Morgunblaðið - 15.02.2022, Side 24

Morgunblaðið - 15.02.2022, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2022 Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes www.gaeludyr.is Með kaupum á 100 lítra+ fiskabúrum fylgir afsláttarkort sem veitir 20% afslátt af öllu í fiskadeild í 30 daga 60 ÁRA Ölver er Reykvíkingur, ólst upp í Vesturbænum en býr í Garðabæ. Hann er stúdent og bifvélavirkja- meistari frá Iðnskólanum, en er starf- andi ökukennari. Áhugamálin eru skíði, göngur og hjól m.a. „Ég hjólaði Laugaveginn með syni mínum 2020, svo ætluðum við aftur í fyrra en þá handleggsbrotnaði ég svo við gengum Fimmvörðuhálsinn í staðinn. Stefnan í sumar er að halda áfram ævintýra- ferðum svo sem hjólreiða- og göngu- ferðum. FJÖLSKYLDA Eiginkona Ölvers er Kristín Eggertsdóttir, f. 1963, hjúkrunarfræðingur með sérfræðings- menntun í sykursýki og er að læra fótaaðgerðafræði. Sonur þeirra er Olivert Andreas Thorstensen, f. 1998. Fyrir átti Ölver Guðrúnu Hildi, f. 1985. Stjúp- dóttir Ölvers er Hrafnhildur Ýr Þrastardóttir, f. 1983. Barnabörnin eru orðin 6. Foreldrar Ölvers voru Olivert Andreas Thorstensen, f. 1918, d. 1981, rennismiður, og Katrín Hildur Sigurðardóttir, f. 1921, d. 2018, húsmóðir. Þau voru búsett í Reykjavík. Ölver Thorstensen Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú þarft að sýna sveigjanleika til þess að geta leyst það mál sem þyngst hvílir á þér. Ekki setja öll eggin í sömu skál- ina. 20. apríl - 20. maí + Naut Líttu í kringum þig og finndu eitthvað nýtt til að prófa. Þig dreymir stóra drauma, hvert ævintýri byrjar á einu skrefi. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú hefur verið nánast óstöðv- andi undanfarið. Mælirinn er að fyllast hjá þeim sem eru í kringum þig. Það kemur að uppgjöri fyrr en seinna. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú munt þurfa á öllum þínum hæfileikum að halda til þess að komast hjá vandræðalegum atburði. Fólk tekur eftir þér vegna fatastílsins. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú átt erfitt með að einbeita þér að hlutunum og dettur auðveldlega í dagdrauma. Þrautseigja er góður kostur og af henni hefur þú nóg. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Einhver gerir þig orðlausa/n en það er hið besta mál. Ástarævintýri er í uppsiglingu. Gerðu þér glaðan dag. 23. sept. - 22. okt. k Vog Samræður við vini taka óvænta stefnu í dag. Sýndu sjálfstæði í vinnu- brögðum, ekki efast um þig. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Að vera góður hlustandi krefst bæði þroska og aga, og þú hefur nóg því. Fjölskyldan stækkar á árinu. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Fólk heldur fast við skoðanir sínar í dag. Betra er að vera sam- kvæmur sjálfum sér þótt það kosti sitt. Eitthvert daður er í gangi. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú þarft að gæta þess vel hvað þú lætur hafa eftir þér. Nýjar upp- lýsingar valda fjaðrafoki, haltu ró þinni. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Leitaðu ráða hjá þér eldri manneskju. Búðu þig undir hið óvænta, það er eina ráðið í stöðunni. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú þarft að sýna maka þínum þolinmæði þessa dagana. Mundu að morgundagurinn kemur með ný tæki- færi. Taktu upp hanskann fyrir þeim sem standa höllum færi. Björgvin sat í nemendaráði FÁ í einn vetur sem gjaldkeri. „Mér er það enn hulin ráðgáta hvernig mér vera. Ég tók mér frí einn vetur og fór sem skiptinemi til Bólivíu í Suð- ur-Ameríku en það var magnað.“ B jörgvin Gestsson fædd- ist 15. febrúar 1972 í Reykjavík og bjó fyrstu fimm árin í Kópavogi en þó með einu hléi þar sem hann fluttist með móður sinni til Vestmannaeyja þar sem hún vann hjá Eyjabergi fisk- vinnslu. Sex ára flutti hann aftur úr Kópavogi með móður sinni en nú til Hólmavíkur á Ströndum þar sem hún hóf störf í rækjuverksmiðju en hann fór í grunnskóla Hólmavíkur. „Þetta átti nú víst að vera tíma- bundið en þarna kynnist mamma Gústa [Ágústi H. Guðjónssyni] frá Heiðarbæ rétt utan Hólmavíkur. Þau taka saman, byggja hús og gifta sig og ættleiða Ósk systur og þar með varð Hólmavík eða Strand- irnar að æsku- og uppeldisstöðvum mínum. Mér fannst gríðarlega gaman að alast upp í litlu sjávarþorpi, frelsið algjört og við krakkarnir stanslaust í leikjum og yfir í vafasamari iðju eins og að hoppa milli ísjaka á ísi- lögðum Steingrímsfirði. Þá fékk maður tækifæri 10-12 ára gamall til að taka þátt í sláturtíð á haustin, svíða hausa og salta gærur en fljót- lega einnig að komast í slægingu á kvöldin, beita línu og síðar að kom- ast á sjó. Ég varði einnig miklum tíma í sveitinni á Heiðarbæ þar sem tekið var þátt í hefðbundnum bú- störfum af fullum krafti en amma Heiða var mér mikil fyrirmynd og vinur. Íþróttalíf á Ströndum var nokkuð öflugt og var keppt í frjáls- um á öflugum héraðsmótum, sundi, skíðum og knattspyrnu og líklega ekki sá íþróttaviðburður haldinn sem ég lét mig vanta á.“ Að loknum grunnskóla árið 1987 hélt Björgvin suður til Reykjavíkur til að sækja framhaldsskóla- menntun eða í Fjölbrautaskólann við Ármúla. „Ég bjó þá fjóra vetur hjá ömmu Línu og afa Guðmundi í Engihjalla og var það virkilega gott að fá að njóta þess tíma með þeim. Ég kynntist nýjum vinum í fjöl- braut og gaf frekar en fyrri daginn ekkert eftir í félagslífinu en stund- aði íþróttir áfram af kappi, fótbolta, júdó, lyftingar eða hvað það mátti datt í hug að sækjast eftir því embætti. Fyrsta veturinn í fjölbraut brast á eitt af þessum kennaraverkföllum en þá munstraði ég mig á sjó hjá Gumma Viktori sem gerði út línu- bátinn Sæbjörgu frá Hólmavík. Í framhaldinu reri ég öll sumur bæði gegnum framhalds- og háskóla á frystitogaranum Hólmadrangi sem fór ekki vel með metnaði um árang- ur í knattspyrnu né þátttöku á sveitaböllum eða öðrum við- burðum.“ Árið 1994 hóf Björgvin nám í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri. „Að vera alinn upp í sjávarþorpi og sjómennskan hafði eflaust áhrif á þá ákvörðun. Aftur byrjar nýr kafli í lífinu þar sem maður kynnist nýju fólki, lagast að öðru umhverfi og tekur eitthvað með sér inn í lífið.“ Í kjölfar útskriftar 1998 var Björgvini boðið starf hjá Sambandi íslenskra saltfiskframleiðenda (SÍF), sem rekstrarstjóri í fisk- vinnslu í Norður-Noregi, og bjó í Øxfjord í Finnmörku, og árin 2001- 2003 starfaði hann hjá norsku eld- isfyrirtæki í Mið-Noregi, í Sand- nessjøen í Nordland, en 2003 hóf hann aftur störf hjá SÍF en nú sem Björgvin Gestsson, forstöðum. fyrirtækjaráðgjafar hjá Íslenskum verðbréfum hf. – 50 ára Fjölskyldan Björgvin, Þuríður og börn á gamlárskvöldi 2019 í Taílandi. Vegferðin legið víða United-aðdáendur Björgvin og Benedikt Ísak á Old Trafford sl. haust. Hjónin Stödd á Alicante sl. haust. Til hamingju með daginn Kópavogur Heiðar Logi Þorgeirsson fæddist 9. febrúar 2021 kl. 1.41. Hann vó 3.915 g og var 54 cm langur. For- eldrar hans eru Arna Dögg Sigfús- dóttir og Þorgeir Gísli Skúlason. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.