Morgunblaðið - 28.01.2022, Page 27
Í BÚDAPEST
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Hlutskipti Íslands á EM karla í
handknattleik í þetta sinn er að leika
um fimmta sætið á mótinu en í dag
fæst úr því skorið hvort Ísland eða
Noregur hafni í fimmta sæti þegar
liðin mætast í MVM Dome í Búda-
pest klukkan 14:30 að íslenskum
tíma.
Ekki er að ástæðulausu að leikið
er um fimmta sætið því í þetta skipt-
ið gefur það keppnisrétt á HM sem
fram fer eftir ár í Svíþjóð og Pól-
landi. Þrjú sæti á EM gefa þar
keppnisrétt og eru lið þannig verð-
launuð fyrir góðan árangur á EM
með því að sleppa við umspil fyrir
HM. Danmörk og Svíþjóð eru á
meðal liðanna í undanúrslitum á
EM. Þau eru með keppnisrétt á HM
nú þegar. Svíar sem gestgjafar og
Danir sem heimsmeistarar. Núver-
andi Evrópumeistarar frá Spáni og
ólympíumeistararnir frá Frakklandi
öðlast því keppnisrétt á HM ásamt
Íslandi eða Noregi.
Íslenska landsliðið er því í alvöru-
félagsskap hvað þetta varðar en
nokkuð er um liðið síðan Ísland náði
svo langt á stórmóti. Fara þarf átta
ár aftur í tímann til að finna sam-
bærilegan árangur en á EM í Dan-
mörku árið 2014 hafnaði Ísland í 5.
sæti undir stjórn Arons Kristjáns-
sonar.
Vonbrigði gegn Svíum
Enda er andstæðingurinn í dag
sterkur. Noregur hefur náð að setja
saman lið sem hefur verið í hópi
þeirra allra bestu á síðustu árum.
Sander Sagosen er í hópi bestu leik-
manna heims en margir fleiri öflugir
leikmenn komu fram á sjónarsviðið
um svipað leyti. Norðmenn koma ef-
laust mjög sárir undan milliriðlinum.
Þeir virtust vera á góðri leið með að
leggja nágranna sína og erkifjendur
Svía að velli í síðasta leiknum í milli-
riðlinum. Svíum tókst hins vegar,
kannski af gömlum vana, að kreista
fram sigur eftir mikla spennu. Fyrir
vikið fóru Svíar í undanúrslitin en
ekki Norðmenn.
Norðmenn hafa verið svo öflugir
síðustu árin að þessi niðurstaða er
líklega frekar vonbrigði fyrir þá
heldur en hitt. Þeir höfnuðu í 3. sæti
á síðasta EM og hafa fengið silf-
urverðlaun á HM 2017 og 2019. Sa-
gosen mátti meira að segja þola
nokkra gagnrýni meðan á riðla-
keppninni stóð. Noregur tapaði með
eins marks mun fyrir Rússlandi en
því áttu fáir von á. Nokkuð er síðan
Rússar fóru að gefa eftir en seint á
síðustu öld voru þeir iðulega í verð-
launasætum. Í milliriðlinum sýndu
Norðmenn hvað þeir geta með því að
vinna bæði Þjóðverja og Spánverja
auk þess að rótbursta Pólverja.
Tvö smit hjá Norðmönnum
Í gær bárust þær fréttir að tvö
smit hefðu greinst í norska leik-
mannahópnum, þau fyrstu á EM.
Þar var um tvo hörkuleikmenn að
ræða. Torbjörn Bergerud sem berst
við Viktor Gísla Hallgrímsson um
markmannsstöðuna hjá GOG í Dan-
mörku og Magnus Gullerud sem
leikur með Ómari Inga Magnússyni
og Gísla Þorgeiri Kristjánssyni í
þýska toppliðinu Magdeburg.
Hvað dagurinn í dag ber í skauti
fyrir lið Íslands og Noregs varðandi
kórónuveiruna er ómögulegt að
segja til um. Ef til vill verða smitin
fleiri hjá Norðmönnum, en Íslend-
ingar hafa þegar fengið stóran
skammt af smitum. Þegar íslensku
fjölmiðlamennirnir ræddu við þjálf-
ara og nokkra leikmenn í íslenska
liðinu í gær höfðu ekki borist nið-
urstöður úr skimunum miðvikudags-
ins vegna bilunar á rannsóknarstof-
unni. Mjög óljóst er hvernig íslenska
liðið verður skipað en leikmenn á
borð við Ólaf Guðmundsson og Gísla
hafa nú verið býsna lengi í ein-
angrun. Tilkynnt var um smitin hjá
þeim á fyrstu tveimur dögunum eftir
að veiran stakk sér niður í íslenska
hópnum. Einnig bíða unnendur ís-
lenska landsliðsins eftir því að vita
hvort fyrirliðinn Aron Pálmarsson
geti beitt sér eftir að hafa tognað á
kálfa snemma leiks gegn Svartfjalla-
landi.
Norskir sigrar í síðustu leikjum
Segja má að Íslendingar hafi lengi
vel haft tak á Norðmönnum á stór-
mótum karla í handknattleik. Þótt
Noregur væri með vel skipað og vel
spilandi lið tókst þeim ekki að yfir-
stíga þann þröskuld að leggja Ísland
að velli. Má í því samhengi benda á
leikina á HM í Japan 1997 og HM í
Svíþjóð 2011 þegar norska liðið var
vel mannað í báðum tilfellum.
Eftir að Norðmenn komust í
fremstu röð hefur þeim tekist að
leggja Íslendinga að velli í tvö síð-
ustu skipti sem þjóðirnar hafa mæst
á stórmótum.
Ekki leikið um 5. sætið
á EM að ástæðulausu
- Síðasti leikur Íslands á EM í Búdapest - Sigurliðið sleppur við umspil
Ljósmynd/Szilvia Micheller
Liðleiki Viktor Gísli Hallgrímsson hefur leikið mjög vel í marki Íslands í síðustu þremur leikjum.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2022
_ Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn
Birgir Finnsson er á leið í aðgerð
vegna meiðsla á liðþófa. Þetta stað-
festi Magnús Agnar Magnússon, um-
boðsmaður leikmannsins, í samtali við
fótbolta.net. Kolbeinn, sem er 22 ára
gamall, er samningsbundinn Borussia
Dortmund í Þýskalandi og hefur leikið
með varaliði félagsins í þýsku C-
deildinni á leiktíðinni. Alls hefur hann
komið við sögu í ellefu leikjum með
liðinu á tímabilinu en í átta þeirra hef-
ur hann verið í byrjunarliðinu. Leik-
maðurinn verður frá næstu vikurnar
vegna meiðslanna en hann gekk til liðs
við þýska félagið frá Brentford árið
2019.
_ Hin ástralska Ashleigh Barty er bú-
in að tryggja sér sæti í úrslitum Opna
ástralska mótsins í tennis eftir að hún
hafði betur gegn Bandaríkjakonunni
Madison Keys í Melbourne í gær.
Barty er þar með fyrsti tennisleikarinn
frá Ástralíu sem kemst í úrslit á Opna
ástralska í 42 ár og gæti orðið fyrsti
Ástralinn til þess að vinna á heimavelli
síðan Christine O’Neil gerði það fyrir
44 árum. Barty mætir Danielle Collins
frá Bandaríkjunum í úrslitum.
_ Fimm íslenskir leikmenn eru í hópi
þeirra sem tilnefndir hafa verið í kosn-
ingu á úrvalsliði Evrópumóts karla í
handknattleik. Tilnefndir eru sex leik-
menn í hverri stöðu en Íslendingarnir
koma til greina í fimm stöður af þeim
átta sem kosið er um. Viktor Gísli
Hallgrímsson er tilnefndur sem mark-
vörður, Bjarki Már Elísson er til-
nefndur sem vinstri hornamaður, Óm-
ar Ingi Magnússon er tilnefndur sem
hægri skytta, Sigvaldi Björn Guð-
jónsson er tilnefndur sem hægri
hornamaður og Ýmir Örn Gíslason er
tilnefndur sem varnarmaður.
Eitt
ogannað
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, at-
vinnukylfingur og Íslandsmeistari
úr Keili, hefur keppni í LET-
Evrópumótaröðinni, þeirri sterk-
ustu í Evrópu, þann 10. febrúar en
þá hefst fyrsta mótið í Vipingo í
Kenía. Eftir rúmlega mánaðar hlé
keppir hún á móti í Sádi-Arabíu og
síðan á tveimur mótum í Suður-
Afríku frá 17. mars til 2. apríl. Guð-
rún keppti á sextán mótum á móta-
röðinni á árinu 2021 og náði þar
best tólfta sæti. Alls er 31 mót á
Evrópumótaröðinni á þessu ári, það
síðasta hefst 24. nóvember.
Guðrún byrjar
tímabilið í Kenía
Ljósmynd/Tristan Jones/LET
Kenía Guðrún Brá Björgvinsdóttir
leggur land undir fót á næstunni.
Haraldur Franklín Magnús, at-
vinnukylfingur úr GR, var aðeins
einu höggi frá sigri á atvinnu-
mannamóti í Jóhannesarborg í Suð-
ur-Afríku sem lauk í fyrradag.
Hann lék þrjá hringi á 13 höggum
undir pari, 206 höggum, og var
einu höggi á eftir heimamanninum
Ricky Hendler sem vann mótið.
Haraldur keppir í Suður-Afríku á
þremur fyrstu mótum tímabilsins á
Áskorendamótaröðinni, Challenge
Tour, sem fara þar fram í George,
Höfðaborg og Durban á bilinu 10.
til 27. febrúar.
Haraldur annar
í Suður-Afríku
Ljósmynd/IGTTour
Suður-Afríka Haraldur Franklín
Magnús verður þar næstu vikur.
Norðmenn hafa rétt eins og Íslendingar unnið fimm leiki og tapað tveimur
á Evrópumóti karla í handknattleik. Þeir unnu Slóvakíu 35:25, Litháen
35:29, Pólland 42:31, Þýskaland 28:23 og Spán 27:23 en töpuðu 22:23 fyrir
Rússlandi og 23:24 fyrir Svíþjóð.
Norðmenn fengu brons á síðasta Evrópumóti árið 2020 og það er þeirra
besti árangur á EM. Þeir fengu silfur á heimsmeistaramótinu 2017 og 2019
en enduðu í sjötta sæti á HM 2021.
Sigurliðið í leik Noregs og Íslands í dag er komið með keppnisrétt á HM
2023 í Svíþjóð og Póllandi en tapliðið fer í hefðbundið umspil um sæti þar í
júnímánuði.
Sebastian Barthold er markahæsti leikmaður Norðmanna á mótinu með
40 mörk. Sander Sagosen, sem er talinn einn allra besti handboltamaður
heims, hefur skorað 35 mörk og Harald Reinkind kemur næstur með 22
mörk.
Margir norsku leikmannanna eru samherjar íslenskra landsliðsmanna.
Sebastian Barthold og Kristian Björnsen leika með Aroni Pálmarssyni með
Aalborg, Magnus Gullerud og Christian O’Sullivan leika með Ómari Inga
Magnússyni og Gísla Þorgeiri Kristjánssyni hjá Magdeburg, Simen Petter-
sen, Endre Langaas og Thomas Solstad leika með Orra Frey Þorkelssyni
hjá Elverum, markvörðurinn Torbjörn Bergerud er samherji markvarð-
arins Viktors Gísla Hallgrímssonar hjá GOG og Kevin Gulliksen leikur með
Janusi Daða Smárasyni hjá Göppingen.
Þá eru Bergerud, Gullerud og Vetle Eck Aga á leið til Kolstad í Noregi í
sumar eins og þeir Janus Daði og Sigvaldi Björn Guðjónsson.
Noregur líka með fimm sigra
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Subway-deildin:
Meistaravellir: KR – Grindavík .......... 18.15
Smárinn: Breiðablik – Tindastóll........ 19.15
IG-höllin. Þór Þ. – Stjarnan................. 20.15
1. deild karla:
Borgarnes: Skallagrímur – Sindri ...... 19.15
Álftanes: Álftanes – Selfoss................. 19.15
Hveragerði: Hamar – Hrunamenn..... 19.15
MVA-höllin: Höttur – Haukar............. 19.15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Ísafjörður: Hörður – Valur U.............. 17.30
Dalhús: Fjölnir – Afturelding U ......... 18.30
Dalhús: Vængir J. – Kórdrengir ......... 20.30
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Austurberg: ÍR – Fjölnir/Fylkir......... 19.30
Í KVÖLD!
Fótbolti.net-mót karla
Úrslitaleikur:
Stjarnan – Breiðablik............................... 3:1
Leikur um þriðja sætið:
Leiknir R. – ÍA ......................................... 5:3
Reykjavíkurmót kvenna
Þróttur R. – Fylkir................................... 5:1
Víkingur R. – KR...................................... 6:2
Fjölnir – Fram.......................................... 6:0
_ Valur 9, Fjölnir 9, Víkingur R. 6, Þróttur
3, KR 3, Fylkir 0, Fram 0.
50$99(/:+0$