Morgunblaðið - 15.02.2022, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 15.02.2022, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2022 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Saltvatnspottar, klórpottar og hitaveitupottar Eigum til á lager alla tegundir potta Sendum hvert á land sem er HEITIRPOTTAR.IS Sími 777 2000 Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bílar Toyota Yaris Active 1/2018. Ekinn 86 þús. km. Sjálfskiptur framhjóladrifin rúsína sem er góður í snjónum. Verð: 1.980.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga. Raðauglýsingar Raðauglýsingar Nauðungarsala UPPBOÐ Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Súlutjörn 29, Njarðvík, 50% ehl. gþ., fnr. 228-3669, þingl. eig. Fe Amor Parel Guðmundsson, gerðarbeiðandi SaltPay IIB hf., þriðjudaginn 22. febrúar nk. kl. 09:00. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 14. febrúar 2022 Styrkir Reykjavíkurborg er aðili að Vestnorræna höfuðborga- sjóði Færeyja, Grænlands og Íslands. Sjóðurinn hefur að markmiði að efla skilning og samstarf, m.a. á sviði menningarmála, milli þessara borga, íbúa þeirra, samtaka og stjórnmálamanna og veita fjárstyrki til verkefna sem þjóna þessum markmiðum. Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til verkefna sem tengjast samskiptum milli höfuðborganna og efla tengsl þeirra með einhverjum hætti, t.d. á sviði menningar, fræðslu eða íþrótta. Í umsókn skal lýsa fyrirhuguðum verkefnum ítarlega, fyrirkomulagi þeirra, tímasetningu og kostnaði. Umsókn skal beint til: Vestnorræni höfuðborgasjóður Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafnar b.t. skrifstofu borgarstjóra og borgarritara Ráðhúsi Reykjavíkur Tjarnargötu 11 101 Reykjavík Umsóknir berist eigi síðar en sunnudaginn 1. maí 2022 og koma umsóknir sem síðar kunna að berast ekki til afgreiðslu. Umsóknir skal senda á ofangreint heimilisfang eða á netfangið vestnor@reykjavik.is á umsóknareyðublöðum sem nálgast má á vefsíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/vestnorraeni Upplýsingar eru veittar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, Ráðhúsi Reykjavíkur, s. 411 4500. Stjórnin kemur saman til fundar í september 2022 til að ákveða með úthlutun úr sjóðnum. Reykjavík, 15. febrúar 2021 Borgarritari Vestnorræni höfuðborgasjóður Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafnar auglýsir eftir styrkumsóknum fyrir árið 2022 Tórshavnar kommunaReykjavíkurborgKommuneqarfik Sermersooq Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Botsía kl. 10.15-11.Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun kl. 12.30. Kaffi kl. 14.30-15.20. Nánari upp- lýsingar í síma 411-2702. Allir velkomnir. Áskirkja Spilum félagsvist í kvöld í neðra safnaðarheimili kirkjunnar kl. 20, allir velkomnir, Safnaðarfélag Áskirkju við Vesturbrún. Boðinn Ganga / stafganga kl. 10. Brids og kanasta kl. 13. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Bústaðakirkja Opið hús á miðvikudaginn frá kl. 13-16. Handavinna, spil og kaffið góða frá Sigurbjörgu. Séra María G. Ágústsdóttir sér um stundina. Allir hjartanlega velkomnir. Fella- og Hólakirkja Félagsstarf eldri borgara hefst með kyrrðar- stund kl. 12. Eftir stundina er boðið upp á súpu og brauð. Þórey Dögg Jónsdóttir djákni ásamt Arnhildi Valgarðsdóttur organista sjá um stundina. Verið velkomin í gott og gefandi samfélag. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Prjónað til góðs kl. 8.30-12. Morgunleikfimi með Halldóru á RÚV kl. 9.45-10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Myndlistarhópurinn Kríur kl. 12.30-15.30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13.10. Bónusrútan kl. 13.10. Síðdegiskaffi kl. 1.30-15.30. Bókabíllinn kl. 14.45. Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Qi-gong í Sjálandi kl. 9. Stólajóga kl. 11 í danssal Sjálandsskóla. Leikfimi í Ásgarði kl. 12.15. Botsía í Ásgarði kl. 13.10. Njálulestur í Jónshúsi kl. 13–15. Smiðjan opin fyrir smíðahóp kl. 13–16. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, heitt á könn- unni. Gönguhópur (leikfimi og ganga) frá kl. 10. Núvitund með Álfhildi kl. 11. Bókband með leiðbeinanda kl. 13. Listaspírur kl. 13. Tökum mið af færð og veðri. Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa og verkstæði. Kl. 9 til 10.15 Heilsu-Qi-gong. Grafarvogskirkja Þorragleði! Í dag, þriðjudaginn 15. febrúar, verður haldin þorragleði eldri borgara í Grafarvogskirkju. Þorragleðin hefst kl. 12.30. Jóhannes Kristjánsson eftirherma kemur og skemmtir. Boðið verður upp á þorramat, dans og góða samveru. Verð er 4.500 kr. á mann. Skráning er í síma 587 9070 í Grafarvogskirkju. Verið öll hjartanlega velkomin! Gullsmári 13 Myndlist kl. 9.Tréútskurður kl. 13. kanasta kl. 13, allir velkomnir (byrjendur sem lengra komnir). Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli kl. 9-11. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-12. Félagsvist kl. 13 þátt- tökugjald er 200 kr., léttar veitingar seldar í hléi. Korpúlfar Listmálun með Pétri í Borgum kl. 9. Morgunleikfim kl. 9.45 í Borgum og botsía í Borgum kl. 10. Hugleiðsla á vegum Grafarvogs- kirkju kl. 10.30 í Borgum og leikfimishópur Korpúlfa í Egilshöll kl. 11 með Margréti. Spjallhópur í Borgum kl. 13 og sundleikfimi með Brynjólfi í Grafarvogssundlaug kl. 14. Allir hjartanlega velkomnir og virðum allar sóttvarnir saman. Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni frá kl. 9.30, Bútasaums- hópur kl. 9-12, hópþjálfun með sjúkraþjálfa kl. 10.30-11, hádegis- verður kl. 11.30-12.30, bókband kl. 13-16.30, Qi-gong með Veroniku kl. 13.30-14.30 (nýtt námskeið), söngstund með Hannesi frá kl. 13.30- 14.30, opið kaffihús frá kl. 14.30-15.30. Allir dagskráliðir dagsins eru ókeypis, öllum opnir og óþarfi að skrá sig fyrirfram. Verið velkomin á Lindargötu 59, sími 411-9450. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffikrókur alla virka morgna kl. 9-11.30. Pútt í aðstöðu Nesklúbbsins á Austurströnd 5, kl. 10.30. Helgistund í salnum á Skólabraut kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14. Örnámskeið (roð og leður) á neðri hæð félagsheimilisins kl. 15.30. intellecta.is alltaf allstaðar mbl.is Í dag kveðjum við ömmu okkar, Áslaugu Kristjáns- dóttur frá Hrísey. Amma Ása var mamma pabba, en hún ól hann ekki upp. Við hittum hana ekki oft sem börn en þegar við hittumst var hún alltaf hlý, fal- leg, brosmild og lyktaði vel. Amma var alltaf upptekin þegar hún kom til Reykjavíkur og gisti heima hjá okkur. Hún fór á leynifundi (Oddfellow), heimsótti ættingja og vini og stundum fór hún að dansa. En af því að það var fjarlægð á milli okkar var gott að ræða lífsins mál við ömmu. Hún skipti sér ekki mikið af, sagði ekki hvað ætti eða ætti ekki að gera. Hún bara hlustaði og ræddi málin af fullri hrein- skilni. Örlagavaldar í lífi ömmu voru berklar og ástin. Hún fékk ung berkla og varð að fara frá tveim- ur elstu sonum sínum, pabba og Valtý. Það hafði áhrif á lífshlaup- ið. Hún eignaðist þrjá eiginmenn en missti þá alla áður en við komumst til vits og ára. Svo eignaðist hún kærasta þegar við vorum unglingar. Amma dæmdi aldrei neinn né talaði hún illa um fólk. Hún hafði ákveðið kæru- Áslaug Kristjánsdóttir ✝ Áslaug Krist- jánsdóttir fæddist 14. sept- ember 1927. Hún lést 29. janúar 2022. Útför Áslaugar fór fram 11. febr- úar 2022. leysi. Kannski verð- ur maður svoleiðis af því að eyða blóma lífsins umkringdur dauðanum. Amma elskaði vel og það var auðvelt að elska ömmu. Hún sagðist ætla að hætta að verða ástfangin þegar hún yrði komin á tíræðisald- ur. Við vitum ekki betur en hún hafi staðið við það. Ömmu Ásu þótti leiðinlegir hlutir leiðinlegir og því var alltaf líf og fjör í kringum hana. Amma var alltaf jákvæð og skapgóð þótt hún gæti verið verulega ákveðin. Hún fór sínar eigin leið- ir, fylgdi eigin umferðarlögum og eigin reglum á ferðalögum. Jafn- vel þegar hún heimsótti pabba, mömmu og Katrínu á Gazastönd- ina og þau voru umkringd her- mönnum með hríðskotabyssur á landamærum Gaza. Þar hélt hún líka að hún gæti sett reglurnar. Við teljumst heppin ef við verðum eins og amma, ekki með eitt grátt hár (því rauðhært fólk verður ekki gráhært samkvæmt henni), naglalakk og varalit og með stút á vörunum til að sporna við broshrukkum. Amma kenndi okkur að þrátt fyrir að lífið geti verið erfitt þá skiptir mestu að hugsa jákvætt, taka eftir því góða og stroka yfir það slæma. Góða ferð yfir ána elsku amma Ása, við vitum að það verður tek- ið vel á móti þér. Valdimar, Áslaug og Katrín Kristjánsbörn. Árni afi er lagður af stað í sína síðustu ferð. Ferðinni heitið í þetta sinn í fyrir- heitna landið þar sem á móti honum tekur amma Fríða með bros á vör. Afi var stór karakter, oftar en ekki hrókur alls fagnaðar og hafði gaman af því að segja frá. Hann var mannblendinn mjög og hvers manns hugljúfi. Afi var fæddur og uppalinn í Keflavík og bjó þar alla sína tíð, vildi hvergi annars staðar vera. Hann var einn af þeim sem tóku þátt í að byggja upp það bæjarfélag sem ég bý í í dag. „Hverra manna ert þú?“ er spurning sem maður fær oft og þá var nóg að segja: „Ég er barnabarn Árna Óla og Fríðu í íþróttahúsinu.“ Það þekktu þau allir sem manninn hafa alið hér í bænum. Það var gott að koma til ömmu og afa hvort sem það var á Blikabrautina þar sem hlaupið var á milli hæða með miklum lát- um sem þó virtist aldrei trufla þau hjónin, höfðu bara gaman af. Þá sérstaklega fannst honum Árna afa fyndið þegar undirrit- aður festi höfuðið á milli riml- anna á handriðinu upp stigann. Í Vatnsholtið var einnig gott að koma, stóri blái Econoline-jepp- inn gnæfandi í innkeyrslunni sem honum þótti svo vænt um. Ófáu ferðalögin sem þau fóru á þeim bíl og ekkert verra ef eitt- hvað bilaði eða annað slíkt, gerði ferðina bara eftirminnilegri. Þegar kom að því að ferðast þá var hann afi í sérflokki, alltaf til. Eitt skipti þegar ég þurfti ökumann á bílaleigubíl til að ferja nokkra stráka til Vest- mannaeyja að leika einn fótbolta- Árni Ólafsson ✝ Árni Ólafsson fæddist 22. júlí 1937. Hann lést 19. janúar 2022. Útförin fór fram 1. febrúar 2022. leik voru góð ráð dýr. Í hvern var hringt, jú Árna afa og það þurfti ekki mikið til að fá hann til að koma með. „Ætlarðu að fá afa þinn til að keyra?“ var spurt. Já, treysti engum betur í það en honum var svarið. Svo fór að keyrt var í Land- eyjahöfn, ferja til Eyja, við spil- uðum leikinn en afi fór í göngu- túr, kíkti á slökkvistöðina og hitti mennina. Alls staðar þar sem hann kom gat hann hitt mennina. Ferðin heim fer í sögubækur hjá einhverjum strákunum sem voru með þar sem afi fór með vísur og tók reglulega fram úr undirrit- uðum við mikla kátínu. Það er ótrúlegt til þess að hugsa að fyrir 20 árum fylgdum við ömmu Fríðu sömu leið en hún féll frá langt um aldur fram. Við fráfall ömmu missti afi svolítið fótanna, hann átti erfitt með að finna taktinn án hennar. Mér er þakklæti ofarlega í huga, þakkir fyrir góðu stundirnar. Þakkir fyrir öll ferðalögin og kennslu- stundirnar um landið okkar fagra en það er varla til sá veg- arslóði sem ekki hefur verið ek- inn af honum. Þakka fyrir allar skemmtilegu sögurnar þótt sum- ar hverjar hafi mögulega verið örlítið kryddaðar. Það veit ég að var bara gert til að auka skemmtanagildi þeirra. Þakka fyrir allar vísurnar og ræðurnar sem voru ómissandi á tímamót- um í lífi okkar allra. Alltaf gat hann kvatt sér hljóðs, talað fal- lega um fjölskyldu og vini og endað svo á góðri vísu. Ég kveð þig elsku afi með söknuði en veit að þú varst tilbú- inn að leggja af stað í þína síð- ustu ferð. Guð geymi þig elsku afi, minning þín lifir. Þinn nafni, Árni Þór.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.