Morgunblaðið - 12.01.2022, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.01.2022, Blaðsíða 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2022 –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 18. janúar 2022 Auglýsendur athugið SÉRBLAÐ B A BLAÐ 50 ÁRA Bára ólst upp í Byggðar- horni í Sandvíkurhreppi í Flóa en býr á Selfossi. Hún er leikskólakennari og deildarstjóri á leikskólanum Jötun- heimum á Selfossi og hefur starfað með börnum í 30 ár. Áhugamálin eru fjölskyldan, útihreyfing og söngur, en Bára er í Kór Selfosskirkju. „Við er- um á gönguskíðum og veiði á sumrin og erum að græja okkur upp í kajak- sportinu.“ FJÖLSKYLDA Eiginmaður Báru er Ágúst Ármann Sæmundsson, f. 1974, vinnur hjá Íslenska gámafélaginu. Börn Báru eru Alexander Freyr, f. 1991, Andrea Björk, f. 1994, Gísli Frank, f. 1997, og Elfa Björk, f. 2003. Barnabörnin eru Vaka Röfn Alexandersdóttir, f. 2017, og Brynjar Úlfur, f. 2021, sonur Andreu. Foreldrar Báru: Gísli Geirsson, f. 1945, fv. bóndi í Byggðarhorni, býr nú á Selfossi, og Ingibjörg Ingadóttir, f. 1949, d. 2018, bókavörður á Selfossi. Þau bjuggu í Byggðarhorni. Bára Kristbjörg Eyfjörð Gísladóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þetta ætti að verða góður dagur í vinnunni. Mundu að þakka fyrir það sem þú hefur. Gamall kunningi skýtur upp kollinum og það veldur þér áhyggj- um. 20. apríl - 20. maí + Naut Tjáðu ástvini þínum hug þinn og hikaðu ekki við að taka áhættu. Þú vinn- ur best undir álagi, það væri kannski sniðugt að æfa sig í öðru. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Leyfðu mönnum að gaspra; þeir gefast upp og þá kemur þinn tími. Allt er þegar þrennt er gæti átt við í dag. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Það er stundum erfitt að greina kjarnann frá hisminu en það er nauðsyn- legt að þú gerir það. Einhver sýnir þér yfirgang, taktu á því strax. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Ef þú skipuleggur viðburð um of verður þú líklega fyrir vonbrigðum. Það þarf ekki allt að vera fullkomið. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Hlutirnir fara eins og þú óskaðir þér. Leyfðu öðrum að láta ljós sitt skína og þá fer allt að gerast hraðar. 23. sept. - 22. okt. k Vog Sköpunarkraftur þinn er mikill um þessar mundir jafnvel svo að þú átt erf- itt með að velja og hafna. Afskiptasemi viss aðila fer í taugarnar á þér. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Það er margt sem byrgir sýn og því er nauðsynlegt að gefa sér góðan tíma til þess að kanna allar að- stæður. Lyftu þér upp í kvöld. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Spennan sem þú finnur fyrir vegna nýrra kynna er gagnkvæm. Síg- andi lukka er best og því eru allar svipt- ingar til lítils, þegar upp er staðið. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú þarft að tala þínu máli og veist að enginn getur gert það fyrir þig. Hæfileikar þínir til samskipta eru í há- marki núna. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Mundu að þú ert umkringd/ ur góðu fólki sem gerir allt fyrir þig. Hvernig væri að skipuleggja óvissuferð með makanum? 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þetta er ekkert verri tími en hver annar til þess að brydda upp á nýj- ungum. Þig langar að víkka sjóndeildar- hringinn. Skoðaðu hvað er í boði. Brottnáminu úr kvennabúrinu. Snorri hélt marga tónleika með Jón- asi Ingimundarsyni og gáfu þeir m.a. út geisladisk árið 2006. Snorri var líka í tíu ár einn af tenórunum þrem- ur sem sungu á svölunum við Sólon Íslandus á Þorláksmessu. „Þetta var Leðurblökunni árið 1999, hann var í fyrstu óperufærslu Íslensku óper- unnar í Hörpu, sem var Töfraflautan, og söng síðast í La traviata á liðnu ári. Eftirminnileg hlutverk hér heima eru t.d. Stýrimaðurinn í Hol- lendingnum fljúgandi og Pedrillo í S norri Wium fæddist 12. janúar 1962 í Reykjavík og ólst upp á Háaleitis- braut. Hann gekk í Álfta- mýrarskóla og Iðnskól- ann í Reykjavík og fór að læra málarann eins og faðir hans og afi. „Ég var sendur í sveit til frænku minnar á Baugsstöðum í Stokkseyr- arhreppi þegar ég var 12-15 ára, en það var góður tími. Svo fer ég að vinna hjá pabba og afa, það lá alveg beint við.“ Hann varð málarameist- ari 1985 en byrjaði í Söngskólanum um sama leyti og stundaði nám hjá Magnúsi Jónssyni og Dóru Reyndal. Að því loknu fór hann í Konserva- toríum Vínarborgar og lauk diplóma- prófi þaðan árið 1992. Aðalkennarar hans þar voru Svanhvít Egilsdóttir og Carol Blencho-Mayo. Snorri hefur sungið með Jugend- stil Theater, Salzburger Tourne, við óperuhúsin í Lippstadt, Flensburg, Kaiserslautern og víðar. Þá söng hann þrjú sumur í kór Wagnerhátíð- arinnar í Bayreuth. Snorri var fast- ráðinn einsöngvari við óperuna í Coburg í Þýskalandi á árunum 1992- 1996. „Ég er svo feginn að hafa farið út á sínum tíma, það var ómetanleg reynsla. Það var t.d. mikil upplifun að fá að vera fluga á vegg í Bayreuth og fylgjast með helstu Wagner- söngvurum þess tíma. Mínir helstu áhrifavaldar voru Ingólfur Guðbrandsson, sem sagði mér að ég ætti að fara í söngnám þegar ég var í Pólýfónkórnum hjá honum 19 ára. Ég var ekki gamall þegar ég fór að hlusta á Jussi Björ- ling og Carreras og heillaðist af þess- um hljóðheimi óperunnar. Ég hugs- aði aldrei út í að ég yrði söngvari en eitt leiddi af öðru.“ Fleiri áhrifavald- ar Snorra voru einnig Garðar Cortes, skólastjóri Söngskólans, Svanhvít Egilsdóttir og Jónas Ingimundarson. „Ári 1996 komum við fjölskyldan heim til Íslands og ég stofnaði mitt eigið fyrirtæki, einbeitti mér að málningunni og að byggja hús fyrir okkur fjölskylduna. En í kringum 2000 fer ég aftur að syngja og syng eitt hlutverk á ári hjá Íslensku óper- unni og ýmislegt annað.“ Hans fyrsta hlutverk hjá Íslensku óperunni var í mjög skemmtilegur siður og var orð- inn partur af Þorláksmessu, að mér fannst og mörgum öðrum, og leiðin- legt að þetta skuli vera hætt. Við fjölskyldan förum svo aftur út árið 2005, en fyrrverandi konan mín fór í nám og bjuggum við fyrst úti í Vín. Ég fer þá að syngja úti en held líka áfram að syngja hér heima. Fjöl- skyldan flutti svo heim 2007, en þau vildu ekki búa úti og ég varð eftir en ég gefst upp á því haustið 2008 að vera einn í útlöndum og kem heim korter í hrun,“ en Snorri var þá fast- ráðinn í Landestheater Detmold í Þýskalandi og söng víðar. „Ég ákvað að ráða mig til Detmold því þar var ráðist í það stórvirki að setja upp all- an Niflungahringinn eftir Wagner. Þar söng ég m.a. Loka í Rheingold.“ Snorri fór svo að færa sig yfir í leiðsögumanninn upp úr 2010, fór í gönguleiðsögn í Leiðsöguskólanum í Kópavogi og lauk prófi í jöklaleið- sögn, Árið 2012 er leiðsögu- mennskan orðin hans aðalstarf. „Ég átti breyttan jeppa sem ég hafði ver- ið að ferðast í. Það leiðir mig út í þetta að taka fólk upp á hálendið og upp á jökla,“ en Snorri er með eigið fyrirtæki og er í prívatleiðsögn, frá Snorri Wium, málari, söngvari og leiðsögumaður – 60 ára Leiðsöguparið Snorri og Klara fyrir framan bílinn sem þau hafa notað til að flytja ferðamenn um hálendið og jökla landsins. Gott að geta skipt um búning Samstarfsmenn Bjarni Thor Kristinsson, Jónas Ingimundarson og Snorri. Ópera Snorri sem Pedrillo í Brott- náminu úr kvennabúrinu. Til hamingju með daginn Hafnarfjörður Markús Orri Ólafsson fæddist 18. febrúar 2021 kl. 22.08 á fæðingardeild Landspítalans í Reykja- vík. Hann vó 3.200 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Ingunn Vilhelmína Ólafsdóttir og Ólafur Freyr Gíslason. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.