Morgunblaðið - 12.01.2022, Side 23

Morgunblaðið - 12.01.2022, Side 23
vanta og þarf þá að komast aftur á æfingu. Ég þarf ekki meira en sum- arfríið til að kúpla mig frá þessu,“ útskýrir Heimir en bendir einnig á að með tímanum viða menn að sér frekari fróðleik um íþróttina og þjálfun. „Á sínum tíma var ekkert internet og maður þurfti að fara til útlanda á námskeið. En það kom einnig fyrir að haldin væru námskeið hér heima. Ég man til dæmis eftir því þegar Fram stóð fyrir námskeiði með Leif Mikkelsen [fyrrverandi landsliðs- þjálfara Dana]. Nú geta menn leitað að fræðsluefni á netinu en HSÍ er einnig með góð þjálfaranámskeið. HSÍ hélt 2019 fyrsta Mastercoach- námskeiðið hér á landi í samvinnu með EHF fyrir stóran hóp íslenskra þjálfara og fór ég á námskeiðið ásamt tveimur samstarfsmönnum mínum í Val, Óskari Bjarna Ósk- arssyni og Ágústi Þór Jóhannssyni. Fjöldi þjálfara náði sér þá í þessa gráðu. Maður þarf endalaust að bæta við sig.“ Viljum vera með öll yngri landsliðin í efstu deild Árangurinn hjá 18 ára landsliði Íslands hefur oftar en ekki verið mjög góður. Fyrir utan það að hafa farið tvívegis í úrslitaleik á EM þá nær Ísland merkilega oft að vera á meðal átta efstu á EM í þessum ald- ursflokki. Síðasta sumar hafnaði lið- ið til dæmis í 8. sæti þótt ekki hafi endilega farið mikið fyrir því í um- ræðunni. Hvernig stendur á þessu? „HSÍ leggur mikið upp úr því að við séum með öll landsliðin í efstu deild á EM. Það hefur oft tekist hjá karlaliðunum. Ég er sammála þér að árangurinn er ansi jafn hjá 18 ára liðinu á heildina litið. Það eru nokkr- ir toppar en fá slæm mót. Okkur hefur blessunarlega tekist að vera á meðal átta efstu á EM 18 ára mörg undanfarin ár, en þannig höldum við okkur meðal bestu þjóð- anna. Því fylgir alltaf dálítið spenna að ná því vegna þess að þar viljum við vera. Þeir sem eru fæddir 2002 höfnuðu á EM í Slóvakíu í 8. sæti en það tryggir þá þeim sem fæddir eru 2004 keppnisrétt næst í úrslitum á EM og HM. Þetta telur allt. Líklega er helsta skýringin á þessu að þjálfunin er góð í félögun- um hér heima. Langflest ef ekki öll félögin eru með góða þjálfara í yngri flokkum og hafa metnað fyrir því. Leikmennirnir eru sjálfir metnaðar- fullir og ég gæti trúað því að á þess- um aldri séum við duglegri að æfa en aðrar þjóðir. Oft eru fleiri æfing- ar á viku hér á Íslandi og ég held að það hjálpi okkur að halda þessu við. En við þurfum að bæta styrkinn. Þar erum við aðeins á eftir.“ Flestir í gullaldarliðinu fóru langt í yngri liðum Blaðamaður veltir fyrir sér hvort fylgni sé milli góðs árangurs í yngri landsliðum og góðs árangurs hjá A- landsliði. Þegar A-landsliðið hefur náð afburðaárangri, höfðu þá lands- liðsmennirnir einnig náð góðum ár- angri með yngri landsliðum? „Eðlileg þróun væri kannski að einn, tveir eða þrír leikmenn úr hverjum árgangi færu áfram upp í A-landsliðið. Úr kjarna Evr- ópumeistaraliðsins 2003 fóru Arnór Atlason, Ásgeir Örn Hallgrímsson, Björgvin Páll Gústavsson og Kári Kristján Kristjánsson áfram upp í A-landsliðið. Ef við horfum á ís- lenska landsliðið sem fékk verðlaun á ÓL 2008 og EM 2010 þá höfðu flestir í því liði náð fínum árangri í yngri landsliðum. Ef við skoðum þá sem eru fæddir árið 2000 þá eru Viktor Gísli Hall- grímsson og Haukur Þrastarson þegar komnir í A-landsliðið. Ef við skilum tveimur til þremur leik- mönnum áfram í A-landsliðið þá er það mjög gott. En það er aldrei neitt gefið að góðir leikmenn í yngri landsliðum komist í A-landslið síð- ar.“ Evrópumeistarar árið 2003 Geysilega margir snjallir leik- menn hafa farið í gegnum 18 ára lið- in á svo löngum tíma. Fyrst þegar Heimir var aðstoðarþjálfari voru Gunnar Andrésson, sem nú er að- stoðarþjálfari Heimis í 18 ára liðinu, og fleiri í liðinu. Fljótlega á eftir kom mjög sterkt landslið með Ólaf Stefánsson, Dag Sigurðsson og Patrek Jóhannesson sem lykilmenn. Áður var minnst á Guðjón Val og skömmu síðar sterk kynslóð manna sem margir voru í landsliðinu sem vann ólympíu- verðlaun í Peking 2008: Hreiðar Levý Guðmundsson, Ingimundur Ingimundarson, Róbert Gunn- arsson, Snorri Steinn Guðjónsson og fleiri. EM árið 2003 er skiljanlega mót sem stendur upp úr hjá Heimi því þá fór Ísland alla leið og varð Evrópumeistari. Eina skiptið til þessa sem Ísland hefur náð þeim ár- angri í handboltanum. „Fyrsta mótið í Þýskalandi var mjög eftirminnilegt og skemmtilegt eins og ég nefndi. Þetta er flott mót og okkur tókst að vinna það árið 2017. En langeftirminnilegasta mót- ið er EM þegar við urðum Evrópu- meistarar. Maður man nánast hverja einustu mínútu frá þessum tveimur vikum í Slóvakíu. Einnig var mjög skemmtilegt að komast í úrslitaleik EM 2018 en þá töpuðum við fyrir Svíum í úrslitaleik,“ segir Heimir. _ Viðtalið við Heimi er mun lengra og mun birtast í heild sinni á mbl.is/sport/handbolti síðar í vik- unni. Morgunblaðið/Golli Sigursælir Arnór Atlason, Ásgeir Örn Hallgrímsson voru í Evrópumeist- araliðinu 2003 og komust síðan á verðlaunapall með A-landsliðinu. ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2022 _ Jón Daði Böðvarsson, landsliðs- maður í knattspyrnu, vonast til þess að losna frá enska B-deildarliðinu Millwall síðar í þessum mánuði. Hann staðfesti þetta í viðtali við KSÍ TV í gær og sagði að verið væri að vinna í sínum málum. Jón Daði hefur engin tækifæri fengið með Millwall í vetur en hann er í lands- liðshópnum sem mætir Úganda í Anta- lya í Tyrklandi í dag og Suður-Kóreu á laugardaginn. Hann er reyndastur þeirra leikmanna sem taka þátt í verk- efninu en Jón Daði hefur leikið 60 landsleiki. _ Níu leikmenn eiga möguleika á að spila sinn fyrsta A-landsleik í dag þegar Ísland mætir Úganda. Það eru mark- verðirnir Hákon Rafn Valdimarsson og Jökull Andrésson og þeir Finnur Tómas Pálmason, Damir Muminovic, Atli Barkarson, Viktor Karl Einarsson, Valdimar Þór Ingimundarson, Kristall Máni Ingason og Viktor Örlygur Andra- son. _ Spænski körfuboltamaðurinn Javier Valeiras er genginn til liðs við Grindvík- inga en hann kemur frá Gannon- háskóla í Bandaríkjunum. Valeiras er 23 ára gamall framherji og 203 sentimetr- ar á hæð. _ Tyrkneski knattspyrnumaðurinn Ah- met Yilmaz Calik, 27 ára gamall mið- vörður úrvalsdeildarliðsins Konyaspor, lést í bílslysi í höfuðborginni Ankara í gærmorgun. Calik lék áður með Genc- lerbirligi og Galatasaray og lék átta landsleiki fyrir Tyrkland en hann var í hópi Tyrkja í lokakeppni EM í Frakklandi árið 2016. _ Leo Anthony Speight, tvítugur ís- lenskur strákur, ættaður frá Bretlandi, hefur verið valinn í breska landsliðið í taekwondo. Sveinn Speight faðir hans skýrði frá þessu á Facebook og sagði að Leo hefði staðist læknisskoðun, væri kominn í eitt sterkasta landslið heims og myndi flytja til Manchester á næst- unni þar sem hann yrði í fullri, launaðri vinnu sem afreksmaður í íþróttinni. _ Ólafur Helgi Kristjánsson er kominn í raðir Breiðabliks á ný en hann var þjálfari karlaliðs félagsins þegar það varð bikarmeistari og Íslandsmeistari árin 2009 og 2010. Hlaðvarpsþátturinn þungavigtin og fotbolti.net skýrðu frá þessu en Ólafur mun samkvæmt því starfa í kringum 2. flokk karla hjá félag- inu og er með klásúlu um að geta farið ef meira heillandi starf býðst annars staðar. Ólafur hef- ur þjálfað mikið í Danmörku, síðast lið Esbjerg, en þar var hon- um sagt upp störfum síð- asta vor. Eitt ogannað Hilmar Snær Örvarsson verður eini Íslendingurinn sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu í skíðaíþrótt- um fatlaðra en það verður sett í Lillehammer í Noregi í dag. Þar keppa um þúsund íþróttamenn frá tæplega fimmtíu löndum en þetta er í fyrsta sinn sem allar vetrar- greinar fatlaðra eru í boði á einu og sama heimsmeistaramótinu. Hilm- ar keppir í svigi og stórsvigi á mótinu en röðin kemur ekki að hon- um fyrr en í næstu viku. Keppt er í stórsvigi miðvikudaginn 19. janúar og í svigi tveimur dögum síðar. Hilmar Snær eini sem fer á HM Ljósmynd/ÍF Noregur Hilmar Snær Örvarsson keppir í stórsvigi og svigi á HM. Valsmenn hafa fengið Ágúst Eð- vald Hlynsson, leikmann 21 árs landsliðsins í knattspyrnu, lánaðan frá Horsens í Danmörku út þetta tímabil. Ágúst er 21 árs miðjumað- ur sem lék fyrst kornungur með Breiðabliki en var síðan á mála hjá Norwich og Bröndby. Hann lék með Víkingi R. 2019 og 2020 og var í láni hjá FH frá Horsens fyrri hluta tímabilsins 2021. Hann hefur skor- að 12 mörk í 53 leikjum í efstu deild og spilað sjö leiki með 21-árs lands- liðinu en aðeins komið við sögu í fimm leikjum Horsens í vetur. Ágúst í láni hjá Valsmönnum Morgunblaðið/Eggert 2021 Ágúst Eðvald Hlynsson lék með FH fyrri hluta síðasta árs. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Áttundi landsleikur Íslands í karla- fótbolta gegn Afríkuþjóð fer fram í Antalya í Tyrklandi í dag þegar Ís- land mætir Úganda í vináttulands- leik, fyrsta leik ársins 2022. Úganda er aðeins fimmta Afríku- þjóðin af 54 innan knattspyrnu- sambands álfunnar sem Ísland mæt- ir í 513 A-landsleikjum karla frá upphafi en Ísland hefur áður mætt Suður-Afríku þrisvar, Nígeríu tvisv- ar, Túnis og Gana einu sinni. Ísland hefur unnið Suður-Afríku tvisvar og gert eitt jafntefli og unnið og tapað gegn Nígeríu, en auk þess tapað fyrir Túnis og gert jafntefli við Gana. Allt hafa þetta verið vináttu- landsleikir nema þegar Nígería vann Ísland 2:0 á HM 2018 í Rússlandi. Ísland vann Nígeríu 3:0 í fyrsta leiknum við Afríkuþjóð á Laugar- dalsvellinum í ágúst 1981 þar sem Árni Sveinsson, Lárus Guðmunds- son og Marteinn Geirsson skoruðu mörkin. Núverandi landsliðsþjálfari, Arn- ar Þór Viðarsson, skoraði í 4:1-sigri gegn Suður-Afríku á Laugardals- vellinum árið 2005. Veigar Páll Gunnarsson skoraði í þeim leik og aftur sigurmark gegn Suður-Afríku, 1:0, árið 2009. Lið Úganda er í 82. sæti heims- lista FIFA og í 16. sæti af 54 Afríku- þjóðum. Liðinu hefur gengið mjög vel frá því í haust, aðeins tapað ein- um leik af sjö frá 2. september og markatalan í þessum sjö leikjum er 5:2. Rétt eins og hjá Íslandi vantar marga fastamenn Úganda í dag en í hópnum eru 12 leikmenn af þeim 27 sem voru í hópnum í síðustu leikjum liðsins í undankeppni HM í nóv- ember. Alla þá reyndustu vantar, m.a. leikmenn sem spila í Skotlandi, Slóvakíu og Ísrael, en 21 af þeim 23 sem eru í hópnum í dag leikur með félagsliðum í Úganda. Áttundi leikurinn gegn Afríkuþjóð - Úganda er fimmta þjóðin í Afríku sem Ísland mætir í 513 landsleikjum karla Heimir Ríkarðsson segir að litlu hafi munað að Sigvaldi Björn Guðjónsson, leikmaður pólska stórliðsins Kielce og eini örvhenti hornamaðurinn í hópi Íslands á EM í Búdapest, hefði gengið ís- lenska landsliðinu úr greipum. „Sigvaldi er í A-landsliðinu í dag en við misstum hann nærri því í danska landsliðið. Hann bjó í Danmörku og hafði verið valinn til æfinga með Dönum. Ég frétti af honum og hafði tal af Sigvalda í þeirri von að hann myndi spila fyrir Ísland. Eftir gott spjall þá kom hann og æfði með okkur. Sem betur fer,“ sagði Heimir en Sigvaldi leikur sinn 40. landsleik gegn Portúgal á föstudags- kvöldið. Náðu Sigvalda af Dönum KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin: Blue-höllin: Keflavík – Njarðvík ......... 19.15 HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Eyjar: ÍBV U – Grótta .............................. 18 TM-höllin: Stjarnan U – Selfoss ......... 20.30 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.