Morgunblaðið - 28.02.2022, Page 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022
„KÁRI KVIÐA HÉR MEÐ VEÐURSPÁ
VIKUNNAR.“
„HREGGVIÐUR, SEM ÉG ER LIFANDI MAÐUR,
ÉG ER AÐ TALA VIÐ ALVÖRU ÞÓRSEÐLU.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vilja að þú vitir að
ég er þinn.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HVAÐ SEGIRÐU,
LÍSA?
JÓN…
JÓN…
LÍKAR ÞÉR EKKI ÞEGAR
GRETTIR ER VONDUR VIÐ MIG? ÞÚ ERT AÐ
TALA VIÐ
SVAMP
OG ÞARF HANN AÐ
LÉTTAST?
HRÓLFUR!
BÁTURINN ER
AÐ SÖKKVA!
ER HANN
FULLUR AF
SJÓ?
NEI! BJÓRNUM
ÞÍNUM!
ÉG
ELSKA
ÞIG
Ellertsdóttir, f. 20.9. 1938, d. 23.8.
2012, geðhjúkrunarfræðingur. Þau
bjuggu í Vorsabæ 18, 110 Reykjavík
þar sem Mats býr enn. „Arndís,
elskulega konan mín, vann lengi
sem hjúkrunarkona og síðan í fyrir-
tækinu með mér. Við ferðuðumst
töluvert saman hér heima og víða
erlendis.“ Foreldrar Arndísar voru
hjónin Anna Ársælsdóttir, f. 13.12.
1913, d. 30.9. 1997, og Ellert Ág.
Magnússon prentari, f. 4.8. 1913, d.
17.6. 1997. Þau bjuggu í Hólmgarði
4, Reykjavík.
Börn Mats og Arndísar eru 1)
Margit Johanne Robertet, f. 3.3.
1965, viðskiptafræðingur í Reykja-
vík. Börn hennar eru Manon Rober-
tet, f. 31.7. 1997, og Eliot Robertet,
f. 21.2. 2003; 2) Anita Björk Lund, f.
24.2. 1967, tölvunar- og hugbúnaðar-
fræðingur í London. Sonur hennar
er Hlynur Smári Sveinbjörnsson, f.
11.3. 1994; 3) Carl Mathias Christo-
pher Lund, f. 22.8. 1973, ljósmynd-
ari í Reykjavík, giftur Maríu Ell-
ingsen, f. 22.1. 1964, leikkonu. Börn
hans úr fyrra hjónabandi með Mar-
gréti Rúnarsdóttur eru Bjargey
Lund, f. 28.8. 1997, Arndís Lund, f.
16.7. 1999, og Ari Carl Lund, f.
21.11. 2003.
Systir Mats er Magdalene Kier-
ulf, f. 3.3. 1940, innanhússarkitekt í
Larvik í Noregi.
Foreldrar Mats voru hjónin Edith
Wibe Lund, f. 13.12. 1906, d. 17.2.
1998, innanhússarkitekt, og Mats
Wibe Lund sr., f. 13.7. 1907, d. 29.6.
1988, viðskiptafræðingur og stór-
kaupmaður. Þau bjuggu í Holmen-
kollen í Ósló.
Mats
Christopher
Wibe Lund yngri
Jacob Christopher Lund
héraðslæknir í Ringebu
Caspara Amalie Altenburg
húsmóðir í Ringebu í
Guðbrandsdal, síðar í Ósló
Carl Mathias Christopher
Altenburg Lund
skattstjóri í Ósló
Margit Johanne Jenssen
húsmóðir í Ósló
Mats Christopher
Wibe Lund eldri
viðskiptafræðingur og
stórkaupmaður í Ósló
Lauritz Nikolai Jenssen
stórkaupmaður,
kaupskipaútgerðarmaður og
skógareigandi í Verdal
Elise Marie Eide
húsmóðir í Verdal í Þrændalögum
Jan Herman Helms Meyer
hæstaréttarlögmaður og
kaupskipaútgerðarmaður í Bergen
Petra Amalie Meyer, f. Hansen
húsmóðir í Bergen
Rolf Meyer
verkfræðingur í Frakklandi, stjúpfaðir
Edith var Jakob Kristofer Meyer skipstjóri
og blaðamaður í Ósló, bróðir Rolfs
Magdalena Thesen Meyer
húsmóðir í Ósló
Johan Rask Jentopht Thesen
stórkaupmaður í Bergen
Ulrikke Arentine Greve
húsmóðir í Bergen
Ætt Mats Wibe Lund
Edith Ulrikke Meyer
innanhússarkitekt og
húsmóðir í Ósló
Á Boðnarmiði rifjar Anna Þor-
björg Ingólfsdóttir upp „vísu
Þorbjargar Árnadóttur (1793-1862)
í Langhúsum, langömmu Erlu
skáldkonu, um góuna (gagaravilla,
stímuð)“:
Rastir saman frjósa fast,
festir góa slæman gest,
kastar éljum kynja hast,
kestir snjóa hylja flest.
Helgi Ingólfsson orti á miðviku-
dag út af fréttum dagsins:
Hver af sínum dregur dám,
dýrt mun skæruliðagengið.
Þetta hugtak, „hefndarklám“,
hefur inntak nýtt víst fengið.
Eggert J. Levy um „útiveru“:
Fagur snjór í fjallasal
fyllir hugskot sálar
frjálsræði í fögrum dal
ferðaleiðir hálar.
Maðurinn með hattinn yrkir:
Að fífl á jörðu finnist enn,
fréttir margar styðja.
Held ég nú að hefjist senn
heimsstyrjöldin þriðja.
Starri Hjartarson:
Afléttingar okkur gleðja
aftur verður tíðin blíð.
Gleðin reyndist glötuð leðja
því gangsett var nú annað stríð.
Hallmundur Kristinsson bætir
við:
Hví býr ekki hver að sínu,
hvað eru menn að spá?
Þróun mála í Úkraínu
er ekki gott að sjá.
Gott er að rifja upp limrur Dav-
íðs Hjálmars Haraldssonar, – Fyrr
og nú:
Áður þá ungbarn var getið
var endalaust legið og setið
og elskast og daðrað
og umlað og blaðrað.
Allt fer það núna um Netið.
Vorannir:
Bændur nú brasa og saga
og brotgjarnar vélar þeir laga.
Aðrir sá byggi
en aumingja Siggi
er úti með ærnar í haga,
Matreiðsla:
Hávarður, kenndur við kokk, fisk
kryddleginn eldar og smokkfisk
og sæbjúgað dýra
og sérunninn hlýra
en konan hans, Pála, fær plokkfisk.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hefndarklám og
ærnar í haga