Morgunblaðið - 14.01.2022, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 14.01.2022, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ 95% BESTA SPIDER-MAN MYNDIN TIL ÞESSA ! SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI EIN ALLRA BESTA MYND STEVEN SPIELBERG OBSERVER THE GUARDIAN 93% NÝÁRSMYNDIN 2022 RALPH FIENNES GEMMA ARTERTON RHYS IFANS HARRIS DICKINSON DJMON HOUNSOU TOTAL F ILM T H E K I L L E R I S O N T H I S P O S T E R CHICACO SUN-TIMES TOTAL F ILM THE WRAP SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Ballettdansarar dansflokksins Aalto Ballett Essen setja sig í stellingar á aðalæfingu á Svanavatninu sem frum- sýna á hjá La Maestranza-leikhúsinu í Sevilla á Spáni. Danshöfundur sýningarinnar er belgíski kóreógrafinn Ben Van Cauwenbergh, en tónlistina samdi rússneska tónskáldið Tsjajkovskíj. AFP Seiðandi Svanavatnið í Sevilla Ronnie Spector, aðalsöngkona kvennasveitarinnar Ronettes, er lát- in 78 ára að aldri. Frá þessu greinir BBC. „Ronnie lifði lífinu með bliki í auga, áræði í fasi, stríðnishúmor og bros á vör,“ segir í tilkynningu frá fjölskyldu Spector, en þar kemur einnig fram að hún hafi látist eftir stutta baráttu við krabbamein. Spector fæddist á Manhattan 1943 og hlaut skírnarnafnið Veronica Yvette Bennett. Hún varð fræg á einni nóttu aðeins 18 ára gömul þeg- ar hún ásamt eldri systur og frænku kom fram á klúbbum í New York og vakti þar athygli hljómplötufram- leiðenda. Hún giftist 1968 upptöku- stjóranum Phil Spector sem tók upp vinsælustu smelli Ronettes, m.a. „Be My Baby“ og „Walking in the Rain“. Sepctor-hjónin ættleiddu þrjú börn áður en þau skildu sex árum síðar vegna ofbeldishneigðar hans. Í ævi- minningum sínum rifjaði Spector upp að eiginmaðurinn hefði geymt líkkistu í kjallanum og reglulega minnt eiginkonu sína á að hann myndi drepa hana ef hún yfirgæfi hann. Hann lést í fangelsi 2021 með- an hann afplánaði dóm vegna morðs. Ronettes er talin mikilvæg fyrir- mynd fyrir aðrar svalar kvenna- sveitir. „Við vorum ekki hræddar við að vera heitar. Það var sölutrix okk- ar. Þegar við sáum The Shirelles ganga á svið í víðum veislukjólum ákváðum við að fara í öfuga átt og tróðum líkama okkar í þrengstu pils- in sem við gátum fundið. Þegar við fórum á svið kipptum við pilsunum upp til að sýna leggina enn frekar,“ skrifaði Spector í ævisögu sinni sem nefnist Be My Baby: How I Survi- ved Mascara, Miniskirts, and Mad- ness og út kom 2004. Í frétt BBC er bent á að vinsældir Ronettes megi ekki aðallega skrifa á djarft útlitið. Einstök rödd Spector, sem var full af þrá, mýkt og hörku, hafi verið opinberun auk þess sem kænska hópsins og töffaraheitin hafi skorið sveitina frá öðrum kvennasveitum þess tíma. Eftir að Spector komst út úr ofbeldisfullu hjónabandi sínu átti hún farsælan feril og sendi síðast frá sér plötu 2016. Ronettes voru teknar inn í Frægðarhöll rokksins 2007. Ronnie Spector látin 78 ára að aldri AFP Spræk Ronnie Spector árið 2010. Bækur seldust sem aldrei fyrr á Bretlandi á síðasta ári og hefur bók- salan ekki mælst meiri síðasta ára- tuginn. Á síðasta ári voru seldar 212 milljónir bóka í Bretlandi fyrir alls 1,82 billjónir sterlingspunda, sem er 3% aukning frá fyrra ári. Þetta kem- ur fram í samantekt Nielsen Book- Scan sem birt var í vikunni og bygg- ist á mánaðarlegum sölutölum frá um 3.000 bóksölum þar í landi. Í frétt The Guardian um málið er rifj- að upp að bóksölum hafi verið gert að loka öllum búðum í um þrjá mán- uði í byrjun árs 2021 vegna yfir- standandi heimsfaraldurs, en samt var sett met í bóksölu á árinu. Í tölum Nielsen kemur fram að 20% aukning hefur orðið á sölu skáldsagna frá árinu 2019. Á sama tíma hefur 19% aukning orðið í sölu glæpasagna og 23% aukning í vís- indaskáldsögum og fantasíum og 49% aukning í rómantískum bókum. Mesta aukningin, eða 50%, varð í sölu bóka þar sem bætt líkamleg og andleg heilsa er í forgrunni. Söluhæsti höfundur ársins 2021 var Richard Osman, en tvær bækur hans rata inn á topp tíu sölulista árs- ins. Bók hans The Thursday Murder Club ratar í efsta sætið en bókin The Man Who Died Twice í fjórða sætið. Í öðru sæti listans er The Boy, The Mole, The Fox and the Horse eftir Charlie Mackesy og þar á eftir kem- ur The Midnight Library eftir Matt Haig. Af öðrum bókum má nefna Megamonster eftir David Walliams sem lendir í áttunda sæti listans. „Heilt yfir ber sölulistinn með sér að bókakaupendur eru að leita í þægilegt efni og fyndið,“ segir Jack- ie Swope hjá Nielsen. „Því miður minnir 2022 á 2021 nú þegar nýtt af- brigði veirunnar leikur samfélagið grátt. Við getum þó verið viss um eitt og það er að bækur eru ekki tískubóla tengd faraldri heldur hafa þær sannað gildi sitt í tímans rás.“ Bóksala eykst í Bretlandi Rithöfundurinn Richard Osman. Áfram heldur umræðan í bresku pressunni um hlutverkaskipan þeg- ar kemur að persónum sem tilheyra minnihlutahópum. Maureen Lip- man birti í vikunni aðsenda grein í The Guardian til að árétta að hún hefði ekki verið að ráðast á Helen Mirren þegar hún gagnrýndi það að Mirren hefði verið falið að leika Goldu Meir, fyrrverandi forsætis- ráðherrra Ísraels, þrátt fyrir að Mirren væri ekki gyðingur. „Ég hef ekki ráðist á Helen Mir- ren,“ skrifar Lipman og gagnrýnir fjölmiðla fyrir að slá því upp í fyrir- sögnum. „Blaðamaður hafði sam- band við mig og falaðist eftir áliti mínu á þessari umræðu. Afstaða mín er sú að ef þjóðerni eða kyn persónunnar er lykilatriði í fram- vindu sögunnar þá ætti að horfa til þjóðernis leikarans sem er valinn með sama hætti og gert er þegar kemur að öðrum minnihlutahópum. Þetta á við um hlutverk forsætis- ráðherra fyrsta og eina gyðinga- ríkis heims. Ég vil árétta að ég tók það skýrt fram að Helen væri frá- bær leikkona og mjög kynþokkafull komin á áttræðisaldur, sem er lykill að því að leika Goldu.“ Lipman segist ekki hafa ráðist á Mirren Öflug Helen Mirren sem Golda Meir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.