Morgunblaðið - 28.01.2022, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 28.01.2022, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2022 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Virkjanir sem stjórn Landsvirkjun- ar ákvæði á þessu ári að ráðast í gætu verið tilbúnar til framleiðslu eftir fjögur til fimm ár, eða á árunum 2026 til 2027. Engar ákvarðanir hafa enn verið teknar. Þessar virkjanir leysa augljóslega ekki þann afl- og orkuskort sem reikna má með að verði viðvarandi hér á landi næstu árin. „Landsvirkjun hefur á undan- förnum árum unnið að fjöl- mörgum virkj- anakostum og lít- ur þar bæði til skemmri og lengri tíma,“ segir Hörður Arnar- son, forstjóri Landsvirkjunar. Spurður um hvaða verkefni væri hægt að ráðast í á allra næstu árum segir hann að þar verði að líta til kosta sem eru í nýtingarflokki sam- þykktra rammaáætlana. Unnið sé að ýmsum kostum. Hann tekur fram að stjórn Landsvirkjunar hafi engar ákvarðanir tekið um það hvar fyrst verði virkjað, það geti far- ið eftir stöðu undirbúnings og leyfa og ýmsum aðstæðum á raforku- markaði. Beðið eftir virkjanaleyfi Hörður nefnir fyrst Hvamms- virkjun, um 95 megavatta vatnsafls- virkjun í neðri hluta Þjórsár. Hún sé mjög langt komin í undirbúningi og sótt hafi verið um virkjanaleyfi til Orkustofnunar um mitt síðasta ár. Svar hafi ekki borist. Þegar það ber- ist sé mögulegt að sækja um fram- kvæmdaleyfi hjá sveitarfélögunum. Síðan þurfi að fara yfir hönnun virkj- unarinnar áður en verkið verði boðið út. Segir Hörður að gera megi ráð fyrir því að það taki ár að bjóða byggingu virkjunarinnar út og fram- kvæmdatíminn sé síðan fjögur ár þannig að ef stjórn Landsvirkjunar ákveður í ár að virkja þarna gæti framleiðsla hafist árið 2027. Annað nokkuð stórt verkefni sem er komið langt í undirbúningi er stækkun jarðgufuvirkjunarinnar á Þeistareykjum um 50-60 megavött í uppsettu afli. Öll leyfi eru fyrir hendi, að sögn forstjórans, en þörf er á að yfirfara hönnun þegar ákvörðun um framkvæmdina verður tekin. Verktími er svipaður og í stórum vatnsaflsvirkjunum, eða 4-5 ár. Þriðja verkefnið er að reisa þrjár litlar aflstöðvar á veituleið Blöndu- virkjunar, samtals 30-35 MW. Þar er verið að nýta betur fallið frá lóninu og niður undir Blöndustöð. Það verkefni er komið styttra í hönnun en hin tvö enda ljóst að flutnings- kerfi raforku ræður ekki við að flytja orkuna á markað. Blöndustöð er eins og eyja því byggðalínan í báðar áttir ræður ekki við meiri raforkuflutn- ing. Hörður segir að vonandi standi það til bóta. Vísar þar til þess að Blöndulína 3, frá Blöndustöð til Ak- ureyrar, er í lokaferli umhverfismats og gæti risið innan ekki svo margra ára. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær í grein um greiningu Landsnets á afl- og orkujöfnuði landsins, þá er keyrsla aflstöðva að nálgast uppsett afl. Hörður segir að þetta sé vandamál, einnig þar sem sveiflur í notkun séu að aukast. Landsvirkjun á ákveðið svar við því, aflaukningarverkefni í einhverri af þremur virkjunum í Tungnaá, lík- lega helst Sigöldustöð. Það verður gert með því að bæta við vélum sem munu í fyrsta áfanga auka aflið um 100 MW en bæta litlu við orkuna, eða aðeins um 5-10 gígavattstund- um. Nægur markaður fyrir orkuna „Staðan sem uppi er í orkumálum þjóðarinnar kemur ekki á óvart. Við erum stöðugt að fjárfesta í þessum undirbúningi og höldum áfram að þróa orkukosti,“ segir Hörður. Spurður hvar hagkvæmast væri fyrir raforkukerfið að virkja fyrst segir hann að mesta eftirspurnin sé á Suðvesturlandi og virkjanirnar á Suðurlandi undir mesta álaginu. Flutningsgetan frá Norður- og Austurlandi sé fullnýtt. Því væri æskilegt að næsta virkjun yrði á Suðurlandi til að hægt yrði að létta á kerfinu þar. Aðspurður segir Hörður að nægur markaður sé fyrir orkuna frá Hvammsvirkjun og nefnir þar vöxt- inn í samfélaginu, orkuskipti og fjöl- breytt ný atvinnutækifæri. „Við virkjum fyrir samfélagið í heild og fjölbreytta flóru viðskiptavina. Það er ekki lengur forsendan að einn viðskiptavin þurfi fyrir hverja virkj- un.“ Spurður að því hvað tefji ákvarð- anir segir Hörður að aðstæður hafi verið að breytast. Þannig séu hag- kerfi heims að rétta hraðar úr kútn- um en reiknað var með. Stórkaup- endur raforku hér séu að fullnýta raforkusamninga sína. Þá séu mark- mið stjórnvalda um orkuskipti meiri og hraðari en áður var gert ráð fyr- ir. Loks nefnir hann að það sé flókið að undirbúa og byggja virkjanir og vanda þurfi mjög til verka og ákvarðanir þurfti að grundvallast á leyfisveitingum. Vöxtur í hagkerfinu Hörður hefur vakið athygli á því áður að nauðsynlegt sé að auka verulega raforkuframleiðslu í land- inu til að bregðast við vexti í hag- kerfinu og ná markmiðum stjórn- valda í loftslagsmálum. Hefur hann nefnt eina sviðsmynd raforkuspárn- efndar sem kölluð er „Græn fram- tíð“ og gerir ráð fyrir að til ársins 2030 muni aflnotkun hér á landi aukast um tæp 480 MW. Það þýði að 48 MW af afli þurfi að bætast við á hverju ári, að meðaltali. Ef sú spá rætist þarf að slá í klárinn, sérstak- lega í ljósi stöðunnar nú þegar illa árar í miðlunarlónunum og Lands- virkjun hefur þurft að takmarka af- hendingu á orku samkvæmt skerð- anlegum samningum, meðal annars til fiskimölsverksmiðja. Ekki eru miklar framkvæmdir hjá öðrum orkufyrirtækjum. HS Orka er að stækka Reykjanesvirkj- un um 30 MW, aðallega til notkunar í Auðlindagarðinum þar, og Arctic Hydro er að byggja litla vatnsafls- virkjun á Austurlandi. Fyrirtæki sem sérhæfa sig í þróun vindorku- kosta vinna að undirbúningi fjölda vindorkugarða en þar strandar á stöðunni í rammaáætlun og leyfis- veitingum. Spurður um virkjanakosti til lengri tíma en allra næstu ára segir Hörður að Landsvirkjun sé með marga slíka kosti til athugunar og í undirbúningi. Lítur hann sérstak- lega til tveggja vindorkukosta sem eru fastir í ferli rammaáætlunar, Búrfellslund og Blöndulund. Segir hann mikilvægt að línur verði skýrð- ar varðandi leyfisveitingar til bygg- ingar vindorkugarða. Þá telur hann að skilningur sé einnig fyrir því að breyta þurfi lögum þannig að afl- aukningarverkefni eins og áformuð eru í Tungnaá þurfi ekki að fara í gegnum rammaáætlun. Telur hann engin rök fyrir því fyrirkomulagi. Morgunblaðið/RAX Þjórsá Hvammsvirkjun er efsta af þremur fyrirhuguðum virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Virkjunin er langt komin í undirbúningi, eins og raunar einnig Þeistareykjavirkjun á Norðausturlandi. Tekur 4 til 5 ár að virkja - Hvammsvirkjun Landsvirkjunar og stækkun Þeistareykjavirkjunar eru nánast tilbúnar til útboðs - Miðað við stöðu orkumála í landinu og fyrirsjánlega þróun leysa þær ekki úr vandamálum kerfisins Uppsett afl virkjana og þörf á aukningu Uppsett afl, MW Öll orkufyrirtæki 3.000 Þörf á aukningu til 2030, orkuspá „græn framtíð“ 480 Samorka, orkuskipti í samgöngum 600 Samorka, full orkuskipti 1.200 Landsvirkjun Uppsett afl í virkjunum 2.150 Af uppsettu afli: Forgangsorka skv. samningum 1.950 90% Skerðanleg orka skv. samningum 200 10% Skerðingar afgangsorku hjá Landsvirkjun MW Hlutfall Áætlaður tími Fiskimjölsverksmiðjur 100 100% Frá desember og út apríl Fiskþurrkanir á köldum svæðum 100% Frá desember og út apríl Fjarvarmaveitur 15 100% Frá 10. febrúar og út apríl Áformaðar skerðingar Stóriðja 30 2,5% Frá 10. febrúar Gagnaver 14 14,0% Frá 10. febrúar Samtals skert 2022 159 Orkukostir sem Landsvirkjun gæti nýtt á næstu árum Uppsett afl, MW Gæti verið tilbúin Hvammsvirkjun í neðri hluta Þjórsár 95 2027 Þeistareykjavirkjun, stækkun 50-60 2026-2027 Þrjár litlar virkjanir við Blönduveitu 31 Blöndulundur, vindorka 100 Búrfellslundur, vindorka 120 Aflaukning virkjana í Tungnaá 100 (Lítil orkuvinnslugeta) Hörður Arnarson Orkuskortur yfirvofandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.