Morgunblaðið - 11.02.2022, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 11.02.2022, Qupperneq 40
FULLKOMIN ÞÆGINDI FALLEG HÖNNUN OG ÞÆGINDI PANDORA HÆGINDASTÓLAR HLEÐSLUSTÓLLMEÐ 3 MÓTORUM STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU – EIN ALLRA BESTA HEILSUDÝNA Í HEIMI ZERO GRAVITY Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Sýning Claire Paugam, „Anywhere but Here“, verður opnuð í Listasal Mosfellsbæjar í dag, föstudag, kl. 16 til 18. Claire er frönsk lista- kona fædd árið 1991 sem býr og starfar í Reykjavík. Hún hefur verið áberandi í ís- lensku myndlistarlífi, fékk til að mynda hvatningarverðlaun Myndlistarsjóðs árið 2020 og hélt einkasýn- ingu í D-sal Listasafns Reykjavíkur á síðasta ári. Þessi nýja sýning Claire samanstendur af tveimur verkum, annars vegar „dagbókum undirmeðvitundarinnar“ sem er sería af stafrænum klippimyndum með teikningum og hins vegar „Á milli inni í mér“ en það er margmiðl- unaruppsetning með færanlegum skúlptúrum. Claire Paugam opnar sýningu í Listasal Mosfellsbæjar í dag FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 42. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. „Maður vill fara inn á stóru mótin. HM verður í júlí og EM í ágúst. Þetta er því ógeðslega spennandi ár,“ segir kringlukastarinn Guðni Valur Guðnason sem stefnir að því að keppa í fyrsta sinn í greininni á þessu ári í mars- mánuði þegar hann fer á vetrarkastmót í Portúgal. »35 Þetta er ógeðslega spennandi ár ÍÞRÓTTIR MENNING Frá því Lukka byrjaði að æfa hefur hún ætlað sér langt í íþrótt- inni og hún hefur einsett sér að komast að hjá erlendu liði sem fyrst til þess að ná enn meiri færni. „Vonandi get ég flutt út á allra næstu árum. Ég hef fyrst og fremst hugsað um Frakkland í því sambandi og eftir Evrópumótið er stefnan að taka þátt í heimsmeist- aramótinu innan fárra ára.“ Klifurhúsið er sem annað heimili Lukku og hún segir að vellíðanin sem hún upplifir þar togi stöðugt í sig og því njóti hún hverrar stund- ar í húsinu. „Þetta er staður þar sem ég veit að mér líður vel. Fé- lagsskapurinn er mjög skemmti- legur, stemningin er alltaf góð og ég hef mjög gaman af klifrinu.“ Lukka hefur aldrei meitt sig al- varlega í klifrinu. Hún segist leggja áherslu á að gera hlutina rétt en böggull fylgir skammrifi. „Ég er mjög lofthræddur klifrari,“ upplýsir hún. „Það getur stundum verið erfitt, sérstaklega þegar ég er að keppa í línuklifri, en ég vinn stöðugt í að komast yfir loft- hræðsluna með það að leiðarljósi að ég vil ekki láta neitt stoppa mig í lífinu.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Undanfarinn áratug hefur Lukka Mörk Sigurðardóttir æft klifur og fram undan er fyrsta þátttaka Ís- lendinga í Evrópukeppni, í Frakk- landi í apríl. „Við vitum ekki hvar við stöndum í samanburði við önn- ur lönd en markmiðið er að gera okkar besta og ná sem lengst,“ segir hún. Lukka hefur staðið sig vel í keppni til þessa og í liðinni viku sigraði hún í kvennaflokki í klifur- keppni Reykjavíkurleikanna, en hún varð í 2. sæti í fyrra. „Ég er mjög ánægð með árangurinn, því við vorum með erlendan keppanda og erlendan leiðasmið. Mótið var mjög flott.“ Á Norðurlandamótinu 2019 varð Lukka í 4. sæti í unglingaflokki og hafnaði í 7. sæti á NM í fyrra. Hún segir að þótt árangurinn á Reykjavíkurmótinu hafi verið góð- ur sé hún ekki síður ánægð með gengið á þessum mótum. „Ég held að sætin á þeim séu með stærstu sigrum mínum til þessa.“ Þegar Lukka var átta ára byrj- aði hún að æfa klifur. „Foreldrar mínir voru í björgunarsveit og stungu upp á því að ég prófaði klifur,“ segir hún. „Ég ákvað að gera það, fannst það geggjað skemmtilegt og hef stundað íþrótt- ina síðan.“ Vill komast í erlent lið Klifursamband Íslands var stofnað 27. september í fyrra. Um 1.500 manns stunda íþróttina í sex félögum KÍ í Hafnarfirði, Reykja- vík, á Akranesi, í Grundarfirði, hjá Klifurfélagi Öræfa og á Laugar- vatni en unnið er að frekari út- breiðslu. Lukka er í Klifurfélagi Reykja- víkur og æfir í Klifurhúsinu í Ár- múla auk þess sem hún er með æfingaaðstöðu heima. „Núna æfi ég ekki mikið heima en geri það til þess að halda mér í formi þegar ég kemst ekki á æfingu.“ Hún segist annars æfa fimm sinnum vikulega og hafi í raun verið atvinnumaður síðan í fyrra. „Ég lít á klifur sem vinnuna mína og styrktaraðilar borga launin mánaðarlega. Öðru- vísi gengi þetta ekki upp.“ Lofthræddur klifrari - Lukka Mörk Sigurðardóttir er atvinnumaður í íþróttinni Ljósmynd/Hafsteinn Snær Þorsteinsson Í háloftum Lukka Mörk lætur loft- hræðsluna ekki stöðva sig. Ljósmynd/Sigtryggur Ari Jóhannsson Öryggi Lukka Mörk Sigurðardóttir klifrar eins og kötturinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.