Morgunblaðið - 28.02.2022, Qupperneq 1
Pútín hótar kjarnavopnum
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Stjórnvöld Úkraínu hafa heitið því
að gefa ekkert eftir í friðarviðræð-
um við Rússa, en stefnt er að því að
halda þær á landamærum Hvíta-
Rússlands og Úkraínu í dag. Her
landsins verst enn sókn rússneska
hersins en ljóst þykir nú að innrásin,
sem hófst aðfaranótt fimmtudags,
hafi ekki gengið samkvæmt áform-
um fram til þessa.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands,
fyrirskipaði í gær þeim hersveitum
Rússa sem sjá um fælingarvopn að
taka sér viðbragðsstöðu. Undir slík
vopn flokkast meðal annars kjarn-
orkuvopn. Sagðist hann grípa til
þessa ráðs vegna „óvinsamlegra“ að-
gerða Vesturlanda gegn Rússlandi.
Kreml býr yfir heimsins stærsta
búri kjarnavopna ásamt feikilegum
birgðum skotflauga, sem saman
mynda hryggjarstykkið í fælingar-
vopnum landsins.
Tugir almennra borgara í Úkra-
ínu hafa þegar týnt lífi á þeim fáu
dögum sem liðnir eru frá því Rússar
réðust inn í landið. Þá hafa nærri
fjögur hundruð þúsund manns flúið
yfir landamærin og nærri helmingur
þeirra til Póllands.
Á sama tíma og hersveitir Rúss-
lands berjast á strætum úkraínskra
borga standa stjórnvöld frammi fyr-
ir því að ríkið verði úrhrak á al-
þjóðavettvangi, í kjölfar tilkynntra
efnahagsþvingana af hálfu Vestur-
landa.
Íslendingar í Rússlandi hafa verið
hvattir til að láta utanríkisþjón-
ustuna vita af ferðum sínum.
AFP
- Rússlandsforseti hefur sett sveit-
ir kjarnavopna í viðbragðsstöðu
Stríð í borg Brynvarin rússnesk herflutningabifreið brennur í úkraínsku borginni Kharkiv í gær eftir að árás Rússa var hrundið. Í forgrunni er lík hermanns, hvers þjóðerni var á huldu í gær.
MStríð í Evrópu »2, 8, 13 og 14
- Friðarviðræður haldnar í dag á
landamærum við Hvíta-Rússland
- Nærri fjögur hundruð þúsund
manns á flótta frá styrjöldinni
M Á N U D A G U R 2 8. F E B R Ú A R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 49. tölublað . 110. árgangur .
TEDDA ENGIN
VENJULEG
AMMA AF ÖLLUM GERÐUM
KRISTJÁN SETTI
MÓTSMET Í
HÁSTÖKKI
BOLLUDAGURINN, 4 MÍ Í FRJÁLSUM 27BYRJAÐI 39 ÁRA 6
Hernaðaraðgerðir Rússa í Úkraínu og þær refsiaðgerðir
sem fylgt hafa í kjölfarið munu ekki aðeins hafa áhrif á
heimsmarkaðsverð á olíu og gasi heldur líka raska fram-
boði á kornvörum og sólblómaolíu sem löndin tvö flytja út
í miklum mæli.
Lovísa Anna Finnbjörnsdóttir hjá Deloitte segir Úkra-
ínu einn stærsta framleiðanda neongass, sem notað er við
framleiðslu á örgjörvum. Rússland framleiðir ríflega
þriðjung alls palladíns en hliðarmálmurinn er einnig
nýttur við örgjörvasmíði.
Á Íslandi má vænta að hækkandi olíuverð stuðli að
aukinni verðbólgu. Þá gæti það hægt á viðsnúningi ferða-
þjónustunnar ef hátt eldsneytisverð ýtir upp flugmiða-
verði og ef svartsýnir og óttaslegnir neytendur slá ferða-
lögum á frest. »12
- Landbúnaðarafurðir og hráefni fyrir örgjörva í húfi
AFP
Harmur Pútín mótmælt Tel Aviv líkt og víðar um heim.
Átökin hafa keðjuverkandi
áhrif á alþjóðahagkerfið
Stjórnsýsluúttekt
Ríkisendur-
skoðunar á tolla-
framkvæmd
vegna landbún-
aðarafurða leiðir í
ljós að ýmislegt
megi betur fara.
Helst þurfi að
endurnýja allt
tölvukerfi tolla-
sviðs Skattsins, til
að tryggja samræmi gagna og traust-
ari samskipti við erlendar tollstöðvar.
Þá þurfi að endurskipuleggja allt
tollaeftirlit og þótt viðkvæm vara eins
og landbúnaðarafurðir geri málið
flóknara, þá þurfi að sinna reglu-
bundnu, víðtæku og samræmdu eft-
irliti. Halla Signý Kristjánsdóttir seg-
ir að tollaframkvæmd hérlendis fái
falleinkunn í skýrslunni. „Það þarf
miklu betra og samræmdara skrán-
ingarkerfi og t.d. er oft ekki samræmi
milli upplýsinga frá innflytjanda og
útflytjanda vörunnar. Þannig getur
innflytjandi skráð mjólkurost sem
hefur viðbætta jurtaolíu sem „jurta-
ost“ og þannig færist varan í toll-
frjálsan flokk.“ »4
Halla Signý
Kristjánsdóttir
- Sýnir ný úttekt Ríkisendurskoðunar
Tollaframkvæmd
mjög ábótavant