Morgunblaðið - 15.02.2022, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 15.02.2022, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2022 Morgunblaðið ræddi í gær við Bjarnheiði Hallsdóttur, for- mann Samtaka ferðaþjónust- unnar, sem segir það skipta sköp- um fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu að takmarkanir á landamærum verði felldar úr gildi. - - - Hún segir að staða þessara fyrirtækja sé slæm og að ferðaþjón- ustan gangi út frá því að hömlurnar á landamær- unum verði felldar niður þegar núgildandi reglugerð falli úr gildi. - - - Bjarnheiður segir enn fremur: „Við erum svolítið svekkt að það hafi ekki verið gert nú þegar. Við erum eitt af fáum ríkjum í Evrópu sem eru með einhverjar hömlur á bólusett fólk.“ - - - Hún bætir því við að Alþjóða- heilbrigðismálastofnunin sé búin að gefa út að þetta hafi enga þýðingu lengur og að takmark- anirnar séu jafnvel hættulegar, en þá sé horft til þess að ferða- þjónustan sé mikilvæg atvinnu- grein. - - - Vandséð er að hömlur vegna kórónuveirunnar eigi enn rétt á sér, hvort sem er innan lands eða á milli landa. - - - Smitin eru orðin mjög útbreidd en það endurspeglast ekki í auknu álagi á heilbrigðiskerfið. - - - Faraldurinn er allt annar en hann var og ákvörðun um aðgerðir hlýtur að taka mið af því. Það hefur verið gert að hluta til, en nú er tímabært að stíga það skref til fulls. Bjarnheiður Hallsdóttir Tímabært að aflétta að fullu STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Framkvæmdanefnd kirkjuþings hef- ur gengið frá ráðningu Birgis Gunn- arssonar til að gegna starfi fram- kvæmdastjóra rekstrarstofu þjóðkirkjunnar. Alls bárust 44 um- sóknir um stöðuna. Frá þessu er greint á vef þjóðkirkjunnar. Birgir mun hefja störf í júní 2022. Hann hefur verið bæjarstjóri Ísa- fjarðarbæjar undanfarin ár, var þar áður forstjóri Reykjalundar, endur- hæfingarmiðstöðvar í Mosfellsbæ. Hann er fædd- ur 1963, menntað- ur rekstrarfræð- ingur frá Háskólanum á Bifröst og hefur einnig lokið námi í rekstri og stjórnun frá Há- skólanum í Gautaborg. Kirkjan segir Birgi hafa umfangsmikla reynslu af rekstri og stjórnun stórra stofnana. Hann var forstjóri Reykjalundar í 13 ár og hafði þar áður verið forstjóri Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðár- króki í 16 ár. Birgir hefur gegnt ýmsum trún- aðarstörfum, s.s. setið í stjórn Nor- ræna heilbrigðisháskólans í Gauta- borg, verið formaður Lands- sambands heilbrigðisstofnana, formaður Félags forstöðumanna heilbrigðisstofnana og ýmislegt fleira. Sem fyrr segir sóttu 44 um stöð- una, en nafnleynd var á umsækjend- um. Um nýja stöðu er að ræða en verkefni hafa að mörgu leyti verið á herðum biskups til þessa, og öðrum starfsmönnum Biskupsstofu. Ákveð- ið var á síðasta kirkjuþingi að aug- lýsa stöðuna. Í starfsauglýsingu var kveðið á um trúnað við umsækjend- ur og nafnleynd. Birgir yfir rekstrarstofu kirkjunnar - Hættir sem bæjarstjóri á Ísafirði í vor - Var meðal 44 umsækjenda um stöðuna Birgir Gunnarsson Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Bæjaryfirvöld telja mikinn feng að því að eiga tiltækt myndefni um þennan einstaka atburð í sögu bæj- arfélagsins, ekki síst þegar fram líða stundir,“ segir Fannar Jón- asson, bæjarstjóri í Grindavík. Á fundi bæjarráðs Grindavíkur á dögunum var Fannari falið að út- færa samstarf bæjarins og Jóns Rúnars Hilmarssonar um gerð heimildarmyndar um eldgosið í Fagradalsfjalli. Morgunblaðið hefur áður greint frá áformum um gerð myndarinnar en Jón Rúnar fékk 800 þúsund króna styrk úr Upp- byggingarsjóði Suðurnesja í lok síð- asta árs til að koma verkefninu af stað. Hann óskaði eftir samstarf við Grindavíkurbæ og segir Fannar að um mikilvægt verkefni sé að ræða og mun bærinn styrkja það fjár- hagslega. „Markmiðið er að sýna í máli og myndum hvað gerðist í Fagradals- fjalli á þeim tíma sem gosið hófst og þar til því lauk. Þarna væri haldið til haga ýmsum fróðleik sem Grinda- víkurbær hefði aðgang að og gæti t.d. nýtt í menningarhúsinu Kvik- unni á sérstakri sýningu tileinkaðri gosinu. Enn fremur sem kennslu- efni í skólum bæjarins og kynning- arefni fyrir ferðaþjónustuna,“ segir bæjarstjórinn en Jón Rúnar hyggst taka viðtöl við ýmsa við gerð myndarinnar, svo sem vísindamenn, björgunarsveitarmenn, ferðaþjónustuaðila, bæjarstjóra og landeigendur á svæðinu. Fannar segir að unnið sé að útfærslu sam- starfs við kvikmyndagerðarmanninn en gert sé ráð fyrir að Grindavík- urbær fái ótakmarkaðan sýningar- og notkunarrétt á efninu. Grænt ljós á gos- mynd í Grindavík - Bæjarstjóri útfær- ir samstarf - Nýtist í menningarhúsinu Morgunblaðið/Einar Falur Eldgos Margir fóru að Fagradals- fjalli þegar gosið var í hámarki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.