Morgunblaðið - 28.02.2022, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u
At
h
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
595 1000
60+ Ferðir
f Fjölbreytt dagskrá í boði
Verð frá kr.
199.900
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ð
br
ey
st
Benidormmeð Birgitte
eða Tenerifemeð Gunnari Svanlaugs
Kíktu á úrvalið inná heimsferdir.is
Þóra Birna Ingvarsdóttir
thorab@mbl.is
Auður Ögn Árnadóttir, eigandi
Sautján sorta, segir að álagið af
bolludeginum sé farið að jafnast svo-
lítið út. Réttara væri að tala um
bolluhelgi eða jafnvel bolluviku.
„Margir byrja mikið fyrr, þetta er
ekki lengur sama mánudags-
sprengjan.“
Sautján sortir selja aðallega boll-
ur til einstaklinga og sérhæfa sig í
óhefðbundnum bollum. „Það er
komin svo mikil samkeppni og þá
reynir maður að skapa sér sérstöðu.
Við erum bara með lúxusbollur.“
Auði þótti athyglisvert að þetta árið
eru bollurnar með tíramísúbragði
og hindberja-, pistasíubragði og
hvítu súkkulaði vinsælastar. Í fyrra
voru vinsælustu bollurnar aftur á
móti með lakkrísbragði og salt-
karamellubragði.
Minna ger og meira vegan
Mosfellsbakarí byrjaði að selja
bollur á fimmtudaginn. Hafliði
Ragnarsson, eigandi bakarísins, seg-
ir að þær hafi selst mjög vel alla
helgina, en í gær voru bollurnar
uppseldar fyrir klukkan hálffjögur.
Bakararnir í Mosfellsbakaríi bökuðu
bollur í alla nótt, til þess að anna öll-
um fyrirtækjapöntununum. Á tím-
um fjarvinnu vegna heimsfaraldurs-
ins var minna um stórar fyrirtækja-
pantanir, en nú þegar fólk er aftur
mætt til vinnu er bolludagurinn eins
og hann á að sér að vera fyrir bak-
aríin.
Að sögn Hafliða er hefðbundin
vatnsdeigsbolla langsamlega vinsæl-
ust. Hann hefur staðið bolludags-
vaktina í mörg ár og tekur eftir
tveimur breytingum í neyslumynstri
Íslendinga. Annars vegar sú staða
að gerdeigsbollur hafa nánast alveg
vikið fyrir vatnsdeigsbollum, og þá
hefur eftirspurn aukist eftir vegan-
valmöguleikum. Þess vegna bætti
Hafliði við einni útgáfu af vegan-
bollu í ár, en fækkaði gerdeigsboll-
unum.
Unicef býður hnetubollu
Fyrir þá sem vilja láta gott af sér
leiða, eða bara passa línurnar, býður
Unicef upp á svokallaðar hnetuboll-
ur. „Þú færð ekki eiginlega bollu
heldur færðu skírteini,“ segir Birna
Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri
Unicef. Um er að ræða söfnun sem
fer fram á hverju ári í kringum
bolludaginn. „Þetta hefur gengið
vel, enda er oft betra að gefa til ann-
arra en að fá sér eina bollu í viðbót.“
Síðasti dagur bolluhelgarinnar
Ljósmynd / Óttar Geirsson
Úrval Samkeppnin er hörð á bollumarkaðnum og því keppast bakaríin við að skapa sér sérstöðu á bolludaginn.
- Bolludagurinn er
í dag en margir tóku
forskot á sæluna
Úttekt Ríkisendurskoðunar á
tollaframkvæmd vegna landbúnað-
arafurða kom út í síðustu viku, en
Miðflokkurinn hafði óskað eftir
skýrslu um málaflokkinn í desem-
ber 2020. Í úttektinni kemur fram
að ýmislegt þarf að laga í fram-
kvæmdaferlinu til að vel sé staðið
að málaflokknum, en ekki er farið
nákvæmlega yfir misræmi sem
hefur verið í bókhaldinu á milli út-
flutningstalna ESB og innflutings-
talna Hagstofunnar í tilviki ákveð-
inna landbúnaðarvara, og er það
mál á herðum nefndar sem fjár-
málaráðherra stofnaði og á eftir að
skila greiningu á ástæðum þessa.
Samkvæmt skýrslunni þarf að
auka skilvirkni og sjálfvirkni í toll-
afgreiðslu og mikil aukning í inn-
flutningi sýnir að bráð nauðsyn er
að uppfæra tölvukerfi tollasviðs
Skattsins. Einnig kemur fram að
endurskoðunardeild tollasviðs
Skattsins hefur þrjá starfsmenn
og getur ekki staðið undir hlut-
verki sínu frammi fyrir miklu
meiri innflutningi til landsins.
Þegar farið var yfir þessi mál
2013, þegar tollendurskoðunin var
enn undir hatti tollstjóra, var talað
um annmarka á rafrænu eftirliti
deildarinnar, en margt sem þar
kom fram er enn óleyst, enda var
orðalag ónákvæmt og engin vel
mælanleg markmið sett fram í
næstu skrefum.
Í skýrslunni kemur einnig fram
að þrátt fyrir átak í vöruskoðun
landbúnaðarafurða í lok 2020 sé
framkvæmdin ekki enn til fyrir-
myndar og skoðanir of fáar. Þrátt
fyrir varnaglann um að landbún-
aðarvörur séu viðkvæmar, sem
getur torveldað vöruskoðun, er
bent á að það þurfi að finna verk-
ferla sem taki tillit til þess en
tryggi jafnframt reglubundið tolla-
eftirlit, því miklir fjármunir séu í
húfi fyrir íslenska ríkið, ef ekki er
rétt staðið að skráningu varnings
sem kemur inn í landið.
Í þessu sambandi er í skýrslunni
tekið dæmi um mozzarella-ost,
sem hafði viðbætta jurtaolíu og
var skráður sem „jurtaostur“ af
innflutningsaðila, sem þýðir að
sem slíkur fellur hann ekki undir
innflutningstolla, enda ekki í sam-
keppni við innlenda, sambærilega
vöru. Vissulega er osturinn ekki
jurtaostur, þar sem hann er búinn
til úr mjólk, en svona skráning
veldur miklu fjárhagstapi fyrir
ríkissjóð. Halla Signý Kristjáns-
dóttir, alþingismaður Framsóknar-
flokksins, segir að það verði að
gera betur í þessum málaflokki.
„Þetta er falleinkunn á tollafram-
kvæmd hérlendis,“ og bætir við að
það þurfi meiri samræmingu og
samstarf við aðrar tollstöðvar er-
lendis. „Þetta ástand skapar bara
ósanngjarna viðskiptahætti og
auðvitað fjárhagstap fyrir ríkis-
sjóð.“
„Falleinkunn á tollaframkvæmd“
Morgunblaðið/sisi
Skatturinn Tollaeftirlit hefur verið frá 2019 á vegum Skattsins.
- Margt athugavert í úttekt Ríkisendurskoðunar á tollaframkvæmd vegna landbúnaðarafurða
Helstu umbótatillögur
» Lagt er til að endurnýjun
tölvukerfa tollasviðs Skattsins
verði sett í forgang til að
tryggja gæði gagna eftirlits-
stofnunar og tryggja betra
samræmi og samskipti við er-
lendar tollstöðvar.
» Endurskipuleggja þarf allt
tollaeftirlit og endurskoðun og
gera vöruskoðun landbúnaðar-
afurða bæði víðtækari og
reglulega.
» Síðast þarf svo að tryggja
samræmda tollaframkvæmd
og leysa úr álitamálum.
Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) og
Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) hafa
náð samkomulagi um kaup ÖBÍ á
hlut UMFÍ í fasteigninni við Sigtún
42. Húsið er núverandi þjónustu-
miðstöð UMFÍ í Reykjavík.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, for-
maður ÖBÍ, og Jóhann Steinar Ingi-
mundarson, formaður UMFÍ, skrif-
uðu undir samning um kaupin í
Sigtúni á föstudag.
Þjónustumiðstöð Ungmenna-
félagsins í Reykjavík hefur verið í
Sigtúninu frá árinu 2010 og verður
þar áfram til haustsins.
Auk UMFÍ eru í húsinu skrifstofur
ÖBÍ og Brúar lífeyrissjóðs. Húsið var
byggt árið 1995 og frá þeim tíma hef-
ur ýmiss konar starfsemi verið þar til
húsa.
Formenn bæði ÖBÍ og UMFÍ
segjast bæði vera ánægð með við-
skiptin, enda mæti þau hagsmunum
beggja.
Ákveðin eftirsjá
„Þetta er ánægjulegur dagur enda
sjáum við mörg möguleg tækifæri
með þessari breytingu. Vissulega er
ákveðin eftirsjá að fasteigninni sem
hefur haldið vel utan um starfsemi
hreyfingarinnar og við átt hér marg-
ar góðar stundir. Er það von okkar að
þannig verði það einnig fyrir nýja eig-
endur. UMFÍ mun vera í húsinu að
lágmarki næsta hálfa árið og munum
við nýta þann tíma til að skoða ýmsa
valkosti um framhaldið til lengri tíma,
sem vonandi skila sér í enn öflugra
starfi,“ segir Jóhann Ingimundarson,
formaður UMFÍ. Þuríður Harpa seg-
ir að með kaupunum opnist möguleiki
á að fleiri aðildarfélög Öryrkjabanda-
lagsins fái aðstöðu í húsinu og að þar
verði til nokkurs konar miðstöð
mannréttindabaráttu fatlaðs fólks.
ÖBÍ kaupir þjónustumið-
stöð UMFÍ við Sigtún
- Möguleiki á að fleiri aðildarfélög ÖBÍ fái aðstöðu í húsinu
Ljósmynd/Aðsend
Kaupsamningur Formaður UMFÍ
og formaður ÖBÍ skrifuðu undir.