Morgunblaðið - 28.02.2022, Síða 4

Morgunblaðið - 28.02.2022, Síða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u At h að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra 595 1000 60+ Ferðir f Fjölbreytt dagskrá í boði Verð frá kr. 199.900 ng a á sl ík u. At h. að ð br ey st Benidormmeð Birgitte eða Tenerifemeð Gunnari Svanlaugs Kíktu á úrvalið inná heimsferdir.is Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Auður Ögn Árnadóttir, eigandi Sautján sorta, segir að álagið af bolludeginum sé farið að jafnast svo- lítið út. Réttara væri að tala um bolluhelgi eða jafnvel bolluviku. „Margir byrja mikið fyrr, þetta er ekki lengur sama mánudags- sprengjan.“ Sautján sortir selja aðallega boll- ur til einstaklinga og sérhæfa sig í óhefðbundnum bollum. „Það er komin svo mikil samkeppni og þá reynir maður að skapa sér sérstöðu. Við erum bara með lúxusbollur.“ Auði þótti athyglisvert að þetta árið eru bollurnar með tíramísúbragði og hindberja-, pistasíubragði og hvítu súkkulaði vinsælastar. Í fyrra voru vinsælustu bollurnar aftur á móti með lakkrísbragði og salt- karamellubragði. Minna ger og meira vegan Mosfellsbakarí byrjaði að selja bollur á fimmtudaginn. Hafliði Ragnarsson, eigandi bakarísins, seg- ir að þær hafi selst mjög vel alla helgina, en í gær voru bollurnar uppseldar fyrir klukkan hálffjögur. Bakararnir í Mosfellsbakaríi bökuðu bollur í alla nótt, til þess að anna öll- um fyrirtækjapöntununum. Á tím- um fjarvinnu vegna heimsfaraldurs- ins var minna um stórar fyrirtækja- pantanir, en nú þegar fólk er aftur mætt til vinnu er bolludagurinn eins og hann á að sér að vera fyrir bak- aríin. Að sögn Hafliða er hefðbundin vatnsdeigsbolla langsamlega vinsæl- ust. Hann hefur staðið bolludags- vaktina í mörg ár og tekur eftir tveimur breytingum í neyslumynstri Íslendinga. Annars vegar sú staða að gerdeigsbollur hafa nánast alveg vikið fyrir vatnsdeigsbollum, og þá hefur eftirspurn aukist eftir vegan- valmöguleikum. Þess vegna bætti Hafliði við einni útgáfu af vegan- bollu í ár, en fækkaði gerdeigsboll- unum. Unicef býður hnetubollu Fyrir þá sem vilja láta gott af sér leiða, eða bara passa línurnar, býður Unicef upp á svokallaðar hnetuboll- ur. „Þú færð ekki eiginlega bollu heldur færðu skírteini,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef. Um er að ræða söfnun sem fer fram á hverju ári í kringum bolludaginn. „Þetta hefur gengið vel, enda er oft betra að gefa til ann- arra en að fá sér eina bollu í viðbót.“ Síðasti dagur bolluhelgarinnar Ljósmynd / Óttar Geirsson Úrval Samkeppnin er hörð á bollumarkaðnum og því keppast bakaríin við að skapa sér sérstöðu á bolludaginn. - Bolludagurinn er í dag en margir tóku forskot á sæluna Úttekt Ríkisendurskoðunar á tollaframkvæmd vegna landbúnað- arafurða kom út í síðustu viku, en Miðflokkurinn hafði óskað eftir skýrslu um málaflokkinn í desem- ber 2020. Í úttektinni kemur fram að ýmislegt þarf að laga í fram- kvæmdaferlinu til að vel sé staðið að málaflokknum, en ekki er farið nákvæmlega yfir misræmi sem hefur verið í bókhaldinu á milli út- flutningstalna ESB og innflutings- talna Hagstofunnar í tilviki ákveð- inna landbúnaðarvara, og er það mál á herðum nefndar sem fjár- málaráðherra stofnaði og á eftir að skila greiningu á ástæðum þessa. Samkvæmt skýrslunni þarf að auka skilvirkni og sjálfvirkni í toll- afgreiðslu og mikil aukning í inn- flutningi sýnir að bráð nauðsyn er að uppfæra tölvukerfi tollasviðs Skattsins. Einnig kemur fram að endurskoðunardeild tollasviðs Skattsins hefur þrjá starfsmenn og getur ekki staðið undir hlut- verki sínu frammi fyrir miklu meiri innflutningi til landsins. Þegar farið var yfir þessi mál 2013, þegar tollendurskoðunin var enn undir hatti tollstjóra, var talað um annmarka á rafrænu eftirliti deildarinnar, en margt sem þar kom fram er enn óleyst, enda var orðalag ónákvæmt og engin vel mælanleg markmið sett fram í næstu skrefum. Í skýrslunni kemur einnig fram að þrátt fyrir átak í vöruskoðun landbúnaðarafurða í lok 2020 sé framkvæmdin ekki enn til fyrir- myndar og skoðanir of fáar. Þrátt fyrir varnaglann um að landbún- aðarvörur séu viðkvæmar, sem getur torveldað vöruskoðun, er bent á að það þurfi að finna verk- ferla sem taki tillit til þess en tryggi jafnframt reglubundið tolla- eftirlit, því miklir fjármunir séu í húfi fyrir íslenska ríkið, ef ekki er rétt staðið að skráningu varnings sem kemur inn í landið. Í þessu sambandi er í skýrslunni tekið dæmi um mozzarella-ost, sem hafði viðbætta jurtaolíu og var skráður sem „jurtaostur“ af innflutningsaðila, sem þýðir að sem slíkur fellur hann ekki undir innflutningstolla, enda ekki í sam- keppni við innlenda, sambærilega vöru. Vissulega er osturinn ekki jurtaostur, þar sem hann er búinn til úr mjólk, en svona skráning veldur miklu fjárhagstapi fyrir ríkissjóð. Halla Signý Kristjáns- dóttir, alþingismaður Framsóknar- flokksins, segir að það verði að gera betur í þessum málaflokki. „Þetta er falleinkunn á tollafram- kvæmd hérlendis,“ og bætir við að það þurfi meiri samræmingu og samstarf við aðrar tollstöðvar er- lendis. „Þetta ástand skapar bara ósanngjarna viðskiptahætti og auðvitað fjárhagstap fyrir ríkis- sjóð.“ „Falleinkunn á tollaframkvæmd“ Morgunblaðið/sisi Skatturinn Tollaeftirlit hefur verið frá 2019 á vegum Skattsins. - Margt athugavert í úttekt Ríkisendurskoðunar á tollaframkvæmd vegna landbúnaðarafurða Helstu umbótatillögur » Lagt er til að endurnýjun tölvukerfa tollasviðs Skattsins verði sett í forgang til að tryggja gæði gagna eftirlits- stofnunar og tryggja betra samræmi og samskipti við er- lendar tollstöðvar. » Endurskipuleggja þarf allt tollaeftirlit og endurskoðun og gera vöruskoðun landbúnaðar- afurða bæði víðtækari og reglulega. » Síðast þarf svo að tryggja samræmda tollaframkvæmd og leysa úr álitamálum. Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) og Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) hafa náð samkomulagi um kaup ÖBÍ á hlut UMFÍ í fasteigninni við Sigtún 42. Húsið er núverandi þjónustu- miðstöð UMFÍ í Reykjavík. Þuríður Harpa Sigurðardóttir, for- maður ÖBÍ, og Jóhann Steinar Ingi- mundarson, formaður UMFÍ, skrif- uðu undir samning um kaupin í Sigtúni á föstudag. Þjónustumiðstöð Ungmenna- félagsins í Reykjavík hefur verið í Sigtúninu frá árinu 2010 og verður þar áfram til haustsins. Auk UMFÍ eru í húsinu skrifstofur ÖBÍ og Brúar lífeyrissjóðs. Húsið var byggt árið 1995 og frá þeim tíma hef- ur ýmiss konar starfsemi verið þar til húsa. Formenn bæði ÖBÍ og UMFÍ segjast bæði vera ánægð með við- skiptin, enda mæti þau hagsmunum beggja. Ákveðin eftirsjá „Þetta er ánægjulegur dagur enda sjáum við mörg möguleg tækifæri með þessari breytingu. Vissulega er ákveðin eftirsjá að fasteigninni sem hefur haldið vel utan um starfsemi hreyfingarinnar og við átt hér marg- ar góðar stundir. Er það von okkar að þannig verði það einnig fyrir nýja eig- endur. UMFÍ mun vera í húsinu að lágmarki næsta hálfa árið og munum við nýta þann tíma til að skoða ýmsa valkosti um framhaldið til lengri tíma, sem vonandi skila sér í enn öflugra starfi,“ segir Jóhann Ingimundarson, formaður UMFÍ. Þuríður Harpa seg- ir að með kaupunum opnist möguleiki á að fleiri aðildarfélög Öryrkjabanda- lagsins fái aðstöðu í húsinu og að þar verði til nokkurs konar miðstöð mannréttindabaráttu fatlaðs fólks. ÖBÍ kaupir þjónustumið- stöð UMFÍ við Sigtún - Möguleiki á að fleiri aðildarfélög ÖBÍ fái aðstöðu í húsinu Ljósmynd/Aðsend Kaupsamningur Formaður UMFÍ og formaður ÖBÍ skrifuðu undir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.