Morgunblaðið - 28.02.2022, Side 27
Ívar Ingimarsson, fyrrverandi at-
vinnumaður og landsliðsmaður, kem-
ur nýr inn í stjórn KSÍ og fékk flest
atkvæði í stjórnarkjörinu. Hann hlaut
ásamt Sigfúsi Kárasyni, Pálma Har-
aldssyni og Borghildi Sigurðardóttur
kosningu til næstu tveggja ára. Guð-
laug Helga Sigurðardóttir, Helga
Helgadóttir, Torfi Rafn Halldórsson
og Unnar Stefán Sigurðsson hlutu
kosningu til eins árs.
_ FH-ingar eru komnir áfram í 8-liða
úrslit Coca Cola-bikars karla í hand-
knattleik. Loksins tókst að koma á
leik Harðar og FH í 16-liða úrslitunum
í gær og FH vann öruggan sigur,
38:20. FH mætir Þór frá Akureyri í 8-
liða úrslitunum, sem leikur í næst-
efstu deild eins og Hörður. Sigurliðið
mætir Íslands- og
bikarmeisturum
Vals í undan-
úrslitum á Ásvöll-
um.
_ Ómar Ingi
Magnússon átti
magnaðan leik
þegar Magdeburg
vann 19 marka sigur á Lemgo, 44:25,
í þýsku 1. deildinni í handbolta. Ómar
gerði sér lítið fyrir og skoraði 15
mörk og gaf 9 stoðsendingar þar að
auki. Gísli Þorgeir Kristjánsson
bætti við þremur mörkum fyrir
Magdeburg. Bjarki Már Elísson var
markahæstur hjá Lemgo með sjö
mörk. Magdeburg er sem fyrr í topp-
sætinu með 40 stig, sex stigum fyrir
ofan Kiel. Lemgo
er í níunda sæti.
_ Kvennalands-
liðið í handknatt-
leik hélt til Tyrk-
lands í gær þar
sem fram undan
er leikur í und-
ankeppni EM.
Arnar Pétursson landsliðsþjálfari
valdi sextán leikmenn sem mæta í
Tyrklandi miðvikudaginn 2. mars og á
Ásvöllum fjórum dögum síðar. Leik-
mannahópinn má finna á mbl.is/
sport/handbolti. Ísland er með tvö
stig eftir tvo leiki í riðlinum en Tyrk-
land er án stiga. Serbía er einnig
með tvö stig og Svíþjóð á toppnum
með fjögur stig. Fjallað verður nánar
um landsliðið í blaðinu næstu daga.
_ Miðherjinn Tryggvi Snær Hlinason
var valinn í lið umferðarinnar í Evr-
ópu í undankeppni HM í körfuknatt-
leik fyrir frammistöðuna í sigrinum
gegn Ítalíu síðasta fimmtudag. Þar er
hann ásamt Sasu Salin frá Finnlandi,
Giorgi Shermadini og Thaddus Mc-
Fadden frá Georgíu og Vladimir Mi-
hailovic frá Svartfjallalandi.
_ Danski knattspyrnumaðurinn
Christian Eriksen lék um helgina
sinn fyrsta mótsleik frá því hann fékk
hjartastopp í leik Danmerkur og Finn-
lands á EM. Eriksen kom inn á sem
varamaður á 52. mínútu fyrir Brent-
ford er liðið mátti þola 0:2-tap fyrir
Newcastle í ensku úrvalsdeildinni.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022
FRJÁLSAR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Kristján Viggó Sigfinnsson, há-
stökkvari úr Ármanni, er á hraðri
uppleið í orðsins fyllstu merkingu.
Kristján sem er aðeins tæplega 19
ára gamall vippaði sér yfir 2,20 metra
þegar hann varð Íslandsmeistari inn-
anhúss í hástökki í gær.
Meistaramót Íslands innanhúss
fór fram í Laugardalshöllinni um
helgina og Kristján reyndi við 2,23
metra en það hafðist ekki í þetta sinn.
Kristján stökk 2,15 metra á
Reykjavíkurleikunum snemma í
mánuðinum. Til stóð að hann myndi
keppa á Norðurlandamótinu í Sví-
þjóð í framhaldinu en kórónuveiru-
sýking kom í veg fyrir það. Miðað við
frammistöðuna í gær er ekki að sjá
að sýkingin sitji í Kristjáni.
Maður getur ekki varist þeirri
hugsun að við Íslendingar séum að
eignast topphástökkvara á ný en lík-
lega er fullsnemmt að spá um hversu
langt Kristján getur náð. Hann þarf
að halda áfram að bæta sig á næstu
árum en er í það minnsta kominn yfir
mikla hæð og er ekki orðinn 19 ára.
Til samanburðar má nefna að Ís-
landsmet Einars Karls Hjartarsonar
er 2,25 metrar og 2,28 metrar innan-
húss. Stökk Kristjáns í gær er hins
vegar mótsmet.
Hnífjafnar í 60 metrunum
Ekki eru neinar ýkjur að heilbrigð
samkeppni sé á milli spretthlaup-
aranna Guðbjargar Jónu Bjarnadótt-
ur og Tiönu Óskar Whitworth. Þær
komu í mark á sama tíma í 60 metra
hlaupi, 7,47 sekúndum, sem er móts-
met. Guðbjörg fékk gullverðlaunin
eftir að tímarnir höfðu verið grand-
skoðaðir. Tiana Ósk varð hins vegar
Íslandsmeistari í 200 metra hlaupi á
24,74 sekúndum. Útlit er fyrir að Ís-
landsmet Silju Úlfarsdóttur í grein-
inni innanhúss frá 2004, 23,79 sek-
úndur gæti lifað veturinn af.
Guðbjörg Jóna var ekki með í 200
metra hlaupinu í gær.
Ólympíufarinn Aníta Hinriksdóttir
er farin að spretta úr spori á ný en
hún æfir í Sviss þar sem hún er í
námi eins og fram kom á dögunum.
Aníta hljóp bæði 800 metra og 1.500
metra hlaup á ÍM um helgina en hún
keppir nú fyrir FH. Aníta hljóp 800 á
2:08,20 mínútum og 1.500 á 4:41,45
mínútum.
_ Fleiri úrslit og upplýsingar um
árangur er að finna á mbl.is.
Kristján setti mótsmet
- Hástökkvarinn ungi á uppleið
- Tiana Ósk fékk gull og silfur á MÍ
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Hástökk Kristján Viggó Sigfinnsson í loftköstum í Laugardalshöll.
Undankeppni HM karla
Ítalía – Ísland........................................ 95:87
Subway-deild kvenna
Breiðablik – Fjölnir.............................. 83:93
Valur – Grindavík ................................. 86:33
Njarðvík – Haukar ............................... 57:86
Staðan:
Njarðvík 19 13 6 1292:1228 26
Valur 19 13 6 1464:1354 26
Fjölnir 19 13 6 1586:1477 26
Haukar 18 11 7 1406:1268 22
Keflavík 18 7 11 1385:1379 14
Breiðablik 19 5 14 1373:1555 10
Grindavík 18 3 15 1237:1482 6
1. deild kvenna
KR – Fjölnir B ...................................... 96:65
Stjarnan – Ármann .............................. 62:66
ÍR – Hamar/Þór ................................... 70:66
Snæfell – Aþena/UMFK...................... 70:74
Tindastóll – Vestri ................................ 78:62
Rúmenía
Bikarkeppni, undanúrslit:
Phoenix Constanta – Satu Mare ........ 67:90
- Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 17 stig,
tók 8 fráköst og gaf tvær stoðsendingar
fyrir Constanta.
>73G,&:=/D
KNATTSPYRNA
Lengjubikar kvenna, A-deild:
Miðgarður: Stjarnan – Breiðablik ............19
Eimskipsvöllurinn: Þróttur R. – Valur ....20
Í KVÖLD!
Olísdeild karla
Fram – Víkingur................................... 25:23
Valur – KA .............................................33:20
Afturelding – HK ..................................26:25
Haukar – Grótta ................................... 38:24
Stjarnan – Selfoss................................. 26:27
Staðan:
Haukar 16 12 2 2 489:433 26
Valur 16 11 2 3 466:400 24
FH 15 11 2 2 427:376 24
ÍBV 15 9 2 4 447:444 20
Stjarnan 16 8 2 6 466:454 18
Selfoss 16 8 1 7 427:423 17
Afturelding 15 6 4 5 429:421 16
KA 16 7 1 8 443:464 15
Fram 16 6 2 8 441:453 14
Grótta 15 4 1 10 395:418 9
HK 16 1 1 14 420:470 3
Víkingur 16 1 0 15 361:455 2
Bikarkeppni karla
Hörður – FH......................................... 20:38
Grill 66-deild kvenna
Stjarnan U – HK U .............................. 27:28
ÍR – ÍBV U............................................ 25:21
FH – Selfoss.......................................... 28:28
Þýskaland
RN Löwen – Wetzlar........................... 27:30
- Ýmir Ö. Gíslason skoraði 1 fyrir Löwen.
Flensburg – Minden ............................ 31:31
- Teitur Örn Einarsson skoraði ekki fyrir
Flensburg.
Stuttgart – Bergischer ....................... 27:26
- Viggó Kristjánsson skoraði 4 fyrir
Stuttgart en Andri Rúnars skoraði ekki.
- Arnór Þór Gunnarsson skoraði 5 mörk
fyrir Bergischer.
B-deild:
Ludwigshafen – Aue ........................... 23:25
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 6
mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson
varði 5 skot í marki liðsins.
Ferndorf – Emsdetten ........................ 33:24
- Örn Vésteinsson skoraði 4 mörk fyrir
Emsdetten en Anton Rúnars skoraði ekki.
Coburg – Essen.................................... 24:25
- Tumi Steinn Rúnarsson skoraði 1 mark
fyrir Coburg.
Danmörk
GOG – Skanderborg............................ 31:31
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði 7 skot í
marki GOG.
B-deild:
Rödovre – Aalborg .............................. 23:33
- Sandra Erlingsdóttir skoraði 4 mörk
fyrir Aalborg.
Frakkland
Saran – Aix........................................... 27:30
- Kristján Örn Kristjánsson skoraði 4
mörk fyrir Aix.
B-deild:
Dijon – Nice.......................................... 29:33
- Grétar Ari Guðjónsson varði 17 skot í
marki Nice.
Noregur
Elverum – Nærbo ................................ 44:33
- Orri Freyr Þorkelsson skoraði 8 mörk
fyrir Elverum og Aron Dagur Pálsson 1.
Svíþjóð
Guif – Önnered .................................... 33:31
- Daníel Freyr Ágústsson varði 7 skot í
marki Guif.
Lugi – Västerås.................................... 30:24
- Lilja Ágústsdóttir skoraði 4 mörk fyrir
Lugi en Ásdís Þóra Ágústsdóttir er meidd.
%$.62)0-#
HANDBOLTINN
Aron Elvar Finnsson
aronelvar@mbl.is
Spennan magnast við toppinn í Olís-
deild karla í handknattleik eftir leiki
helgarinnar en fjórir leikir fóru þá
fram. Ljóst er að allavega þrjú lið
verða í baráttunni um deildarmeist-
aratitilinn.
Topplið Hauka vann afar þægileg-
an 38:24-heimasigur á Gróttu þar
sem yfirburðir Hafnarfjarðarliðsins
voru gífurlegir. Ihor Kopyshynskiy
var markahæstur Hauka en hann
skoraði átta mörk úr jafn mörgum
skotum. Stefán Huldar Stefánsson
lék í marki Hauka í stað Arons
Rafns Eðvarðssonar en hann nýtti
tækifærið vel og varði 19 skot. Hjá
Gróttu var Ólafur Brim Stefánsson
markahæstur með sjö mörk.
Haukar eru á toppi deildarinnar
með 26 stig, tveimur meira en Valur
og FH en FH á leik til góða og getur
komist upp að hlið nágranna sinna.
Grótta er í 10. sæti með níu stig, sex
stigum frá fallsæti.
Einnig öruggt hjá Val
Valur vann einnig mjög þægilegan
heimasigur í gær þegar liðið vann
KA 33:19 á Hlíðarenda. Róbert Aron
Hostert skoraði sex mörk fyrir Val
og Björgvin Páll Gústavsson varði
17 skot í markinu. Arnór Ísak
Haddsson skoraði átta fyrir KA.
Valur er eins og áður sagði tveimur
stigum á eftir toppliði Hauka en KA
er í áttunda sæti með 15 stig.
Góður sigur Selfyssinga
Í gærkvöldi mættust Stjarnan og
Selfoss í sannkölluðum spennutrylli í
TM-höllinni í Garðabæ. Leiknum
lauk með 27:26-sigri Selfyssinga þar
sem Ragnar Jóhannsson og Guðjón
Baldur Ómarsson voru markahæstir
í liði Selfoss með sjö mörk hvor. Hjá
Stjörnunni voru Starri Friðriksson
og Þórður Tandri Ágústson marka-
hæstir með fimm mörk hvor. Selfoss
var yfir 27:25 en Stjarnan minnkaði
muninn á 59. mínútu. Tíminn sem
eftir var nýttist liðunum hins vegar
ekki til að skora og Selfyssingar
náðu í bæði stigin gegn sínum gamla
þjálfara, Patreki Jóhannessyni.
Stjarnan er í fimmta sæti deild-
arinnar með 18 stig eftir 16 leiki.
Selfoss er sæti neðar með stigi
minna eftir jafn marga leiki.
Annar dramatískur sigur
Afturelding vann eins marks sigur
í æsispennandi leik gegn HK í Mos-
fellsbæ, 26:25, þar sem Þorsteinn
Leó Gunnarsson skoraði sigur-
markið í blálokin. Leikir Mosfellinga
eru dramatískir um þessar mundir
því liðið vann einnig með marki á
lokasekúndum gegn Selfossi í síð-
ustu viku.
Blær Hinriksson skoraði sjö mörk
fyrir Aftureldingu og Einar Pétur
Pétursson skoraði átta fyrir HK.
Afturelding er í sjötta sæti með 16
stig en HK er í ellefta sæti með þrjú
stig, sex stigum frá öruggu sæti.
Á laugardaginn náði botnlið Vík-
ings að standa í Fram í Safamýrinni
en tókst þó ekki að ná í stig. Fram
náði að hanga á forskotinu í síðari
hálfleik og vann 25:23 en Fram var
yfir 14:7 að loknum fyrri hálfleik.
Vilhelm Poulsen var markahæst-
ur hjá Fram með sjö mörk en Jó-
hann Reynir Gunnlaugsson skoraði
sex fyrir Víking
Spennan magnast í efri hlutanum
- Aftur skoruðu Mosfellingar sigurmark á síðustu stundu í efstu deild karla
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Mýrin Selfyssingurinn Tryggvi Þórisson freistar þess að vippa yfir Arnór
Frey Stefánsson, markvörð Stjörnunnar, í Garðabænum í gær.