Morgunblaðið - 15.02.2022, Side 6

Morgunblaðið - 15.02.2022, Side 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2022 loka Hellisheiðinni dögum saman. Vegamálastjóri hefur vísað til verkferla um þjónustu á Hellisheiði. Spurður nánar út í þessa verkferla og til hvaða viðmiða sé horft þegar ákvörðun um lokun sé tekin, segir Árni Gísli að staðan sé metin hverju sinni í samráði við veður- fræðinga, verktaka sem eru að störfum á svæðinu og eftirlitsmenn á vegum Vegagerðarinnar. Er þetta gert með hliðsjón af fyrirliggjandi Ákvörðunin um að loka veginum sem liggur um Hellisheiði er metin hverju sinni af fulltrúum Vegagerð- arinnar í samráði við veðurfræð- inga Veðurvaktarinnar og Veður- stofuna. Verklagið miðast við að tryggja öryggi vegfarenda en ávallt er reynt að opna fyrir umferð eins fljótt og auðið er eftir lokun. Þetta segir Árni Gísli Árnason, forstöðu- maður vöktunar og upplýsinga hjá Vegagerðinni, í samtali við mbl.is. „Ég held að það sé óhætt að segja að við leggjum okkur fram við að halda veginum opnum eins mikið og hægt er. En svo er lokað þegar aðstæður eru þannig að það er ekki lengur talið öruggt fyrir fólk að ferðast þarna um,“ segir Árni. Áskorun að halda opnu „Vegurinn um Hellisheiðina er fjallvegur og liggur hátt yfir sjáv- armáli. Það er oft mun meiri áskor- un að halda honum opnum heldur en vegum sem liggja nærri sjó eða á láglendi í slæmu vetrarveðri,“ bætir Árni við. Gagnrýni hefur komið frá bæj- arstjórn Hveragerðis á þjónustu Vegagerðarinnar og þá ákvörðun að gögnum, meðal annars úr eftirlits- myndavélum, og veðurspám. Þá sé einnig horft til viðbragðs- áætlunar fyrir Hellisheiði þar sem þrjú atriði eru skilgreind sem geta leitt til lokunar á veginum; vegna ófærðar þegar ekki er unnt að hafa undan í snjómokstri, þegar skyggni til aksturs er óviðunandi vegna skafrennings eða veðuraðstæðna og að lokum vegna óviðráðanlegra að- stæðna t.d. vegna slysa. hmr@mbl.is Lokun metin hverju sinni - Vegagerðin svarar gagnrýni á vetrarþjónustu á Hellisheiði - Verklag miðist við að tryggja öryggi allra vegfarenda Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hellisheiði Snjómokstri þar var hætt um tíma í síðustu viku. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mikil virkni norðurljósa yfir landinu síðustu daga hefur verið veisla fyrir augað. Himinn- inn bókstaflega logar þegar hin blágrænu ljós dansa um himinhvolfið. Ýmsir gerðu sér því ferð um helgina út fyrir upplýst þétt- býlið til að fylgjast með einstakri sýningu. Þótt tilfallandi sé frá degi til dags í skamm- deginu hvað sést til norðurljósa, er talsverð virkni á yfirborði sólar þessi misserin og verður vaxandi næstu árin. Slíkt veit á gott, enda þótt heldur verði daufara yfir allra næstu daga, samkvæmt fyrirliggjandi norð- urljósaspá Veðurstofu Íslands. Segulsvið jarðar titrar „Sólgosin nú eru mörg og nokkuð öflug. Við getum samkvæmt þekktum lögmálum reiknað með mörgum heillandi sýningum norðurljósa næstu árin,“ segir Gunnlaugur Björnsson, prófessor í stjarneðlisfræði við Háskóla Íslands, í samtali við Morgunblaðið. Auk þess að vera upptaktur norðurljósa valda sólgosin stundum titringi í segulsviði jarðar, sem hefur verið órólegt síðustu daga svo nálar áttavita gætu farið á flökt. Ljósmyndarar fóru margir út á land um helgina til þess að mynda norðurljósin, þeirra á meðal Skúli Már Gunnarsson sem var suður við Reykjanestá. Á þeim slóðum voru einmitt margir í norðurljósaskoðun á laugardagskvöldið og eins á Þingvöllum. Þangað austur sendu stóru ferðaþjónustu- fyrirtækin túrista í tugum rútubíla. Þar fékk ferðafólkið, sem horfði upp í heiðan himininn, stórkostlega sýningu sem verður væntanlega að dýrmætri minningu sem lifir lengi. Ljósmynd/Skúli Már Gunnarsson Vetrarkvöld Norðurljósin mynduðu eins konar brýr á himninum eins og sjá mátti þegar litið var til hafsins. Karlinn úti fyrir landi til vinstri, og til hægri Reykjanesviti, sem stendur á Bæjarfelli. Heillandi sýning hátt á himinhvolfi - Veisla og mikil virkni - Öflug sólgos og áttavitar truflast - Túristar í tugum rúta í skoðunarferðir IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Sími 4 80 80 80 25 ára reynsla JEPPABREYTINGAR VERKSTÆÐI VARAHLUTIR SÉRPANTANIR RYÐVÖRN Alþýðusamband Íslands (ASÍ) telur að reglugerðarheimild í stjórnar- frumvarpi til laga um loftferðir kunni að vera andstæð stjórnskipun íslenska ríkisins og veiti flugliðum ófullnægjandi vernd. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í umsögn ASÍ um endurflutt frumvarp Sigurðar Inga Jóhanns- sonar innviðaráðherra til laga um loftferðir sem lagt hefur verið fram. Frumvarpið var fyrst lagt fram á þingi í marsmánuði 2020. Í umsögninni er vakin athygli á að ætlunin sé að veita ráðherra heimild með einfaldri reglugerð til að marka það svæði sem íslensk lög og kjara- samningar taka til. Heimildin sé mjög víðtæk og óskýr. ASÍ gerir jafnframt athugasemd við að samkvæmt frumvarpinu geti ráðherra heimilað flugrekanda að stunda flug frá og til Íslands, þ.m.t. áætlunarflug með áhafnir sem eiga heimahöfn á Íslandi og eru búsettar hér landi en sem gert er að taka laun skv. erlendum kjarasamningum eða ekki skv. neinum kjarasamningum. Bendir ASÍ á að jafnframt verði þá hægt að skrá heimahöfn erlendra flugverja hér á landi og greiða þeim laun skv. kjarasamningum í þeim ríkjum þar sem flugrekandi hefur aðalstöðvar sínar. Krefst ASÍ þess að gerðar verði breytingar á frumvarpinu til að koma í veg fyrir enn frekari félags- leg undirboð í flugrekstri hér á landi, segir í tilkynningu ASÍ. Flugliðum veitt ónæg vernd - ASÍ krefst breytinga á loftferðafrumvarpi ráðherra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.