Morgunblaðið - 12.01.2022, Blaðsíða 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2022
Það geta allir fundið eitthvað
girnilegt við sitt hæfi
Freistaðu
bragðlaukanna
... stærsti uppskriftarvefur landsins!
Bandaríski leikarinn, leikstjórinn
og framleiðandinn Milo Ventimiglia
hlaut þann heiður að stjarna merkt
honum var lögð í hina frægu stétt
The Hollywood Walk of Fame.
Ventimiglia er þekktastur fyrir
hlutverk sín í þáttaröðunum This is
Us og Gilmore Girls.
AFP
Stjarna fyrir Ventimiglia
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Jónas Þór Guðmundsson á sér nokk-
ur hliðarsjálf sem tónlistarmaður.
Eitt þeirra er Ruxpin, annað Octal
Industries, þriðja Asonat og það nýj-
asta og fjórða er Oh Mama. Hefur
Oh Mama nú gefið út fjórar rafræn-
ar breiðskífur með forvitnilegum
nöfnum: Tímarit, Blokkir, Dalir og
Húsgögn. Og lagatitlarnir eru í anda
plötutitlanna og skondnir því á Hús-
gögnum eru þeir sóttir í húsgagna-
línur Ikea, á Blokkum nöfn gatna og
staða með þekktum fjölbýlishúsum
og á Dölum bera lögin titla sem dalir
eru kenndir við, t.d. „Svarfaður“ og
„Öxnar“. Tímarit hefur svo að
geyma lög á borð við „Eimreiðina“,
„Fjölni“ og „Vaka“.
Passar upp á að
ekkert sé skemmt
Blaðamaður sendi tölvupóst á
Jónas og fékk símanúmerið hans til
baka og það greinilega erlent með
landsnúmeri sem blaðamaður kann-
aðist ekki við. „Eistland,“ svarar
Jónas þegar hann er spurður að því
hvert sé landið og í ljós kemur að
þar hefur hann búið til fjölda ára.
„Ég vinn við fornleifarannsóknir og
að kenna,“ segir Jónas þegar blaða-
maður hnýsist enn frekar.
Jónas er menntaður sagnfræð-
ingur en segist hafa verið plataður
út í að fara í fornleifarannsóknir.
„Ég er svokallaður „practical arche-
ologist“, er ekkert að vinna að há-
skólarannsóknum heldur meira í því
sem þarf að gera, ef verið er að
byggja eitthvað fer ég á svæðið og
passa upp á að ekkert sé skemmt
sem má ekki skamma,“ útskýrir
hann, staddur í Tallinn.
Jónas hefur í árafjöld gefið út tón-
list og þá undir fyrrnefndum nöfnum
Ruxpin og Asomat. „Svo er ég búinn
að vera viðriðinn útgáfufyrirtækið
Thule Records, ég er búinn að vera í
hinu og þessu í raftónlistar-
bransanum,“ segir hann frá. Í fyrra
fór hann svo að gefa út plötur á net-
inu undir nafninu Oh Mama. „Það
var svo mikið að gera hjá mér – ég
var með lítið barn og er með ennþá –
það gafst svo lítill tími til að vinna
almennilega í tónlist þannig að alltaf
þegar krakkinn fékk sér blund tók
ég upp fartölvuna og fór að setja
saman eitthvað skemmtilegt og leika
mér. En þetta passaði ekkert við það
sem ég er að gera í hinum verkefn-
unum mínum þannig að ég ákvað að
safna þessu dóti saman og koma
þessu út,“ segir Jónas.
Út um allt
– Þetta er „house“-tónlist, er það
ekki?
„Jú, mikið til house-tónlist eða
retro breaks eitthvað,“ segir Jónas
og bætir við að í rauninni sé þetta,
jú, house, hústónlist.
– Hentar þá vel í klúbbum en líka
þegar maður er að ryksuga?
„Jú, það er svona pælingin, eitt-
hvað sem maður getur dillað sér við
en líka aðeins á meðan maður er að
ryksuga.“
– Þetta nafn, Oh Mama, hvaðan
kemur það?
„Þetta er algjört bull bara, ekki
mikil hugsun á bak við þetta. Ég var
ekkert að stressa mig mikið á þessu
þegar þetta kom út,“ svarar Jónas,
léttur í bragði. Hin verkefnin hans
séu mjög stílhrein á meðan Oh
Mama sé „út um allt“ og útrás fyrir
hann eftir annasaman vinnudag og
barnastúss.
Hvað plötutitlana varðar segir
Jónas Tímarit bæði tengjast því að
rita tímann og gömlum dagblöðum
sem heilli sagnfræðinördinn í hon-
um. Húsgögn megi á ensku kalla
„house files“ og tengist hústónlist.
Hústónlistarskrár, sumsé.
Sem fyrr segir tengjast lagatitl-
arnir allir Ikea-húsgögnum og
Blokkir vísa svo í tónlistarvinnsluna,
að hann sé að vinna með blokkir í
raðaranum, hljóðskrár sem hann
raði upp og dragi til og frá. „Nöfnin
á þeim lögum eru tengd blokkum á
Íslandi; Engihjalli, Laugardalur og
svo framvegis,“ segir Jónas og svo
eru það Dalir. „Ég man ekki hver
var pælingin þar,“ segir Jónas kím-
inn um þá nafngift.
Bjó í Engihjalla
Myndirnar framan á öllum plötum
nema einni, Blokkum, eru af börnum
eða öllu heldur barni því þarna er
Jónas sjálfur kominn, gamlar mynd-
ir af honum úr fjölskyldualbúmum.
„Ég ólst upp í Kópavoginum og
blokkin sem er á umslagi Blokka er
Engihjalli, klippt til og stækkuð
upp,“ segir Jónas en hann bjó ein-
mitt í Engihjalla. „Öll kóverin eru
tengd mínu uppeldi, þannig séð,“
segir hann.
En í ljósi þess hversu önnum kaf-
inn Jónas er við fornleifarannsóknir,
kennslu og barnauppeldi, þýðir þá
eitthvað að spyrja hvað er fram und-
an í tónlistinni? „Ég er í öðrum verk-
efnum líka í tónlist og það er mikið
til að koma út á vínilplötum,“ svarar
Jónas. „Ég gef líka út undir nafninu
Octal Industries og þar hafa verið að
koma út tvær til þrjár vínilplötur á
ári síðustu sjö árin og nóg að gera í
því. Og með Ruxpin er alltaf eitthvað
smá að koma út, mest á safnplötum
undanfarið. Svo er ég að vinna að
plötu með listamanni sem heitir
Stafrænn Hákon. Við erum að vinna
plötu saman með honum.“
Jónas segir þetta svo „andskoti
skemmtilegt“ að honum takist alltaf
að finna tíma fyrir tónlistina. „Þetta
er allt púsluspil,“ segir hann að lok-
um kíminn og að hann geti bara sofið
þegar hann sé dauður.
„Þetta er allt púsluspil“
- Oh Mama gaf út fjórar breiðskífur rafrænt í fyrra með hústónlist - Eitt af hliðarsjálfum Jónasar
Þórs Guðmundssonar - Tímarit, Blokkir, Dalir og Húsgögn - Fleiri hliðarsjálf og samstarfsverkefni
Marghliða Sagnfræðingurinn Jónas Þór á sér nokkur hliðarsjálf í tónlist.
blokkir
Ferna Plöturnar fjórar sem Jónas hefur gefið út með hústónlist, frá vinstri Tímarit, Blokkir, Dalir og Húsgögn. Lagatitlarnir eru í anda plötutitlanna.
Hlekkir með útgáfum Jónasar:
discogs.com/artist/24903-
Ruxpin
discogs.com/artist/462786-
Octal-Industries
discogs.com/artist/2689050-
Asonat
raftonar.bandcamp.com/