Morgunblaðið - 28.02.2022, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.02.2022, Blaðsíða 8
Þór Sigurgeirsson Úrslit þriggja prófkjöra hjá Sjálf- stæðisflokknum fyrir sveitarstjórn- arkosningarnar í vor voru tilkynnt á laugardaginn. Tveir nýir oddvitar bætast í hóp- inn á meðal sjálfstæðismanna. Þór Sigurgeirsson bar sigur úr býtum í spennandi oddvitakjöri á Seltjarnarnesi þar sem fjórir sótt- ust eftir að leiða listann. Önnur varð Ragnhildur Jónsdóttir og þriðja sæti kom í hlut Magnúsar Arnar Guðmundssonar. Ragnar Sigurðs- son er nýr odd- viti sjálfstæðis- manna í Fjarðabyggð eft- ir fyrsta prófkjör flokksins í sveit- arfélaginu. Á eft- ir honum koma Kristinn Þór Jón- asson og Þórdís Mjöll Benediktsdóttir. Þá mun Mar- grét Ólöf A. Sanders áfram leiða lista sjálfstæðismanna í Reykja- nesbæ. Var hún ein í kjöri í fyrsta sæti en 10 voru í framboði um næstu fimm sæti. Annað sæti hreppti Guðbergur Reynisson og á eftir honum kemur Helga Jóhanna Oddsdóttir. Prófkjör í Hafnarfirði og Garða- bæ fara fram í vikunni og verða úr- slit þeirra ljós næsta laugardag. Þrír oddvitar kjörnir um helgina - Tveir nýir leiða lista D-lista - Margrét leiðir áfram í Reykjanesbæ í vor Margrét Sanders Ragnar Sigurðsson 8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022 Miklu meira, en bara ódýrt Hálkubroddar 895 Snjósköfur Verð frá kr. 1.495 Bílrúðu- sköfur Verð frá kr. 395 Rassaþotur 495 Dráttartóg 2tonn 4m 2.485 Rúðuvökvi 995 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn 4(,#$!-# /.# 6$;7% 1&*# /.# 6$;759"% .2)# /.# ;"$;7% *),# /.# ;:$;8 Startkaplar frá2.985 3,0'*/'<)+ Verð frá kr. 1.985 Sigurður Már Jónsson blaðamað- ur fjallar um innrás Rússa í Úkraínu og segir að allt í einu hafi „það gerst sem menn töldu óhugs- andi þrátt fyrir digurbarkaleg um- mæli Vladimírs Pút- íns Rússlandsforseta í gegnum tíðina. Um tíma leyfðu menn sér að halda að hann stýrðist af einhverri skynsemishugsun, hann væri sannar- lega ofbeldismaður en einhver rök- hugsun með skil- greindum mark- miðum stýrði orðum hans og aðgerðum. Nú má efast um slíkt og það sem verra er, hann verður bara hættulegri eftir því sem hann einangrast meira. Að lokum verðum við að treysta á að innan rússneska hersins geti mynd- ast andstaða sem steypi brjál- æðingnum af stóli, vonandi með stuðningi rússnesku þjóðarinnar.“ - - - Vona má að eitthvað þessu líkt gerist, en það er ekki líklegt miðað við þá gríðarlega sterku stöðu sem Pútín hefur í Rússlandi, enn sem komið er að minnsta kosti. - - - Sigurður Már bendir á að ástæða sé til að hafa áhyggjur af fram- vindunni „þar sem betur og betur er að koma í ljós að Pútín er óstöð- ugur og enginn vafi er á því að álagið mun segja til sín og hann því hugsanlega freistast til að réttlæta aðgerðir sínar með enn harðari að- gerðum. Hugsanlega tekur hann yf- ir Moldavíu líka, einfaldlega til að sýna að hann geti það.“ - - - Og Sigurður Már klykkir út með því að Pútín sé hættulegasti maður heims. Það er vissulega erf- itt að benda á einhvern hættulegri um þessar mundir. Sigurður Már Jónsson Einangraður en hættulegur STAKSTEINAR Vladimír Pútín Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ „Þetta er ekki það sem lagt var upp með. Við teljum að þetta þurfi að leið- rétta,“ segir Kristinn Þórðarson, for- maður Sambands íslenskra kvik- myndaframleiðenda. Menningar- og viðskiptaráðuneyti kynnti fyrir helgi til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á kvikmyndalögum. Þar eru meðal annars lagðar til þær breytingar að styrkir til kvikmyndagerðar skuli veittir með skilyrði um endurgreiðslu hluta hagnaðar af tekjum kvik- myndar. Þetta myndi þýða að kú- vending yrði gerð á því fyrirkomulagi sem verið hefur við lýði frá því Kvik- myndasjóði var komið á fót fyrir rúmum fjórum áratugum. „Í kvikmyndastefnu stjórnvalda er fjallað um að styðja þurfi við fram- leiðslu, sölu og dreifingu leikinna sjónvarpsþáttaraða í anda Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins. Norræni kvikmynda- og sjónvarps- sjóðurinn styrkir framleiðslu á verk- um í formi lána sem endurgreiðast skv. ákveðnum reglum. Sjóðurinn á rétt á hluta (endurgreiðsluhlutfalli) af tekjum á heimsvísu af kvikmynd/ þáttaröð. Sambærileg heimild til endurgreiðslu rúmast ekki innan ákvæða kvikmyndalaga. Með breytingarfrumvarpinu er kvik- myndasjóði skylt að veita skilyrta styrki í álíka formi og Norræni kvik- mynda- og sjónvarpssjóðurinn,“ seg- ir í kynningu á frumvarpsdrögunum. Kristinn segir við Morgunblaðið að kvikmyndagerðarmenn hafi sjálfir lagt til að stofnaður yrði fjárfesting- arsjóður fyrir leikið sjónvarpsefni og að umrædd ákvæði um endurgreiðslu á hluta hagnaðar sem rynni þá aftur í sjóðinn rími við þau áform. „Þetta átti hins vegar aldrei að snúa að kvik- myndunum og virðist eitthvað hafa skolast til hjá ráðuneytinu. Málið var rætt á stjórnarfundi á föstudag og við munum að sjálfsögðu gera athuga- semdir við þetta,“ segir Kristinn. hdm@mbl.is „Virðist hafa skolast til hjá ráðuneytinu“ - Kvikmyndagerð- armenn ósáttir við frumvarpsdrög Verbúð Vinsælir sjónvarpsþættir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.