Morgunblaðið - 28.02.2022, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022
SÓL Í SUMAR
BÓKAÐU ALLT FRÍIÐ Á EINUM STAÐ!
SÍMI 585 4000 WWW.UU.IS
ALMERÍA
FLUG OG GISTING
27. JÚNÍ - 07. JÚLÍ
ARENA CENTER HOTEL 4*
VERÐ FRÁ 95.900 KR
Á MANN FULLORÐNA OG 2 BÖRN
PORTÚGAL
FLUG OG GISTING
21. - 28. JÚNÍ
APARTM. VILA PETRA 4*
VERÐ FRÁ 95.500 KR
VERÐ Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
INNIFALIÐ: FLUG, GISTING, MORGUNVERÐUR, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
„Beiting kjarnorkuvopna væri skref í
átt til glötunar,“ segir Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra um fyrirskip-
un Vladimírs Pút-
íns Rússlands-
forseta að
kjarnorkusveitir
skuli vera í við-
bragðsstöðu. Hún
segir að um afar
slæm tíðindi sé að
ræða og að grannt
sé fylgst með stöð-
unni.
Í gær var greint
frá því að íslenskri
lofthelgi yrði lokað fyrir umferð rúss-
neskra loftfara og að afnumin yrði ein-
faldari meðferð vegabréfsáritana fyrir
rússneska stjórnarerindreka, við-
skiptafólk, þingmenn, diplómata og
tengda aðila til að sýna samstöðu með
Úkraínu.
Stöðug gæsla
Innt eftir því hvaða eftirlit sé til
staðar hér á landi segir Katrín að alltaf
sé til staðar kafbátaeftirlit. Hún segir
að ef vart verði við rússneska kafbáta
þá geri þau ríki sem sinna hér gæslu
NATO viðvart. Hún nefnir að meðal
annars hafi portúgalski flugherinn
verið við Ísland frá 24. janúar sem
hluti af reglubundinni loftrýmisgæslu.
Það verkefni stendur til 30. mars.
Sveinn H. Guðmarsson, upplýsinga-
fulltrúi utanríkisráðuneytisins, segir
að NATO hafi gert viðeigandi ráðstaf-
anir vegna innrásarinnar í Úkraínu.
„Viðbragðsstaða hefur verið aukin og
varnarviðbúnaður styrktur. Þá fór
fram fundur í fastaráði NATO í síðustu
viku á grundvelli 4. greinar Atlants-
hafssáttmálans sem kveður á um sam-
ráð telji eitt eða fleiri bandalagsríki ör-
yggi sínu ógnað,“ segir Sveinn og
bætir við að ákvarðanir bandalagsins
og sú staða sem upp er komin geti haft
í för með sér aukin umsvif og sýnileika
liðsafla bandalagsins í aðildarríkjum,
sérstaklega í austurhluta Evrópu.
„Enn er of snemmt að segja hvaða
hlutverki Ísland mun gegna í því sam-
hengi. Hitt er ljóst að Ísland mun leit-
ast við að uppfylla skuldbindingar sín-
ar gagnvart NATO í þeim efnum, í
samræmi við þjóðaröryggisstefnuna.“
Katrín segir NATO hafa fullan
skilning á sérstöðu Íslands sem her-
lauss ríkis og geri því ekki ráð fyrir að
við uppfyllum það markmið að 2%
landsframleiðslu fari til varnarmála.
„Við höfum hins vegar lagt meira af
mörkum undanfarin ár. Framlögin
hafa tvöfaldast úr einum og hálfum
milljarði í þrjá milljarða á fjórum ár-
um,“ segir hún og bætir við að sá pen-
ingur lúti fyrst og fremst að viðhaldi
mannvirkja við Keflavík.
AFP
Vopn Kjarnorkusveitir Rússa eru nú í viðbragðsstöðu vegna „óvinsamlegra“ aðgerða vesturveldanna.
Beiting kjarnorku
skref í átt til glötunar
- Íslenskri lofthelgi lokað fyrir umferð rússneskra loftfara
Katrín
Jakobsdóttir
Ákvörðun um hvort hætta eigi sölu á
rússnesku vodka í verslunum ÁTVR
er undir ráðherra komin, að sögn
Sigrúnar Óskar Sigurðardóttur, að-
stoðarforsjóra ÁTVR. Fimm rúss-
neskar vörur leynast í vöruúrvali
ÁTVR, allt vodka. Vínbúðir í ein-
staka ríkjum Bandaríkjanna og í
Kanada hafa fjarlægt rússneskt
vodka úr hillum sínum til þess að
sýna táknræna samstöðu með Úkra-
ínumönnum. Þetta hafa þær ýmist
gert vegna skipana ríkisstjóra eða
að eigin frumkvæði. „Við vitum af
þessu og erum að skoða hvort við
höfum lagaheimild til að taka þetta
einhliða úr hillunum, þá er spurning
að heyra í birgjunum,“ segir Sigrún.
Í gær fór Krónan yfir vöruúrvalið
sitt til þess að kanna hvort grund-
völlur væri fyrir því að fjarlægja
þaðan rússneskar vörur og sýna
þannig samstöðu með Úkraínu. Í
ljós kom að engar vörur þar eru frá
Rússlandi, að sögn Ástu Sigríðar
Fjeldsted.
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, segir ansi
flókið að fara að elta uppi vörur sem
eiga rætur að rekja til Rússlands.
Rússland sé mikið landbúnaðarríki
og selji hráefni til ótal framleiðenda.
Þannig kunna vörur á borð við hveiti
að vera unnar úr rússnesku hráefni
en að öðru leyti selji Bónus ekki
neinar vörur sem séu beint frá Rúss-
landi.
Sigurður Reynaldsson, fram-
kvæmdastjóri Hagkaups, segir að ef
Hagkaup væri með rússneskar
vörur væri pottþétt verið að skoða
aðgerðir en þess gerist ekki þörf
enda selji fyrirtækið engar rúss-
neskar vörur. thorab@mbl.is
Hitnar undir
rússnesku vodka
- Engar matvörur til að sniðganga
Ásdís
Vodka Í ÁTVR má finna fimm teg-
undir af rússnesku vodka.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra
sótti fund ráðherra dóms- og innan-
ríkismála hjá Evrópusambandinu
og Schengen-svæðinu í Brussel í
gær. „Það er mjög góð þátttaka
sem endurspeglar þá samstöðu sem
er á milli Evrópuþjóðanna í þessum
málefnum Úkraínu og nágranna-
landanna,“ segir Jón og nefnir að
fundurinn var boðaður með mjög
stuttum fyrirvara. „Við erum að
reyna að móta þær ráðstafanir sem
á að grípa til.“
Á fundinum var meðal annars
rætt um mannúðaraðstoð, flótta-
mannamál, vegabréfsáritanamál og
öryggi ytri landamæra Schengen-
svæðisins en annar fundur verður
haldinn síðar í vikunni á milli
Schengen-ríkjanna.
„Menn eru að horfa til þeirra
viðbragða sem við getum gripið til
gagnvart Úkraínu og fólkinu sem
er að flýja land frá þessum hörmu-
legu aðstæðum. Hvernig við getum
tekið á móti því fólki, veitt því skjól
og það sem til þarf,“ segir Jón og
bætir við að ráðherrarnir for-
dæmdu allir sem einn aðgerðir
Rússa og ítrekuðu stuðning og
samábyrgð með Úkraínu.
Hann bendir á að mikil þörf sé á
alls konar hjálpargögnum, bæði til
Úkraínu og nágrannaríkja sem
bera hitann og þungann af fyrstu
bylgju flótamanna, sem nú ríður yf-
ir. „Þetta er allt saman í skoðun
hjá okkur og við Íslendingar erum
fullir þátttakendur í því að bregð-
ast við.“
Jón segir það vera alveg ljóst að
Íslendingar muni þurfa að axla
ábyrgð er kemur að flótta-
mannavandanum líkt og aðrar þjóð-
ir. „Við settum Úkraínu strax á
lista yfir hættuleg lönd og dyrnar
eru opnar hér á Íslandi fyrir fólk
frá Úkraínu. Við munum gera okk-
ar besta í þeim efnum.“
Viðbúnaðarstig almannavarna
Inntur eftir því hvort til skoð-
unar sé að hækka viðbúnaðarstig
almannavarna vegna fyrirskipunar
Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta
um að hersveitir sem sjá um fæl-
ingarvopn skuli vera í viðbragðs-
stöðu, segir Jón að það hafi ekki
komið til tals. „Ég veit ekki hvort
það er tilefni til þess á þessari
stundu en við fylgjumst auðvitað
náið með þróun mála og verðum í
góðu sambandi við samstarfs- og
bandalagsríki okkar.“ urdur@mbl.is
Ísland mun
axla ábyrgð
á vandanum
- Ráðherrar ESB og Schengen funda
AFP
Bylgja Íslendingar munu taka við
flóttafólki frá Úkraínu.
Brugðist við stríði í Evrópu