Morgunblaðið - 12.01.2022, Page 22
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Heimir Ríkarðsson hefur þjálfað
ungmenni í handknattleik hérlendis
í fjóra áratugi. Heimir gegnir veiga-
miklu hlutverki í uppeldi fram-
úrskarandi leikmanna því hann hef-
ur í fjöldamörg ár tekið að sér að
stýra 18 ára landsliði karla. Þar hafa
ófáir atvinnumennirnir og landsliðs-
mennirnir farið í gegn á löngum
tíma en Íslandi hefur oft tekist að
vera á meðal átta bestu þjóða í Evr-
ópu í þeim aldursflokki.
Heimir hefur ekki verið fyrir-
ferðarmikill í fjölmiðlum í gegnum
tíðina en féllst á að veita Morgun-
blaðinu/mbl.is viðtal um þjálfunina
þegar eftir því var leitað.
„Ég byrjaði í raun með hand-
boltaskóla fyrir HSÍ en það voru
krakkar á aldrinum 14 og 15 ára. Ég
skipulagði það en þá komu fleiri
þjálfarar og einnig dómarar sem
héldu fyrirlestra. En ég hef aðallega
verið með 18 ára landsliðið í gegnum
tíðina. Eiginlega gegnumsneitt.
Ég byrjaði hjá HSÍ sem aðstoðar-
þjálfari hjá mönnum eins og Jóhanni
Inga Gunnarssyni, Steindóri Gunn-
arssyni og Þorbergi Aðalsteinssyni.
Var með þeim fyrstu árin sem að-
stoðarmaður í 18 ára landsliðinu en
ég þjálfaði þá stráka á sama aldri
hjá Fram. Í kringum 1994 tók ég við
sem þjálfari 18 ára landsliðsins.
Í fyrsta landsliðinu sem ég stýrði
var til dæmis Guðjón Valur Sigurðs-
son. Þar voru fleiri sem urðu at-
vinnumenn eins og Ragnar Ósk-
arsson. Einnig menn sem eru
þekktir þjálfarar eins og Halldór Jó-
hann Sigfússon [á Selfossi] og Einar
Jónsson [hjá Fram]. Villi naglbítur
[tónlistarmaður] var þarna líka áður
en hann fór að troða upp. Fyrsta
mótið eftir að ég tók alfarið við var
með þennan hóp á Sparkassen Cup í
Þýskalandi á milli jóla og nýárs.
Síðan þá höfum við nánast farið á
það mót árlega. Þetta er mjög eftir-
minnilegt mót vegna þess að þetta
var hálfgerð frumraun og við höfn-
uðum í þriðja sæti. Strákarnir voru
gríðarlega vinsælir og mjög hvattir
áfram af þýskum áhorfendum. Þeir
heilluðu enda var mikil stemning í
liðinu og áttu eiginlega höllina.“
Heimir hefur aldrei lagt þjálf-
unina alfarið fyrir sig í þeim skiln-
ingi að hún hafi verið hans atvinna.
Hann hefur ávallt unnið í lögregl-
unni en þjálfað handbolta með. Í dag
er orðið mun algengara að fólk reyni
að lifa af þjálfun íþróttafólks.
Alltaf í fullri vinnu með
„Ég var á vöktum í vinnunni alveg
til ársins 2000 en naut mikils velvilja
hjá mínum yfirmönnum. Ég fékk
jafnvel að skreppa af vöktum til að
taka æfingu en ég hef alltaf verið í
fullri vinnu utan handboltans. Enda
var það miklu algengara þegar ég
var að byrja í þessu,“ segir Heimir
en hann ákvað að prófa eitt sumar í
lögreglunni en er þar enn. Enn
meiri tilviljun réð því að hann reyndi
fyrir sér sem þjálfari.
„Ég ætlaði aldrei í þjálfun en
hafði verið fenginn til að taka að
mér unglinganefnd hjá Fram. Eftir
að hafa ráðið þjálfara var nánast
mitt fyrsta verk að segja honum upp
vegna þess að hann mætti ekki á
fyrstu tvær æfingarnar. Ekki fannst
þjálfari og úr varð að ég og vinur
minn Lárus Hrafn Lárusson tókum
3. flokk kvenna það árið. Þannig
byrjaði ég í þjálfun.“
Nóg að taka sér sumarfrí
Spurður um hvernig menn endist
svo lengi í þjálfuninni segir Heimir
að fyrir sig hafi verið nóg að fá hefð-
bundið sumarfrí.
„Þetta er ástríða og ég væri löngu
hættur ef mér þætti þetta ekki
skemmtilegt. Mér finnst mjög gam-
an að þjálfa þennan aldurshóp því
áhuginn er svo mikill á þessum
aldri. Það er reglulega gaman að
vera nálægt leikmönnum sem eru á
fullu í íþróttinni. Um leið og
keppnistímabilinu lýkur hjá fé-
lagsliðinu þá tekur við törn hjá
landsliðinu. Þegar tímabilinu lýkur
þá er maður oft búinn að fá alveg
nóg en það þurfa ekki að líða marg-
ar vikur þar til mig fer að klæja í
puttana. Þá finnst mér eitthvað
Ástríða að
þjálfa unga
leikmenn
Morgunblaðið/Eggert
Valur Heimir Ríkarðsson hefur þjálfað 2. og 3. flokk karla hjá Val í sautján
ár ásamt því að þjálfa 18 ára landsliðskarla um árabil.
- Heimir Ríkarðsson hefur byggt upp
íslenska handboltamenn í fjóra áratugi
Þjálfaraferillinn
» Þjálfaði yngri flokka hjá
Fram frá 1982 til ársins 2000
og var aðstoðarþjálfari í meist-
araflokki um tíma.
» Meistaraflokkur karla og 2.
flokkur Fram frá 2000-2004.
» Hefur verið hjá Val frá 2005
sem þjálfari 2. og 3. flokks
karla ásamt því að hafa af og
til verið í þjálfarateymi meist-
araflokks karla.
Eitt
ogannað
_ Knattspyrnumaðurinn Albert Guð-
mundsson mun yfirgefa hollenska fé-
lagið AZ Alkmaar þegar samningur
hans rennur út í sumar. Þetta kemur
fram í hollenska miðlinum NoordHol-
lands Dagblad. Albert, sem er 24 ára
gamall, hefur ekki viljað framlengja
samning sinn við AZ.
_ Knattspyrnumaðurinn Finnur Tóm-
as Pálmason og sænska félagið Norr-
köping hafa komist að samkomulagi
um að hann yfirgefi félagið. Finnur
kom til Norrköping á síðasta ári en lék
með KR að láni síðasta sumar og spil-
aði aldrei deildarleik með sænska lið-
inu.
_ Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur
gengið frá samningi við finnska mið-
vörðinn Dani Hatakka. Hatakka er 27
ára og kemur frá Honka í heimaland-
inu og semur við Keflavík út komandi
leiktíð.
_ Knattspyrnumaðurinn Þorleifur
Úlfarsson var í gær valinn af Houston
Dynamo í nýliðavali MLS-deildarinnar í
Bandaríkjunum. Houston hafnaði í
neðsta sæti Vesturdeildarinnar á síð-
ustu leiktíð.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2022
England
Southampton – Brentford ....................... 4:1
Staðan:
Manch. City 21 17 2 2 53:13 53
Chelsea 21 12 7 2 45:16 43
Liverpool 20 12 6 2 52:18 42
Arsenal 20 11 2 7 33:25 35
West Ham 20 10 4 6 37:27 34
Tottenham 18 10 3 5 23:20 33
Manch. Utd 19 9 4 6 30:27 31
Wolves 19 8 4 7 14:14 28
Brighton 19 6 9 4 20:20 27
Leicester 18 7 4 7 31:33 25
Southampton 20 5 9 6 24:30 24
Crystal Palace 20 5 8 7 29:30 23
Brentford 20 6 5 9 24:30 23
Aston Villa 19 7 1 11 25:30 22
Everton 18 5 4 9 23:32 19
Leeds 19 4 7 8 21:37 19
Watford 18 4 1 13 22:36 13
Burnley 17 1 8 8 16:27 11
Newcastle 19 1 8 10 19:42 11
Norwich City 19 2 4 13 8:42 10
B-deild:
Reading – Fulham.................................... 0:7
Staða efstu liða:
Bournemouth 25 14 7 4 41:20 49
Fulham 24 14 6 4 58:19 48
Blackburn 25 13 7 5 43:28 46
WBA 25 11 9 5 31:19 42
QPR 24 12 5 7 37:30 41
Huddersfield 26 11 7 8 32:29 40
Afríkukeppnin
Nígería – Egyptaland .............................. 1:0
Súdan – Gínea-Bissau .............................. 0:0
Alsír – Sierra Leóne................................. 0:0
Reykjavíkurmót karla
Víkingur R. – Fylkir................................. 4:3
50$99(/:+0$
NBA-deildin
Charlotte – Milwaukee ...................... 103:99
Detroit – Utah................................... 126:116
Boston – Indiana........................ (frl.) 101:98
New York – San Antonio ................... 111:96
Houston – Philadelphia...................... 91:111
Sacramento – Cleveland .................. 108:109
Portland – Brooklyn......................... 114:108
Efstu lið í Austurdeild:
Chicago 26/11, Brooklyn 25/14, Miami 25/
15, Milwaukee 26/17, Philadelphia 23/16,
Cleveland 23/18, Toronto 20/17, Charlotte
22/19, Washington 20/20, Boston 20/21.
Efstu lið í Vesturdeild:
Golden State 30/9, Phoenix 30/9, Utah 28/
13, Memphis 28/14, Dallas 22/18, Denver
20/18, LA Lakers 21/20, Minnesota 20/20,
LA Clippers 20/21, Portland 16/24.
4"5'*2)0-#
Sara Björk Gunnarsdóttir lands-
liðsfyrirliði í knattspyrnu er byrjuð
að æfa á ný í herbúðum franska
stórliðsins Lyon.
Sara er mætt eftur til franska
liðsins eftir að hafa eignast dreng
með knattspyrnumanninum Árna
Vilhjálmssyni í nóvember á síðasta
ári. Landsliðsfyrirliðinn lék síðast
með Lyon gegn Bröndby frá Dan-
mörku í Meistaradeild Evrópu 10.
mars á síðasta ári. Sara hefur áður
gefið það út að hún stefni á að leika
með íslenska landsliðinu á Evr-
ópumótinu í Englandi í sumar.
Sara byrjuð að
æfa með Lyon
AFP
Lyon Sara Björk Gunnarsdóttir
feistar þess að spila á EM í sumar.
Grétar Rafn Steinsson, fyrrverandi
landsliðsmaður í knattspyrnu, hef-
ur verið ráðinn í ráðgjafastarf hjá
Knattspyrnusambandi Íslands til
sex mánaða. Grétar hætti störfum
hjá Everton sem yfirmaður inn-
kaupamála skömmu fyrir jól en
hann var þar í þrjú ár og þar áður
fjögur ár sem yfirmaður knatt-
spyrnumála hjá Fleetwood Town.
Grétar mun m.a. vinna að þarfa-
greiningu, stefnumótun og þróun
gagnagrunns KSÍ, sem og greining-
arvinnu sem getur gagnast öllum
félagsliðum og landsliðum.
Morgunblaðið/Golli
KSÍ Grétar Rafn Steinsson hefur
verið ráðinn til sex mánaða.
Grétar Rafn
ráðinn til KSÍ
Kristján Jónsson í Búdapest
kris@mbl.is
Karlalandsliðið í handknattleik skil-
aði sér á keppnisstað í Búdapest um
miðjan dag í gær ásamt fylgdarliði
en Ísland mætir Portúgal á föstu-
daginn í fyrsta leik sínum í B-riðli
lokakeppni EM. Landsliðshópurinn
hefur farið mjög gætilega í janúar
vegna heimsfaraldursins og dvaldi
liðið saman á hóteli í Reykjavík
meðan á undirbúningi liðsins stóð.
Daginn fyrir
brottförina í gær
fóru allir í PCR-
próf vegna kór-
ónuveirunnar og
reyndust allir
landsliðsmenn-
irnir neikvæðir.
Hópurinn flaug
með leiguflugi frá
Icelandair, sam-
starfsaðila HSÍ, í
gær og starfsfólk flugfélagsins beið
landsliðsmanna í innrituninni í
landsliðstreyjum í gærmorgun.
Landsliðsmennirnir voru ekki í
fjölmenni í flugstöðinni á leið sinni
til Ungverjalands en flugvélin hélt
af stað skömmu eftir að mesta um-
ferðin er í Leifsstöð. Eins og gefur
að skilja væri reiðarslag fyrir leik-
menn að smitast á þessum tíma-
punkti og þurfa að einangra sig frá
hópnum í marga daga fyrir utan
áhrifin sem hópsmit gæti haft.
Landsliðsmennirnir fóru í PCR-próf
eftir komuna til Búdapest í gær og
fá væntanlega niðurstöðurnar í dag.
Hingað til hefur tekist að forða leik-
mönnum frá smiti og verður svo
vonandi áfram. Gestgjafarnir Ung-
verjar eru einnig í riðli Íslands á
EM sem og Hollendingar sem leika
undir stjórn Erlings Richardssonar.
Margir sveitungar Erlings frá Vest-
mannaeyjum ætla að mæta á stað-
inn og fylgjast með mótinu eins og
fram kom á baksíðu Morgunblaðs-
ins á dögunum.
Hafa sloppið við smit til þessa
- Karlalandsliðið í handknattleik kom á keppnisstað í Búdapest í gær
Guðmundur
landsliðsþjálfari.
22 ÍÞRÓTTIR