Morgunblaðið - 28.01.2022, Page 19

Morgunblaðið - 28.01.2022, Page 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2022 sem sögur fara af, tók frænda sinn upp á arma sína eins og forðum, lagði mér lið, talaði við mann og annan og þar naut ég og flokkur- inn okkar vinsælda frænda míns. Allri fjölskyldu minni tóku þau Bjarni og Dísa opnum örmum. Mjög kært var með Sigrúnu konu minni og Dísu. Á meðan við frændur vorum eitthvað að erin- dast ræddu þær saman daginn langan. Tvö sumur dvaldist Guð- finnur sonur okkar hjá Dísu og Bjarna og aðstoðaði við verslunina og bílaútgerðina. Það var gott og hollt uppeldi. Og Sigrún María dóttir okkar sóttist eftir því að heimsækja Bjarna og Dísu og njóta samvista við þau. Í huga mér var Bjarni órjúfan- legur hluti Sauðárkróks og Skaga- fjarðar. Nú kveður hann eftir langa og góða ævi og mér finnst sem það hafi orðið kaflaskil. Bless- uð sé minning Bjarna frænda míns. Einar Kristinn Guðfinnsson Heiðursmaðurinn Bjarni Har- aldsson var einn af máttarstólpum atvinnulífs og samfélags á Sauð- árkróki og í Skagafirði. Hann kom víða við í atvinnulífi bæjarins og var t.d. einn af helstu bakhjörlum Skjaldar og Slátursamlagsins auk rekstursins í Verslun Haraldar Júlíussonar. Ég var svo lánsamur að vinna nokkur sumur í verslun- inni og lærði mikið á þeim tíma. Viðfangsefnin voru fjölbreytt, frá því að dæla eldsneyti á bíla, bæta á smurolíu og rúðuvökva, vigta hveiti og sykur upp úr sekkjum, stússast í Sanitasvörunum, af- greiða matvöru, sælgæti og vinnu- fatnað og taka til í kjallaranum. „Góðan daginn allan daginn“ sagði Bjarni á morgnana og „heyrðu vinskapur“ þegar hann vildi fá eitthvað gert. Bjarni var mikill húmoristi. Gengu um hann endalausar sögur hjá okkur krökkunum í bænum sem dáðumst að hnyttninni s.s. að hann skyldi taka ofan húfuna og segja „allt í stíl“ þegar einhver kvartaði undan því að kústurinn á þvottaplaninu væri hárlítill eða þá þegar hann lét kalla Tomma vin sinn í símann meðan hann var að stilla út í búðarglugganum hinum megin við götuna og spyrja „hvað kostar svínið sem ég sá í gluggan- um hjá þér áðan?“ Bjarni var nægjusamur og barst ekki á. Mikil regla var alltaf í fjármálum og öðru í rekstrinum. Bjarni vildi þó alltaf vera þokkalega akandi en átti sína bíla lengi sem jafnan voru á númerinu K2. Reksturinn laut sínum eigin lögmálum og ég not- aði það oft í umræðum í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis þegar einhver vildi gera staðgreiðslu- afslátt að skyldu að í Verslun Har- aldar Júl. hefðu þeir sem voru í föstum reikningsviðskiptum feng- ið 5% afslátt en aðrir borgað fullt verð og benti á að verslunin væri 80 ára gömul og með elstu fyrir- tækjum í verslun á landinu. Guðrún og Haraldur voru enn á lífi meðan ég vann í búðinni og ég skynjaði vel þá miklu gagnkvæmu væntumþykju sem var milli Bjarna og þeirra. Það hleypti miklu lífi í húsið þegar dæturnar Guðrún og Helga voru í heimsókn og þær voru mjög áhugasamar að hjálpa til í búðinni. Ekki minnkaði fjörið þegar María og Guðfinnur komu úr Víkinni með Einar Krist- in, Harald og Guðrúnu. Öll börnin voru sannir gleðigjafar. Bjarni var einlægur Sjálfstæð- ismaður og eitt af verkefnum mín- um fyrir hann var að keyra um sveitir og rukka bændur fyrir happdrættismiða flokksins. Hann var mjög virkur í flokksstarfinu alla tíð, ötull í kosningum og sér- staklega traustur og óeigingjarn. Hann mætti á alla fundi en hafði sig ekki mikið í frammi. Vel var á hann hlustað þegar hann tók til máls. Hann talaði við marga og var inni í öllu sem var að gerast í atvinnulífinu í bænum og hér- aðinu. Þess vegna var skyldustopp hjá Bjarna þegar ég var að ferðast um kjördæmið og fá innsýn í stöðu mála. Hann sagði alltaf sinn hug hversu þægilegt eða óþægilegt sem það var. Þá var Dísa líka kom- in í húsið, Lárus tengdur og and- rúmsloft væntumþykjunnar fyllti það sem fyrr. Bjarni auðgaði tilveruna og átti marga vini. Það var lán að þekkja hann. Við Pála sendum fjölskyld- unni okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Vilhjálmur Egilsson. Elsku Bjarni frændi. Mikið verður skrítið að koma á Krókinn og kíkja ekki í heimsókn. Þannig hefur það alltaf verið. Ef leiðin lá norður var alltaf stoppað á Baldri hjá Bjarna og Dísu. Þangað var maður alltaf velkominn, hvenær sem var dags og jafnvel með hóp í eftirdragi. Móttökurnar voru hlýj- ar og heimilislegar, skemmtilegt spjall, uppbúin rúm í boði, nóg til af mat og meira frammi. Í augum okkar systra á yngri árum var búðin hans Bjarna al- gjör töfraheimur. Þar mátti fara í búðarleik, stelast í nammi, æfa sig á kassanum, vigta hina ýmsu muni á gömlu voginni, týnast í kjallar- anum og finna þar alls konar dýr- gripi og svo má lengi telja. Þar fengum við nýja gúmmískó og ull- arsokka á vorin og leysti Bjarni okkur alltaf út með alls konar góð- gæti fyrir áframhaldandi ferðalag. Gjafmildi, gestrisni, þolinmæði og væntumþykja einkenndi þessar heimsóknir. Við trúðum því þá og trúum því enn að það sé allt til í búðinni hjá Bjarna og ef ekki í dag, þá var Bjarni búinn að redda því daginn eftir. Þegar við svo eignuðumst okkar börn vorum við svo heppin að fá að upplifa þetta allt upp á nýtt með þeim. Lítið breyttist og töfraheimur búðarinnar enn á sín- um stað. Bjarni var með eindæmum greiðvikinn og góður vinur og end- urspeglaðist það í því hversu vilj- ugir allir voru að gera honum greiða. Þessu fengum við að kynn- ast, aftur og aftur, enda allir boðn- ir og búnir að gera sem mest fyrir litlu frænkur Bjarna Har. Til að mynda þótti vörubílstjórum ekk- ert mál að skutla upprennandi bóndakonum í vist í Skagafjörð og meira að segja í Húnavatns- sýsluna. Jafnvel hjólið sem gleymdist heima skilaði sér í næstu ferð. Það var einhvern veg- inn bara ekkert mál. Elsku Bjarni, ferðir á Krókinn verða vissulega aldrei eins án heimsókna til þín og Dísu en við erum ævinlega þakklátar fyrir þessar dýrmætu minningar og fleiri til og munu þær kalla fram bros og ástúð um ókomna tíð. Þínar María Kristín, Ingibjörg Huld og Ragnheiður Harpa Haraldsdætur. Bæjarstjórinn í útbænum hefur lokað búðinni í hinsta sinn. Lagð- ur af stað í ferð á nýjar slóðir, áreiðanlega akandi á amerískum bíl með K-2 framan á. Skarð hans verður vandfyllt og tómlegra í út- bænum fyrir vikið. Einstakur maður hann Bjarni Har. Heillaði alla sem urðu á vegi hans, alltaf með ljúfa lund, bros á vör og glettnisglampa í augum, fá- dæma orðheppinn og hnyttinn í tilsvörum og vildi öllum vel. Ekki skemmdi fyrir ef þú fylgdir Sjálf- stæðisflokknum að málum, og keyptir bensín hjá Olís, en hann var vinur allra flokka „kvikinda“. Tók öllum viðskiptavinum opnum örmum sem komu við í Verzlun H. Júl, búðinni sem pabbi hans stofn- aði árið 1919. Þangað var gaman að koma og fylla á tankinn, taka létt spjall á kontórnum um bæj- arpólitíkina, kaupfélagið, lands- málin og lífið á Mogganum. Þó að Bjarni hafi verið nærri 40 árum eldri þá þróaðist með okkur góð vinátta með árunum, enda kær fjölskylduvinur. Alltaf gott að leita til hans og samtölin voru mörg þótt landshlutar skildu okkur að lengstum. Fyrstu minn- ingar mínar af Bjarna eru líklega þegar afi Guðvin sendi mig á hjól- inu til að kaupa neftóbak í búð- inni. Fyrir lítinn gutta var þetta dágóður spölur að fara úr suður- bænum en launin voru þess virði. „Fáðu þér eitthvað fyrir afgang- inn,“ sagði afi og oftar en ekki gaukaði Bjarni að guttanum ein- hverju aukreitis. Minnisstætt er eitt gamlárs- kvöld á Hólaveginum, líklega 1978 eða ’79, þegar foreldrar mín- ir buðu Bjarna í mat. Hann var þá á milli kvenna eins og sagt er, ekki búinn að festa ráð sitt end- anlega með Dísu og fékk sér enn í tána á góðri stund. Mikill gleði- gjafi var hann þetta kvöld, sem endranær, og á við besta verkja- lyf þegar til kastanna kom. Það óhapp varð í flugeldabrasinu að eitt blys sprakk í höndum mínum, með tilheyrandi brunasárum. Höndunum var dýft í fötu með köldu vatni og mér komið fyrir inni í stofu þar sem Bjarni tók að sér að lina þjáningar mínar með gríni og glensi, á meðan fullorðna fólkið fagnaði nýju ári. Bjarni átti svo sannarlega auðvelt með að fá fólk til að gleyma sorg og sút. Prakkari af guðs náð. Seinna á ævinni hélt grínið og glensið áfram þegar við Bjarni hittumst og hann sagði mér gam- ansögur af samferðamönnum í Skagafirði og víðar. Ég bar líka undir hann sögur sem aðrir höfðu að segja um hann, en þar er af nægu að taka. Hann hafði gaman af þessu öllu og afneitaði sjaldan góðri sögu. Enda skeikaði yfir- leitt litlu þar sem Bjarni var endalaus uppspretta skondinna ummæla og atvika. Ég færi Dísu, Guðrúnu, Helgu, Lárusi Inga og öðrum í fjölskyldu Bjarna innilegar samúðarkveðjur. Vonandi verður búðin opin áfram í einhverri mynd. Andi Bjarna verð- ur þar á sveimi og bæjarstjórinn vakir yfir útbænum. Björn Jóhann. Kveðja frá Lionsklúbbi Sauðárkróks Bjarni Haraldsson, kaupmað- ur og heiðursborgari á Sauðár- króki, er fallinn frá. Bjarni var einstakur maður. Góðmennska og kímni voru sterk einkenni þess manns er hann hafði að geyma. Bjarni var einn af stofnfélögum Lionsklúbbs Sauðárkróks, sem stofnaður var árið 1964, og var hann dyggur félagsmaður alla tíð. Á síðasta ári var hann gerður að heiðursfélaga í klúbbnum. Þegar Bjarni tjáði sig um mál- efni var hlustað því hann þótti ævinlega ráðagóður þegar á reyndi. Bjarni var hress og skemmtilegur félagi, mætti sam- viskusamlega á fundi og tók að sér þau trúnaðarstörf sem hann var beðinn að inna af hendi. Við félagarnir í Lionsklúbbi Sauðárkróks viljum þakka fyrir hin góðu kynni af honum í áranna rás. Hans verður sárt saknað sem frábærs félaga, en minningin um hans stórbrotna persónuleika sem gladdi alla með nærveru sinni og hnyttnum tilsvörum mun lifa í hjarta okkar. Lionsfélagar þakka Bjarna Haraldssyni langa og skemmtilega samfylgd í Lionsklúbbi Sauðárkróks. Aðstandendum sendum við innilegar samúðarkveðjur. F.h. félaganna í Lionsklúbbi Sauðárkróks, Alfreð Guðmundsson. „Gúmorren! Hvað segir minn?“ Kveðjunni fylgdi glettið bros og ef tími var til settumst við niður í litlu skrifstofunni á bak við búðina, spjölluðum saman, drukkum gos úr gleri og maul- uðum súkkulaði. Í rólegheitum. „Rólegheitin eru bestu heitin,“ var Bjarni vanur að segja. Með okkur Bjarna Haralds- syni, atvinnubílstjóra og kaup- manni á Sauðárkróki, tókust góð kynni þegar ég gerði ásamt Stef- áni Friðriki Friðrikssyni heim- ildamynd um Bjarna og Verslun Haraldar Júlíussonar. Okkar fyrirtæki var í Aðalgötunni við hliðina á Bjarna og mikill sam- gangur á milli. Bjarni var hrein- skiptinn og heiðarlegur og ætlað- ist til þess sama af öðrum. Hans kynslóð lagði ríka áherslu á að menn stæðu við orð sín og gjörðir. Árið 1954 stofnaði Bjarni vöru- flutningafyrirtæki og rak það til 2001. Bjarni hafði brennandi áhuga á bílum og akstri, var sann- ur fagmaður á því sviði. Foreldrar Bjarna stofnuðu verslunina 1919. Árið 1959 hóf Bjarni að vinna inn- anbúðar með föður sínum, sem þá var orðinn heilsuveill. Væntum- þykja hans og virðing fyrir for- eldrum sínum réð því að hann tók einnig að sér verslunarreksturinn og olíusölu. Bjarni var greiðvik- inn, lagði sig fram um að hjálpa þeim sem minna máttu sín og fet- aði þar í fótspor foreldra sinna. Við gerð heimildamyndarinnar rifjaði hann upp er hann og systir hans voru á jólum send í hús á Króknum með glaðning til fá- tækra fjölskyldna. Stráknum leiddist að þurfa að bera pakka í mörg hús, en Bjarni skildi tilgang verksins betur síðar og var þakk- látur fyrir. „Þeir eiga að gefa sem geta,“ sagði Bjarni. Greiðasemin við þá sem minna máttu sín var ekki borin á torg og þannig var það ekki heldur þegar Bjarni hafði tekið við rekstri búðarinnar en víst er að fjölmargir minnast ör- lætis hans og hjálpsemi með þakk- læti og hlýju. Bjarni var landsþekktur húm- oristi. Oftar en ekki gerði Bjarni góðlátlegt grín að sjálfum sér þeg- ar hann sagði frá. Eitt sinn kíkti hann í kaffi hjá okkur nágrönn- unum. Til hans hafði komið er- lendur ferðamaður. Bjarni var ekki talandi á aðrar tungur en ís- lenska og hafði í skúffu í af- greiðsluborðinu fagurbláa ensk/ís- lenska vasaorðabók. Maðurinn tók við bókinni úr hendi Bjarna en rétti honum hana strax aftur og var greinilega misboðið. Bjarni hvessti brýrnar á móti og við það gekk ferðamaðurinn út og varð fátt um kveðjur. „Þá hafði ég óvart rétt honum vasabrotsútgáfu af Nýja testamentinu, sem var al- veg eins á litinn,“ sagði Bjarni hlæjandi. Fyrir rúmu ári veiktist Bjarni, þurfti að leggjast á sjúkrahús og fór í kjölfarið á dvalarheimili. Eig- inkona hans Ásdís Kristjánsdóttir hafði þá dvalið þar um nokkurt skeið. Þaðan átti Bjarni ekki aft- urkvæmt. Mér er efst í huga þakk- læti fyrir góð kynni og mannbæt- andi. Ég sakna þess að síminn hringir og Bjarni biður mig um að kíkja við, til að hjálpa sér að panta „dollarpípur“ á netinu, færa til þunga rafgeyma á lagernum eða bara að spjalla um daginn og veg- inn. Dísu og börnum Bjarna, Lár- usi, Helgu og Guðrúnu votta ég innilega samúð. Guð blessi góðan dreng. Árni Gunnarsson, Sauðárkróki. Látinn er heiðursmaðurinn Bjarni Haraldsson. Bjarni setti mark sitt á mannlíf og atvinnulíf í Skagafirði stærstan hluta síðustu aldar og allt fram á síðasta dag. Ungur að árum stofn- aði hann og rak eigið vöruflutn- ingafyrirtæki, Vöruflutninga Bjarna Haraldssonar, sem sinnti flutningum á milli Sauðárkróks og Reykjavíkur. Jafnframt starfaði Bjarni með föður sínum í Verzlun Haraldar Júlíussonar sem stofnuð var árið 1919 og er enn í rekstri, ein af fáum krambúðum sem enn fyrirfinnast hér á landi. Bjarni tók við rekstri verslunarinnar árið 1973 og fór þá einnig með umboð Olís á Sauðárkróki sem faðir hans hafði haft frá árinu 1930. Verslun Bjarna Har., eins og búðin hans Bjarna er oft nefnd í daglegu tali Skagfirðinga, hefur í áranna rás skipað sérstakan sess í menning- arlífi Skagfirðinga og löngu orðin einn af þekktari viðkomustöðum innlendra sem erlendra ferða- manna á Króknum. Árið 2013 var heimildarmyndin Búðin eftir Árna Gunnarsson kvikmyndagerðar- mann hjá Skottu kvikmyndafje- lagi, sem fjallar um Bjarna og verslunarrekstur hans, frumsýnd en myndin hefur gert víðreist á fjölmörgum kvikmyndahátíðum um heim allan. Þannig má segja að Bjarni hafi verðskuldað orðið einn af verðugustu sendiherrum Skagafjarðar um víða veröld. Einkenni Bjarna voru greið- vikni og góðvild í garð samborg- ara sinna, framtakssemi, ríkuleg þjónustulund og síðast en ekki síst glettni og skemmtileg tilsvör. Bjarni lagði alla tíð mikið til sam- félagsins og var fyrir vikið oft kall- aður bæjarstjórinn í útbænum. Fyrir framlag sitt til verslunar- og þjónustureksturs til íbúa Sveit- arfélagsins Skagafjarðar og gesta í um 70 ár og fyrir að gera skag- firskt samfélag enn betra, var Bjarni Haraldsson árið 2019 sæmdur fyrsta heiðursborgara- titli Sveitarfélagsins Skagafjarðar við þau merku tímamót þegar Verzlun Haraldar Júlíussonar hafði verið starfrækt í 100 ár. Að leiðarlokum minnumst við Bjarna Haraldssonar með þakk- læti og virðingu og sendum fjöl- skyldu hans innilegar samúðar- kveðjur. Fyrir hönd Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri. Í dag er til moldar borinn Bjarni Haraldsson, kaupmaður á Sauðárkróki, gegnheill sjálfstæð- ismaður og óþreytandi merkisberi einkaframtaksins.. Bjarni fæddist á Sauðárkróki árið 1930, sonur Haraldar Júl- íussonar kaupmanns og Guðrúnar Ingibjargar Bjarnadóttur hús- móður. Hann þekkti því frá blautu barnsbeini þann kraft, sem býr í frumkvæði hvers manns og hvern- ig einkaframtakið er best til þess fallið að fullnægja ólíkum þörfum fólks og styrkja samfélagið. Hann var duglegur og dugandi maður, sem féll aldrei verk úr hendi. Nafni minn var aðeins 24 ára gamall þegar hann stofnaði fyrir- tækið Vöruflutningar Bjarna Haraldssonar sem hann starf- rækti til aldamóta, en 1959 gekk hann einnig til liðs við föður sinn í Verslun Haraldar Júlíussonar, en eftir að hann tók alfarið við versl- uninni árið 1973 var hún í daglegu tali oftast kölluð verslun Bjarna Har. Þar kom ég iðulega við á ferð- um mínum norður í land og alltaf var jafngaman að hitta Bjarna. Hann var skemmtilegur og orð- heppinn maður, glöggur og næm- ur á bæði menn og málefni. Af þeim samtölum hafði ég ávallt gagn og gaman, enda var hann bæði hreinskilinn og ráðagóður. Bjarni skipaði sér í sveit okkar Sjálfstæðismanna ungur að árum og gegndi trúnaðarstörfum fyrir flokkinn í Skagafirði, var í kjör- dæmisráði og sat fjölmarga lands- fundi í Reykjavík, oft í fylgd syst- ursonar síns, Einars K. Guðfinns- sonar, fv. forseta Alþingis. Ég vil fyrir hönd flokksins þakka honum störf í þágu sjálfstæðisstefnunnar, en minnist einnig vináttu hans og velvildar. Guð blessi minningu hans. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins. Ástkær faðir okkar, afi og langafi, JÓHANN AXELSSON prófessor emerítus, lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 24. janúar. Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 1. febrúar klukkan 13. Athöfninni verður streymt á skjaskot.is/johann. Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat. Axel Jóhannsson Viggó Karl Jóhannsson barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN HJALTADÓTTIR, Skálateig 3, Akureyri, lést miðvikudaginn 20. janúar. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 4. febrúar klukkan 10. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir en athöfninni verður streymt á Facebook-síðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar. Friðrik Vestmann Rúnar Vestmann Hanna Karlsdóttir Ragnhildur Vestmann Gísli Kristinsson Inga Margrét Vestmann Þórhallur Jónsson ömmu- og langömmubörn Okkar elskaði ÓLAFUR FRANZ MIXA læknir, fríþenkjari og ugluspekingur, verður borinn til grafar þriðjudaginn 1. febrúar klukkan 13. Athöfn fer fram í Fossvogskirkju en vegna fjöldatakmarkana einskorðast hún við nánustu aðstandendur. Ærleg minningarathöfn verður haldin í vor, þegar hömlum léttir. Við bendum á Rauða krossinn honum til heiðurs. Már Wolfgang Mixa Kristín Loftsdóttir Halla Guðrún Mixa Katrín Mixa Sveinn Steinarsson Mímir, Alexía, Sól, Svanfríður, Elvar Ólafur og Sólvin Anton

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.