Morgunblaðið - 28.02.2022, Side 8
Þór
Sigurgeirsson
Úrslit þriggja prófkjöra hjá Sjálf-
stæðisflokknum fyrir sveitarstjórn-
arkosningarnar í vor voru tilkynnt á
laugardaginn.
Tveir nýir oddvitar bætast í hóp-
inn á meðal sjálfstæðismanna.
Þór Sigurgeirsson bar sigur úr
býtum í spennandi oddvitakjöri á
Seltjarnarnesi þar sem fjórir sótt-
ust eftir að leiða listann. Önnur varð
Ragnhildur Jónsdóttir og þriðja
sæti kom í hlut Magnúsar Arnar
Guðmundssonar.
Ragnar Sigurðs-
son er nýr odd-
viti sjálfstæðis-
manna í
Fjarðabyggð eft-
ir fyrsta prófkjör
flokksins í sveit-
arfélaginu. Á eft-
ir honum koma
Kristinn Þór Jón-
asson og Þórdís
Mjöll Benediktsdóttir. Þá mun Mar-
grét Ólöf A. Sanders áfram leiða
lista sjálfstæðismanna í Reykja-
nesbæ. Var hún ein í kjöri í fyrsta
sæti en 10 voru í framboði um
næstu fimm sæti.
Annað sæti hreppti Guðbergur
Reynisson og á eftir honum kemur
Helga Jóhanna Oddsdóttir.
Prófkjör í Hafnarfirði og Garða-
bæ fara fram í vikunni og verða úr-
slit þeirra ljós næsta laugardag.
Þrír oddvitar kjörnir um helgina
- Tveir nýir leiða lista D-lista - Margrét leiðir áfram í Reykjanesbæ í vor
Margrét
Sanders
Ragnar
Sigurðsson
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022
Miklu meira, en bara ódýrt
Hálkubroddar
895
Snjósköfur
Verð frá
kr. 1.495
Bílrúðu-
sköfur
Verð frá
kr. 395
Rassaþotur
495
Dráttartóg
2tonn 4m
2.485
Rúðuvökvi
995
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
4(,#$!-# /.# 6$;7% 1&*# /.# 6$;759"% .2)# /.# ;"$;7% *),# /.# ;:$;8
Startkaplar
frá2.985
3,0'*/'<)+
Verð frá
kr. 1.985
Sigurður Már Jónsson blaðamað-
ur fjallar um innrás Rússa í
Úkraínu og segir að allt í einu hafi
„það gerst sem menn töldu óhugs-
andi þrátt fyrir digurbarkaleg um-
mæli Vladimírs Pút-
íns
Rússlandsforseta í
gegnum tíðina. Um
tíma leyfðu menn
sér að halda að hann
stýrðist af einhverri
skynsemishugsun,
hann væri sannar-
lega ofbeldismaður
en einhver rök-
hugsun með skil-
greindum mark-
miðum stýrði orðum
hans og aðgerðum.
Nú má efast um slíkt
og það sem verra er,
hann verður bara hættulegri eftir
því sem hann einangrast meira. Að
lokum verðum við að treysta á að
innan rússneska hersins geti mynd-
ast andstaða sem steypi brjál-
æðingnum af stóli, vonandi með
stuðningi rússnesku þjóðarinnar.“
- - -
Vona má að eitthvað þessu líkt
gerist, en það er ekki líklegt
miðað við þá gríðarlega sterku
stöðu sem Pútín hefur í Rússlandi,
enn sem komið er að minnsta kosti.
- - -
Sigurður Már bendir á að ástæða
sé til að hafa áhyggjur af fram-
vindunni „þar sem betur og betur
er að koma í ljós að Pútín er óstöð-
ugur og enginn vafi er á því að
álagið mun segja til sín og hann því
hugsanlega freistast til að réttlæta
aðgerðir sínar með enn harðari að-
gerðum. Hugsanlega tekur hann yf-
ir Moldavíu líka, einfaldlega til að
sýna að hann geti það.“
- - -
Og Sigurður Már klykkir út með
því að Pútín sé hættulegasti
maður heims. Það er vissulega erf-
itt að benda á einhvern hættulegri
um þessar mundir.
Sigurður Már
Jónsson
Einangraður
en hættulegur
STAKSTEINAR
Vladimír Pútín
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Þetta er ekki það sem lagt var upp
með. Við teljum að þetta þurfi að leið-
rétta,“ segir Kristinn Þórðarson, for-
maður Sambands íslenskra kvik-
myndaframleiðenda.
Menningar- og viðskiptaráðuneyti
kynnti fyrir helgi til umsagnar drög
að frumvarpi til laga um breytingu á
kvikmyndalögum. Þar eru meðal
annars lagðar til þær breytingar að
styrkir til kvikmyndagerðar skuli
veittir með skilyrði um endurgreiðslu
hluta hagnaðar af tekjum kvik-
myndar. Þetta myndi þýða að kú-
vending yrði gerð á því fyrirkomulagi
sem verið hefur við lýði frá því Kvik-
myndasjóði var komið á fót fyrir
rúmum fjórum áratugum.
„Í kvikmyndastefnu stjórnvalda er
fjallað um að styðja þurfi við fram-
leiðslu, sölu og dreifingu leikinna
sjónvarpsþáttaraða í anda Norræna
kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins.
Norræni kvikmynda- og sjónvarps-
sjóðurinn styrkir framleiðslu á verk-
um í formi lána sem endurgreiðast
skv. ákveðnum reglum. Sjóðurinn á
rétt á hluta (endurgreiðsluhlutfalli)
af tekjum á heimsvísu af kvikmynd/
þáttaröð. Sambærileg heimild til
endurgreiðslu rúmast ekki innan
ákvæða kvikmyndalaga. Með
breytingarfrumvarpinu er kvik-
myndasjóði skylt að veita skilyrta
styrki í álíka formi og Norræni kvik-
mynda- og sjónvarpssjóðurinn,“ seg-
ir í kynningu á frumvarpsdrögunum.
Kristinn segir við Morgunblaðið að
kvikmyndagerðarmenn hafi sjálfir
lagt til að stofnaður yrði fjárfesting-
arsjóður fyrir leikið sjónvarpsefni og
að umrædd ákvæði um endurgreiðslu
á hluta hagnaðar sem rynni þá aftur í
sjóðinn rími við þau áform. „Þetta
átti hins vegar aldrei að snúa að kvik-
myndunum og virðist eitthvað hafa
skolast til hjá ráðuneytinu. Málið var
rætt á stjórnarfundi á föstudag og við
munum að sjálfsögðu gera athuga-
semdir við þetta,“ segir Kristinn.
hdm@mbl.is
„Virðist hafa skolast
til hjá ráðuneytinu“
- Kvikmyndagerð-
armenn ósáttir við
frumvarpsdrög
Verbúð Vinsælir sjónvarpsþættir.