Morgunblaðið - 14.01.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.01.2022, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2022 MELTU PIZZUNA BETUR! Einkaleyfisvarin meltingarensím, þau öflugustu sem völ er á. 1-2 hylki með mat getur öllu breytt 14. janúar 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 129.29 Sterlingspund 176.39 Kanadadalur 103.08 Dönsk króna 19.754 Norsk króna 14.808 Sænsk króna 14.322 Svissn. franki 140.19 Japanskt jen 1.1205 SDR 181.32 Evra 147.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 180.7716 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Félag atvinnurekenda (FA) hefur farið þess á leit við umboðsmann Al- þingis að hann hefji frumkvæðis- athugun á stjórnsýslu eftirlitsstofn- ana vegna Íslandspósts. Við sögu koma meintar niðurgreiðslur til að bæta upp tap Póstsins af alþjónustu en fram kom í ViðskiptaMogganum nýverið að fyrirtækið tapaði 3,4 milljörðum á samkeppni innan al- þjónustu árin 2018-2020. Með alþjónustu er vísað til þeirrar lágmarkspóstþjónustu sem notend- um póstþjónustu skal standa til boða á jafnræðisgrundvelli, samkvæmt lögum um póstþjónustu. Málið varðar annars vegar ákvörðun um viðbótarframlag til Póstsins og hins vegar þau ummæli fulltrúa viðkomandi ráðuneytis og Byggðastofnunar að lagaákvæði um að verðskrár endurspegli raun- kostnað sé óvirkt. Skyldi fá rúman hálfan milljarð Forsaga málsins er sú að Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) úrskurðaði í febrúar síðastliðnum (ákvörðun nr. 1/2021) að ríkið skyldi greiða Póst- inum 509 milljónir króna vegna hreins kostnaðar fyrir veitta alþjón- ustu á árinu 2020, að frádregnu 250 milljóna króna viðbótarframlagi. Samkvæmt erindi FA féllst stofn- unin þar með á að ákveða framlag á grundvelli gjaldskrár Póstsins sem tók gildi 1. janúar 2020 og gilti til 1. nóvember síðastliðins. Eftirlit með póstlögum færðist frá Póst- og fjar- skiptastofnun til Byggðastofnunar 1. nóvember síðastliðinn. Fól í sér undirverðlagningu Bent er á að samkvæmt 2. máls- grein 17. greinar laga um póstþjón- ustu, sem gilti frá 1. janúar 2020 til miðs árs 2021, skyldi gjaldskrá fyrir alþjónustu vera sú sama um allt land. Jafnframt að í 3. málsgrein sömu lagagreinar komi fram að gjaldskrá fyrir alþjónustu skuli taka mið af raunkostnaði við að veita þjónustuna að viðbættum hæfileg- um hagnaði. Þvert á fyrirmæli laganna Á hinn bóginn hafi gjaldskrá Póstsins fyrir pakkasendingar innan alþjónustu verið langt undir raun- kostnaði við að veita þjónustuna, að viðbættum hæfilegum hagnaði, þvert á fyrirmæli 3. málsgreinar 17. greinar laganna. Verðlagning á landinu öllu hafi verið miðuð við verð á pakkasendingum innan höf- uðborgarsvæðisins og það leitt til tekjutaps fyrir Póstinn á pakka- sendingum innanlands. Með því hafi gjaldskrá Póstsins falið í sér „undir- verðlagningu, sem veitti fyrirtækinu forskot á keppinauta sína í pakka- dreifingu“. Í erindi FA er einnig rifjuð upp frétt í Morgunblaðinu 4. mars 2021 en þar kom fram að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið teldi að 3. mgr. 17. gr. póstlaga væri „ekki að öllu leyti virk“. Framlagið yrði afturkallað Í tilefni af þeirri frétt sendi FA erindi á ráðuneytið og fór fram á að það hlutaðist til um að Póst- og fjar- skiptastofnun afturkallaði áður- nefnda ákvörðun um 509 milljóna króna viðbótarframlag til Póstsins, en í þeirri ákvörðun hafi ekki verið vikið að 3. mgr. 17. gr. laganna um raunkostnað. Ráðuneytið hafi svarað því til að þegar því barst fyrirspurn frá Morg- unblaðinu hafi það leitað upplýsinga hjá Póst- og fjarskiptastofnun til að geta svarað spurningum blaðsins. „Ef svar ráðuneytisins til Morg- unblaðsins er lesið í heild og sam- hengi kemur í ljós að ekki er um að ræða afstöðu ráðuneytisins til þess hvort 3. mgr. sé að öllu leyti virk,“ sagði í svari ráðuneytisins til FA. Afstaðan ekki rökstudd Af þessu svari megi ráða að það hafi verið afstaða Póst- og fjar- skiptastofnunar að 3. mgr. 17. gr. póstlaga hafi ekki verið að öllu leyti virk. Stofnunin hafi því ekki litið til ákvæðisins við úrlausn framan- greindrar ákvörðunar, en rökstuðn- ingur fyrir því komi þar hvergi fram. Síðan rifjar FA upp samtal Morgunblaðsins við Byggðastofnun 17. desember sl., sem þá hafði tekið við eftirliti með póstlögum, en þar hafi stofnunin tekið undir þessa af- stöðu og hafi í undirbúningi „að úr- skurða Íslandspósti á ný framlag úr ríkissjóði vegna hinnar undirverð- lögðu verðskrár“. Með því sé verið að niðurgreiða „ólögmæta undir- verðlagningu Íslandspósts með fé skattgreiðenda“. Lagaákvæði virt að vettugi Loks er það álit FA að með fram- angreindri ákvörðun Póst- og fjar- skiptastofnunar, og ummælum full- trúa samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðuneytisins og Byggðastofnunar, virðist stjórnvöld virða að vettugi gildandi lagaákvæði. Stjórnvöldum sé ekki heimilt að ákveða upp á sitt einsdæmi að gildandi lagaákvæði sé óvirkt en opinberar yfirlýsingar stjórnvalda þar að lútandi grafi með „ósvífnum hætti“ undan grundvall- arreglu stjórnskipunarréttarins um þrískiptingu ríkisvaldsins. Póstmálin verði rannsökuð Morgunblaðið/Hari Pósturinn Fyrirtækið hefur verið sakað um undirverðlagningu. - FA hefur farið þess á leit við umboðsmann Alþingis að hann rannsaki Póstinn - Varðar meinta undirverðlagningu og að ákvæði um raunkostnað sé talið óvirkt Umsóknarfrestur í Gullegginu, sem er eins og fram kemur í til- kynningu stærsta og elsta frum- kvöðlakeppni Íslands, rann út á miðnætti í gær. Kristín Soffía Jónsdóttir framkvæmdastjóri Ice- landic Startups segir ljóst að um- sækjendur verði langtum fleiri en verið hefur síðustu ár. 250 manns höfðu staðfest þátt- töku þegar Morgunblaðið ræddi við Kristínu seint í gær. Flestir umsækjenda eru með tilbúna við- skiptahugmynd en einnig er þó nokkuð af einstaklingum skráð án hugmyndar, að sögn Kristínar. Spurð um ástæðu fyrir hinni miklu þátttöku í ár segir Kristín að hún sé margþætt. Án efa spili inn í að nú í fyrsta skipti geti allir verið með, en áður þurftu teymi að innihalda a.m.k. einn háskólanema eða einhvern sem hefði klárað há- skólanám á síðustu fimm árum. „Önnur ástæða er að við höfum flutt keppnina frá hausti og fram í janúar. Það hjálpar til við að kynna keppnina fyrir háskóla- samfélaginu.“ Samfélagið er fjölbreytt Kristín segir ástæðu þess að ákveðið var að opna keppnina fyr- ir öllum þá að samfélagið sé fjöl- breytt og takist á við margvíslegar áskoranir. Því þurfi fjölbreyttan hóp frumkvöðla. „Við erum alltaf að leysa þau vandamál sem upp koma í okkar eigin reynsluheimi. Ef hópurinn er of einsleitur koma einsleitar hugmyndir og lausnir.“ Um næstu helgi fer fram svo- kallað masterklass Gulleggsins en þar verður fólki kennt að fá hug- mynd og móta hana. Þá verður fólki kennt að mynda tengsl við frumkvöðlasenuna og hvað það þýðir að vera frumkvöðull. Úr- slitakeppnin fer svo fram 4. febr- úar. Nýsköpun Fjölbreyttur hópur frumkvöðla er í Gullegginu. Á þriðja hundrað sóttu um í Gullegginu - Í fyrsta sinn sem allir geta verið með « Jóhann Ólafur Jónsson, forstjóri Annata, segir kaup framtakssjóðsins VEX I og annarra fjárfesta á allt að helmingshlut í fé- laginu mikilvægan lið í frekari sókn. „Aðdragandinn var sá að við höf- um gengið í gegn- um miklar breytingar á fyrirtækinu og fært allar hugbúnaðarlausnir félagsins í skýið hjá Microsoft. Það er að hluta tæknivinna en henni fylgir mikil fjárfest- ing í endurhönnun á öllum hugbúnaðar- lausnum okkar. Horfa til stærri fyrirtækja Jafnframt gerir þetta fyrirtækinu kleift að selja þjónustuna til stærri fyrir- tækja á heimsvísu – fyrirtækja sem framleiða bíla, vinnuvélar og svo fram- vegis – en það krefst uppbyggingar og fjárfestingar í mannafla erlendis. Við töldum okkur komin á þann stað að við þyrftum bakhjarl. Við erum frumkvöðlar – stofnuðum fyrirtækið fyrir um 20 ár- um – og vildum fá til liðs við okkur reyndari aðila til að styðja okkur áfram í þessari vegferð,“ segir Jóhann Ólafur. Markmiðið sé vaxa inn á markaðs- svæði og í iðngreinum sem fyrirtækið er að þjónusta. Stjórnendur Annata hafi rætt um möguleikann á að skrá félagið á hlutabréfamarkað á næstu þremur til fimm árum. Þá jafnvel bæði á Íslandi og í erlendri kauphöll. baldura@mbl.is Íhuga skráningu á næstu misserum Jóhann Ólafur Jónsson STUTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.