.
Hann lést á Land-
spítalanum 1. janúar
2022. Foreldrar hans
voru hjónin Guðrún
Kristjana Elíasdóttir
húsmóðir, f. 12. jan-
úar 1916, d. 22.
ágúst 1991, og Jó-
hann Pálsson pípu-
lagningameistari, f. 13. mars
1912, d. 2. ágúst 1977. Sveinn Frí-
mann var skírður eftir móð-
ursystur sinni sem hét Sveinfríður
en hún lést úr berklum á Vífils-
stöðum ári áður en hann fæddist.
Systkini hans eru Kristján
Pálmar, f. 18. maí 1936, maki
Valgerður Sigurðardóttir, f.
29.7. 1940, d. 7.5. 1998, börn
þeirra eru Jóhann, f. 9. ágúst
1958, og Birna, f. 10. nóv. 1959.
Ruth, f. 13. febrúar 1949, maki
Lárus Ingólfsson, f. 26. júlí 1948,
dætur þeirra, Guðrún, f. 26. des.
1970, og Kristín, f. 20. apríl 1975.
Eiginkona Sveins Frímanns
var Jóhanna Pétursdóttir, f. 2.
maí 1948, d. 5. sept. 1916. Dóttir
þeirra er Elsa Guðrún, f. 17. jan-
úar 1990, maki Valdimar Teitur
Einarsson, f. 1977. Valdimar átti
fyrir Alexander Teit, f. 2001, og
Dominic Einar, f. 2005. Sveinn
Frímann átti fyrir soninn Heiðar,
f. 15. september 1968, móðir hans
er Bára Steinsdóttir, f. 1943, og
eru bæði mæðginin búsett í Sví-
þjóð. Jóhanna átti fyrir tvö börn
með Stefáni Hallgrímssyni, f.
1948. 1) Hallgrímur, f. 2. nóv-
ember 1970, maki Una Björg, f.
1977. Barn þeirra er Orri Hrafn,
f. 2015. Hallgrímur átti fyrir Stef-
án Fannar, f. 2005, og Una átti
Örnu Eiri, f. 2009. 2) Íris, f. 9. des-
ember 1973, maki Jóhann Sveinn,
f. 1971. Börn þeirra eru Sara Hlín,
f. 2000, Birkir Ísak, f. 2002, og
Daði Freyr, f. 2013.
Sveinn Frímann
fæddist í Reykjavík
og bjó fyrstu árin í
Efstasundi en flutti
með fjölskyldunni
1958 í Brautarholt.
Hann gekk í Gagn-
fræðaskóla Austur-
bæjar og fór síðar í
Samvinnuskólann á
Bifröst. Hann lauk
sveinsprófi í pípu-
lögnum frá Iðnskól-
anum árið 1973, hlaut meistara-
nafnbót 1976 og vann hjá föður
sínum í Geislahitun í mörg ár.
Hann bjó lengi í Hamraborg í
Kópavogi.
Sveinn kynntist Jóhönnu árið
1984 og fluttu þau saman austur
á Breiðdalsvík en þar vann
Sveinn Frímann í bókhaldi hjá
hraðfrystihúsinu í um áratug.
Þau fluttu svo suður árið 1992 og
bjuggu lengst af í Mosfellsbæ en
þar ráku þau Jóhanna um nokk-
urra ára skeið ljósmyndafyr-
irtækið Framköllun.
Þegar Sveinn Frímann var 9
ára gamall veiktist hann skyndi-
lega og kom í ljós að hann var
með alvarlegan hjartagalla og
fór hann til Kaupmannahafnar í
mikla aðgerð. Árið 1995 fór hann
aftur í mikla og skyndilega hjart-
aaðgerð þegar viðgerð fyrri að-
gerðarinnar gaf sig. Þessi hjarta-
aðgerð átti eftir að sitja í honum
alla tíð og varð hann óvinnufær
eftir aðgerðina. Hann var þó
duglegur að finna sér eitthvað til
hafa fyrir stafni og lærði á eigin
spýtur grunn í kerfisstjórnun en
hann hafði mikinn áhuga á tölvu-
og tæknimálum. Eftir að Jó-
hanna lést flutti Sveinn í Núpa-
lind í Kópavogi þar sem hann var
búsettur þegar hann lést.
Útför Sveins fer fram í Graf-
arvogskirkju í dag, 12. janúar
2022, klukkan 13.
Hlekkur á streymi:
https://www.mbl.is/andlat
Í dag fylgjum við móðurbróður
okkar síðustu sporin. Frímann
frændi okkar kvaddi í upphafi nýs
árs eftir erfið veikindi.
Vegferð okkar hefur tvinnast
saman í gegnum ártugi og er
margs að minnast. Frímann
reyndist okkur systrum alltaf vel
og við vitum að honum þótti vænt
um okkur. Vilborg Dagbjartsdótt-
ir gerði tímann að yrkisefni í ljóði
sínu Viðhorf. Þar lýsti hún tíman-
um á þann hátt að hún þræddi
dagana, eins og skínandi perlur,
upp á óslitinn silfurþráð. Minning-
ar okkar um Frímann frænda má
því finna sem skínandi perlur á
silfurþráðum okkar systra.
Svo er því farið:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pétursson)
Við viljum trúa því að nú hafi
Frímann hitt hana Jóhönnu sína
aftur, sem hann saknaði mikið.
Eftir standa börn og barnabörn,
ættingjar og vinir. Megi allar góð-
ar vættir vaka yfir þeim sem nú
syrgja.
Guðrún og Kristín Lárusdætur.
Sveinn Frímann
Jóhannsson
✝
Ólafur P.
Sveinsson
fæddist í Kópavogi
2. júlí 1944. Hann
lést á Landspít-
alanum 27. desem-
ber 2021.
Foreldrar Ólafs
voru Sveinn Ólafs-
son og Elna And-
ersen, eldri bróðir
Ólafs er Lárus.
Eiginkona Ólafs
er Marít Davíðs-
dóttir, fóstursonur
Grímur H. Páls-
son, tengdadóttir
Kristjana Sigurð-
ardóttir og afa-
börnin Marít og
Daníel.
Ólafur starfaði
sem leigubílstjóri í
yfir 50 ár.
Útförin fer fram
í kyrrþey.
Elsku Óli afi er farinn yfir í
sumarlandið, hann var einstak-
lega góður og ljúfur, enda kall-
aður Óli dýrlingur af vinum sín-
um. Afi gaf okkur öllum í
fjölskyldunni mikla hlýju, var
alltaf léttur í lund og tilbúinn að
hjálpa öðrum.
Afi hafði sérstakan áhuga á
Mercedes Bens og hugsaði vel
um alla átján Bens-bílana sem
hann átti í gegnum árin tengt
vinnu sinni. Hann var alltaf flott-
ur og snyrtilega til fara, hógvær
og skemmtilegur, og hafði svo
góða nærveru.
Við vottum ástkærri ömmu
okkar, Marít, samúð og vonum að
við getum átt okkar þátt í að
bæta henni upp þann mikla missi
sem hún hefur nú orðið fyrir. Hvíl
í friði elsku afi og megi guð blessa
þig.
Afabörn,
Marít Grímsdóttir og
Daníel Grímsson.
Ólafur P. Sveinsson