Morgunblaðið - 15.02.2022, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 15.02.2022, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2022 2022 Gígja Sigríður Guðjónsdóttir gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Reykjanesbæ sem fer fram 26. febrúar nk. Gígja er 32 ára uppeldis- og menntunarfræð- ingur að mennt og starfar sem flug- freyja hjá Icelandair, ásamt því að deila mataruppskriftum á vef Gott í matinn. Hún er gift Ásgeiri Elvari Garðarssyni og eiga þau tvö börn. Gígja var á lista flokksins í bæj- arstjórnarkosningunum 2014 og í 10. sæti á lista í Suðurkjördæmi í síðustu þingkosningum. Gígja sækist eftir 4. sæti í Reykjanesbæ Gígja Sigríður Guðjónsdóttir Birgitta Rún Birgisdóttir býð- ur sig fram í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Reykjanesbæ fyrir komandi kosningar. Próf- kjör fer fram 26. febrúar nk. Birgitta er 37 ára og stundar meistaranám við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst. Hún hefur verið virk í flokksstarf- inu í Reykjanesbæ, m.a. verið aðal- maður í íþrótta- og tómstundaráði Reykjanesbæjar og varamaður í lýðheilsuráði. Undanfarin ár hefur hún starfað við íþróttaþjálfun í Sporthúsinu í Reykjanesbæ. Birgitta vill 5. sætið í Reykjanesbæ Birgitta Rún Birgisdóttir Jórunn Pála Jón- asdóttir borgar- fulltrúi gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Hún hefur ekki áður tekið þátt í próf- kjöri en tók sæti á lista í borginni í síðustu kosningum. Frá því í fyrra hefur hún verið borgarfulltrúi í af- leysingu fyrir Egil Þór Jónsson. Jórunn á sæti í nokkrum nefnd- um borgarinnar og hefur verið virk í flokksstarfinu frá árinu 2014. Hún er 32 ára að aldri, lögfræðingur að mennt. Í tilkynningu segir hún borgina standa frammi fyrir ýms- um áskorunum og hún vilji leggja sitt af mörkum. Jórunn stefnir á 4. sætið í borginni Jórunn Pála Jónasdóttir Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Flest íslensku loðnuskipanna fengu góðan afla í loðnunót um helgina, en þau voru við veiðar við suðaustur- ströndina. Loðnan er á hraðri ferð vestur á bóginn og í gær voru skipin að veiðum undan Mýrdalssandi, áður en þau héldu til hafnar eða í var. Vonskuveður var komið á miðun- um um hádegi í gær, en vonast var til að skipin gætu athafnað sig er liði á þriðjudaginn. Flest fyrirtækin reyna að frysta aflann, en hrognaþroski eykst með hverjum deginum og var um helgina 14-15%. Rannsóknaskipið Árni Friðriks- son var í gær langt komið með yfir- ferð sína á Vestfjarðamiðum og aust- ur fyrir Kolbeinseyjarhrygg, en hafís norðvestan við landið kom í veg fyrir dekkun á þessu svæði í janúar. Talið var að loðnu hefði mögulega verið að finna þar. Leiði leiðangurinn nú ekki til hækkunar á mati mun lokaráðgjöf væntanlega verða um alls 800 þúsund tonn eða um 100 þús- und tonnum lægri en í haust. Íslensku skipin eru nú búin að veiða um helming loðnukvótans sem gefinn var út í haust. Af 662 þúsund tonnum er búið að landa 322 þúsund tonnum og eftir að veiða 340 þúsund miðað við upplýsingar á heimasíðu Fiskistofu á hádegi í gær. Eitthvað er af loðnu í skipunum og einhverjar löndunarskýrslur ekki komnar inn í þessa tölu. Norðmenn eiga viku eftir Norðmenn höfðu í gærmorgun til- kynnt um 53 þúsund tonna afla á ver- tíðinni, en alls nema heimildir þeirra um 145 þúsund tonnum. Þeir mega veiða til og með þriðjudegi í næstu viku. 30 norsk skip voru með virka veiðiferð opna og voru flest þeirra við miðin austur af Hvalbak, sam- kvæmt upplýsingum Landhelgis- gæslunnar. Mörg skip voru inni á fjörðum eystra. Um helmingur kvótans veiddur - Loðnan á hraðri vesturleið - Góður afli um helgina - Leiðangri Hafró að ljúka Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Vertíð Huginn VE á trolli fyrir norðaustan land í janúar, en skipin eru nú á nót við Suðurland. Huginn var ásamt fleiri skipum í Vestmannaeyjum í gær. Allt byrjar þetta með litlu brúnu shea hnetunni... Síðan bætast við sjálfbærar aðferðir, hreinar formúlur og sanngjarnir viðskiptahættir sem að lokum umbreytast í okkar klassíska og sívinsæla Shea handáburð sem nærir, mýkir og verndar hendurnar. Og nú kemur hann í 95% endurunnum og endurvinnanlegum álumbúðum. BYRJUNIN Á EINHVERJU STÓRKOSTLEGU Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is Þórður Heimir Sveinsson lög- maður býður sig fram í 3.-4. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokks- ins í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnar- kosningar. Í tilkynningu segist Þórður Heimir telja Hafnarfjörð í fremstu röð sveitarfélaga og sé það vilji hans að leggja sitt af mörkum til að tryggja að svo verði áfram. Mikil- vægt sé að halda áfram á þeirri far- sælu braut sem Sjálfstæðisflokk- urinn hafi verið á enda sé ábyrgur rekstur forsenda þess að unnt sé að veita sveigjanlega og góða þjónustu til að mæta ólíkum þörfum fólks. Tryggja þurfi velsæld íbúa á öllum aldri og stuðla að fjölbreyttum lífs- gæðum í nærumhverfinu. Sækist eftir 3.-4. sæti í Hafnarfirði Þórður Heimir Sveinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.