Morgunblaðið - 11.02.2022, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.02.2022, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIR Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022 Höfum opnað í Smáralind glæsilega verslun á 1. hæð SMÁRALIND | ÁRMÚLI 38 | SÍMI 537 5101 | SNURAN.IS Lögreglan í Kan- ada undirbýr nú að láta til skarar skríða gegn mót- mælendum sem lokað hafa einni mikilvægustu samgönguæð landsins, Am- bassador-brúnni milli Ontario og Detroit í Banda- ríkjunum, frá því á mánudaginn. Flutningabílstjórar hafa lagt trukk- um sínum Kanadamegin við brúna og þannig komið í veg fyrir umferð um hana. Á venjulegum degi fara um og yfir 40 þúsund farartæki um brúna og flytja fólk og varning á milli landanna. Trudeau, forsætis- ráðherra Kanada, sagði í þingræðu í gær að mótmælendur ógnuðu efna- hag landsins. „Það er ekki hægt að stöðva farsóttir með vegatálmum,“ sagði hann og vísaði til þess að til- efni aðgerðanna er andstaða við sóttvarnaráðstafanir stjórnvalda. KANADA „Stöðva ekki faraldur með vegatálmum“ Justin Trudeau Breska lögreglan hefur útvíkkað rannsókn sína á meintum brotum forsætisráð- herrans, Boris Johnsons, og samstarfsmanna hans, á sótt- varnareglum vegna kórónu- veirufaraldurs- ins. Þetta er gert eftir að eitt Lund- únablaðanna birti mynd úr setri forsætisráðherrans í Downing- stræti 10 frá jólunum 2020, en myndin, sem sýnir ráðherrann og tvo starfsmenn hans opna freyði- vínsflösku, gæti bent til brots á þeim reglum sem ríkisstjórnin hafði þá sett og almenningi var skylt að fylgja. Lögreglan vinnur nú að því að afla upplýsinga frá um 50 manns vegna rannsóknarinnar sem tekur til sóttvarnabrota ráð- herrans í fyrra og hitteðfyrra. BRETLAND Útvíkka rannsókn á meintum brotum Boris Johnson Meðal skjala sem Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafði með sér í óleyfi þegar hann yfirgaf Hvíta húsið við forsetaskiptin í byrjun síðasta árs en hefur nú skil- að voru opinber trúnaðarskjöl. Þetta er mat Þjóðskjalasafns Bandaríkj- anna, að því er New York Times greindi frá fyrr í vikunni, en safninu tókst að endurheimta 15 öskjur opin- berra skjala frá Trump. Kært til dómsmálaráðuneytis? Starfsmenn Þjóðskjalasafnsins hafa greint embætti óháðs eftirlits- manns með opinberri skjalavörslu frá málinu. Ekki liggur fyrir hvort hann hafi tilkynnt það til dómsmála- ráðuneytisins, en brottnám skjala af þessu tagi getur verið saknæmt. Hlutverk eftirlitsmannsins er ekki síst að gæta þess að skjöl sem varða öryggi ríkisins og önnur trúnaðar- skjöl stjórnvalda hverfi ekki úr opin- berum skjalasöfnum. Er honum skylt að gera dómsmálaráðuneytinu viðvart ef slíkt gerist. Fari málið til dómsmálaráðuneyt- isins gæti það leitt til opinberrar sakamálarannsóknar og gæti valdið meiriháttar pólitískri ólgu vestan- hafs vegna þess mikla stuðnings sem Trump nýtur enn á meðal kjósenda og innan flokks repúblikana. Talið er ólíklegt að ráðuneytið vilji efna til slíks ófriðar en núverandi dóms- málaráðherra, Merrick B. Garland, hefur kappkostað að skapa ráðu- neytinu traust og trúnað eftir þann pólitíska halla sem þykir hafa verið á ýmsum gjörðum þess í tíð Trumps. Meðal skjalanna sem Trump tók án leyfis var bréf til embættisins frá Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kór- eu. Þá voru í öskjunum sem skilað var ýmis gögn og gjafir sem Trump höfðu verið send á embættistíma hans en óheimilt var að fara á brott með án þess að Þjóðskjalasafnið kannaði fyrst innihald þeirra. Í frétt New York Times er rifjað upp að sumir nánir samstarfsmenn Trumps í Hvíta húsinu, þar á meðal skrif- stofustjórinn John Kelly, hafi haft áhyggjur af því hve mikill losara- bragur var á umgengni forsetans við skjöl sín. Hafi hann m.a. stundum tekið skjöl sem vörðuðu öryggi ríkis- ins af skrifstofunni og í íbúð sína í Hvíta húsinu. Er sagt að Kelly hafi óttast um afdrif skjalanna sem for- setinn tók með sér. Gat aflétt trúnaði af skjölum Blaðið bendir á að á meðan Trump var í embætti hafi hann haft vald til að aflétta trúnaði af hvaða skjali sem var. Það vald hafi hann ekki eftir að hann hefur látið af embætti. Segir blaðið að hann hafi stundum nýtt sér þetta vald til að styrkja sig pólitískt meðan hann var í Hvíta húsinu. Frægt dæmi um það er þegar hann birti á Twitter ljósmynd úr gervi- hnetti bandarísku leyniþjónustunn- ar af eldflaugastöð í Íran. Myndin var skilgreind sem háleynileg njósnaheimild þegar forsetanum var sýnd hún en hann gerði sér lítið fyr- ir, aflétti leyndinni og birti hana. Með trúnaðarskjöl heima - Þjóðskjalasafn Bandaríkjanna lét Trump skila 15 öskjum opinberra skjala - Tók skjölin heim með sér í óleyfi - Málið hugsanlega til dómsmálaráðuneytisins AFP Skjöl Donald Trump sýnir bréfið frá leiðtoga Norður-Kóreu í janúar 2019. Utanríkisráðherra Breta, Liz Truss, segir að Rússar verði að virða full- veldi Úkraínu til þess að árangur geti náðst í viðræðum um öryggis- mál í þessum heimshluta. Truss var í Moskvu í gær og átti þá fund með rússneskum starfsbróður sínum, Sergei Lavrov. Við upphaf fund- arins varaði hún sterklega við alvar- legum afleiðingum og viðbrögðum ef Rússar réðust inn í Úkraníu eins og margir óttast. Sagði ráðherrann að stríð í Úkraínu myndi hafa skelfi- leg áhrif á almenna borgara í lönd- unum báðum. Lavrov svaraði um- mælum Truss með þeim orðum að samskipti Bretlands og Rússlands hefðu aldrei verið jafn slæm og nú. Ekkert þýddi að hafa í hótunum við Rússa sem hefðu áhyggjur af öryggi sínu vegna hernaðaruppbyggingar NATO. Breskir ráðamenn hafa verið ómyrkir í máli vegna hins mikla herafla sem Rússar hafa komið fyrir við landamæri Úkraínu. Hóta þeir Pútín og stjórn hans hörðustu refsi- aðgerðum í manna minnum ef Rúss- ar ráðist inn í Úkraínu. Varn- armálaráðherra Bretlands, Ben Wallace, hyggst fylgja boðskap utanríkisráðherrans eftir með við- ræðum við Sergei Shoigu, varn- armálaráðherra Rússa, í dag. Þá hefur Olaf Scholz, kanslari Þýska- lands, boðað komu sína til Moskvu eftir helgina og hyggst hann ræða stöðu mála við Pútín. Aðeins nokkr- ir dagar eru síðan Macron Frakk- landsforseti var þar í sömu erindum en ekki er sjáanlegt að þær við- ræður hafi nokkru skilað. Rússar virði fullveldi Úkraínu AFP Viðræður Liz Truss og Sergei Lav- rov ræddu um Úkraínu í Moskvu. - Utanríkisráðherra Breta varar við alvarlegum áhrifum ef til innrásar kemur Breska konungsfjölskyldan til- kynnti í gær, að Karl Bretaprins hefði greinst með kórónuveirusmit og væri kominn í einangrun. Karl, sem er 73 ára að aldri, greindist með kórónuveiruna í mars árið 2020 og hefur síðan verið bólusettur þrisvar. Karl var í opinberri móttöku í British Museum sl. miðvikudags- kvöld og hitti þar meðal annars breska ráðherra. Danadrottning smituð Í vikunni greindi danska kon- ungsfjölskyldan frá því að Margrét Danadrottning hefði greinst með kórónuveirusmit. Fram kom í til- kynningu, að drottningin hefði væg sjúkdómseinkenni og dveldi í Amal- íuborgarhöll í Kaupmannahöfn. Margrét, sem er 81 árs gömul, hef- ur verið bólusett þrisvar gegn kór- ónuveirunni. Danir afléttu sótt- varnatakmörkunum í síðustu viku. KÓRÓNUVEIRUFARALDURINN Kóngafólk greinist með kórónuveiruna Margrét Danadrottning Karl Bretaprins Dönsk stjórnvöld tilkynntu í gær að þau hefðu hafið viðræður við Bandaríkjastjórn um tvíhliða varn- arsamstarf. Mette Fredriksen, for- sætisráðherra Dana, sagði á blaða- mannafundi að ekki hefði verið skilgreint nákvæmlega hvað myndi felast í slíku samstarfi, en að það gæti falið í sér að bandarískir her- menn myndu hafa aðsetur í Dan- mörku. Yrðu það tímamót, þar sem dönsk stjórnvöld hafa haft þá stefnu að hafa ekki erlendan her á friðartímum í landi sínu. Morten Bødskov varnarmálaráð- herra tók hins vegar fram að ekki væri til umræðu að reistar yrðu nýjar herstöðvar. Bandarísku her- mennirnir myndu þá frekar fá að- stöðu í dönskum herstöðvum. Þá tók Bødskov sérstaklega fram að ef Bandaríkjamenn myndu óska eftir því að geyma kjarnorkuvopn í Danmörku yrði svarið ávallt nei. Fredriksen sagði enn fremur að tímabært væri að Evrópuríkin í Atl- antshafsbandalaginu tækju á sig meiri byrðar í varnarsamstarfinu vegna ástandsins í öryggismálum. DANMÖRK Reiðubúin að hýsa bandaríska hermenn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.