Morgunblaðið - 11.02.2022, Side 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Ath. Grímuskylda er á uppboðum
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Austurgata 10, Hafnarfjörður, fnr. 207-3493 þingl. eig. María
Albertsdóttir, gerðarbeiðandi Hafnarfjarðarkaupstaður, þriðjudag-
inn 15. febrúar nk. kl. 10:30.
Austurgata 10B, Hafnarfjörður, fnr. 207-3495, þingl. eig. María
Albertsdóttir, gerðarbeiðandi Hafnarfjarðarkaupstaður, þriðjudag-
inn 15. febrúar nk. kl. 10:40.
Ölduslóð 38, Hafnarfjörður, fnr. 208-0892, þingl. eig. María
Albertsdóttir, gerðarbeiðandi Hafnarfjarðarkaupstaður, þriðjudag-
inn 15. febrúar nk. kl. 11:15.
Ölduslóð 38, Hafnarfjörður, fnr. 208-0893, þingl. eig. María
Albertsdóttir, gerðarbeiðandi Hafnarfjarðarkaupstaður, þriðjudag-
inn 15. febrúar nk. kl. 11:25.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
10. febrúar 2022
Uppboð
Ath. Grímuskylda er á uppboðum.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Laugartún 19E, Svalbarðsstrandarhreppi, 50% eignarhluti, fnr. 216-
0500, þingl. eig. Haraldur Ævarsson, gerðarbeiðandi Stapi lífeyris-
sjóður, þriðjudaginn 15. febrúar nk. kl. 09:30.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
10. febrúar 2022
UPPBOÐ
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Lausafjáruppboð verður haldið fimmtudaginn 10. mars
2022, kl: 14:00 að Hafnarstræti 1, Ísafirði:
MVS01 Bifreiðin Kia Sorento árg 2018
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
10. febrúar 2022
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Zumba Gold 60+ kl. 10.30.
Kraftur í KR kl. 10.30, rútan fer frá Vesturgötu 7 kl. 10.10, Grandavegi
47 kl. 10.15 og Aflagranda 40 kl.10.20. Bingó kl. 13.30, spjaldið kostar
250 kr. Nánari upplýsingar í síma 411-2702. Allir velkomnir
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnustofa
kl. 9-12. Leikfimi og jóga með Milan kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30-
12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir.
Sími 411-2600.
Boðinn Pílukast kl. 9 og kl. 13. Línudans fellur niður!!! Sundlaugin er
opin frá kl. 13.30-16.
Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10. Myndlist með
Margréti Z. kl. 9.30. Leikfimi með Silju kl. 12.30. Línudans með
Guðrúnu Sveinsdóttur kl. 13.30, hvetjum alla að koma og dansa sig
inn í helgina, kostar 500 kr. skiptið. Opið kaffihús kl. 14.30.
Bústaðakirkja Karlakaffi á föstudagsmorgni kl. 10. Stund fyrir heldri
karla. Góð stund með léttu spjalli og Stefán Bjarnason verður gestur
kaffisins að þessu sinni. Hann ætlar að sýna stuttmynd um þegar
skálar voru reistir á vegum Jöklarannsóknarfélags Íslands. Kaffi og
kurðerí á boðstólum. Stundin er í litlu kapellunni við safnaðarsalinn.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11.
Opin Listasmiðja kl. 9-12. Morgunleikfimi með Halldóru á RÚV kl.
9.45-10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Opin Listasmiðja kl. 13-15.45.
Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30.
Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl.
10. Dansleikfimi í Sjálandi kl. 9.30. Smiðjan opin kl. 13–16, allir vel-
komnir.
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8,30, heitt á könn-
unni. Gönguhópur (leikfimi og ganga) frá kl. 10. Prjónakaffi frá kl. 10-
12. Kóræfing kl. 13-15. Súmba-dansleikfimin hefst aftur á mánu-
daginn kl. 10. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa. Kl. 9-11.30 postulíns-
málun. Kl. 9-11 botsíaæfing. Kl. 13-15.30 tréskurður. Kl. 14-15 sögur
og fræði. Kl. 20 félagsvist.
Gullsmári 13 Opin handavinnustofa kl. 9-12. Qi-gong heilsueflandi
æfingar kl. 10. Fluguhnýtingar kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Opin
vinnustofa, handavinna frá kl. 10.30. Brids kl. 13. Hádegismatur
kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt joga með Ingibjörgu kl. 8.30 í Borgum.
Pílukast Korpúlfa kl. 9.30 í Borgum. Morgunleikfimi 9.45 í Borgum.
Gönguhópur kl. 10 gengið frá Borgum og inni í Egilshöll, tveir styrk-
leikahópar. Brids Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum, hannyrðahópur Korp-
úlfa kl. 12.30 í Borgum.Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 í dag.
Allir hjartanlega velkomnir og hjartans ósk um góða helgi. Minnum á
grímuskyldu í Borgum. Allir þeir sem taka þátt í Brids-hóp Korpúlfa
þurfa að bera grímur. Bestu þakkir, við gerum þetta saman.
Samfélagshúsið Vitatorgi Morgunkaffi og spjall kl. 9.30. Föstu-
dagshópur í handverkstofu kl. 10.30-11.30. Hádegisverður frá kl. 11:30-
12.30, þarf ekki að panta fyrirfram, dansleikfimi með Auði Hörpu kl.
12.50-13.30, ókeypis og þarf ekki að skrá sig bara mæta, opin handa-
vinnustofa frá kl. 13-16. Vöfflukaffi frá kl. 14.30-15.30.
Verið velkomin til okkar í Samfélagshúsið Vitatorgi, Lindargötu 59.
Síminn er 411-9450.
Seltjarnarnes Kaffikrókur alla virka morgna milli kl. 9 og 11.30. Nám-
skeið í tálgun / útskurði í smíðastofu Valhúsaskóla kl. 9.30. Söngstund
í salnum á Skólabraut kl. 13. Kaffisopi á eftir, 400 kr. Skráning hafin á
leiksýninguna ,,Er ég mamma mín?" í Borgarleikhúsinu. Farið verður
fimmtudaginn 3. mars. Skráningarblöð liggja frammi á Skólabraut og
Eiðismýri. Einnig má skrá sig í síma 8939800.
Smáauglýsingar
Bækur
Bækur
Lagersala
á bókum
hjá Þorvaldi
bóksala
laugardag kl. 10-16
Dvergholti 11, Hafnarfirði
sími 898 9475
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Lok á potta
Eigum til lok á flest
alla potta á lager.
Td. stærðir 200x200,
210x210, 220x220, 235x235,
kringlótt lok og átthyrnt lok.
HEITIRPOTTAR.IS
Sími 777 2000
Bílar
Glæsilegt eintak.
VOLVO XC60 Awd Inscription.
Árgerð 2017, ekinn 65 Þ.KM, dísel,
sjálfskiptur 6 gírar. Verð 5.450.000.
Rnr.215917.
Sá allra vinsælasti.
MMC Outlander S Edition - Plug
in hybrid Árgerð 2021 - Nýtt
ökutæki. Sjálfskiptur. 360" myndavél
- nappa leður topplúga hlaðinn au-
kabúnaði. Verð 6.350.000.
Rnr.227025
7 ára ábyrgð.
KIA Sorento GT-Line Plug in hy-
brid. Árgerð 2021, ekinn 12 Þ.KM,
Bensín/Rafmagn - sjálfskiptur -
Nappa leður - 360" myndavél. Verð
8.990.000. Rnr.215998.
Klár í veturinn.
TOYOTA Land Cruiser 150 Series
33" breyttur. Árgerð 2017, Ekinn 72
Þ.KM, Dísel, bakkmyndavél, krókur.
Sjálfskiptur 6 gírar. Verð 7.750.000.
Rnr.227001.
Nánari upplýsingar veita
Höfðabílar ehf. í síma 577-4747
Nú þegar það er 14 mánaða bið
ef pantaður er nýr Ford eigum við
þennan til á lager !
Nýr 2022 Ford Transit Trend
L3H3. Til afhendingar strax !
Verð: 5.500.000,- án vsk.
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 10–18 virka daga.
intellecta.is
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
✝
Steinþór Ingv-
arsson fæddist í
Reykjavík 8. októ-
ber 1936. Hann lést
á Droplaugarstöð-
um 25. janúar 2022.
Foreldrar hans
voru Guðrún Sig-
ríður Guðmunds-
dóttir frá Græna-
nesi í Norðfirði, f.
25.12. 1902, d.
28.10. 1992, og
Ingvar Jónsson frá Loftsstöðum í
Flóa, f. 4.6. 1903, d. 3.6. 1979.
Systkini Steinþórs eru: Guð-
mundur Valgeir, f. 15.12. 1933,
d. 2.10. 2021; Jóna, f. 12.10. 1935,
d. 17.2. 2013; Torfhildur (Lolla),
f. 11.10. 1937, og Svanhildur, f.
11.10. 1937, d. 4.3. 2020.
Steinþór kvæntist 27. sept-
ember 1958 Lilju Guðrúnu Sig-
urðardóttur, f. 1939, d. 2019.
Synir þeirra eru: 1) Sigurður
Ingvar, f. 1960, börn hans og
Örnu Dungal eru Snorri, Atli,
Fríður og Höskuldur, barna-
börnin eru orðin 10. 2) Gunnar, f.
1963, synir hans og Guðlaugar
Brynjarsdóttur, f. 1958, d. 2013,
eru Brynjar Þór og Sindri Freyr.
Eiginkona Gunnars er Ágústa
Valdimarsdóttir, f. 1963, dætur
hennar eru Heiðdís og Andrea
og á hún tvö barnabörn.
Eftir hefðbundna skólagöngu
hóf Steinþór störf hjá símanum
og lærði þar símsmíði, en fljót-
lega fór hann að starfa sjálfstætt
og var sjálfstæður
atvinnurekandi
meira og minna alla
ævi. Hann byrjaði
með efnalaugina
Lindina og fór svo
til æskulýðsráðs.
Hann tók við Lídó
sem var svo breytt í
Tónabæ á hans tíma
þar, eftir það fór
hann austur í Vík í
Mýrdal og var þar
framkvæmdastjóri Versl-
unarfélags Vestur-Skaftafells-
sýslu. Eftir störf sín þar flutti
hann til Reykjavíkur aftur og
starfaði við ýmislegt, svo sem
sjoppurekstur, var fram-
kvæmdastjóri Bandalags ís-
lenskra skáta, opnaði leik-
tækjasalinn Jóker, var bílasali
og fasteignasali en fór svo í
handverkið og fór að framleiða
skartgripi, steinamyndir og
fleira. Hann rak svokallaða
lundabúð meira og minna frá
árinu 1992 til 2004 og var oft
með sölubás í Firði í Hafnarfirði
og á mörgum sölusýningum fyrir
handverk. Síðasta vinnan og
eina launþegavinnan var að bera
út Morgunblaðið, sem hann
gerði í um tíu ár með konu sinni.
Eftir að hafa greinst með Alz-
heimer lá leiðin í Hlíðarbæ og
svo á Droplaugarstaði.
Útför hans fer fram frá Lang-
holtskirkju í dag, 11. febrúar
2022, klukkan 13.
Það er skrýtið að setjast niður
og skrifa minningargrein um þig.
Það er svo mart sem kemur upp í
hugann. Allar þær ferðir sem við
fjölskyldan fórum í þegar ég var
barn, útilegur og allar ferðirnar í
sólina. Þar sem við nutum þess að
vera í sundlaugum og sjónum. Við
áttum mjög góðan tíma haustið
2016 þegar þú varst á Borgarspít-
alanum. Við sátum kvöld eftir
kvöld að rifja upp ævi þína. Stund-
um mundir þú eftir öllu en oft
þurftum við að rifja upp sömu sög-
una aftur og aftur. Ein sagan er
mjög föst í minni mínu, það var
þegar ég sagði þér að ég væri
Gunnar sonur þinn og Lilju
mömmu minnar þá spurðir þú
hvort Lilja mamma mín vissi um
mig og það væri best að hringja í
hana og láta hana vita af mér. Alz-
heimer tók þig alltaf meira og
meira frá okkur. Alzheimer var al-
veg búinn að taka yfir síðustu árin.
Ég vil bara segja að lokum það
sem ég hef oft sagt áður, loksins
fékkstu hvíldina og ég veit að þú
ert búinn að hitta hana Lilju þína
sem var kletturinn í þínu lífi.
Þinn sonur,
Gunnar Steinþórsson.
Steinþór Ingvarsson
Ég hef þekkt
Þórð Tómasson
lengi, eða frá því að
ég kom 13 ára í
Skógaskóla og ég
hef alltaf borið mikla virðingu
fyrir honum vegna þess hvað
hann var fróður og góður sagna-
maður. Hann þekkti vel pabba
minn og fjölskyldu og var alltaf
svo hlýlegur í minn garð. Það var
með ólíkindum hvað hann vissi
mikið um alla skapaða hluti frá
fyrri tímum og hann hafði svo
brennandi áhuga á því sem hann
var að fást við. Á þessum tíma
var Jón R. Hjálmarsson skóla-
stjóri og hann studdi Þórð í því
að efla minjasafnið í Skógum. Ég
var tvö ár í Skógaskóla, fékk
leyfi til að sleppa 1. bekk en tók
2. bekk og síðan landspróf. Þetta
voru frábær ár. Nemendahópur-
inn hélt síðan góðu sambandi sín
á milli og við kennara og aðra
starfsmenn og þar á meðal við
Þórð og Guðrúnu systur hans.
Seinna fór ég að skipuleggja
ferðir um Njáluslóðir fyrir ferða-
menn frá Norðurlöndunum. Í
rúmlega 30 ár hef ég tekið á móti
þúsundum ferðamanna og verið
fararstjóri í rútuferðum, aðallega
um Suðurland, þótt allt Ísland
hafi verið undir. Þá var það fast-
ur liður að skoða Skógasafn og fá
Þórð til að sýna okkur safnið og
Þórður Tómasson
✝
Þórður Tóm-
asson fæddist
28. apríl 1921.
Hann lést 27. jan-
úar 2022.
Útförin fór fram
í kyrrþey.
segja okkur frá hin-
um ýmsu munum.
Þótt það væru
kannski 3-4 hópar í
safninu samtímis,
sem töluðu mismun-
andi tungumál, gat
Þórður sinnt öllum
á undraverðan hátt,
skipti úr dönsku í
ensku eða þýsku,
hljóp á milli staða,
birtist allt í einu aft-
ur og hélt áfram frásögn sinni.
Yfirleitt endaði yfirferðin um
safnið í kirkjunni, eftir að hún
var byggð, með því að Þórður
settist við orgelið og söng sálma
frá heimalöndum gestanna sem
þeir gátu tekið undir fullum
rómi. Allir fóru himinglaðir frá
Skógum með minningar um
þennan einstaka mann.
Núna hef ég í nokkur ár að-
stoðað við að búa bækur Þórðar
til prentunar, eina til tvær á ári,
og ein liggur enn í handriti.
Hann skrifaði bækurnar með
sinni fallegu rithönd, sem þó var
ekki alltaf auðvelt að lesa, og ég
sá um að koma þeim í stafrænt
form. Og hvað ég hef lært mikið
af þessum bókum; um málfar,
forna siði og menningu, um ýmsa
gripi og áhöld og notkun þeirra,
um viðhorf og margt fleira. Ég
er mjög þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast betur honum
Þórði í Skógum og fjölskyldu
hans.
Ég votta Guðrúnu Tómasdótt-
ur og allri fjölskyldunni samúð
mína og þakka fyrir öll góðu
samskiptin gegnum árin.
Sigurlín Sveinbjarnardóttir.