Morgunblaðið - 28.02.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.02.2022, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022 SÓL Í SUMAR BÓKAÐU ALLT FRÍIÐ Á EINUM STAÐ! SÍMI 585 4000 WWW.UU.IS ALMERÍA FLUG OG GISTING 27. JÚNÍ - 07. JÚLÍ ARENA CENTER HOTEL 4* VERÐ FRÁ 95.900 KR Á MANN FULLORÐNA OG 2 BÖRN PORTÚGAL FLUG OG GISTING 21. - 28. JÚNÍ APARTM. VILA PETRA 4* VERÐ FRÁ 95.500 KR VERÐ Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN INNIFALIÐ: FLUG, GISTING, MORGUNVERÐUR, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is „Beiting kjarnorkuvopna væri skref í átt til glötunar,“ segir Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra um fyrirskip- un Vladimírs Pút- íns Rússlands- forseta að kjarnorkusveitir skuli vera í við- bragðsstöðu. Hún segir að um afar slæm tíðindi sé að ræða og að grannt sé fylgst með stöð- unni. Í gær var greint frá því að íslenskri lofthelgi yrði lokað fyrir umferð rúss- neskra loftfara og að afnumin yrði ein- faldari meðferð vegabréfsáritana fyrir rússneska stjórnarerindreka, við- skiptafólk, þingmenn, diplómata og tengda aðila til að sýna samstöðu með Úkraínu. Stöðug gæsla Innt eftir því hvaða eftirlit sé til staðar hér á landi segir Katrín að alltaf sé til staðar kafbátaeftirlit. Hún segir að ef vart verði við rússneska kafbáta þá geri þau ríki sem sinna hér gæslu NATO viðvart. Hún nefnir að meðal annars hafi portúgalski flugherinn verið við Ísland frá 24. janúar sem hluti af reglubundinni loftrýmisgæslu. Það verkefni stendur til 30. mars. Sveinn H. Guðmarsson, upplýsinga- fulltrúi utanríkisráðuneytisins, segir að NATO hafi gert viðeigandi ráðstaf- anir vegna innrásarinnar í Úkraínu. „Viðbragðsstaða hefur verið aukin og varnarviðbúnaður styrktur. Þá fór fram fundur í fastaráði NATO í síðustu viku á grundvelli 4. greinar Atlants- hafssáttmálans sem kveður á um sam- ráð telji eitt eða fleiri bandalagsríki ör- yggi sínu ógnað,“ segir Sveinn og bætir við að ákvarðanir bandalagsins og sú staða sem upp er komin geti haft í för með sér aukin umsvif og sýnileika liðsafla bandalagsins í aðildarríkjum, sérstaklega í austurhluta Evrópu. „Enn er of snemmt að segja hvaða hlutverki Ísland mun gegna í því sam- hengi. Hitt er ljóst að Ísland mun leit- ast við að uppfylla skuldbindingar sín- ar gagnvart NATO í þeim efnum, í samræmi við þjóðaröryggisstefnuna.“ Katrín segir NATO hafa fullan skilning á sérstöðu Íslands sem her- lauss ríkis og geri því ekki ráð fyrir að við uppfyllum það markmið að 2% landsframleiðslu fari til varnarmála. „Við höfum hins vegar lagt meira af mörkum undanfarin ár. Framlögin hafa tvöfaldast úr einum og hálfum milljarði í þrjá milljarða á fjórum ár- um,“ segir hún og bætir við að sá pen- ingur lúti fyrst og fremst að viðhaldi mannvirkja við Keflavík. AFP Vopn Kjarnorkusveitir Rússa eru nú í viðbragðsstöðu vegna „óvinsamlegra“ aðgerða vesturveldanna. Beiting kjarnorku skref í átt til glötunar - Íslenskri lofthelgi lokað fyrir umferð rússneskra loftfara Katrín Jakobsdóttir Ákvörðun um hvort hætta eigi sölu á rússnesku vodka í verslunum ÁTVR er undir ráðherra komin, að sögn Sigrúnar Óskar Sigurðardóttur, að- stoðarforsjóra ÁTVR. Fimm rúss- neskar vörur leynast í vöruúrvali ÁTVR, allt vodka. Vínbúðir í ein- staka ríkjum Bandaríkjanna og í Kanada hafa fjarlægt rússneskt vodka úr hillum sínum til þess að sýna táknræna samstöðu með Úkra- ínumönnum. Þetta hafa þær ýmist gert vegna skipana ríkisstjóra eða að eigin frumkvæði. „Við vitum af þessu og erum að skoða hvort við höfum lagaheimild til að taka þetta einhliða úr hillunum, þá er spurning að heyra í birgjunum,“ segir Sigrún. Í gær fór Krónan yfir vöruúrvalið sitt til þess að kanna hvort grund- völlur væri fyrir því að fjarlægja þaðan rússneskar vörur og sýna þannig samstöðu með Úkraínu. Í ljós kom að engar vörur þar eru frá Rússlandi, að sögn Ástu Sigríðar Fjeldsted. Guðmundur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Bónuss, segir ansi flókið að fara að elta uppi vörur sem eiga rætur að rekja til Rússlands. Rússland sé mikið landbúnaðarríki og selji hráefni til ótal framleiðenda. Þannig kunna vörur á borð við hveiti að vera unnar úr rússnesku hráefni en að öðru leyti selji Bónus ekki neinar vörur sem séu beint frá Rúss- landi. Sigurður Reynaldsson, fram- kvæmdastjóri Hagkaups, segir að ef Hagkaup væri með rússneskar vörur væri pottþétt verið að skoða aðgerðir en þess gerist ekki þörf enda selji fyrirtækið engar rúss- neskar vörur. thorab@mbl.is Hitnar undir rússnesku vodka - Engar matvörur til að sniðganga Ásdís Vodka Í ÁTVR má finna fimm teg- undir af rússnesku vodka. Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra sótti fund ráðherra dóms- og innan- ríkismála hjá Evrópusambandinu og Schengen-svæðinu í Brussel í gær. „Það er mjög góð þátttaka sem endurspeglar þá samstöðu sem er á milli Evrópuþjóðanna í þessum málefnum Úkraínu og nágranna- landanna,“ segir Jón og nefnir að fundurinn var boðaður með mjög stuttum fyrirvara. „Við erum að reyna að móta þær ráðstafanir sem á að grípa til.“ Á fundinum var meðal annars rætt um mannúðaraðstoð, flótta- mannamál, vegabréfsáritanamál og öryggi ytri landamæra Schengen- svæðisins en annar fundur verður haldinn síðar í vikunni á milli Schengen-ríkjanna. „Menn eru að horfa til þeirra viðbragða sem við getum gripið til gagnvart Úkraínu og fólkinu sem er að flýja land frá þessum hörmu- legu aðstæðum. Hvernig við getum tekið á móti því fólki, veitt því skjól og það sem til þarf,“ segir Jón og bætir við að ráðherrarnir for- dæmdu allir sem einn aðgerðir Rússa og ítrekuðu stuðning og samábyrgð með Úkraínu. Hann bendir á að mikil þörf sé á alls konar hjálpargögnum, bæði til Úkraínu og nágrannaríkja sem bera hitann og þungann af fyrstu bylgju flótamanna, sem nú ríður yf- ir. „Þetta er allt saman í skoðun hjá okkur og við Íslendingar erum fullir þátttakendur í því að bregð- ast við.“ Jón segir það vera alveg ljóst að Íslendingar muni þurfa að axla ábyrgð er kemur að flótta- mannavandanum líkt og aðrar þjóð- ir. „Við settum Úkraínu strax á lista yfir hættuleg lönd og dyrnar eru opnar hér á Íslandi fyrir fólk frá Úkraínu. Við munum gera okk- ar besta í þeim efnum.“ Viðbúnaðarstig almannavarna Inntur eftir því hvort til skoð- unar sé að hækka viðbúnaðarstig almannavarna vegna fyrirskipunar Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta um að hersveitir sem sjá um fæl- ingarvopn skuli vera í viðbragðs- stöðu, segir Jón að það hafi ekki komið til tals. „Ég veit ekki hvort það er tilefni til þess á þessari stundu en við fylgjumst auðvitað náið með þróun mála og verðum í góðu sambandi við samstarfs- og bandalagsríki okkar.“ urdur@mbl.is Ísland mun axla ábyrgð á vandanum - Ráðherrar ESB og Schengen funda AFP Bylgja Íslendingar munu taka við flóttafólki frá Úkraínu. Brugðist við stríði í Evrópu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.