Morgunblaðið - 28.01.2022, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2022
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga. innlifun.is
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Vestfirðir voru í október síðast-
liðnum valdir á meðal bestu tíu
svæða til að heimsækja árið 2022 í
árlegu vali ferða-
bókaútgefandans
Lonely Planet,
svokölluð Best in
Travel-viður-
kenning. Díana
Jóhannsdóttir,
sviðsstjóri at-
vinnusviðs á
Vestfjarðastofu,
segir að þegar
megi merkja
ákveðinn meðbyr
með Vestfjörðum og til lengri tíma
eigi viðurkenningin eftir að skipta
svæðið miklu máli.
Aukinn áhugi fjárfesta
„Í beinu framhaldi af útnefning-
unni fundum við fyrir auknum áhuga
fjárfesta og okkur hefur gengið bet-
ur að koma skilaboðum okkar áfram
um hversu einstakir Vestfirðir eru,“
segir Díana. Hún segir að gistiþjón-
ustu vanti á Vestfirði og fjárfestar
skoði nú möguleika víða á svæðinu.
Ekki sé um einn tiltekinn stað að
ræða heldur eigi það jafnt við um
norðurfirði, suðurfirði og Strandir
og Reykhóla.
Díana segir staðan sé sú að ferða-
sumarið 2022 líti einstaklega vel út.
Töluvert sé farið að bóka og for-
svarsmenn ferðaskrifstofa séu bjart-
sýnir á gott sumar á Vestfjörðum.
„Þau taka eftir greinilegum meðbyr
og svo er spurningin hvort tengja
megi það beint við útnefninguna,“
segir Díana.
Ekki megi reikna með að slík við-
urkenning skili árangri á nokkrum
mánuðum, ávinningurinn sé í raun
til margra ára. „Eitt af því góða við
þessa viðurkenningu er að svona
verðlaun lifa mjög lengi. Við sjáum á
ferðasýningum erlendis að fólk er að
flagga þessu í mörg ár,“ segir Díana.
„Vá faktor“
Þegar greint var frá viðurkenn-
ingunni á heimasíðu Vestfjarðastofu
í lok október mátti meðal annars
lesa þar „að val Lonely Planet mun
beina kastljósi heimsbyggðarinnar
að Vestfjörðum sem mun reynast
mikil lyftistöng fyrir ferðaþjón-
ustuna á svæðinu og á Íslandi al-
mennt.“
Og enn fremur: „Hver staður sem
er valinn er einstakur, býr yfir
ákveðnum „Vá faktor“ og hefur lagt
sitt af mörkum til framþróunar sjálf-
bærrar ferðaþjónustu.“
Meðbyr í ferða-
þjónustunni á
Vestfjörðum
- Viðurkenning Lonely Planet skilar
sér á nokkrum árum - Útlitið gott
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hesteyri Marga spennandi áfanga-
staði er að finna á Vestfjörðum.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Undanfarið hafa ítrekað skapast
vandamál í sundlauginni í Laugar-
skarði Hveragerði þar sem hitastig í
lauginni er oft lágt svo loka hefur
þurft heitum pottum eða sundlaug.
Fella hefur þurft niður skólasund,
íþróttaæfingar og jafnvel loka fyrir
almenna laugargesti.
Fallandi þrýstingur
og lækkandi hitastig
„Okkur hefur fundist þetta mjög
bagalegt, því sundlaugin er mikið
aðdráttarafl fyrir bæinn og hefur
sérstöðu sakir einstakrar staðsetn-
ingar,“ segir Jóhanna Ýr Jóhanns-
dóttir, bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins. Hún hefur látið málið til
sín taka eins og fleiri bæjarfulltrúar.
Nú liggur fyrir svar menningar- og
íþróttafulltrúa bæjarins við fyrir-
spurn framboðsins Okkar Hvera-
gerði um stöðu mála og hvað verða
skuli.
Sundlaugin í Hveragerði var opn-
uð í júlí á síðasta ári að loknum end-
urbótum á búningsklefum og fleiru
sem tóku rétt tæpt ár. Talið er að
fallandi þrýstingur og lækkandi
hitastig á gufinni sem kyndir sund-
laugarsvæðið sé stór orsakavaldur
þeirra vandamála sem að framan er
lýst. Með öðrum og skýrari orðum
sagt: Trukkið er takmarkað.
Blandarar og minni hausar
Við endurbætur á búningsklefum
sundlaugarinnar var sturtum með
stórum hausum fjölgað, viðamikil
snjóbræðsla sett niður og loftræst-
ingu í búningsklefum bætt við. Þetta
hefur allt kallað á aukna notkun á
orku, sem nú þykir sýnt að hafi ekki
verið til staðar. Því var gripið til
þess ráðs að setja upp nýja sturtu-
hausa og minni, nýja og afkasta-
meiri varmaskipta, blandarar fyrir
sturtur og heitu pottana voru end-
urnýjaðir og fleira. Einnig var óskað
eftir því að Veitur yfirfæru gufu-
lögnina að lauginni sem reyndist í
góðu lagi. Nú er helst rætt um að
kraftmeiri þrýstingur verði settur í
gufulagnirnar og að í sundlaugar-
bygginguna sjálfa sem hýsir bún-
ingsklefa, afgreiðslu og líkamsrækt
verði sett hefðbundin hitaveita. Slík
er raunar talið þjóðráð, þótt sú
framkvæmd muni kosta sitt og auka
rekstrarkostnað sundlaugarinnar til
muna.
„Bókstaflega allir eru að reyna að
finna lausnir svo hitamál sundlaug-
arinnar í Laugaskarði komist í lag.
Laugin er perla bæjarins og hún
verður að vera í lagi,“ segir Aldís
Hafsteinsdóttir bæjarstjóri.
Takmarkað trukk á
gufu í Laugarskarði
- Sundlaugin í Hveragerði er köld - Lokað suma dagana
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Laugarskarð Sundlaug Hvergerðinga þykir einstök perla, en nú eru uppi vandamál í rekstri hennar.
„Vatnið í lauginni er hitað með
gufunni sem nú er takmörkuð.
Þetta kerfi hefur í raun gert
sundstaðinn okkar að nátt-
úrulaug sem er ódýr í rekstri,“
segir Njörður Sigurðsson, bæj-
arfulltrúi Okkar Hveragerðis.
Allir eru áfram, að sögn
Njarðar, um að koma lauginni í
lag en byrja verði á því að finna
rót vandans. „Við verðum að
kippa þessu í lag. Laugin er
stolt Hvergerðinga og að tækja-
búnaður hennar sé í ólagi, er lík-
ast því að kaffilaust sé í Bras-
ilíuborg. Slíkt er afleitt til
afspurnar,“ segir Njörður.
AFLEITT AFSPURNAR
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vandi Finna rótina, segir Njörður.
Kaffilaust
Díana
Jóhannsdóttir
Karen Elísabet Halldórsdóttir bæjarfulltrúi sækist eftir
1. sæti sjálfstæðismanna í Kópavogi í prófkjöri sem fer
fram 12. mars nk.
Karen Elísabet hefur setið í bæjarstjórn Kópavogs
undanfarin átta ár. Hún er varaformaður bæjarráðs,
formaður velferðarráðs, lista- og menningarráðs og öld-
ungaráðs. Einnig hefur hún setið í ráðgjafanefnd Jöfn-
unarsjóðs Sambands íslenskra sveitafélaga í tæp átta ár
og fjögur ár í stjórn Strætó. Hún er með BA-gráðu í sál-
fræði og meistaragráðu í mannauðsstjórnun og starfar
sem skrifstofustjóri samhliða störfum bæjarfulltrúa.
Karen vill leiða D-listann í Kópavogi
Karen Elísabet
Halldórsdóttir
Margrét Bjarna-
dóttir gefur kost
á sér í 5. sæti í
prófkjöri
Sjálfstæðis-
flokksins í
Garðabæ, sem
fer fram 5. mars
næstkomandi.
Margrét, sem er
þrítug, er með
sveinspróf í mat-
reiðslu og stundar nám í lögfræði
við Háskóla Íslands. Hún býr í
Garðabæ ásamt kærastanum sínum
og syni.
„Í mínum huga er mikilvægt að
listinn sé samsettur af fjölbreyttu
fólki á öllum aldri. Það er nauðsyn-
legt að hafa ungt fólk á lista Sjálf-
stæðisflokksins sem hefur fjöl-
breytta sýn á samfélagið sem við
búum saman í,“ skrifar Margrét á
Facebook-síðu sinni, þar sem hún
tilkynnti um framboðið. Hún segist
leggja áherslu á málefni fjölskyld-
unnar, leikskóla- og húsnæðismál.
Margrét stefnir á
5. sætið í Garðabæ
Margrét
Bjarnadóttir