Morgunblaðið - 28.02.2022, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 28.02.2022, Qupperneq 27
Ívar Ingimarsson, fyrrverandi at- vinnumaður og landsliðsmaður, kem- ur nýr inn í stjórn KSÍ og fékk flest atkvæði í stjórnarkjörinu. Hann hlaut ásamt Sigfúsi Kárasyni, Pálma Har- aldssyni og Borghildi Sigurðardóttur kosningu til næstu tveggja ára. Guð- laug Helga Sigurðardóttir, Helga Helgadóttir, Torfi Rafn Halldórsson og Unnar Stefán Sigurðsson hlutu kosningu til eins árs. _ FH-ingar eru komnir áfram í 8-liða úrslit Coca Cola-bikars karla í hand- knattleik. Loksins tókst að koma á leik Harðar og FH í 16-liða úrslitunum í gær og FH vann öruggan sigur, 38:20. FH mætir Þór frá Akureyri í 8- liða úrslitunum, sem leikur í næst- efstu deild eins og Hörður. Sigurliðið mætir Íslands- og bikarmeisturum Vals í undan- úrslitum á Ásvöll- um. _ Ómar Ingi Magnússon átti magnaðan leik þegar Magdeburg vann 19 marka sigur á Lemgo, 44:25, í þýsku 1. deildinni í handbolta. Ómar gerði sér lítið fyrir og skoraði 15 mörk og gaf 9 stoðsendingar þar að auki. Gísli Þorgeir Kristjánsson bætti við þremur mörkum fyrir Magdeburg. Bjarki Már Elísson var markahæstur hjá Lemgo með sjö mörk. Magdeburg er sem fyrr í topp- sætinu með 40 stig, sex stigum fyrir ofan Kiel. Lemgo er í níunda sæti. _ Kvennalands- liðið í handknatt- leik hélt til Tyrk- lands í gær þar sem fram undan er leikur í und- ankeppni EM. Arnar Pétursson landsliðsþjálfari valdi sextán leikmenn sem mæta í Tyrklandi miðvikudaginn 2. mars og á Ásvöllum fjórum dögum síðar. Leik- mannahópinn má finna á mbl.is/ sport/handbolti. Ísland er með tvö stig eftir tvo leiki í riðlinum en Tyrk- land er án stiga. Serbía er einnig með tvö stig og Svíþjóð á toppnum með fjögur stig. Fjallað verður nánar um landsliðið í blaðinu næstu daga. _ Miðherjinn Tryggvi Snær Hlinason var valinn í lið umferðarinnar í Evr- ópu í undankeppni HM í körfuknatt- leik fyrir frammistöðuna í sigrinum gegn Ítalíu síðasta fimmtudag. Þar er hann ásamt Sasu Salin frá Finnlandi, Giorgi Shermadini og Thaddus Mc- Fadden frá Georgíu og Vladimir Mi- hailovic frá Svartfjallalandi. _ Danski knattspyrnumaðurinn Christian Eriksen lék um helgina sinn fyrsta mótsleik frá því hann fékk hjartastopp í leik Danmerkur og Finn- lands á EM. Eriksen kom inn á sem varamaður á 52. mínútu fyrir Brent- ford er liðið mátti þola 0:2-tap fyrir Newcastle í ensku úrvalsdeildinni. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022 FRJÁLSAR Kristján Jónsson kris@mbl.is Kristján Viggó Sigfinnsson, há- stökkvari úr Ármanni, er á hraðri uppleið í orðsins fyllstu merkingu. Kristján sem er aðeins tæplega 19 ára gamall vippaði sér yfir 2,20 metra þegar hann varð Íslandsmeistari inn- anhúss í hástökki í gær. Meistaramót Íslands innanhúss fór fram í Laugardalshöllinni um helgina og Kristján reyndi við 2,23 metra en það hafðist ekki í þetta sinn. Kristján stökk 2,15 metra á Reykjavíkurleikunum snemma í mánuðinum. Til stóð að hann myndi keppa á Norðurlandamótinu í Sví- þjóð í framhaldinu en kórónuveiru- sýking kom í veg fyrir það. Miðað við frammistöðuna í gær er ekki að sjá að sýkingin sitji í Kristjáni. Maður getur ekki varist þeirri hugsun að við Íslendingar séum að eignast topphástökkvara á ný en lík- lega er fullsnemmt að spá um hversu langt Kristján getur náð. Hann þarf að halda áfram að bæta sig á næstu árum en er í það minnsta kominn yfir mikla hæð og er ekki orðinn 19 ára. Til samanburðar má nefna að Ís- landsmet Einars Karls Hjartarsonar er 2,25 metrar og 2,28 metrar innan- húss. Stökk Kristjáns í gær er hins vegar mótsmet. Hnífjafnar í 60 metrunum Ekki eru neinar ýkjur að heilbrigð samkeppni sé á milli spretthlaup- aranna Guðbjargar Jónu Bjarnadótt- ur og Tiönu Óskar Whitworth. Þær komu í mark á sama tíma í 60 metra hlaupi, 7,47 sekúndum, sem er móts- met. Guðbjörg fékk gullverðlaunin eftir að tímarnir höfðu verið grand- skoðaðir. Tiana Ósk varð hins vegar Íslandsmeistari í 200 metra hlaupi á 24,74 sekúndum. Útlit er fyrir að Ís- landsmet Silju Úlfarsdóttur í grein- inni innanhúss frá 2004, 23,79 sek- úndur gæti lifað veturinn af. Guðbjörg Jóna var ekki með í 200 metra hlaupinu í gær. Ólympíufarinn Aníta Hinriksdóttir er farin að spretta úr spori á ný en hún æfir í Sviss þar sem hún er í námi eins og fram kom á dögunum. Aníta hljóp bæði 800 metra og 1.500 metra hlaup á ÍM um helgina en hún keppir nú fyrir FH. Aníta hljóp 800 á 2:08,20 mínútum og 1.500 á 4:41,45 mínútum. _ Fleiri úrslit og upplýsingar um árangur er að finna á mbl.is. Kristján setti mótsmet - Hástökkvarinn ungi á uppleið - Tiana Ósk fékk gull og silfur á MÍ Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Hástökk Kristján Viggó Sigfinnsson í loftköstum í Laugardalshöll. Undankeppni HM karla Ítalía – Ísland........................................ 95:87 Subway-deild kvenna Breiðablik – Fjölnir.............................. 83:93 Valur – Grindavík ................................. 86:33 Njarðvík – Haukar ............................... 57:86 Staðan: Njarðvík 19 13 6 1292:1228 26 Valur 19 13 6 1464:1354 26 Fjölnir 19 13 6 1586:1477 26 Haukar 18 11 7 1406:1268 22 Keflavík 18 7 11 1385:1379 14 Breiðablik 19 5 14 1373:1555 10 Grindavík 18 3 15 1237:1482 6 1. deild kvenna KR – Fjölnir B ...................................... 96:65 Stjarnan – Ármann .............................. 62:66 ÍR – Hamar/Þór ................................... 70:66 Snæfell – Aþena/UMFK...................... 70:74 Tindastóll – Vestri ................................ 78:62 Rúmenía Bikarkeppni, undanúrslit: Phoenix Constanta – Satu Mare ........ 67:90 - Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 17 stig, tók 8 fráköst og gaf tvær stoðsendingar fyrir Constanta. >73G,&:=/D KNATTSPYRNA Lengjubikar kvenna, A-deild: Miðgarður: Stjarnan – Breiðablik ............19 Eimskipsvöllurinn: Þróttur R. – Valur ....20 Í KVÖLD! Olísdeild karla Fram – Víkingur................................... 25:23 Valur – KA .............................................33:20 Afturelding – HK ..................................26:25 Haukar – Grótta ................................... 38:24 Stjarnan – Selfoss................................. 26:27 Staðan: Haukar 16 12 2 2 489:433 26 Valur 16 11 2 3 466:400 24 FH 15 11 2 2 427:376 24 ÍBV 15 9 2 4 447:444 20 Stjarnan 16 8 2 6 466:454 18 Selfoss 16 8 1 7 427:423 17 Afturelding 15 6 4 5 429:421 16 KA 16 7 1 8 443:464 15 Fram 16 6 2 8 441:453 14 Grótta 15 4 1 10 395:418 9 HK 16 1 1 14 420:470 3 Víkingur 16 1 0 15 361:455 2 Bikarkeppni karla Hörður – FH......................................... 20:38 Grill 66-deild kvenna Stjarnan U – HK U .............................. 27:28 ÍR – ÍBV U............................................ 25:21 FH – Selfoss.......................................... 28:28 Þýskaland RN Löwen – Wetzlar........................... 27:30 - Ýmir Ö. Gíslason skoraði 1 fyrir Löwen. Flensburg – Minden ............................ 31:31 - Teitur Örn Einarsson skoraði ekki fyrir Flensburg. Stuttgart – Bergischer ....................... 27:26 - Viggó Kristjánsson skoraði 4 fyrir Stuttgart en Andri Rúnars skoraði ekki. - Arnór Þór Gunnarsson skoraði 5 mörk fyrir Bergischer. B-deild: Ludwigshafen – Aue ........................... 23:25 - Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 6 mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson varði 5 skot í marki liðsins. Ferndorf – Emsdetten ........................ 33:24 - Örn Vésteinsson skoraði 4 mörk fyrir Emsdetten en Anton Rúnars skoraði ekki. Coburg – Essen.................................... 24:25 - Tumi Steinn Rúnarsson skoraði 1 mark fyrir Coburg. Danmörk GOG – Skanderborg............................ 31:31 - Viktor Gísli Hallgrímsson varði 7 skot í marki GOG. B-deild: Rödovre – Aalborg .............................. 23:33 - Sandra Erlingsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Aalborg. Frakkland Saran – Aix........................................... 27:30 - Kristján Örn Kristjánsson skoraði 4 mörk fyrir Aix. B-deild: Dijon – Nice.......................................... 29:33 - Grétar Ari Guðjónsson varði 17 skot í marki Nice. Noregur Elverum – Nærbo ................................ 44:33 - Orri Freyr Þorkelsson skoraði 8 mörk fyrir Elverum og Aron Dagur Pálsson 1. Svíþjóð Guif – Önnered .................................... 33:31 - Daníel Freyr Ágústsson varði 7 skot í marki Guif. Lugi – Västerås.................................... 30:24 - Lilja Ágústsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Lugi en Ásdís Þóra Ágústsdóttir er meidd. %$.62)0-# HANDBOLTINN Aron Elvar Finnsson aronelvar@mbl.is Spennan magnast við toppinn í Olís- deild karla í handknattleik eftir leiki helgarinnar en fjórir leikir fóru þá fram. Ljóst er að allavega þrjú lið verða í baráttunni um deildarmeist- aratitilinn. Topplið Hauka vann afar þægileg- an 38:24-heimasigur á Gróttu þar sem yfirburðir Hafnarfjarðarliðsins voru gífurlegir. Ihor Kopyshynskiy var markahæstur Hauka en hann skoraði átta mörk úr jafn mörgum skotum. Stefán Huldar Stefánsson lék í marki Hauka í stað Arons Rafns Eðvarðssonar en hann nýtti tækifærið vel og varði 19 skot. Hjá Gróttu var Ólafur Brim Stefánsson markahæstur með sjö mörk. Haukar eru á toppi deildarinnar með 26 stig, tveimur meira en Valur og FH en FH á leik til góða og getur komist upp að hlið nágranna sinna. Grótta er í 10. sæti með níu stig, sex stigum frá fallsæti. Einnig öruggt hjá Val Valur vann einnig mjög þægilegan heimasigur í gær þegar liðið vann KA 33:19 á Hlíðarenda. Róbert Aron Hostert skoraði sex mörk fyrir Val og Björgvin Páll Gústavsson varði 17 skot í markinu. Arnór Ísak Haddsson skoraði átta fyrir KA. Valur er eins og áður sagði tveimur stigum á eftir toppliði Hauka en KA er í áttunda sæti með 15 stig. Góður sigur Selfyssinga Í gærkvöldi mættust Stjarnan og Selfoss í sannkölluðum spennutrylli í TM-höllinni í Garðabæ. Leiknum lauk með 27:26-sigri Selfyssinga þar sem Ragnar Jóhannsson og Guðjón Baldur Ómarsson voru markahæstir í liði Selfoss með sjö mörk hvor. Hjá Stjörnunni voru Starri Friðriksson og Þórður Tandri Ágústson marka- hæstir með fimm mörk hvor. Selfoss var yfir 27:25 en Stjarnan minnkaði muninn á 59. mínútu. Tíminn sem eftir var nýttist liðunum hins vegar ekki til að skora og Selfyssingar náðu í bæði stigin gegn sínum gamla þjálfara, Patreki Jóhannessyni. Stjarnan er í fimmta sæti deild- arinnar með 18 stig eftir 16 leiki. Selfoss er sæti neðar með stigi minna eftir jafn marga leiki. Annar dramatískur sigur Afturelding vann eins marks sigur í æsispennandi leik gegn HK í Mos- fellsbæ, 26:25, þar sem Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði sigur- markið í blálokin. Leikir Mosfellinga eru dramatískir um þessar mundir því liðið vann einnig með marki á lokasekúndum gegn Selfossi í síð- ustu viku. Blær Hinriksson skoraði sjö mörk fyrir Aftureldingu og Einar Pétur Pétursson skoraði átta fyrir HK. Afturelding er í sjötta sæti með 16 stig en HK er í ellefta sæti með þrjú stig, sex stigum frá öruggu sæti. Á laugardaginn náði botnlið Vík- ings að standa í Fram í Safamýrinni en tókst þó ekki að ná í stig. Fram náði að hanga á forskotinu í síðari hálfleik og vann 25:23 en Fram var yfir 14:7 að loknum fyrri hálfleik. Vilhelm Poulsen var markahæst- ur hjá Fram með sjö mörk en Jó- hann Reynir Gunnlaugsson skoraði sex fyrir Víking Spennan magnast í efri hlutanum - Aftur skoruðu Mosfellingar sigurmark á síðustu stundu í efstu deild karla Morgunblaðið/Óttar Geirsson Mýrin Selfyssingurinn Tryggvi Þórisson freistar þess að vippa yfir Arnór Frey Stefánsson, markvörð Stjörnunnar, í Garðabænum í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.