Morgunblaðið - 14.01.2022, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.01.2022, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2022 England Deildabikar, undanúrslit, fyrri leikur: Liverpool – Arsenal.................................. 0:0 _ Chelsea er komið í úrslit eftir 3:0 sam- anlagðan sigur á Tottenham. Afríkumótið Kamerún – Eþíópía .................................. 4:1 Grænhöfðaeyjar – Búrkína Fasó............ 0:1 Katar Al Sailiya – Al-Arabi ............................... 0:1 - Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Al-Arabi. Spánn Meistarakeppnin, undanúrslit: Barcelona – Real Madrid ................ (frl.) 2:3 Atlético Madrid – Athletic Bilbao........... 1:2 Reykjavíkurmót kvenna Valur – KR .............................................. 12:0 Víkingur R. – Fjölnir ............................... 1:2 4.$--3795.$ EM karla 2022 A-RIÐILL, Debrecen: Slóvenía – N-Makedónía...................... 27:25 Danmörk – Svartfjallaland.................. 30:21 Staðan: Danmörk 1 1 0 0 30:21 2 Slóvenía 1 1 0 0 27:25 2 N-Makedónía 1 0 0 1 25:27 0 Svartfjallaland 1 0 0 1 21:30 0 B-RIÐILL, Búdapest: Ungverjaland – Holland ..................... 28:31 - Erlingur Richardsson þjálfar Holland. Staðan: Holland 1 1 0 0 31:28 2 Ísland 0 0 0 0 00:00 0 Portúgal 0 0 0 0 00:00 0 Ungverjaland 1 0 0 1 28:31 0 C-RIÐILL, Szeged: Serbía – Úkraína .................................. 31:23 Króatía – Frakkland ............................ 22:27 Staðan: Serbía 1 1 0 0 31:23 2 Frakkland 1 1 0 0 27:22 2 Króatía 1 0 0 1 22:27 0 Úkraína 1 0 0 1 23:31 0 E-RIÐILL, Bratislava: Spánn – Tékkland................................. 28:26 Svíþjóð – Bosnía ................................... 30:18 Staðan: Svíþjóð 1 1 0 0 30:18 2 Spánn 1 1 0 0 28:26 2 Tékkland 1 0 0 1 26:28 0 Bosnía 1 0 0 1 18:30 0 F-RIÐILL, Kosice: Rússland – Litháen .............................. 29:27 Noregur – Slóvakía .............................. 35:25 Staðan: Noregur 1 1 0 0 35:25 2 Rússland 1 1 0 0 29:27 2 Litháen 1 0 0 1 27:29 0 Slóvakía 1 0 0 1 25:35 0 Leikir í dag: 17.00 D Þýskaland – Hvíta-Rússland 19.30 B Portúgal – Ísland 19.30 D Austurríki – Pólland Undankeppni HM karla Grikkland– Belgía ................................ 42:24 _ Grikkir eru komnir í umspil. %$.62)0-# 1. deild karla Fjölnir – Álftanes ............................. 115:107 Staðan: Haukar 14 12 2 1452:1066 24 Álftanes 15 11 4 1428:1259 22 Höttur 13 11 2 1297:1068 22 Sindri 15 9 6 1392:1276 18 Fjölnir 15 9 6 1364:1380 18 Selfoss 14 7 7 1195:1205 14 Skallagrímur 16 6 10 1336:1401 12 Hrunamenn 15 4 11 1270:1450 8 Hamar 13 2 11 1001:1230 4 ÍA 14 1 13 1024:1424 2 NBA-deildin Indiana – Boston............................... 100:119 Philadelphia – Charlotte.................... 98:109 Washington – Orlando ..................... 112:106 Atlanta – Miami .................................. 91:115 New York – Dallas ............................. 108:85 San Antonio – Houston .................... 124:128 Utah – Cleveland................................ 91:111 Chicago – Brooklyn.......................... 112:138 Sacramento – LA Lakers ................ 125:116 4"5'*2)0-# EM 2022 Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Lærisveinar Erlings Richards- sonar í hollenska landsliðinu komu gríðarlega á óvart og unnu glæsi- legan en jafnframt verðskuldaðan 31:28-sigur á heimamönnum í Ung- verjalandi í B-riðli Íslands á EM karla í handbolta í gærkvöldi. Ung- verjaland komst aldrei yfir í leiknum en náði þó að jafna í 28:28 þegar skammt var eftir. Þá skoruðu Hol- lendingar þrjú síðustu mörkin og fögnuðu fræknum sigri. Kay Smits, sem leikur með Ómari Inga Magnússyni og Gísla Þorgeiri Kristjánssyni hjá Magdeburg, skor- aði tíu mörk fyrir Holland og Dani Baijens, leikmaður Hamm í þýsku B-deildinni, gerði sex. Mate Lekai skoraði níu fyrir Ungverjaland. Létu lætin ekki á sig fá Leikið var í hinni glæsilegu MVM- höll í Búdapest. Tekur hún 20.000 manns í sæti og er stærsta hand- boltahöll Evrópu. Lærisveinar Er- lings létu lætin í körfuhörðum ung- verskum áhorfendum lítið á sig fá og stýrðu leiknum svo gott sem frá fyrstu mínútu. Erlingur hefur á síð- ustu árum byggt upp hollenska liðið, en Evrópumótið fyrir tveimur árum var það fyrsta hjá hollensku karla- landsliði. Þá vann liðið einn leik en hafnaði að lokum í 17. sæti. Nú virð- ist hollenska liðið vera komið skref- inu lengra og er sigurinn á Ungverj- um mun stærri en sigurinn á Lettum í síðustu keppni og því væntanlega stærsti sigur hollenska liðsins frá upphafi. Sigurinn er glæsilegur fyrir Er- ling og liðið hans, en það á eftir að koma betur í ljós hvort hann sé góð- ur fyrir íslenska liðið og möguleika þess í riðlinum. Ungverjar eru komnir með bakið upp að vegg og eiga eftir tvo erfiða leiki gegn Ís- landi og Portúgal. Ljóst er að ís- lenska liðsins bíður verðugt verkefni gegn því hollenska eftir leikinn gegn Portúgal í kvöld. Erlingur er ekki í Búdapest bara til að vera með og hann hefur væntanlega lítinn áhuga á að gera íslenska liðinu stóra greiða. Stærsti sigur Hollendinga - Erlingur lagði gestgjafana óvænt Ljósmynd/Szilvia Micheller Sigur Erlingur Richardsson, landsliðsþjálfari Hollands, kemur skilaboðum áleiðis í sigrinum glæsilega á Ungverjalandi í Búdapest í gærkvöldi. Liverpool og Arsenal gerðu marka- laust jafntefli í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikars- ins í knattspyrnu á Anfield í Liver- pool í gærkvöldi. Granit Xhaka, miðjumaður Ars- enal, er væntanlega manna fegn- astur þar sem hann fékk beint rautt spjald á 24. mínútu. Þrátt fyrir það tókst Liverpool ekki að brjóta Ars- enal-menn á bak aftur. Seinni leik- ur liðanna fer fram á Emirates- vellinum í London næstkomandi fimmtudag og mætir sigurliðið Chelsea í úrslitum á Wembley. Tíu leikmenn Arsenal héldu út AFP Jafnt Arsenal og Liverpool skildu jöfn á Anfield í Liverpool í gær. Óvissa er um framhaldið í fótbolt- anum hjá Hannesi Þór Halldórssyni, fyrrverandi landsliðsmarkverði, en hann hefur hafnað tilboði um að spila með uppeldisfélaginu Leikni í Reykja- vík. Þetta kom fram á 433.is og einnig hjá fotbolti.net í gær en Hannes hefur leikið með Val síðan hann sneri heim úr atvinnumennsku. Hann átti eitt ár eftir af samningi sínum þar en gert var samkomulag um starfslokasamn- ing í nóvember. Fotbolti.net segir að Hannes hafi upplýst Leiknismenn um að hann finni ekki neistann fyrir því að spila fótbolta. Hanskarnir á hill- una hjá Hannesi? Morgunblaðið/Eggert Hættur? Hannes Þór Halldórsson gæti verið hættur í fótbolta. EM 2022 Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Norðurlandaþjóðirnar þrjár sem hófu leik á EM karla í handbolta í gærkvöldi fögnuðu allar stórsigri í frumraun sinni á mótinu í ár en leik- ið er í Ungverjalandi og Slóvakíu. Í A-riðli vann Danmörk afar sannfærandi 30:21-sigur á Svart- fjallalandi þar sem Mikkel Hansen fór á kostum og skoraði tíu mörk. Hansen, sem hefur í þrígang verið valinn handknattleiksmaður ársins af IHF, er líklegur til afreka á mótinu. Í sama riðli hafði Slóvenía betur gegn Norður-Makedóníu, 27:25. Gamla kempan Kiril Lazarov leikur með og þjálfar Norður-Makedóníu en hann þurfti að fylgjast með á hliðarlínunni í gær vegna meiðsla. Titilvörnin hófst á sigri Spánverjar, sigurvegarar síðustu tveggja Evrópumóta, fóru vel af stað og unnu 28:26-sigur á Tékkum í E-riðli. Eduardo Gurbindo, sem lék ekki með Spánverjum á síðasta Evrópumóti, var markahæstur í spænska liðinu með sex mörk. Svíþjóð átti ekki í nokkrum vand- ræðum með að vinna Bosníu í sama riðli, 30:18. Leikurinn var góð upp- hitun fyrir erfiðari verkefni hjá Sví- þjóð og komust alls ellefu leikmenn sænska liðsins á blað. Skoraði meira en hann varði Leikmenn norska landsliðsins skiptu mörkunum vel á milli sín í 35:25-sigri á Slóvakíu í E-riðli. Magnus Gullerud skoraði fimm mörk og þar á eftir komu fjórir leikmenn með fjögur mörk. Gest- gjafarnir í Slóvakíu, sem eru að leika á sínu fyrsta Evrópumóti í tíu ár, voru númeri of litlir fyrir Norð- menn. Þá vann Rússland 29:27-sigur á Litháen í sama riðli. Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leikinn. Vilius Rasimas, markvörð- ur Selfoss, varði átta skot í marki Litháens en Giedreius Morkunas, fyrrverandi markvörður Hauka, ekki neitt. Morkunas tókst þó að skora eitt mark. Þá unnu Frakkar 27:22-sigur á Króatíu. Hugo Descat skoraði sjö mörk fyrir Frakkland og Cincent Gérard var með 39 prósenta mark- vörslu. Í hinum leik C-riðilsins vann Serbía sannfærandi sigur á Úkra- ínu, 31:23. AFP Háloft Svíinn Albin Lagergren leitar leiða fram hjá Senjamin Buric í vörn Bosníu í Bratislava gærkvöldi. Sænska liðið vann öruggan 12 marka sigur. Norðurlöndin byrj- uðu með látum Arnar Pétursson frjálsíþróttamað- ur úr Breiðabliki og Tinna Sif Teitsdóttir fimleikakona úr Gerplu voru kjörin íþróttakarl og íþrótta- kona Kópavogs fyrir árið 2021 í gær. Arnar vann alls níu Íslands- meistaratitla í langhlaupum á síð- asta ári og Tinna varð Evrópu- meistari í hópfimleikum með íslenska landsliðinu. Arnar og Tinna best í Kópavogi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.