Morgunblaðið - 28.01.2022, Page 10

Morgunblaðið - 28.01.2022, Page 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2022 Vilt þú starfa í forystuVR? Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn félagsins eftir einstaklingsframboðum í stjórn félagsins og listaframboðum í trúnaðarráð. Framboðsfrestur er til kl. 12:00 á hádegi, mánudaginn 7. febrúar 2022. Um er að ræða annars vegar sjö sæti í stjórn og þrjú til vara. Skrifleg meðmæli 15 VR félaga þarf vegna einstaklingsframboðs til stjórnar og varastjórnar. Hins vegar er um að ræða listaframboð fyrir 41 sæti í trúnaðarráð. Til að listi vegna trúnaðarráðs sem borinn er fram gegn lista uppstillingarnefndar sé löglega fram borinn þarf skrifleg meðmæli 365 VR félaga sem og skriflegt samþykki frambjóðenda á listanum. Athugið að framboð til stjórnar ógildir framboð til trúnaðarráðs. Frambjóðendum er bent áwww.vr.is, þar sem eyðublöð vegna framboða eru aðgengileg og ítar- legri upplýsingar birtar um framboð til stjórnar og trúnaðarráðs. Kjörstjórn VR veitir einnig frekari upplýsingar í síma 510 1700 eða með tölvupósti til kjorstjorn@vr.is. Framboðum og framboðslistum skal skilað til kjörstjórnar á skrifstofuVR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7. VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍM I 510 1700 | WWW.VR.IS 28. janúar 2022 KjörstjórnVR Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Starfsemi fjögurra bílasala var á dögunum flutt að Klettshálsi í Reykjavík svo þar eru nú í einni þyrpingu alls átta slíkar, sem eru með um 900 sölubíla á stóru úti- svæði. Þetta eru Nýja bílahöllin, Litla bílasalan, Íslandsbílar, Bíla- lind, sem áður voru með starfsemi á Eirhöfða á Ártúnshöfða, en nú eru komnar á Krókháls og eru þar í þyrpingu með Toppbílum, Stóru bílasölunni, Heimsbílum og Bílalífi. Sölurnar eru hver í sínu húsi en mal- bikað útisvæði þeirra samliggjandi, sem er 22.000 fermetrar, myndar í raun eina heild. Á næstu grösum og við sömu götu eru einnig Hekla– notaðir bílar og bílasalan Disel. Heildin styrkist „Að mörg fyrirtæki í sams konar starfsemi séu á sama svæði styrkir þau hver fyrir sig og eins heildina. Lögmálin eru hin sömu og í stóru verslunarmiðstöðvunum. Sautján ár eru síðan fyrstu bílasölurnar hér við Krókháls voru opnaðar og margir þekkja því svæðið fyrir þeirra hluta sakir,“ segir Ingimar Sigurðsson, framkvæmdastjóri í Nýju bílahöll- inni, í samtali við Morgunblaðið. Starfsemi fyrirtækisins hafði í áraraðir verið við Eirhöfða, en þurfti að víkja enda er ætlunin að á Ár- túnshöfða verði íbúðabyggð með tengingu við borgarlínu. Þær fram- kvæmdir hefjast á næstu misserum. Nokkrir bílasalar völdu á síðasta ári að flytja starfsemi sína á reitinn milli Hestsháls og Krókháls, rétt eins og sagði frá í Morgunblaðinu sl. laugardag. Með því rýmkaðist á Kletthálsi „[…] og þangað vildum við sem voru við Eirhöfðann líka um- fram annað flytja okkur. Svæðið er rúmgott og eins voru hér fyrir hús sem eru söluskrifstofur og með sýn- ingarsal fyrir allra bestu bíla. Út- koman er góð,“ segir Ingimar sem hefur starfað við sölu á notuðum bíl- um í alls 38 ár. Samstarfsmaður hans í Nýju bílahöllinni til 16 ára er Lárus Baldur Atlason. „Markaðurinn hefur gjörbreyst á þeim 40 árum sem ég hef verið í greininni. Faglegar kröfur eru meiri og regluverk þéttara. Áður en við- skipti á bílum í dag ganga í gegn er algengt að bílar séu teknir í ítarlega ástandsskoðun, þar sem á annað hundrað atriði eru tékkuð. Þar bú- um við vel með því að skoðunarstöð Frumherja er hér á planinu á Kletts- hálsi,“ segir Ingimar. Ábyrgð og þjónustusaga „Frá umboðunum fáum við alla þjónustusögu bílsins og eins upplýs- ingar frá Samgöngustofu. Þá eru bílar í dag gjarnan í 5-8 ára ábyrgð frá umboðunum, en allt þetta stuðlar að meiri öryggi í viðskiptum. Eins má geta þess að núna er verið að herða allar reglur varðandi árs- skoðun bíla, á þann veg að leki olía eða ef bremsur eru bilaðar þarf að fara strax með viðkomandi ökutæki á verkstæði. Oft er viðgerð á þessum atriðum tímafrek og dýr, þannig að ef bílar eru komnir til ára sinna borgar viðgerð sig ekki. Þetta mun ef að líkum lætur leiða til þess að bílar sem eru druslur, ef svo mætti kalla þá, fara í ríkari mæli af göt- unum og í pressuna. Útkoman verð- ur þá betri bílar og öruggari, en með slíku er talsvert fengið,“ segir Ingi- mar um veruleika viðskiptanna eins og hann er í dag. Þær hertu kröfur sem fyrr er lýst munu, ef að líkum lætur, leiða að mati Ingimars til þess að meiri eft- irspurn verður eftir notuðum en annars ágætum bílum í lægri verð- flokkum, það er 1,5 – 3,0 milljónir króna. Algengt verð fyrir notaða bíla í dag sé annars – með öllum frávik- um og fyrirvörum – 3,0 – 6.0 millj. kr. Boltinn rúllar og bílar seljast vel „Markaðurinn hefur í rauninni verið ótrúlega líflegur að undan- förnu. Landinn hefur verið mikið á ferðinni innanlands síðustu árin og þarf góða ferðabíla. Svo er alltaf þörf á reglulegri endurnýjun en til slíkra viðskipta eru bankar og fjár- mögnunarfyrirtæki fús að lána. Boltinn rúllar og bílar seljast vel,“ segir Ingimar. Átta bílasölur eru nú á sama svæði - Klettsháls er sterkur - Flytja af Eirhöfða - 900 bílar á sölusvæði - Meiri kröfur á markaðinum Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson Klettsháls Að margar bílasölur séu á sama svæði þykir koma vel út og virkni er eins og í verslunarmiðstöðvum. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bílamenn Ingimar Sigurðsson, til vinstri, og Lárus Baldur Atlason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.