Morgunblaðið - 28.02.2022, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.02.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022 „KÁRI KVIÐA HÉR MEÐ VEÐURSPÁ VIKUNNAR.“ „HREGGVIÐUR, SEM ÉG ER LIFANDI MAÐUR, ÉG ER AÐ TALA VIÐ ALVÖRU ÞÓRSEÐLU.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vilja að þú vitir að ég er þinn. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HVAÐ SEGIRÐU, LÍSA? JÓN… JÓN… LÍKAR ÞÉR EKKI ÞEGAR GRETTIR ER VONDUR VIÐ MIG? ÞÚ ERT AÐ TALA VIÐ SVAMP OG ÞARF HANN AÐ LÉTTAST? HRÓLFUR! BÁTURINN ER AÐ SÖKKVA! ER HANN FULLUR AF SJÓ? NEI! BJÓRNUM ÞÍNUM! ÉG ELSKA ÞIG Ellertsdóttir, f. 20.9. 1938, d. 23.8. 2012, geðhjúkrunarfræðingur. Þau bjuggu í Vorsabæ 18, 110 Reykjavík þar sem Mats býr enn. „Arndís, elskulega konan mín, vann lengi sem hjúkrunarkona og síðan í fyrir- tækinu með mér. Við ferðuðumst töluvert saman hér heima og víða erlendis.“ Foreldrar Arndísar voru hjónin Anna Ársælsdóttir, f. 13.12. 1913, d. 30.9. 1997, og Ellert Ág. Magnússon prentari, f. 4.8. 1913, d. 17.6. 1997. Þau bjuggu í Hólmgarði 4, Reykjavík. Börn Mats og Arndísar eru 1) Margit Johanne Robertet, f. 3.3. 1965, viðskiptafræðingur í Reykja- vík. Börn hennar eru Manon Rober- tet, f. 31.7. 1997, og Eliot Robertet, f. 21.2. 2003; 2) Anita Björk Lund, f. 24.2. 1967, tölvunar- og hugbúnaðar- fræðingur í London. Sonur hennar er Hlynur Smári Sveinbjörnsson, f. 11.3. 1994; 3) Carl Mathias Christo- pher Lund, f. 22.8. 1973, ljósmynd- ari í Reykjavík, giftur Maríu Ell- ingsen, f. 22.1. 1964, leikkonu. Börn hans úr fyrra hjónabandi með Mar- gréti Rúnarsdóttur eru Bjargey Lund, f. 28.8. 1997, Arndís Lund, f. 16.7. 1999, og Ari Carl Lund, f. 21.11. 2003. Systir Mats er Magdalene Kier- ulf, f. 3.3. 1940, innanhússarkitekt í Larvik í Noregi. Foreldrar Mats voru hjónin Edith Wibe Lund, f. 13.12. 1906, d. 17.2. 1998, innanhússarkitekt, og Mats Wibe Lund sr., f. 13.7. 1907, d. 29.6. 1988, viðskiptafræðingur og stór- kaupmaður. Þau bjuggu í Holmen- kollen í Ósló. Mats Christopher Wibe Lund yngri Jacob Christopher Lund héraðslæknir í Ringebu Caspara Amalie Altenburg húsmóðir í Ringebu í Guðbrandsdal, síðar í Ósló Carl Mathias Christopher Altenburg Lund skattstjóri í Ósló Margit Johanne Jenssen húsmóðir í Ósló Mats Christopher Wibe Lund eldri viðskiptafræðingur og stórkaupmaður í Ósló Lauritz Nikolai Jenssen stórkaupmaður, kaupskipaútgerðarmaður og skógareigandi í Verdal Elise Marie Eide húsmóðir í Verdal í Þrændalögum Jan Herman Helms Meyer hæstaréttarlögmaður og kaupskipaútgerðarmaður í Bergen Petra Amalie Meyer, f. Hansen húsmóðir í Bergen Rolf Meyer verkfræðingur í Frakklandi, stjúpfaðir Edith var Jakob Kristofer Meyer skipstjóri og blaðamaður í Ósló, bróðir Rolfs Magdalena Thesen Meyer húsmóðir í Ósló Johan Rask Jentopht Thesen stórkaupmaður í Bergen Ulrikke Arentine Greve húsmóðir í Bergen Ætt Mats Wibe Lund Edith Ulrikke Meyer innanhússarkitekt og húsmóðir í Ósló Á Boðnarmiði rifjar Anna Þor- björg Ingólfsdóttir upp „vísu Þorbjargar Árnadóttur (1793-1862) í Langhúsum, langömmu Erlu skáldkonu, um góuna (gagaravilla, stímuð)“: Rastir saman frjósa fast, festir góa slæman gest, kastar éljum kynja hast, kestir snjóa hylja flest. Helgi Ingólfsson orti á miðviku- dag út af fréttum dagsins: Hver af sínum dregur dám, dýrt mun skæruliðagengið. Þetta hugtak, „hefndarklám“, hefur inntak nýtt víst fengið. Eggert J. Levy um „útiveru“: Fagur snjór í fjallasal fyllir hugskot sálar frjálsræði í fögrum dal ferðaleiðir hálar. Maðurinn með hattinn yrkir: Að fífl á jörðu finnist enn, fréttir margar styðja. Held ég nú að hefjist senn heimsstyrjöldin þriðja. Starri Hjartarson: Afléttingar okkur gleðja aftur verður tíðin blíð. Gleðin reyndist glötuð leðja því gangsett var nú annað stríð. Hallmundur Kristinsson bætir við: Hví býr ekki hver að sínu, hvað eru menn að spá? Þróun mála í Úkraínu er ekki gott að sjá. Gott er að rifja upp limrur Dav- íðs Hjálmars Haraldssonar, – Fyrr og nú: Áður þá ungbarn var getið var endalaust legið og setið og elskast og daðrað og umlað og blaðrað. Allt fer það núna um Netið. Vorannir: Bændur nú brasa og saga og brotgjarnar vélar þeir laga. Aðrir sá byggi en aumingja Siggi er úti með ærnar í haga, Matreiðsla: Hávarður, kenndur við kokk, fisk kryddleginn eldar og smokkfisk og sæbjúgað dýra og sérunninn hlýra en konan hans, Pála, fær plokkfisk. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hefndarklám og ærnar í haga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.