Morgunblaðið - 28.02.2022, Page 1

Morgunblaðið - 28.02.2022, Page 1
Pútín hótar kjarnavopnum Skúli Halldórsson sh@mbl.is Stjórnvöld Úkraínu hafa heitið því að gefa ekkert eftir í friðarviðræð- um við Rússa, en stefnt er að því að halda þær á landamærum Hvíta- Rússlands og Úkraínu í dag. Her landsins verst enn sókn rússneska hersins en ljóst þykir nú að innrásin, sem hófst aðfaranótt fimmtudags, hafi ekki gengið samkvæmt áform- um fram til þessa. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fyrirskipaði í gær þeim hersveitum Rússa sem sjá um fælingarvopn að taka sér viðbragðsstöðu. Undir slík vopn flokkast meðal annars kjarn- orkuvopn. Sagðist hann grípa til þessa ráðs vegna „óvinsamlegra“ að- gerða Vesturlanda gegn Rússlandi. Kreml býr yfir heimsins stærsta búri kjarnavopna ásamt feikilegum birgðum skotflauga, sem saman mynda hryggjarstykkið í fælingar- vopnum landsins. Tugir almennra borgara í Úkra- ínu hafa þegar týnt lífi á þeim fáu dögum sem liðnir eru frá því Rússar réðust inn í landið. Þá hafa nærri fjögur hundruð þúsund manns flúið yfir landamærin og nærri helmingur þeirra til Póllands. Á sama tíma og hersveitir Rúss- lands berjast á strætum úkraínskra borga standa stjórnvöld frammi fyr- ir því að ríkið verði úrhrak á al- þjóðavettvangi, í kjölfar tilkynntra efnahagsþvingana af hálfu Vestur- landa. Íslendingar í Rússlandi hafa verið hvattir til að láta utanríkisþjón- ustuna vita af ferðum sínum. AFP - Rússlandsforseti hefur sett sveit- ir kjarnavopna í viðbragðsstöðu Stríð í borg Brynvarin rússnesk herflutningabifreið brennur í úkraínsku borginni Kharkiv í gær eftir að árás Rússa var hrundið. Í forgrunni er lík hermanns, hvers þjóðerni var á huldu í gær. MStríð í Evrópu »2, 8, 13 og 14 - Friðarviðræður haldnar í dag á landamærum við Hvíta-Rússland - Nærri fjögur hundruð þúsund manns á flótta frá styrjöldinni M Á N U D A G U R 2 8. F E B R Ú A R 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 49. tölublað . 110. árgangur . TEDDA ENGIN VENJULEG AMMA AF ÖLLUM GERÐUM KRISTJÁN SETTI MÓTSMET Í HÁSTÖKKI BOLLUDAGURINN, 4 MÍ Í FRJÁLSUM 27BYRJAÐI 39 ÁRA 6 Hernaðaraðgerðir Rússa í Úkraínu og þær refsiaðgerðir sem fylgt hafa í kjölfarið munu ekki aðeins hafa áhrif á heimsmarkaðsverð á olíu og gasi heldur líka raska fram- boði á kornvörum og sólblómaolíu sem löndin tvö flytja út í miklum mæli. Lovísa Anna Finnbjörnsdóttir hjá Deloitte segir Úkra- ínu einn stærsta framleiðanda neongass, sem notað er við framleiðslu á örgjörvum. Rússland framleiðir ríflega þriðjung alls palladíns en hliðarmálmurinn er einnig nýttur við örgjörvasmíði. Á Íslandi má vænta að hækkandi olíuverð stuðli að aukinni verðbólgu. Þá gæti það hægt á viðsnúningi ferða- þjónustunnar ef hátt eldsneytisverð ýtir upp flugmiða- verði og ef svartsýnir og óttaslegnir neytendur slá ferða- lögum á frest. »12 - Landbúnaðarafurðir og hráefni fyrir örgjörva í húfi AFP Harmur Pútín mótmælt Tel Aviv líkt og víðar um heim. Átökin hafa keðjuverkandi áhrif á alþjóðahagkerfið Stjórnsýsluúttekt Ríkisendur- skoðunar á tolla- framkvæmd vegna landbún- aðarafurða leiðir í ljós að ýmislegt megi betur fara. Helst þurfi að endurnýja allt tölvukerfi tolla- sviðs Skattsins, til að tryggja samræmi gagna og traust- ari samskipti við erlendar tollstöðvar. Þá þurfi að endurskipuleggja allt tollaeftirlit og þótt viðkvæm vara eins og landbúnaðarafurðir geri málið flóknara, þá þurfi að sinna reglu- bundnu, víðtæku og samræmdu eft- irliti. Halla Signý Kristjánsdóttir seg- ir að tollaframkvæmd hérlendis fái falleinkunn í skýrslunni. „Það þarf miklu betra og samræmdara skrán- ingarkerfi og t.d. er oft ekki samræmi milli upplýsinga frá innflytjanda og útflytjanda vörunnar. Þannig getur innflytjandi skráð mjólkurost sem hefur viðbætta jurtaolíu sem „jurta- ost“ og þannig færist varan í toll- frjálsan flokk.“ »4 Halla Signý Kristjánsdóttir - Sýnir ný úttekt Ríkisendurskoðunar Tollaframkvæmd mjög ábótavant

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.