Morgunblaðið - 11.02.2022, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.02.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022 Eyjólfur Gísla- son gefur kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Reykjanesbæ sem fer fram 26. febrúar. Eyjólf- ur er 35 ára, fæddur og upp- alinn í Reykja- nesbæ og býr þar með syni sínum. Hann er með háskólagráðu í miðl- un og almannatengslum og stund- ar meistaranám í forystu og stjórnun. Eyjólfur hefur undan- farin ár starfað á rekstrarsviði Icelandair Group. „Framboð mitt er til marks um þá sannfæringu mína að fólk með ólíkan bakgrunn og getu skili samfélaginu okkar bestum ár- angri,“ segir m.a. í yfirlýsingu Eyjólfs um framboðið. Eyjólfur stefnir á 2. sæti í Reykjanesbæ Eyjólfur Gíslason Andri Steinn Hilmarsson, að- stoðarmaður þingflokks Sjálf- stæðisflokksins, sækist eftir 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Kópa- vogi sem fer fram 12. mars. Andri Steinn hefur gegnt formennsku umhverf- is- og samgöngunefndar Kópavogs- bæjar frá árinu 2018 og verið vara- bæjarfulltrúi síðan 2014. Í framboðstilkynningu sinni segir Andri Steinn að hann vilji leggja áherslu á öfluga þjónustu við bæj- arbúa á sama tíma og álögum verði stillt í hóf. Þá eigi að nýta það svigrúm sem skapist vegna ábyrgs reksturs aftur í þágu íbúa bæjarins, frekar en í gæluverkefni. Andri Steinn vill 2.-3. sætið í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson Robert Aron Magnússon veit- ingamaður gef- ur kost á sér í 6. sæti á lista Sjálf- stæðisflokksins í borgarstjórnar- kosningum í vor. Robert rekur fyrirtækið Götu- bitann – Reykja- vik Street Food. Hann segir í til- kynningu á Facebook að ferðalag hans með matarvagna um út- hverfi borgarinnar staðfesti í sín- um huga þörfina fyrir bætta þjón- ustu við hverfin í borginni og stuðningur við einkaframtakið sé besta leiðin til þess. Það þurfi að einfalda kerfin, bæta viðmót borgarinnar gagnvart atvinnu- rekendum og ryðja hindrunum úr vegi þeirra dugmiklu og fram- takssömu. Sækist eftir 6. sæti á D-lista í Reykjavík Robert Aron Magnússon DAGMÁL Andrés Magnússon Stefán E. Stefánsson Árni Rúnar Þorvaldsson og Guð- mundur Árni Stefánsson eru sam- mála um að meginverkefni Samfylk- ingarinnar í Hafnarfirði sé að fella núverandi meirihluta í bænum sem leiddur er af Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra og oddvita Sjálfstæð- isflokksins. Þeir etja kappi á morgun um oddvitasæti flokks síns í forvali þar sem 12 manns hafa boðið sig fram. Samfylkingin hefur nú tvo bæjarfulltrúa eftir að hafa hlotið rúmlega 20% atkvæða í kosningn- unum fyrir fjórum árum. Árni Rún- ar og Guðmundur Árni eru gestir Dagmála í dag, sem á komandi vik- um verða að miklu leyti helguð sveit- arstjórnarkosningum sem fram munu fara um land allt um miðjan maímánuð. Guðmundur Árni segir markmiðið að tvöfalda fjölda bæjarfulltrúa flokksins, hann skynji stemningu fyrir því en hann hefur nýlega snúið heim á fornar slóðir eftir að hafa sinnt margbrotnum verkefnum á vettvangi utanríkisþjónustunnar síð- astliðin 17 ár. Árni Rúnar er grunn- skólakennari og varabæjarfulltrúi, með mikla reynslu af sveitarstjórn- armálum, þó ekki síst frá Hornafirði þar sem hann gegndi trún- aðarstörfum í rúm sjö ár. Er hann hógværari í væntingum sínum en gamli bæjarstjórinn og segir verð- ugt að stefna á þrjá fulltrúa í kosn- ingunum í maí. Þeir gagnrýna báðir núverandi meirihluta fyrir hæga- gang í uppbyggingu bæjarins. Benda á að lítið hafi þokast síðustu misseri við að fjölga íbúum og að of langan tíma hafi tekið að ræsa fram- kvæmdir í Skarðshlíð. Einnig séu litlar líkur á að núverandi meirihluti muni ýta úr vör umbreytingu á Hraununum, sem er gamalt iðnaðar- og verslunarsvæði á bæjarmörk- unum við Garðabæ. Báðir telja þeir að með fumlaus- um vinnubrögðum sé hægt að hraða uppbyggingu og fjölga íbúum. Nefn- ir Guðmundur Árni mikilvægi þess að horfa til strandlengjunnar og að byggja megi upp byggð sunnan við álverið í Straumsvík. Dustar hann einnig rykið af hugmyndum um sameiningu við Voga á Vatnsleysu- strönd. Slík áform hafi verið sam- þykkt af hálfu Hafnfirðinga á sínum tíma en ekki í Vogum. Árni Rúnar og Guðmundur Árni gagnrýna báðir meint getuleysi nú- verandi meirihluta í málefnum fatl- aðs fólks. Inntir eftir aðgerðum telja þeir báðir þörf á að ráðast í úttekt á málaflokknum. Gagnrýnir Árni Rún- ar að Hafnarfjarðarbær greiði lægri taxta í tengslum við NPA-þjónustu en önnur sveitarfélög á höfuðborg- arsvæðinu. Spurðir út í hvort þeir myndu geta myndað meirihluta með Sjálf- stæðisflokki að loknum kosningum ef pólitískur veruleiki kalli á það, þar sem Rósa Guðbjartsdóttir yrði mögulega bæjarstjóri áfram, segir Árni Rúnar það klárlega ekki fyrsta val. Guðmundur Árni tekur dýpra í árinni og fullyrðir að það muni „aldr- ei“ verða, leiði hann Samfylkinguna í Hafnarfirði í komandi kosningum yrði það ekki til þess að framlengja setu Rósu í bæjarstjórastólnum. Gagnrýna hægagang í uppbyggingu - Leiðtogaefni Samfylkingarinnar í Hafnarfirði leggja áherslu á að fella meirihlutann í bænum - Vilja úttekt á málefnum fatlaðra - Opna á hugmyndir um byggð sunnan við álverið í Straumsvík Morgunblaðið/Hallur Kosningar 2022 Leiðtogaefni Samfylkingarinnar komu í myndverið til Andrésar og Stefáns Einars til skrafs. 2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hluti af fjarvarmaveitu HS veitna í Vestmannaeyjum er kyntur með olíu, eftir að ákvörðun Landsvirkjunar um að loka fyrir afhendingu á skerðan- legri orku fyrir rafskautakatla fjar- varmaveitna tók gildi í fyrrinótt. Um helmingur orkunnar í Eyjum kemur í gegnum varmadælu en samið var við HS orku og Landsvirkjun um kaup á forgangsorku flyrir þann lið í rekstr- inum. HS orka selur áfram rafmagn til hleðslu Herjólfs, þrátt fyrir ákvæði um skerðingu. Varmadæla fjarvarmaveitunnar í Vestmannaeyjum þrefaldar rafork- una sem fer á dæluna. Friðrik Frið- riksson, framkvæmdastjóri orkusölu hjá HS orku, segir að þegar varma- dælan sé á fullum afköstum anni hún um helmingi af varmaþörf fjar- varmaveitunnar. Samið var um kaup á forgangsorku fyrir þann hluta og kemur hún að miklu leyti frá Lands- virkjun en að hluta frá HS orku. Hinn helmingur vatnsins er venju- lega hitaður upp með rafskautakatli. Rafmagnið er keypt af Landsvirkjun með afslætti enda kveða samningar á um að hægt sé að takmarka eða loka fyrir orkusöluna ef aðstæður krefjast þess. Það var gert nú. Þess vegna er orkan nú framleidd með olíukötlum, á meðan skerðingin varir. Herjólfur áfram á rafmagni Áætla má að veitan sé nú að brenna um 15 tonnum af olíu sem kostar um tvær milljónir króna. Ef Landsvirkjun lokar fyrir rafmagnið í þrjá mánuði fara 1.300-1.400 tonn af olíu í brennsluna og heildarkostnað- urinn gæti nálgast 200 milljónir króna. Fiskimjölsverksmiðjurnar í Eyj- um eru knúnar með olíu á þessari loðnuvertíð, eins og fram hefur kom- ið. HS orka fékk samning um sölu á rafmagni á hleðslustöðvar Herjólfs í Vestmannaeyjum og Landeyjahöfn eftir útboð ríkisins. Í samningum var gert ráð fyrir að hægt yrði að skerða afhendingu raforku ef þörf væri á enda gæti skipið þá siglt fyrir olíu. Friðrik segir að þetta ákvæði hafi verið í útboðslýsingu og því frá ríkinu komið. Það endurspeglast að ein- hverju leyti í orkuverðinu. HS orka hefur þrátt fyrir þetta ákveðið að selja Herjólfi rafmagn fyrir hleðsluna eitthvað áfram svo út- gerð skipsins geti áfram verið lofts- lagsvæn. Sundlauginni lokað Nánar spurður um þetta segir Friðrik að vissulega væri það fjár- hagslega hagkvæmt fyrir HS orku að gera hlé á orkuafhendingu til Herj- ólfs. Þetta sé hins vegar fyrsta og eina alvöruskipið sem gangi fyrir raf- orku og fyrirtækið hafi talið mikil- vægt að láta það ganga áfram, eins lengi og hægt væri. Skerðing á afhendingu orku hefur áhrif á rekstur einhverra sundlauga. Hólmavík er dæmi um það. Ákveðið hefur verið að loka sundlauginni ásamt heitum potti og vaðlaug en ein- um potti verður haldið opnum. Sveit- arfélagið hefur ekki fjármuni til að kynda sundlaugina með olíu eftir að Landsvirkjun lokaði fyrir. Íþrótta- húsi verður haldið opnu ásamt lík- amsræktarstöð. Vegna viðhalds verður þó eini heiti potturinn sem á að reka áfram lokaður næstu daga og ef til vill vikur. Hrafnhildur Skúladóttir, íþrótta- og tómstundafulltrúi Strandabyggð- ar, segir að lokunin skerði verulega lífsgæði fólks auk þess sem ekki sé hægt að sinna kennsluskyldu í sundi. Hún bendir á að sveitarfélagið greiði heilmikið fyrir raforkuna sem nauð- synleg sé til að sinna þörfum íbú- anna, jafnvel meira en erlend stór- iðjufyrirtæki greiða. Varmadælan með forgangsorku - Fjarvarmaveita HS veitna í Vestmannaeyjum er að hluta kynt með jarðefnaeldsneyti á meðan orku- afhending er skert - Sundlauginni á Hólmavík lokað nema hvað einn heitur pottur verður opinn Morgunblaðið/Árni Sæberg Vestmannaeyjar Hitinn á vatninu er þrefaldaður með varmadælu. Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Sérhæfð þjónusta fyrir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 544 5151 tímapantanir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.