Morgunblaðið - 14.01.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2022
Herraboxer
micro-fiber
Verð 1.990,- stk
2. í pakka 3.350,-
3. í pakka 4.990,-
Laugavegi 178, 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | misty.is
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.11-15
Fullveldi.is fjallaði á dögunum
um stjórnarsáttmála nýrrar
ríkisstjórnar Þýskalands, sem
samanstendur af Sósíaldemókröt-
um, Græningjum og Frjálsum
demókrötum.
- - -
Þar segir að í stjórnarsáttmálan-
um komi fram að ríkisstjórnin
nýja vilji umbætur á sambandinu og
að ráð-
stefna
Evrópu-
sam-
bandsins
um fram-
tíð þess
verði nýtt
til að þróa það áfram „í átt að evr-
ópsku sambandsríki“.
- - -
Sagt er frá því sjónarmiði nýs
kanslara, Olafs Scholz, að „full-
valda Evrópusamband sé lykilatriði
í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar
hans“.
- - -
Fullveldi.is bendir á að forystu-
menn í þýskum stjórnmálum,
líkt og í mörgum öðrum ríkjum
ESB, hafi „í gegnum tíðina ítrekað
kallað eftir því að sambandinu
verði endanlega breytt í eitt ríki“.
Gerhard Schröder, síðasti kanslari
sósíaldemókrata, er nefndur sem
dæmi þar um ásamt fleirum.
- - -
Líklega sé það þó í fyrsta sinn
nú, segir á fullveldi.is, sem lýst
sé yfir stuðningi við það í þýskum
stjórnarsáttmála að Evrópusam-
bandið verði að einu ríki.
- - -
Þá er bent á að þó að einróma
samþykki ríkjanna þurfi til að
gera ESB að einu ríki, hafi helsta
fyrirstaða þess horfið með útgöngu
Breta, og að ófá dæmi séu um að
„mjög umdeild mál hafi að lokum
verið samþykkt þrátt fyrir mikla
andstöðu á fyrri stigum“.
Er ESB að breytast
í sambandsríki?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Íslenska sprotafyrirtækið Risk ehf.
og bandarísku sykursýkissamtökin
(ADA) hafa gert með sér sam-
komulag um að gera RetinaRisk-
áhættureikninn, sem reiknar út
áhættu fólks með sykursýki á sjón-
skerðandi augnsjúkdómum, að-
gengilegan almenningi í Bandaríkj-
unum. Reiknirinn er sá eini sinnar
tegundar í heiminum og er afrakstur
yfir 10 ára vísindarannsókna og þró-
unar á Íslandi og erlendis.
Risk ehf. var stofnað af Einari
Stefánssyni augnlækni, Thor Aspe-
lund, prófessor í líftölfræði, og Örnu
Guðmundsdóttur innkirtlalækni.
Áhættureiknirinn var þróaður með
stuðningi Tækniþróunarsjóðs og
innlendra fjárfesta, segir í tilkynn-
ingu. Að sögn Sigurbjargar Ástu
Jónsdóttur framkvæmdastjóra
munu Risk og ADA halda áfram að
þróa samstarfið. Í því felist mikil
viðurkenning.
Á myndina hér til hliðar vantar
Stefán Einarsson úr teymi Risk.
Íslenskur áhættureiknir
notaður í Bandaríkjunum
Ljósmynd/Gunnhildur Lind
Sprotar Teymi Retina Risk. Efri röð f.v.: Thor Aspelund, Francisco Rojas,
Einar Stefánsson og Bala Kamallakharan. Neðri röð frá vinstri: Ægir Þór
Steinarsson, Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir og Arna Guðmundsdóttir.
Aðalskipulag Reykjavíkurborgar til
ársins 2040 hefur tekið gildi en það
var undirritað í Höfða í gær. Haft er
eftir Degi B. Eggertssyni borgar-
stjóra í frétt frá Reykjavíkurborg að
borgin muni byggjast þéttar en áður
meðfram nýjum þróunarásum borg-
arlínu, virkir samgöngumátar verði
stórefldir. Reykjavík eigi að verða
hjólaborg á heimsmælikvarða.
„Hugað er að þróun og eflingu
grænna svæða og tengingum þeirra
á milli og fjölbreyttri húsnæðisupp-
byggingu í þágu allra tekjuhópa.
Loftslagsmálum er mætt af meiri
festu en nokkru sinni áður og lýð-
heilsa borgarbúa er meðal nýrra
áherslna. AR2040 leggur grunn að
því og staðfestir að næstu tveir ára-
tugir verða áratugir Reykjavíkur,“
segir borgarstjóri.
Meðal fjölmargra breytinga sem
leiði af aðalskipulaginu eru að skap-
aðar séu forsendur fyrir stórauknu
framboði íbúðarhúsnæðis á fjöl-
breyttum svæðum í öllum borgar-
hlutum og lagður er grundvöllur að
hinum nýja borgarhluta í Elliðaár-
vogi og Ártúnshöfða með þremur
nýjum skólahverfum.
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Staðfesting Aðalskipulag Reykjavíkur til 2040 var undirritað í Höfða í gær.
Aðalskipulagið til
2040 tekur gildi
- Á að stuðla að vexti og fjölgun íbúða