Morgunblaðið - 28.01.2022, Side 1

Morgunblaðið - 28.01.2022, Side 1
F Ö S T U D A G U R 2 8. J A N Ú A R 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 23. tölublað . 110. árgangur . SÆTI Á HM 2023 UNDIR GEGN NOREGI ÖNNUR GJALD- ÞROTA OG HIN ORÐIN MÓÐIR RAFDRIFIN DROSSÍA ÚR DRAUMAHEIMI VENJULEGT FÓLK 28 RAFBÍLAR 24 SÍÐURÍSLAND - NOREGUR Á EM 27 *þú getur sótt um orkulykil á orkan.is Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Forstjóri Landsvirkjunar telur æskilegt að næsta virkjun verði á Suðurlandi. Ástæðan er sú að mesta álagið er á virkjunum þar og mesta eftirspurn eftir orku. Hvammsvirkj- un er eini stóri orkukosturinn á þessu svæði sem hægt er að ráðast í. Landsvirkjun er að þróa og undir- búa allmarga virkjanakosti, bæði til allra næstu ára og lengra fram í tím- ann. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að nokkrir orkukostir sem eru í nýtingarflokki rammaáætlunar séu langt komnir í undirbúningi. Engar ákvarðanir hafi þó verið teknar um að ráðast í fram- kvæmdir. Hann nefnir fyrst Hvammsvirkj- un í neðri hluta Þjórsár. Hún er langt komin í undirbúningi og sótt var um virkjanaleyfi hjá Orkustofn- un um mitt síðasta ár. Svar hefur ekki borist. Ef stjórn Landsvirkjun- ar ákveður í ár að ráðast í þessa framkvæmd munu líða um fimm ár þangað til hægt verður að taka hana í notkun, eða 2027. Hörður segir að nægur markaður sé fyrir orku frá Hvammsvirkjun. Sömu sögu er að segja um stækk- un Þeistareykjavirkjunar á Norð- austurlandi. Þar eru öll leyfi fyrir hendi en samt myndi taka 4-5 ár að virkja, eftir að ákvörðun er tekin. Þriðja verkefnið er þrjár litlar afl- stöðvar á veituleið Blönduvirkjunar. Það verkefni er í bið vegna veikleika í flutningskerfi raforku. Sömuleiðis eru vindorkuáform Landsvirkjunar strand í ferli rammaáætlunar. Önnur orkufyrirtæki eru ekki með mikið á prjónunum. Best að virkja á Suðurlandi - Hvammsvirkjun og stækkun Þeistareykjavirkjunar langt komnar í undirbún- ingi hjá Landsvirkjun - Beðið eftir virkjanaleyfi - Ákvarðanir ekki verið teknar MOrkuskortur … »2 og 6 _ Ríkisstjórnin mun kynna aflétt- ingaáætlun samkomutakmarkana í dag. Útfærsla áætlunarinnar verð- ur rædd á fundi ríkisstjórnar fyrir hádegi og að honum loknum verður boðað til blaðamannafundar í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Búist er við því að sá fundur hefjist um eða upp úr klukkan ellefu. Willum Þór Þórsson heilbrigðis- ráðherra sagði á Alþingi í gær að búast mætti við varfærinni aflétt- ingaáætlun. „Ég verð að minna á að við erum enn með almannavarnir á neyðarstigi og spítalann á neyðar- stigi. Þess vegna hefur verið gripið til fjölmargra aðgerða til að létta undir með spítalanum.“ »4 Stjórnvöld kynna afléttingar í dag „Almenn kerfisáhætta á fast- eignamarkaði hefur aukist mikið síð- ustu 3 til 4 árin. Óvissan um þróun fasteignamarkaðar hefur sjaldan verið meiri.“ Þetta er meðal þess sem fullyrt er í nýrri skýrslu Jak- obsson Capital um íslenska fast- eignamarkaðinn. Bendir hann á að ef framboð húsnæðis muni ekki aukast á komandi þremur árum sé hætt við að hækkun fasteignaverðs verði að raunverði á bilinu 20 til 25%. „Þetta gæti einnig orðið niður- staðan ef mikil fólksfjölgun verður vegna mjög kröftugs vaxtar í ferða- þjónustu,“ segir í skýrslunni og er ítrekað að meiri en minni hætta sé á hækkunum á markaðnum. »12 Morgunblaðið/Eggert Fasteignir Íbúðaverð gæti hækkað verulega á næstunni. Aukin áhætta á fasteigna- markaði Starfsmaður hjá Prófílstáli í Reykjavík brá sér út undir bert loft fyrir utan verkstæðið þegar logsjóða þurfti galvaníserað stálið. Enda viðraði ágætlega til slíkra verka og betra fyrir starfs- manninn og félaga hans að vinna við slíkar að- stæður. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gott að logsjóða úti undir berum himni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.