Morgunblaðið - 28.01.2022, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 28.01.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2022 Jón Magnússon, fyrrv. alþing- ismaður, skrifar: - - - Landsliðsþjálfari Íslands í handbolta lýsti stöðunni vegna kó- víd sem leikhúsi fáránleikans. Fjöl- margir leikmenn eru í sóttkví en enginn veikur. Þjálfarinn sagði þetta eins og kvef. - - - Einn af hverjum 14 hér á landi er í sóttkví og/eða einangrun vegna kvefpest- arinnar. Hamast er við að fram- lengja leikhús fáránleikans hér og á landamærunum. - - - Fyrst ríkisstjórnin var enn einu sinni að krukka í regl- urnar, af hverju voru þær þá ekki afnumdar? Eigum við að hafa sérreglur um kvefpest, sem nefnist kóvíd-afbrigði? - - - Enn er talað um bólusetning- arpassa o.fl. rugl. Dálka- höfundurinn Michael Deacon sér hið spaugilega og veltir fyrir sér rauðvínsprófi í stað bólu- setningarvottorðs. Komið hafi í ljós, að þeim sem drekki 5 glös af rauðvíni á viku eða meira sé síður hætt við kóvíd og fái væg- ari einkenni. - - - Við inngang að viðburðum verði þess þá gætt, að fólk sé nægjanlega drukkið til að það fái aðgang og boðið að bæta úr ef svo sé ekki. Hugsanlega yrði minni ágreiningur um þessa leið sem Deacon bendir á enda á hún vel við í leikhúsi fáránleikans.“ - - - Því ekki það. Jón Magnússon Er að verða búið STAKSTEINAR Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Meira en 1,3 milljónir raddsýna söfnuðust í Lestrarkeppni grunn- skólanna sem lauk fyrir nokkrum dögum. Salaskóli í Kópavogi sigraði í A-flokki stærri skóla en þar lásu 703 keppendur alls 107.075 setningar. Í B-flokki skóla af miðstærð sigraði Smáraskóli í Kópavogi en þar voru lesnar 236.470 setningar en 914 manns tóku þátt fyrir hönd skólans. Í C-flokki fámennra skóla kom Höfðaskóli á Skagaströnd best út. Þar voru 153.288 setningar lesnar af 353 keppendum. Aðstandendur keppninnar segja magnað hve þátttakan var góð. Mikil spenna hafi sömuleiðis verið á loka- sprettinum. Síðasti dagur keppn- innar var sá langstærsti til þessa, en þá lásu keppendur inn 487.936 setn- ingar. Alls tóku 118 skólar þátt og lögðu 5.652 manns sínum skóla lið. Jafnhliða verðlaunum voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskar- andi árangur með tilliti til fjölda setninga sem hver skóli las. Þrír skólar komu best út þar; Sandgerð- isskóli og Gerðaskóli í Suðurnesja- bæ og Öxarfjarðarskóli í Norður- þingi. Almannarómur og Háskólinn í Reykjavík stóðu að keppninni og á þeirra vegum er sömuleiðis vefurinn samromur.is. Þangað geta allir hald- ið áfram að skila inn lesnum radd- sýnum. Lagt þannig sitt af mörkum til eflingar íslenskri tungu, segir í tilkynningu. sbs@mbl.is Söfnuðu meira en milljón röddum - Kraftur í líflegri lestrarkeppni - Lásu þúsundir setninga Ljósmynd/Mummi Lú Keppni Eliza Reid forsetafrú með ungum og efnilegum lestrarhestum. Lúxushótelið The Reykjavík Edition við Hörpu, sem er rekið er í sam- starfi við hótelrisann Marriott, hefur sagt 27 starfsmönnum upp. Þetta staðfesti Denis Jung, framkvæmda- stjóri hótelsins, í samtali við mbl.is í gær. Uppsagnirnar ná til starfsfólks úr öllum deildum en alls hafa um 150 starfsmenn verið á hótelinu. Ástæða uppsagnanna er minnk- andi eftirspurn eftir gistingu vegna Ómíkron-bylgju kórónuveirufarald- ursins og þau áhrif sem harðar sótt- varnareglur hafa haft á ferðaþjón- ustu, að sögn Denis. Eftirspurnin hafi ekki verið jafn mikil og vænt- ingar stóðu til fyrir tímabilið. Tekið var á móti fyrstu gestum hótelsins um miðjan október á síð- asta ári, en þá voru 106 af 253 her- bergjum hótelsins tekin í notkun í fyrsta áfanga. Denis segir engar breytingar verða á starfseminni þrátt fyrir uppsagnirnar. Áfram verði sami fjöldi herbergja í notkun. „Við erum ekki að loka neinu á hót- elinu. Við höldum starfseminni áfram með sama fjölda herbergja, veitingastaðurinn er opinn og barinn er opinn. Við drögum ekki úr þjón- ustu á hótelinu.“ Hann segir jákvæð teikn á lofti og endalok faraldursins vonandi í nánd. Horft sé fram á betra sumar. Edition-hótelið segir upp 27 manns - Uppsagnir ná til allra deilda - Hót- elið áfram opið - Vonast eftir betri tíð Ljósmynd/Nikolas Koenig Hótelið The Reykjavík Edition, hluti af Marriott, er við Hörpu. Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.