Morgunblaðið - 11.02.2022, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 11.02.2022, Blaðsíða 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022 F álæti þeirra sem stýrt hafa verkefnavali ís- lenskra leikhúsa undan- farna áratugi gagnvart verkum Caryl Churchill virðist loks á enda. Bæði stofnanaleik- húsin eru með verk úr hennar smiðju á efnisskrá sinni. Vonum seinna, mætti segja. Það þarf ekki mikla djörfung til að fullyrða að Churchill sé merkasta enska leik- skáld síðari hluta tuttugustu aldar, ásamt með Harold Pinter. Enginn stendur henni á sporði sem könn- uður möguleika leiksviðsins til að rannsaka samfélag og sálarlíf. Varpa ljósi á óréttlæti og grimmd, pólitíska jafnt sem persónulega, og halda jafnframt á lofti möguleikum ástar, samhygðar og hamingju. Til- raunagleðin virðist endalaus, glóðin er jafn heit í nýjustu verkunum, skrifuðum þegar skáldkonan er komin yfir sjötugt, og leikritunum sem komu henni á kortið á fyrri hluta áttunda áratugar síðustu ald- ar. Innblástur Churchill fyrir Ein komst undan var að hennar sögn í formála útgefins leiktexta „að hafa eitt sinn séð nokkrar konur í bak- garði í gegnum girðingarhlið“, en hún tekur þó fram að „eitthvað meira búi auðvitað að baki“. Þessi óræða lýsing gefur reyndar ágætis grunnmynd af því sem mætir áhorfendum. Þrjár eldri konur sitja og spjalla þegar sú fjórða, frú Jar- rett, opnar hlið og bætist í hópinn. Hún virðist ekki vera þeim hinum með öllu ókunnug, en þó ekki bein- línis tilheyra hópnum. Þannig þekkir hún ekki dramatískustu söguna sem smám saman er rakin, rifjuð upp og afhjúpuð: hvernig stóð á því að ein af vinkonunum þremur hafnaði í fangelsi fyrir margt löngu. Auk þess stígur frú Jarrett reglulega út fyrir heim verksins og flytur áhorfendum hrollvekjandi, ljóðræna og mynd- ríka texta um mögulega heims- enda, þar sem náttúran og dýrs- legt eðli mannsins taka höndum saman í tortímingunni, á sífellt hugkvæmari vegu. Þar fyrir utan ríkir algert raun- sæi í textanum. Smásmyglislegt raunsæi af því tagi sem fær á sig blæ fáránleikans og skáldlegrar ljóðrænu í höndum meistara. Raunsæi byggt á djúpu innsæi og þrautþjálfuðum tökum á listinni að skrifa leiktexta. Vinkonurnar rifja upp gamla tíma, barnagælur og popplög, harma hlutinn sinn, tala kjark hver í aðra, kýta smávegis, tala í kross, botna hugsanir hver annarrar. Velta fyrir sér hverju því sem kemur upp: skammtafræði, töluorðum, fuglum, sjónvarps- þáttaröðinni sem þær allar eru að hámhorfa á en komnar mislangt með. Stíll verksins gerir miklar kröfur til leikendanna. Samleikur þarf að vera hárfínn til að allar hinar hálfkláruðu setningar, óvæntu vendingar og rökvísin í samfléttaðri tilveru Lenu, Sallyar og Vi virki, en hefji sig jafnframt yfir að vera einber tækniæfing. Það lukkast svo sannarlega í meðförum leikkvennanna fjögurra. Mjúk og lífræn snerpa, djúp inn- lifun og ekki síst kyrrð og hlustun einkennir framgöngu hópsins alls. Sprenghlægilegur kjánagangur víkur á andartaki fyrir innsýn í sáran æviharm. Okkur finnst kattafælni hinnar annars sjálfs- öruggu Sallyar pínu spaugileg fyrst, en þegar Margrét Ákadóttir hefur lokið við að útlista hvað fælnin kostar hana skiljum við sál- ræna byrðina. Það sama gerist þegar Margrét Guðmundsdóttir opnar okkur leið inn í þunglyndi Lenu, milli þess sem hún smell- hittir húmorinn í tilsvörunum. Og þótt Vi beri sig tignarlega í með- förum Kristbjargar Kjeld skellur nistandi sorgin í eintalinu um kostnaðinn við voðaverkið, sem hún kannski varð að vinna, á áhorf- endum eins og hápunktur í klass- ískum harmleik. Og Sólveig Arnarsdóttir fylgist með sem frú Jarrett. Leggur sitt til málanna og teiknar upp magn- aðar myndir af súrrealískum enda- lokum með sinni sterku nærveru og kröftugri textatúlkun. Meðan hópurinn horfir til baka lítur hún til myrkrar framtíðar þar sem leif- ar mannkynsins tóra neðanjarðar, krabbamein grasserar jafnt í fing- urgómum og fartölvum og raun- veruleikasjónvarpsþættir sjá um að útdeila þeim litla mat sem er til skiptanna. Frábær hugmynd að kalla Kristínu Eiríksdóttur til verks til að þýða verkið, hún miðl- ar bæði skáldlegu fluginu og ná- kvæmu raunsæinu óaðfinnanlega. Leikmynd Egils Ingibergssonar og Móeiðar Helgadóttur hefur bæði raunsæisblæ og táknrænan merkingarauka. Þessi lúni stein- steypti bakgarður með blómaker- um þar sem ekkert þrífst nema rusl, og náttúrlega vinkvennahóp- urinn. Veggflekarnir tóku fallega við stemningsríkri lýsingu Egils og Móeiðar. Litsterkir búningar Stef- aníu Adólfsdóttur eru öllu meira augnayndi, en vega einnig fallega salt milli raun- og táknsæis, líkt og leikmyndin og verkið sjálft. Á tveimur stöðum er leikmyndin látin blanda sér í atburðarásina. Hvor- ugt tilvikið á sér stoð í textanum og bætir hvorugt neinu markverðu við upplifun eða skilning. Tónlist Garðars Borgþórssonar og hljóð- mynd Þorbjörns Steingrímssonar vinna vel með stemningunni í um- gjörðinni og sýningunni. Vinna Kristínar Jóhannesdóttur með leikkonum sínum hér er eitt af hennar áhrifaríkustu verkum fyrir leiksvið. Allt sem við heyrum og sjáum sækir mátt sinn og merk- ingu í texta frábærs og frumlegs leikskálds sem vakinn er til lífs af framúrskarandi og örlátu listafólki. Ómótstæðileg mynd af heimi á hverfanda hveli. Fegurð hans, von- brigði, örvænting, gleði og reisn í túlkun fjögurra framúrskarandi leikkvenna með algert vald á list sinni. Ein komst undan er listrænn sigur sem hver leikhúsunnandi ætti að gæta þess að missa ekki af. Hverfanda hvel Ljósmynd/Grímur Bjarnason Örlát „Vinna Kristínar Jóhannesdóttur með leikkonum sínum hér er eitt af hennar áhrifaríkustu verkum fyrir leiksvið. Allt sem við heyrum og sjáum sækir mátt sinn og merkingu í texta frábærs og frumlegs leikskálds sem vakinn er til lífs af framúrskarandi og örlátu listafólki,“ segir um verkið Ein komst undan eftir Caryl Churchill. Borgarleikhúsið Ein komst undan bbbbm Eftir Caryl Churchill. Íslensk þýðing: Kristín Eiríksdóttir. Leikstjórn: Kristín Jóhannesdóttir. Leikmynd og lýsing: Egill Ingibergsson og Móeiður Helga- dóttir. Búningar: Stefanía Adolfsdóttir. Tónlist: Garðar Borgþórsson. Hljóð- mynd: Þorbjörn Steingrímsson. Leik- gervi: Guðbjörg Ívarsdóttir. Aðstoðar- leikstjóri: Halla Káradóttir. Leikarar: Edda Björgvinsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Margrét Ákadóttir, Margrét Guðmunds- dóttir og Sólveig Arnarsdóttir. Frumsýn- ing á Litla sviði Borgarleikhússins föstudaginn 4. febrúar 2022. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.