Morgunblaðið - 28.01.2022, Page 32

Morgunblaðið - 28.01.2022, Page 32
TAK- MARKAÐ MAGN FYRSTIR KOMA, FYRSTIR FÁ H Ó TE LV Ö R U R ·D ÝN U R ·S K IP TI D ÝN U R ·R Ú M ·S ÝN IS H O R N ·S Ó FA R H Ö FU Ð G A FL A R ·S M Á B O R Ð ·H Æ G IN D A ST Ó LA R & FL EI R A ! Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Tilnefningar til Barna- og unglingabókmenntaverð- launa Vestnorræna ráðsins fyrir árið 2022 hafa verið kunngjörðar og eru þrjár bækur tilnefndar: Afi og ég og afi eftir Dánial Hoydal og Anniku Øyrabø sem er framlag Færeyja, Dýrin halda þing um mengun jarð- arinnar eftir Kent Kielsen frá Grænlandi og Bannað að eyðileggja eftir Gunnar Helgason sem er tilnefnd af hálfu Íslands. Barna- og unglingabókmenntaverð- laun Vestnorræna ráðsins eru afhent annað hvert ár og hafa það að mark- miði að efla barna- og unglingabók- menntir á vestnorræna svæðinu. Dómnefndir í hverju landi fyrir sig velja bók sem tilnefnd er til verðlauna og verð- launafé er 60 þúsund danskar krónur, jafn- virði um 1,2 milljóna ís- lenskra króna. Fyrir tveimur ár- um hlaut Bergrún Íris Sævarsdóttir verðlaunin fyrir bókina Langelstur að eilífu. Bók Gunnars Helgasonar tilnefnd FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 28. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Jóhannes Karl Guðjónsson var á dögunum ráðinn að- stoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu en hann tekur við starfinu af Eiði Smára Guðjohnsen sem lét af störfum í lok nóvember á síðasta ári. Jó- hannes Karl er spenntur fyrir því að vinna með Arnari Þór Viðarssyni, þjálfara liðsins, en hann ræddi við Morgunblaðið um nýja starfið í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal í gær. »26 Jóhannes þakklátur fyrir tækifærið ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Smyrjarinn Haukur Davíð Gríms- son hefur starfað lengst núverandi manna á varðskipum Landhelgis- gæslunnar. „Ég byrjaði 1972,“ segir hann eins og ekkert sé eðlilegra en að vinna í hálfa öld á sama stað og orðlengir það ekki frekar. „Þetta er góður vinnustaður.“ Sveinn Magnússon, frændi Hauks, var smyrjari á gamla Þór og útvegaði unglingnum vinnu á skip- inu. „Ég byrjaði sem messagutti og síðan fór ég sem aðstoðarmaður í vél á Óðni árið eftir en skipti yfir á Tý, sem var nýkominn til landsins, 1975,“ rifjar Haukur upp. Hann hafi verið smyrjari á Tý til 1986, unnið í landi í þrjú ár, farið síðan á Óðin 1989, verið á honum þar til Gæslan hafi látið hann frá sér, og síðan haldið uppteknum hætti á Tý þar til Freyja hafi verið tekin í notkun á nýliðnu ári. Frá því hafi hann verið smyrjari á nýjasta skipi flotans og kunni því vel. „Þeir kalla mig yfir- smyrjara en ég er bara smyrjari.“ Góður starfsandi Lífið á sjónum á vel við Hauk. „Hérna er góður starfsandi, ágæt- islaun og löng frí á milli túra,“ út- skýrir hann. Fimm manns eru í vél- arrúminu, þrír vélstjórar og tveir smyrjarar. „Óskar Skúlason er smyrjari með mér og hann hefur nærri unnið jafn lengi og ég hjá Gæslunni.“ Unnið er á 12 tíma vökt- um, vetrartúrarnir standa yfir í þrjár vikur og sumartúrarnir í 17 daga en að auki er unnið tvo daga í landi fyrir og eftir hvern túr. „Ég á gamla bíla og stöðugt þarf að dytta að þeim en svo slappa ég líka bara af í fríum og geri mig klár- an fyrir næsta túr, er hress og kát- ur, þegar ég fer út aftur.“ Bretar tóku stækkun íslensku landhelginnar óstinnt upp og í kjöl- farið var hasar á miðunum. „Ég tók þátt í tveimur þorskastríðum, í 50 og 200 mílna stríðunum, fyrst á Óðni og svo á Tý.“ Hann segir það hafa verið óvenjulega lífsreynslu. „Mér fannst þetta mjög gaman, spenn- andi, en ég fékk reyndar stundum í magann, þegar þeir sigldu á okkur og við vorum varnarlausir niðri í vél, fundum bara þegar dallurinn skall á okkur.“ Þrátt fyrir óvissuna segist hann aldrei hafa verið hræddur um líf sitt. „Ég vissi að þeir myndu aldr- ei ganga svo langt.“ Engu að síður hafi ein árásin á Tý verið mjög al- varleg. „Yfirleitt létu þeir sér nægja að fara með síðu í síðu en í þessu til- viki sigldu þeir með stefnið inn í síð- una. Sem betur fer var ég í fríi í þessum túr, eina fríið mitt í þorska- stríðunum.“ Eðlilega hafa hlutir almennt breyst til batnaðar á undanförnum 50 árum. „Allur aðbúnaður hefur breyst, hann var ekki merkilegur á Óðni, lagaðist á Tý og allt er mun fullkomnara á Freyju en við höfum áður átt að venjast.“ Áður hafi menn verið löðrandi í smurolíu en svo sé varla lengur. „Stundum lendum við samt í smá hasar með ýmislegt en nú erum við reyndar mest í eftirliti og viðhaldi, að þrífa og mála og að- stoða vélstjóra við það sem þarf að gera.“ Haukur segir að vel gangi að að- lagast nýju skipi. Freyja sé lík Þór, til dæmis séu sams konar vélar í skipunum, og margir hafi farið af Þór yfir á Freyju, meðal annars yfirvélstjórinn. „Við erum allir sam- an í þessu, forðumst vesen og reyn- um að vera með allt á hreinu. Það er líka skemmtilegast.“ Slapp vel í stríðunum - Haukur hefur verið smyrjari á varðskipum í um hálfa öld Ljósmyndir/Guðmundur St. Valdimarsson Vanir menn Jarl Bjarnason og Haukur D. Grímsson til hægri að störfum. Viðhöfn 24. mars 2020 voru 45 ár frá því varðskipið Týr kom fyrst til Reykjavíkur. Haukur var með lengsta starfsaldur og skar afmælistertuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.