Morgunblaðið - 28.01.2022, Page 24
Fjölskylda
Eiginmaður Ragnhildar er Böðvar
Bjarnason, f. 22.10. 1962, verkstjóri
áhaldahúss Rangárþings eystra. Þau
jökla, enda hafa dætur hennar tvær
og sonur svo sannarlega ekki látið
sitt eftir liggja í þeim efnum heldur
ekið í hjólför móður sinnar ef svo
má segja.
R
agnhildur Birna Jóns-
dóttir fæddist í
Reykjavík 28. janúar
1962 og fluttist á
Hvolsvöll sumarið 1966
með foreldrum sínum. Ragnhildur
ólst upp og bjó mestalla barnæsku
sína á Hvolsvelli og stundaði þar
leik, barnapössun og hefðbundinn
prakkaraskap.
Hún gekk í Grunnskólann á
Hvolsvelli og sótti nám á unglinga-
stigi í Skógaskóla og bjó þar í heima-
vist. Síðan lá leiðin í Iðnskólann í
Reykjavík og nam hún þar tækni-
teiknun. Ragnhildur vann við af-
greiðslustörf í sjoppu Kaupfélags
Rangæinga á Hvolsvelli á unglings-
árum sínum. Hún hóf störf hjá RA-
RIK árið 1982 og hefur unnið þar
síðan við tækniteiknun og skrif-
stofustörf.
Ragnhildur gantast með það að
þótt hún breyti ef til vill ekki oft um
stefnu og áhugamál þá tekur hún
þeim verkefnum og hugðarefnum
sem hana heilla mjög sterkum tök-
um. Hún segir helstu áhugamál sín
samverustundir með fjölskyldu og
vinum og svo hannyrðir í anda for-
mæðra okkar og ferðalög. Þjóðbún-
ingar skipa einkar stóran sess í
hennar hugðarefnum. Hún hefur
sótt röð námskeiða í Annríki – Þjóð-
búningar og skart í Hafnarfirði og
hefur saumað nokkra þjóðbúninga
með góðri leiðsögn þaðan, en Ragn-
hildur hefur m.a. saumað þjóðbún-
inga á næstum alla stórfjölskylduna.
Sumarið 2021 fékk hún viðurkenn-
ingu frá Sveitarfélaginu Rangár-
þingi eystra fyrir „varðveislu á
menningararfi Íslands með saum á
íslenskum þjóðbúningum“.
Þegar kemur að hinu stóra
áhugamálinu í lífi hennar, það er að
segja ferðalögum, má með sanni
segja að hún hafi verið í hópi leið-
andi fólks af sinni kynslóð þegar
kemur að ferðalögum um hálendi
Íslands og aðrar ótroðnar slóðir.
Meðal annars hefur hún verið í hópi
kvenna sem hafa farið á jeppum yfir
Eyjafjallajökul og Mýrdalsjökul og
verið fyrirmynd þeirra kvenna sem
kjósa að vera í bílstjórasætinu þeg-
ar farið er yfir straumharðar ár og
búa á Hvolsvelli. Foreldrar Böðvars
eru hjónin Kristín Bjarnveig
Tryggvadóttir, f. 12.3. 1941 og Bjarni
Böðvarsson, f. 3.4. 1938. Þau búa á
Þinghóli í Rangárþingi eystra.
Ragnhildur Birna Jónsdóttir, tækniteiknari og saumakona – 60 ára
Stórfjölskyldan Samankomin á 17. júní á Hvolsvelli í fyrra í þjóðbúningum sem Ragnhildur hefur saumað.
Þjóðbúningar á fjölskylduna
Jöklaferð Jeppinn hennar Rönku, eins og Ragnhildur er oftast kölluð.
Afmælisbarnið Ranka í faldbúningi
sem er enn í vinnslu.
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2022
50 ÁRA Sigga er Flateyr-
ingur, fædd þar og uppalin.
Hún er leikskólakennari að
mennt frá Kennaraháskóla
Íslands og er leikskólastjóri
á Flateyri.
Það er rík hefð fyrir
skólastjórnendastöðu í
hennar fjölskyldu, en faðir
hennar, afi og langafi voru
allir skólastjórar á Flateyri.
Sigga hóf störf síðastliðið
haust, en var áður deildar-
stjóri á leikskólanum
Klettaborg í Reykjavík í 13
ár. „Það er dásamlegt að
vera komin heim. Þetta er
allt annað umhverfi og allt
önnur nálgun í starfinu.
Börnin eru mun tengdari
atvinnuvegunum bæði til
sjávar og sveita.“ Sigga var
trúnaðarmaður fyrir Félag
leikskólakennara þegar hún
bjó í Reykjavík. „Ég hef
áhuga á félagsmálum en er
ekki komin af stað í slíkt
hér á Flateyri, en við erum í miklu samstarfi hér öll skólastigin, grunn-
skólinn, leikskólinn og lýðskólinn.“ Tólf börn eru í leikskólanum á
Flateyri.
Áhugamál Siggu eru samvera með vinum og útivist. „Svo hef ég áhuga
á öllu sem snýr að menntakerfinu og námi og uppeldi ungra barna.“
FJÖLSKYLDA Systkini Siggu eru Halldóra Kristín, f. 1960, Jóhann
Hjörtur, f. 1963, og Guðrún Ragna, f. 1965. Foreldrar Siggu eru Emil
Ragnar Hjartarson, f. 1936, fyrrverandi skólastjóri, og Anna Jóhanns-
dóttir, f. 1937, húsmóðir og fv. verkakona, Þau eru nú búsett í Reykjavík.
Sigríður Anna Emilsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Ekki missa tökin á yfirsýn yfir fjár-
málin, þú hefur staðið þig vel síðustu mán-
uði. Það er bjart fram undan í ástamál-
unum.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það er af og frá að þú þurfir að vera
sammála öllum bara til þess að allt sé slétt
og fellt á yfirborðinu. Kvöldið verður eftir-
minnilegt.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Gullið tækifæri gæti beðið þín
sem þú mátt ekki láta renna þér úr greip-
um. Ekki vera fljótfær.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Það þarf ekki mikið til þess að
draga úr þér mátt og þig skortir bæði kraft
og ákafa þessa dagana. Einhver er eins og
tifandi tímasprengja.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú finnur fyrir þrá hjá þér til að gera
eitthvað nýtt og gætir fengið tækifæri til
þess fyrr en þig grunar. Sýndu þolinmæði
og láttu ekki skapið hlaupa með þig í gön-
ur.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það er ekkert vit í öðru en að þú
setjist niður og gerir þér grein fyrir því
hvað það er sem þú sækist eftir í lífinu.
Einhver slær þér gullhamra.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú ert á grænni grein í einkalífinu. Þó
að þú eigir varla fyrir salti í grautinn þá
breytist það fyrr en varir.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Enda þótt þú sért einfari í eðli
þínu þá kannt þú samt vel að meta félags-
skap annarra líka. Sæktu um starf sem þú
sást auglýst og vakti áhuga þinn.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú hefur vakið athygli yfir-
manna þinna með frammistöðu þinni. Ekki
snúa baki við gömlum vini.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Grunnurinn þarf að vera góður
til þess að það sem á honum rís sé til
frambúðar. Þú heldur hlífiskildi yfir vini og
færð klapp á bakið fyrir það.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það er sjálfsagt að hjálpa öðr-
um þegar maður getur það. Þú nagar þig í
handarbökin yfir að hafa ekki stokkið á til-
boð sem þér barst.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Einhverjar breytingar liggja í loftinu
og þú getur ekki komið í veg fyrir þær. Ein-
hver sýnir sitt rétta andlit og þú skalt fara
varlega nálægt þeirri persónu.
Til hamingju með daginn
8
Ræktum og verndum geðheilsu okkar
Nýir skammtar daglega á gvitamin.is
Finndu og
ræktaðu
hæfileika þína