Morgunblaðið - 28.01.2022, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 28.01.2022, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2022 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Lok á potta Eigum til lok á flest alla potta á lager. Td. stærðir 200x200, 210x210, 220x220, 235x235, kringlótt lok og átthyrnt lok. HEITIRPOTTAR.IS Sími 777 2000 Bílar Nýr 2021 Nissan Leaf Tekna 40 kWh battery. Drægni um 270 km. Evrópubíll í fullri ábyrgð. Eigum hvíta, Dökk grá og svarta til afhen- dingar strax. Rúmri milljón undir listaverði á aðeins 4.150.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga. Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Ath. Grímuskylda er á uppboðum. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Vaðlaborgir A, Svalbarðsstrandarhreppi, fnr. 233-8972, þingl. eig. Árvegur ehf., gerðarbeiðandi Svalbarðsstrandarhreppur, þriðjudag- inn 1. febrúar nk. kl. 09:30. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 27. janúar 2022 Félagsstarf eldri borgara Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8.30-16. Félagsstarfið liggur niðri til miðvikudagsins 2. febrúar. Boðið uppá kaffi til kl. 11. Gömlu góðu sóttvarnarreglurnar sem við kunnum svo vel, komnar aftur, grímuskylda og 2 metra reglan. Hádegismatur- inn kemur í bökkum. Panta þarf matinn fyrir hádegi deginum áður. Síðdegiskaffið er opið frá kl. 14.30-15.30. Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Njálulestur í Jónshúsi kl. 13–15. Qi-gong í Sjálandi kl. 9. Stólajóga kl. 11 í Sjálandsskóla danssal. Leikfimi í Ásgarði kl. 12.15. Botsía Ásgarði kl. 13.10. með morgun- !$#"nu ✝ Evert Kristinn Evertsson bakarameistari fæddist í Reykja- vík 26. desember 1945. Hann lést 3. janúar 2022 í Sunnuhlíð í Kópa- vogi. Foreldrar hans voru Hjördís Ólafsdóttir ritari, f. 7. nóvember 1922, d. 27. júní 2006, og Evert Kristinn Magn- ússon vélvirki, f. 22. nóvember 1918, d. 3. júní 1946. Stjúpfað- ir Everts var Marinó G. Jóns- son símritari, f. 23. júlí 1906, d. 22. júlí 1983. Systir Everts er Valgerður Marinósdóttir, f. 29. september 1957, gift Valdi- mari G. Guðmundssyni. Þann 7. ágúst 1971 kvæntist Evert eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigríði Guðrúnu Héðins- dóttur, hjúkrunarfræðingi og ljósmóður, f. 4. febrúar 1950. Foreldrar hennar voru Sjöfn Jóhannesdóttir húsmóðir, f. afa var honum alltaf mjög kært. Evert byrjaði ungur að læra bakstur og starfaði sem bak- ari og bakarameistari í hinum ýmsu bakaríum bæði í Reykja- vík og á landsbyggðinni. Árið 1984 keypti hann Efnagerð Laugarness ehf. í Kópavogi og rak hana ásamt eiginkonu sinni til ársins 1999. Evert var alla tíð mjög fé- lagslyndur og naut þess að sinna hinum ýmsu áhuga- málum og félagsstörfum, svo sem ljósmyndun, tréútskurði og skrautskrift, auk þess sem hann tók virkan þátt innan Kiwanis-hreyfingarinnar og í Ferðafélagi Húsavíkur. Þá var hann mikill áhugamaður um fornbíla. Fyrst og fremst var hann þó Valsari. Evert gekk ungur í Val og studdi sitt fé- lag dyggilega allt tíð. Hann var þó einnig mikill Liver- pool-maður.Útför Everts fer fram í Fossvogskapellu í dag, 28. janúar 2022, kl. 10.30. Vegna aðstæðna í þjóðfélag- inu verða einungis nánustu aðstandendur og vinir við- staddir en streymt verður frá athöfninni: https://www.skjaskot.is/evert https://www.mbl.is/andlat 27. október 1924, d. 23. nóvember 2016, og Héðinn Ólafsson rafvirki, f. 14. janúar 1918, d. 16. júlí 1992. Dóttir Everts og Sigríðar er Sjöfn Evertsdóttir, f. 22. september 1969. Maður henn- ar er Úlfur Helgi Hróbjartsson, f. 8. júlí 1965, og eiga þau tvö börn, Ólaf Evert og Karin Sig- ríði. Unnusta Ólafs er Auður Ýr Jóhannsdóttir og synir þeirra eru Evert Marinó og Emil Óli. Evert var rétt rúmlega fimm mánaða er faðir hans lést og hann flutti með móður sinni til móðurforeldra að Hraunteigi 14 í Reykjavík. Ólst hann þar upp til 11 ára aldurs er móðir hans og Mar- inó hófu sambúð í Blönduhlíð 13. Bjó hann þar til fullorðins- ára, en heimili ömmu hans og Í dag kveð ég elsku pabba minn, Evert Kr. Evertsson. Pabbi var búinn að glíma við heilsuleysi í mörg ár og það voru ófá jólin sem ég hélt að yrðu okkar síðustu, en nú verða þau víst ekki fleiri. Það er því huggun harmi gegn að við mamma gátum dvalið hjá honum í Sunnuhlíð frá því hann veiktist alvarlega þann 25. des- ember og þar til hann kvaddi þann 3. janúar. Við vöknuðum því með honum á afmælisdegi hans þann 26. desember og fögnuðum 76 ára afmælisdegi hans ásamt nánustu ættingjum. Eins gátum við fagnað nýju ári með honum, þótt ég hefði sann- arlega óskað að aðstæðurnar væru aðrar. En þær samveru- stundir létta sorgina þótt að kveðja sé aldrei auðvelt og sorgin mikil. Það mun taka tíma að átta sig á að pabbi sé raunverulega farinn, ekki síst í ljósi þess hversu oft við héld- um í gegnum árin að hann væri að kveðja. Alltaf stóð hann samt upp aftur og því bíður hluti af mér enn eftir að ein- hver segi að þetta sé bara draumur, að hann sé allur að koma til. Það verður víst ekki í þetta sinn og við ástvinir hans þurfum að halda áfram á okkar hátt. Er ég var ung las föð- uramma mín fyrir mig bókina Bróðir minn Ljónshjarta og kýs ég nú að leita í hugarheim Astrid Lindgren og hugga mig við að pabbi gleðjist nú yfir endurfundum í Nangiala eða einhvers staðar, með öllum ást- vinunum sem á undan honum fóru. Nú fær hann loks að kynnast afa Evert sem lést er pabbi var fimm mánaða, hitta ömmur og afa og fara í göngu- túra með Kát og Depil sem voru honum svo kærir. Þessi hugsun er vissulega barnslega „naív“, en mér er sama, ekkert okkar veit hvað bíður eftir and- lát. Það er því val hvernig við hugsum og ég vel að hugsa um pabba í nýjum ævintýrum á öðrum stað, þar sem við hitt- umst aftur. Pabbi minn var einstakur maður, baráttumaður, harður af sér og fylginn sér, en sann- gjarn. Hann var líka ljúfur og traustur, sannur vinur vina sinna og börnum mínum var hann einstakur afi. Svo var hann auðvitað Valsari alveg í gegn - hann myndi nú ekki fyr- irgefa mér að taka það ekki fram. Við pabbi vorum ekki alltaf sammála, en þegar á móti blés var pabbi sá sem ég leitaði til, hann var kletturinn minn. Þá var pabbi mikill húmoristi og á ég margar minningar um hann að fíflast og skemmta mér og vinkonum mínum með ýmsum uppátækjum. Eins man ég vel eftir honum að kenna mér að hjóla, á skíði er við bjuggum á Húsavík og á skauta í Helsingborg. Skauta- ferðirnar eru mér sérstaklega minnisstæðar því það voru bara „okkar stundir“ og það sem var gaman hjá okkur. Þær eru svo ótalmargar minning- arnar sem ég á, svo margt sem hjartað vildi segja en það er erfitt að skrifa með hjartað fullt af sorg. Í dag kveð ég með þessum orðum pabba minn, með rauða hárið sem ekki var einu sinni farið að grána, listamanninn og þús- undþjalasmiðinn, húmoristann, hörkutólið og klettinn, sem elskaði mömmu meira en allt. Bless í bili elsku hjartans pabbi minn og takk fyrir allt. Þín dóttir, Sjöfn Everts. Um páskana fyrir tæpum 53 árum kom Sigga systir okkar, sem þá var nemi í Hjúkrunar- skóla Íslands, með verðandi eiginmann sinn, hann Ebba, í fyrsta skipti heim í Fjöll. Hann náði fljótt góðum tengslum við fjölskylduna, var uppfullur af alls kyns hugmyndum sem gerði það að verkum að þeir pabbi náðu vel saman og eins myndaðist mikil og góð vinátta, sem hélst alla tíð á milli hans og mömmu. Ebbi var alltaf einstaklega greiðvikinn og hjálpsamur og höfum við systkinin og fjöl- skyldur okkar notið gestrisni Ebba og Siggu í gegnum tíðina. Við gleymum aldrei allri hjálp þeirra og aðstoð í veikindum föður okkar þegar hann lá á Landspítalanum síðustu vikurn- ar áður en hann dó. Þegar pabbi þurfti í hjartaaðgerð til Bretlands fóru Ebbi og Sigga með honum. Ebbi var lærður bakari og það kom fljótt í ljós að hann var góður bakari og mikill hag- leiksmaður. Marsípanterturnar og kransakökurnar sem hann gerði fyrir veislur og atburði í fjölskyldunni voru ekki bara bragðgóðar heldur oft hrein listaverk. Hann hafði einnig mörg áhugamál s.s útskurð og eru til margir einstaklega fal- legir gripir eftir hann. Smjör- hnífar eftir Ebba eru til á flestum heimilum tengdafólks hans. Hann hafði mikinn áhuga á gömlum bílum og vélum og sótti hann fornbílasýningar m.a. til Bandaríkjanna. Ebbi gerði upp Farmal A-dráttarvél föður okkar sem var önnur tveggja dráttavéla sem fyrstar komu í Kelduhverfi. Ebbi og Sigga bjuggu á Húsavík í 9 ár. Á búsetuár- unum þar byggðu þau sér sumarbústað nálægt bernsku- heimili okkar. Þar nutu þau þess að vera þegar tími gafst til, en eftir að þau fluttu suður var dvölin í sumarbústaðnum meira tengd sumrinu og sum- arfríi þeirra. Ebbi var Sjálfstæðismaður, Kiwanismaður en fyrst og fremst mikill Valsmaður og stuðningsmaður Liverpool. Hann fór margar ferðir á Liv- erpool-leiki sem fararstjóri lít- illa og stærri hópa. Hann vann einstaklega mikið starf alla tíð fyrir íþróttafélagið Val, studdi það og styrkti og meðan kraft- ar leyfðu fór hann ásamt góð- um félaga sínum og undirbjó handboltaleiki félagsins í Vals- heimilinu. Tengsl hans í Val komu sonum Kollu vel þegar þeir byrjuðu ungir að æfa handbolta hjá félaginu. Hann fylgdist alltaf með þeim í handboltanum bæði hér heima og í Danmörku. Síðustu ár fór heilsu Ebba hrakandi. Endurteknar spít- alainnlagnir tóku sinn toll í hvert sinn og síðustu 2 ár hef- ur hann þurft mikla aðstoð. Þar hefur Sigga verið vakin og sofin yfir heilsu hans, sem gerði það að verkum að hann gat verið heima þar til nokkr- um vikum fyrir andlátið. Nú er komið að leiðarlokum, kæri mágur. Við þökkum sam- fylgdina í rúma hálfa öld. Blessuð sé minning þín. Við sendum innilegar sam- úðarkveðjur til Siggu, Sjafnar, Ólafs Everts, Karin Sigríðar, Úlfs og annarra ættingja. Kolbrún, Guðmundur Sigurgeir, Jóhannes Páll, Sigurbjörg Friðný, Ólafur Jón og fjölskyldur. Evert Kristinn Evertsson - Fleiri minningargreinar um Evert Kristinn Evers- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Guðrún Sólveig Guðmunds- dóttir fæddist 29. júlí 1935 í Ásakoti í Sandvíkurhreppi. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Lundi á Hellu þann 18. janúar 2022. Foreldrar Anna Hróbjört Guð- mundsdóttir, f. 31.12. 1911, d. 20.4. 1945, og Guðmundur Alexand- og börn þeirra eru: Anna Margrét, f. 10.7. 1957, gift Sæmundi Sæmundssyni, f. 11.6. 1943, þau eiga þrjú börn og fjögur barnabörn. Elísabet Sigurðardóttir, f. 2.12. 1958, gift Grétari Skúla- syni, f. 14.1 1957, eiga þau þrjár dætur og sex barnabörn. Ágústa Sigurðardóttir, f. 16.6. 1961, gift Aðalsteini Brynj- ólfssyni, f. 6.10. 1958, og eiga þau þrjár dætur og sex barna- börn. Páll Sigurðsson, f. 7.9. 1962, kvæntur Margréti Ebbu Ísleifs- dóttur, f. 19.5.1964, og eiga þau tvö börn og þrjú barnabörn. Þorbjörn Sigurðsson, f. 7.1. 1969, kvæntur Jónu Heiðdísi Guðmundsdóttur, f. 7.1. 1971, og eiga þrjú börn og tvö barna- börn. Guðrún fór í fóstur árið 1946 og bjó hjá fósturforeldrum sín- um á Selfossi allt til ársins 1960 þar til hún flutti upp í Hruna- mannahrepp í Ásgerði þar sem hún bjó alla tíð. Sigurður og Guðrún byrjuðu með fjárbúskap en eftir að Sigurður gerðist verktaki var Guðrún með hon- um í verkefnum og sá um mötu- neyti fyrir starfsmenn. Síðar vann Guðrún sem matráður að Sogni í Ölfusi og í garðyrkju í Hvammi í Hrunamannhreppi og síðustu árin starfaði hún í Loð- dýrabúinu í Ásgerði og allt þar til heilsan leyfði það ekki leng- ur. Útförin fer fram í kyrrþey. ersson, f. 3.3. 1912, d. 11.10. 2000. Guðrún fór í fóstur eftir að móð- ir hennar lést, til hjónanna Mar- grétar Gissurar- dóttur og Guð- björns Sigurjóns- sonar á Selfossi. Hún giftist Sig- urði Jónssyni frá Hrepphólum í Hrunamannahreppi 26.7. 1957 Ég hitti Gunnu tengdamóður mína fyrir réttum þrjátíu árum, ung stelpa sem var að byrja með örverpinu syni hennar. Ég hafði eiginlega aldrei hitt svona smá- vaxna konu áður en hún bætti það upp með dugnaði og krafti sem einkenndi hana alla tíð. Við byggðum húsið okkar í túnfætinum og það að búa í miklu návígi hefur bæði kosti og galla og kostirnir voru svo miklu fleiri en gallarnir. Börnin okkar nutu þess að geta farið til ömmu, þegar mamman var eitthvað erf- ið og amma átti yfirleitt köku eða eitthvað gott í skúffunni. Gunna ól mig líka upp að mörgu leyti, ég hef lært æðru- leysi og að hið veraldlega er ekki mikilvægt heldur það sem er hið innra. Gunna sýndi mér stuðning og ástúð í veikindum mínum, hún skildi það svo vel hvernig það var að vera með kvíða, jafn- vel þótt hún hefði nú aldrei feng- ið neina greiningu. Hún elskaði fjölskylduna ofar öllu og fannst ekkert skemmti- legra og betra en að hitta barna- börnin og barnabarnabörnin. Barnabörnin mín fengu að kynn- ast langömmu sinni og kíkja í nammiskúffuna en þau eru ung og líklega hverfur minningin um langömmu þegar fram líða stundir. En ég mun segja þeim sögur af þessari konu sem var svona „risasmá“ og var alltaf ánægð með það sem hún hafði. Takk fyrir mig elsku Gunna. Hvíl í friði. Jóna. Elsku amma í sveitinni er far- in í sumarlandið og efst í huga mínum eru allar góðu minning- arnar sem ég á. Ég var hjá ömmu og afa í Ás- gerði á nánast hverju sumri frá því ég man eftir mér. Að stúss- ast með ömmu alla daga í minka- húsinu, skottast með henni úti í garði á kvöldin eða úti á túni þar sem við gróðursettum tré voru forréttindi sem ég hef búið að síðan. Spila við hana á kvöldin og fá auðvitað alltaf að vinna, læra að leggja kapal og fá heimagerðar karamellur, það gerðist ekki betra. Ég fór svo seinna að vinna á sumrin í Hvammi hjá Jóa og Kristínu og auðvitað með ömmu, hvað annað. Þar kenndi hún mér handtökin og enn fannst mér best að vera með hana mér við hlið. Hún kenndi mér svo margt og hún gerði allt betra. Í sveitinni leið mér best og fór það svo að lok- um að ég flutti á Flúðir og stofn- aði þar mína fjölskyldu, í nálægð við ömmu og afa. Elsku amma, ljúfust og sann- gjörnust, sem vildi allt fyrir sitt fólk gera. Takk fyrir allt, þú gerðir heiminn minn betri. Þín Fríður. Guðrún Sólveig Guðmundsdóttir - Fleiri minningargreinar um Guðrúnu Sólveigu Guð- mundsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.